Tíminn - 21.10.1978, Blaðsíða 8

Tíminn - 21.10.1978, Blaðsíða 8
8 l'l'l W 'l {'l11 Laugardagur 21. október 1978 á víðavangi Hverjum er þj ónað? Kópavogsvagnarnir hafa endastöb ofan viö Hlemm I Reykjavik. Einkabniinn er ekki iengur stöðutákn eöa leikfang þeirra sem hafa rúm fjárráb. Iiann er nauösyn, dýr nauösyn. Þeir sem ekki hafa umráö yfir bll eiga einatt erfitt um vik aö feröast niilli heimilis og vinnustaöar og yfirieitt aö komast af bæ. Vega- lengdir i þéttbýli aukast ár frá ári þar sem stefna skipulags- yfirvalda er greinilega aö teygja byggö um öll foldarból, aö reisa afmörkuö hverfi þar sem þröngt er um alla meö vföáttumiklum eyöum á milli. Þetta fyrirkomulag kallar á gott samgöngukerfi og er ekki aö efa aö þeir sem þaö skipu- leggja gera sitt besta til aö fólk eigi sem greiöasta leiö innan og á milli þéttbýliskjarnanna. Forsvarsmenn strætisvagna og þeirra fyrirtækja sem reka almenningsvagna hafa iöulega látiö I Ijósi þá skoöun, aö skæö- asti keppinautur þeirra sé einkabillinn og aö erfitt sé aö reka almenningsvagna á hag- kvæmastan hátt þar sem flutn- ingar séu tæpast nógu miklir miöaö viö þær kröfur sem gerö- ar eru til þjónustu þeirra. Hinu er ekki aö neita aö þeir eru fjöl- margir sem eiga erfitt meö aö notfæra sér þjónustu til aö mynda strætisvagna Reykja- vlkur, einfaldlega vegna þess aö leiöakerfiö er þeim sllkt völundarhús aö þurfi aö bregöa sér út fýrir leiöina milli heimilis og vinnustaöar, eöa þá leiö sem hver og einn þarf oftast aö fara, botnar hann eöa hún hvorki upp eöa niöur i hvernig hagkvæmast er aö komast á milli staöa og hvar og hvernig á aö skipta um vagna. En frétst hefur af fólki sem hefur þetta allt I hendi sér og kemst klakklaust um völundarhúsiö. Hagsmunir fjöldans A Stórreykjavlkursvæöinu býr nú um helmingur þjóöar- innar. Venjulega er taliö aö þetta svæöi nái yfir fimm sveit- arfélög, Reykjavik, Kópavog, Garöabæ, Ilafnarfjörö og Sel- tjarnarnes, en óhætt mun aö fara aö telja Mosfellssveit meö þar sem þéttbýl ibúöahverfi risa þar óöfluga. Aö vonum er f æ rikara mæli litiö á allt þetta þéttbýlissvæöi sem eina heild. tbúarnireiga heima I einu sveitarfélaginu en stunda vinnu eöa skólagöngu I ööru. Sama er aö segjaum verslun og alls kyns viöskipti. Landamerkin milli lögsagnarum dæmanna eru óglögg i augum Ibiíanna, þótt sveitarstjórnarmenn og emb- ættismenn þeirra viti býsna vel hvar þau liggja þegar gæta þarf hagsmuna hversogeins þeirra. Samvinna milli sveitarfé- laganna er mikil á ýmsum sviöum þótt hiin mætti sjálfsagt vera betri. En þaö sem hér skal gert aö umtalsefni er beinlinis hagsmunamál ibúanna sjálfra hvaö sem llöur annarri stjórn. Það eru feröir almennings- vagna. Þaö er næsta furðulegt aö aldrei skuli vera minnst á aö á tittnefndu þéttbýlissvæði er enn viö lýöi gamalt og löngu úrelt samgöngukerfi almenn- ingsvagna. Kerfiö er þrefalt. Þaö eru SVR, Strætisvagnar Kópavogs og Landleiöir sem halda uppi feröum milli Hafnar- fjaröar og Reykjavlkur meö viökomu I Garöabæ og Kópa- vogi. Mikiö er langlundargeö ibúanna sem hagsmuna eiga aö gæta I þessu efni. Nema þeir séu jafn steinrunnir hvaö þetta atriöi snertir og þeir sem mál- um ráöa. Þetta er búiö aö vera svona svolengi, engu veröur um breytt. Fyrir þá sem þurfa að nota þessi farartæki veldur þetta fyrirkomulag miklum aukakostnaöi og trúlega einnig þeim aöilum sem reka þetta kerfi. Veriö getur aö þaö beri vott um eitthvert sjálfstæöi viökomandi sveitarfélaga aö reka eigið almenningsvagna- kerfi, en þeim sem þurfa á þjón- ustunni aö halda stendur senni- lega nákvæmlega á sama hvernig vagnarnir eru á litinn eöa hvaöa einkennisstaf þeir bera framan viö númerið, aöeins ef þeir komast leiöar sinnar á sem auöveldastan og ódýrastan hátt, sem hlýtur aö vera mergurinn málsins. Þegar forráðamenn þessara flutninga- fyrirtækja eru aö kvarta yfir samkeppni viö einkabilinn, gleyma þeir gjarnan aö þeir eru jafnframt I samkeppni hver viö annan. Svo hönduglega er á þessum málum haldiö aö strætisvagnar frá Kópavogi og Hafnarfiröi mega ekki taka upp farþega eftir aö komiö er inn fyrir landamæri Reykjavlkur nema til aö flytja þá burtu úr borginni. Þeir stansa ekki á sömu stööum og má nærri geta hvilíkt hagræöi er aö þvi fyrir aöra umferö. Úr þessu veröur ekkert annaö en aukakostnaöur og óþægindi. Hvað er hagkvæmast? Enn er þess aö gæta aö vega- Timamyndir GE. lengdir innan sveitarfélaga nna aukast slfellt. Byggöin I Hafnar- firöi nær yfir nærfellt helmingi stærra svæöi en hún gerði fyrir áratug eða svo. Hvernig cr sam- göngumálum háttaö fyrir allan þennan fjölda sem býr uppi undir Vlfilsstööum f Garöabæ? Breiöholtshverfin eru farin aö slá hálfhring um Kópavog. Samt er óravegur milli þessara þéttbýlissvæða ef taka þarf strætisvagn eöa öllu heldur strætisvagna. Er ekki timi til kominn aö menn fari aö velta þvi fyrir sér hvernig hagkvæmast er aö skipa þessum málum og taka þá fyrst og fremst tillit til ibúanna, sem þurfa á þjónustunni aö halda en ekki eitthvert imyndaö sjálfstæöi sveitarfélaganna? Seltirningar eiga ekkert strætis- vagnafyrirtæki. SVR ' sér um fólksflutninga þar og enginn kvartar. Þvert á móti kunna þarlendir vel aö meta þjónust- una og greiöir bæjarsjóöur Seltirninga sinn hundraðshluta af taprekstri SVR. Hér er ekki verið aö leggja til aö SVR taki aö sér alla fólks- flutninga á Stórreykjavikur- svæöinu heldur aö sveitarfélög- in öll sameinist um aö halda uppi greiöfæru almennings- flutningakerfi innan svæöisins. Veriö gæti að menn sæju sér fremur hag i þvi aö nota almenningsvagna en rándýra einkablla, svo ekki sé talað um þjóöhagslegan ávinning, sem sparnaöur rándýrs eldsneytis mundi veröa. OÓ. Strætisvagnar Hafnarfjaröar hafa endastöö á Hvaleyrarholti og I Lækjargötu. Heímsfrægur plötu- snúður... Kid Jensen skenuntir á íslandi ESE—Næstkomandi sunnudags- kvöld mun hinn heimsfrægi plötu- snúöur og útvarpsmaöur Kid Jensen skemmta gestum á veit- ingastaönum Hollywood, auk þess sem hann mun koma fram I einkasamkvæmi sem Hollywood heldur fastagestum hússins. Kid heitir réttu nafni David Alan Jensen. Hann er 28 ára að aldri, fæddur i Victoria I Bresku Columbiu t Kanada. Feril sinn sem iHvarpsplötusnúðurhóf hann aðeins sextán ára aö aldri og kynnti fyrst i stað sigilda tónlist. Hann sneri sér fljótlega að popp- tónlistinni, en átján ára réðst hann til Radio Luxemburg. Þá var hann langyngsti plötusnúður útvarpsstöðvarinnar og hlaut þvi viðurnefniö ,,Kid”. Alls starfaði hann i' sex og hálft ár i Luxemburg. Þáttur hans, Jensen’s Dimensions, sem sendur var út seint á kvöldin, átti sér glfurlega stóran hlustendahóp um aUa Evrópu, þar á meöal á tslandi. Þá var Kid einnig kynnir vikulegs poppþáttar, „45”, hjá Granada Television Ariö 1975 réðst Kid Jensen til útvarpsstöðvarinnar Radio Trent I Nottingham I Englandi. Þar starfaði hann um skeið, uns hann réöist til BBC. 1 Radio 1 fékk hann þaö hlutverk að leysa af hólmi einn þekktasta og virtasta útvarpsplötusnúð i heimi, Emperor Rosco, er sá siðarnefndi fluttist til Ameriku. Kid tók við þætti Roscos á laugardags- morgnum og starfaöi viö hann þar til i april siðastliðnum. t grein i Melody Maker 2. september siðastliöinn er fariö nokkrum oröum um útvarpsþátt Kid Jensens. Þar segir að þáttur- inn hafi tekið róttækum breyt- ingum frá þvi að Kid tók við honum, og sé það helst honum að þakka að Radio 1 risi úr meöal- mennskunni öðru hvoru. Greinar- höfundurinn, Harry Doherty, segir aö tetimaþátturinn, sem áður fyrrhafi verið barnalegur og einfaldur, sé nú einna helst tekinn að llkjast efnisriku timariti fremur en venjulegum útvarps- þætti.' Þá tekur greinarhöfundur það sérstaklega fram aö Kid Jensen hafi á sinum tima ljáð nýbylgju- tónlistinni svonefndu eyra og átt stóran þátt i að sú umdeilda tón- listarstefna öðlaðist þá viður- kenningu, sem henni hefur hingaö til hlotnast. Kid Jensen kvæntist árið 1975 islenskri konu, Guörún Þórarins- dóttur, þáverandi flugfreyju. Þau eiga eina dóttur barna.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.