Tíminn - 08.11.1978, Síða 5

Tíminn - 08.11.1978, Síða 5
 Miðvikudagur 8. nóvember 1978 5 SAMBANDIÐ BYGGINGAVQRUR SUDURLANDSBRAUT 32- EINNIG INNAKSTUR FRÁARMÚLA29 Alþjóöasiglingamálastofnunin: Norræna húsið: Metsöluhöfundur- inn Angelo Hjort kynnir bækur sínar -1 kvöld Danski rithöfundurinn Angelo Hjort kom til landsins I gær I boði Norræna hússins og dvelst hér i viku. Hann kynnir bækur sinar á miðvikudagskvöld 8. nóv. og einnig verður hann gestur „Det danske selskab” næstkomandi laugardag. Angelo Hjort hefur starfað við margt um dagana. Hann hefur siglt um heimsins höf, verið veit- ingamaður hér og þar, m.a. á Akureyri 1962, og einnig unnið sem blaðamaður. Hann gaf út fyrstu bókina „Jeg er ikke bange” 1956, sem litla athygli vakti. En tólf árum siðar „sló hann i gegn” meö bókinni „Rappe tider” og siöan hefur hver bókin rekið aðra, m.a. „Röverhistorier og söforklaringer” og „Du er ikke rigtig klog”. 1 fyrra kom út bókin „De fædrelandslöse” sem vakti mikla athygli, fékk mjög góða dóma, auk verðlauna,—og hefur þegar selst i yfir 70.000 eintökum. Bókin fjallar um skuggahliðar Kaupmannahafnar, gamla Borgergade—hverfið og ibúa þess, og þykir hún skörp ádeila á stjórnarstefnu jafnaðarmanna, bæði á dögum Staunings, og nú á timum. Nú I vetur er væntanlegt annaö bindi bókarinnar „Patrioterne" fjallar hún um striösárin og and- spyrnuhreyfinguna i Kaup- mannahöfn, einkum i sama Borgergade-hverfinu. Angelo Hjort kynnir bækur sinar i samkomusal Norræna hússins á miðvikudagskvöld kl. 20.30 og er öllum heimill aðgangur. Vamir gegn sjávax mengun Dagana 9.-13. október 1978 var i aöalstöðvum Alþjóðasiglinga- málastofnunarinnar (IMCO) I London haldinn þriðji fundur aðildarríkja aöþjóöasamningsins um varnir gegn mengun hafsins vegna losunar úrgangsefna og annarra efna i það. 1 upphafi þessa fundar aðildar- rikjanna var fulltrúi Islands, Hjálmar R. Bárðarson, siglinga- málastjóri, endurkosinn for- maöur til eins árs, en hann hefur gegnt starfi formanns frá upphafi. Fyrsti varaformaður var kosinn F.S. Terziev frá Sovét- rikjunum og annar varaformaður F. Gonzalez frá Mexikó. I ávarpi sem framkvæmda- stjóriIMCO hélt i upphafi fundar- ins skýröi hann frá aögerðum IMCO varðandi varnir gegn mengun hafsins frá þvl að sfðasti fundurvarhaldinn.ogþó einkan- lega i kjölfar strands olluflutn- ingaskipsins „Amoco Cadiz” við Frakklandsstrendur i mars 1978 og lýsti afleiöingum þess. A dagskrá fundarins voru ýmis mikilvæg mál er varða varnir gegn mengun sjávar. Tvær nefndir störfuöu að sérstökum verkefnum, laganefnd sem fjallaöi um breytingu samn- ingsins og viöauka um lausn (Ný ljóöabók: Ljós- brot — eftir Kristján Kristmundsson Ljósbrot heitir ljóðabók, sem nýlega er komin út. Höfundur hennar er Kristján Krist- mundsson, og er bókin gefin út á kostnað hans. Hann kallar kvæðin vakningarljóð. A bókarkápu eru upplýsingar um höfundinn, sem verður sjötugur á þessu hausti. Þar segir m.a. á þessa leið: „Fyrir liölega tveimur ára- tugum uröu þau straumhvörf i lifi Kristjáns, er leiddu huga hans og athafnir til lifandi trúar, og væntir hann þess að ljóðakorn þessi mættu vekja einhverja til umhugsunar um eilifðar vegferð kynslóöanna.” deilumála miUi aðildarrikjanna o.fl. og vtsinda- og tækninefnd. Settar voru reglur um kröfur varðandi eyöingu efna meö brennslu um borð I skipum á hafi úti , en mjög fer I vöxt aö hættu- legum efnum sé eytt um borb i skipum. Þó eru ekki allir sáttir vib þessa lausn mála, en viður- kennt er aö ennþá hafa ekki i öllum tilvikum fundist betri lausnir tU að gera sum hættuleg efni skaölaus eða skaðlitil umhverfinu og bar brýna nauðsyn til aö setja alþjóðlegar reglur um þessa eyöingaraöferö. Einnig var rædd tillaga Alþjóðakjarnorkustofnunarinnar um reglur og kröfur varöandi takmarkaða losun geislavirkra efna i hafiö. Mikil andstaða er gegn þvi, að nokkur slik efni séu losuö i hafið, jafnvel þótt vel sé frá þeim gengið. Er losun nú aðeins leyfðundir ströngu eftirliti og á örfáaum stöðum milli 50 gráöu norölægrar og 50 gráðu suðlægrarbreiddar, þar sem dýpi sjávar er mest, og alls ekki á minna dýpi en 4000 metrum. Þá var á dagskrá fundarins skýrslugerðum losunefna I hafið, tæknileg aöstoð varðandi varnir gegn mengun hafsins, samvinna og samstarf við ýmsar sér- stofnanir og verkefni þau, sem framundan eruhjá aðildarrikjum alþjóöasamnings þessa. Næsti fundur aðildarrikjanna verður haldinn i október 1979, en tvær undimefndir munu hafa fundi I byrjun næsta árs til að vinna að undirbúningi verkefna. Japis h.f.: Ný verslun með hljómflutningstæki og sjónvörp Nýlega var opnuð ný verslun, Japis h.f. á horninu á Lækjar- götu og Austurstræti. Japis h.f. er skammstöfun á Japansk—islenska verslunar- féiagið, en það félag hefur fengið umboð fyrir Sony hljómflutningstæki og sjón- vörp á Islandi. A meðfylgjandi mynd eru (taiið frá vinstri) Kenichi Takefusa framkvæmdastjóri, Orn Georgsson, Þóra Hall- grimsdóttir og Helga Theódórsdóttir, en þær Þóra og Helga eru I stjórn Japis h.f. ÍLj^LjLÍ Auglýsinga- deild Tímans- Angelo Hjort, danski rithöfundurinn. BAÐSLAR Baðhengi (margir litir) — Hringir fyrir baðhengi — Rennihurðir fyrir böð

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.