Tíminn - 30.11.1978, Síða 6
6
Fimmtudagur 30. nóvember 1978
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson og Jón Sigurösson. Auglýsinga-
stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur,
framkvæmdastjór<n og' auglýsingar Sibumúla 15. Simi
86300. , " *
Kvöldsimar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00:
86387. Veröilausasölukr. 110.00. Askriftargjald kr. 2.200 á’
^ mánuöi.______ Blaöaprenth.f. ^
Harmleikur Siálf-
stæðisflokksins
Morgunblaðið hefur likt þeim atburðum, sem
gerzt hafa i sambandi við efnahagsaðgerðirnar nú,
sem harmleik. Visir hefur tekið undir þetta. Þá
eiga þessi blöð við þau vonbrigði sin, að Alþýðu-
flokkurinn rauf ekki stjórnarsamstarfið, eins og
þau höfðu gert sér sterklega vonir um á timabili.
Liklegasta framhald þess hefði orðið samvinna
Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuflokksins með ein-
um eða öðrum hætti. Ritstjórar Mbl. og Visis töldu
sig eygja þá sýn skammt undan, að Geir Hall-
grimsson væri orðinn forsætisráðherra að nýju og
Matthias Mathiesen fjármálaráðherra. Þessar
vonir brustu og Mbl. og Visir urðu fyrir slikum
vonbrigðum, að Mbl. likti þeim við harmleik.
Annars er það ekki f jarri lagi að tala um harm-
leik i sambandi við þessa atburði. Alþýðuflokkur-
inn er hins vegar ekki aðalpersóna þeirrar sögu,
heldur Sjálfstæðisflokkurinn. Sjálfstæðisflokkur-
inn hefur brugðizt þannig við umræddum efna-
hagsaðgerðum, að óviðkomandi menn og jafnvel
andstæðingar hans, geta ekki annað en kennt i
brjósti um hann og haft vissa samúð með forustu-
mönnum hans. Framkoma þeirra er hörmulegt
dæmi um, hvernig stjórnarandstaða á ekki að
haga sér, þegar þjóð er i vanda.
Það dylst áreiðanlega ekki neinum, sem eitt-
hvað ihugar þau mál, að þjóðin er i verulegum
vanda. Vandinn er ekki minni vegna þess, að hún
getur sjálf kennt sér um hann að miklu leyti. Oft er
erfiðast að fást við vandamál, þegar þau hafa orð-
ið til á þann hátt. Vegna kröfuhörku stétta og
þrýstihópa, hefur skapazt hér meiri verðbólga en i
nálægum löndum.
Engum ætti að vera þetta ljósara en forustu-
mönnum Sjálfstæðisflokksins, sem þurftu að
glima við þetta vandamál siðasta kjörtímabil,
ásamt forustumönnum Framsóknarflokksins.
Alveg sérstaklega mætti þeim vera ljóst, að fátt
eykur meira þennan vanda og torveldar allar að-
gerðir en ósanngjörn og óbilgjörn stjórnarand-
staða. Það er ekki hægt að benda á margt, sem
rikisstjórn Geirs Hallgrimssonar gerði jákvætt,
sem ekki var rangtúlkað og afflutt af forustu-
mönnum Alþýðubandalagsins og Alþýðuflokksins
á þeim tima. Þetta náði þó hámarki sinu i sam-
bandi við efnahagsaðgerðirnar á siðastl. vetri.
Hafinn var geysilegur áróður til að ófrægja þær og
sérstök rækt lögð við að lýsa þeim sem kaupráni.
Þessi áróður heppnaðist furðu vel, þótt öllum
mætti vera ljóst, að án þessara aðgerða hefði
komið til stöðvunar atvinnuveganna, sem leitt
hefði til atvinnuleysis og launaskerðingar hjá
fjölda manns. Tap launastéttanna hefði þá orðið
mörgum sinnum meira.
Þetta mætti enn vera leiðtogum Sjálfstæðis-
flokksins eftirminnilegt. Samt fara þeir nú i fyrri
slóð Alþýðubandalagsins og Alþýðuflokksins og
nota nú flest slagorð þeirra frá siðastl. vetri. 8%
kauprán og 27.5 milljarða visitöluskerðing voru
aðalfyrirsagnir Mbl. i fyrradag. Þetta var eins og
tekið upp úr Þjóðviljanum eða Alþýðublaðinu á
siðastl. vetri.
Leiðtogar Sjálfstæðisflokksins og ritstjórar Mbl.
vita vel að aðgerðirnar nú eru óhjákvæmilegar og
eru áfangi i rétta átt. öllum áróðursvélum Sjálf-
stæðisflokksins er þá beitt til að leyna þvi. Hrópin
um kauprán skulu yfirgnæfa allt annað eins og á
siðastl. vetri. Það er harmsaga, að stærsti flokkur
. þjóðarinnar skuli haga sér á þennan hátt. Þ.Þ.
Erlent yfirlit
Eanes nýtur meira
trausts en vinsælda
Fellir þingið tiundu ríkisstjórnina?
I ÞESSARI viku eöa byrjun
næstu viku verbur portúgalska
þingiö aö taka afstööu til stefnu-
skrár nýrrar rikisstjórnar, sem
lokiö var aö mynda I vikunni,
sem leiö. Forsætisráöherra
hennar er Carlos Mota Pinto, en
Eanes forseti fól honum
stjórnarmyndun 25. október
slbasd. Taki þingiö ekki já-
kvæöa afstööu til stefnu hinnar
nýju rikisstjórnar, veröur hiln
aö segja af sér og Eanes forseti
hefurþá um þaö aö velja, hvort
hann vUl gera eina stjórnar-
myndunartilraun enn eöa rjUfa
þingiö.
Stjórnaskipti hafa veriö tiö 1
PortUgal siöan einræöisstjórn-
' inni þar var steypt af stóli i april
1974. Meöan herforingjarnir
fóru meö stjórn, uröu allmörg
stjórnaskipti vegna ósamkomu-
lags milli þeirra innbyröis. Alls
voru myndaöar sex rikisstjórnir
á þeim tima. Haustiö 1975 fóru
fram kosningar til sérstaks
stjórnlagaþings og lauk þab
störfum voriö 1976 og fóru fram
reglulegarþingkosningar þá um
sumariö. Sósialistaflokkurinn
undir forustu Soares hlaut mest
fylgi eba 106 þingsæti, sóslal-
demókratar hlutu 71 þingsæti,
kristilegir demókratar eöa miö-
demókratar hlutu 41 þingsæti,
kommúnistar 40 þingsæti og
smáflokkur einn hlaut 1 þing-
sæti. Eftir þessar kosningar
myndaöi Soares, minnihluta-
stjórn sósialista, sem fór meö
völd þangab til I desember 1977.
Eftir allmikiö þóf myndaöi
Soares samsteypust jórn
sósíalista og miödemókrata en
samvinna þeirra rofnaöi I júll-
mánuöi siöastl. vegna ágrein-
ings um landbúnaöarmálin.
ÞEGAR hér var komiö, reis
upp ágreiningur milli Soares og
Eanes forseta. Soares vildi helzt
mynda minnihlutast jórn
sósialistaenEanes vildimynda
rikisstjórn á breiöum grund-
velli. Agreiningurinn leiddi til
þess, að Eanes vék stjórn
Soares frá völdum og hóf sföan
viöræöur viö flokkana um
myndun stjórnar, sem þeir
stæbu allir aö eöa sem flestir
þeirra. Þegar þessar viöræöur
reyndust árangurslausar, fól
Eanes þekktum fjármála-
manni, Nobre da Costa, stjórn-
armyndun I ágústmánuöi, og
lauk hann henni innan tveggja
vikna.
Eanes forseti.
Costa naut þess ekki aö hafa
átt sæti i stjórn hjá Soares um
skeiö. Hinn 14. september
hafnaöi þingiö stefnuyfirlýsingu
rikisstjórnarinnar, sem Costa
haföi myndaö. Mánuöi slöar fól
Eanes Mota Pinto aö mynda
stjórn og lauk hann myndun
hennar i siöastl. viku. Stjórn
hans er eins og stjórn Costa
skipuö utanflokkamönnum.
Mota Pinto gerir sér vonir um
stubning sósíalista, en hann átti
um skeiösæti I minnihlutastjórn
Soares sem verzlunarráöherra.
Einnig hefur hann treyst á
stuöning miödemókrata. Hins
vegar hafa kommúnistar þegar
tekiö afstööu gegn stjórn hans
vegna stefnu hennar 1 land-
búnaöarmálunum. Afstaöa
sósfaldemókrata er talin óviss,
en Pintoá tæpast góös aö vænta
úr þeirriátt, þvl aö hann skipaöi
um skeiö forustusveit þeirra, en
gekk svo úr flokknum. Pinto,
sem er 42 ára gamall, er lög-
fræöingur ab menntun og hefur
veriö lagaprófessor um skeiö.
EF ÞINGIÐ hafnar stjórn
Pintos, veröur Eanes forseta
Eanes i hernum.
mikill vandi á höndum og
raunar hvort eö er. Til viðbótar
öllumerfiöleikum,sem viöer aö
strlöa I Portúgal, hefur bætzt
stjórnarkreppa, sem hefur nú
staöiö I fimm mánuöi. Vafasamt
er, aö Eanes treysti sér til
annars en aö efna til þingkosn-
inga, en flestir fréttaskýrendur
telja, aö þær muni litlu breyta
og sizt til bóta.
Antonio dos Santos Ramalho
Eanes hefur veriö forseti
Portúgals sffian 14. júli 1976. 1
forsetakosningunum, sem fóru
fram stuttu áöur, fékk hann um
60% greiddra atkvæöa. Hann
var lítiö þekktur i Portúgal
þangab til I nóvember 1975, en
þá átti hann mestan þátt I þvl aö
koma I veg fyrir byltingartil-
raun róttækra vinstrisinnaöra
herforingja. Lýöræöissinnum
þótti hyggilegt aö forsetinn yröi
valinn úr hópi herforingjanna
og treysti ekki öörum betur en
Eanes til aö standa vörö um hiö
nýja stjórnarform. Hann haföi
veriöí hópi herforingjanna, sem
stóöu aö aprllbyltingunni 1974,
en siöan haftsiglltiöl frammipn
þó nægilega til þess, aö hann
haföi unniö sér tiltrú lýöræöis-
sinna. Siöan hann varö forseti
hefur hann lltiö beitt forseta-
valdinu, heldur látiö þingiö ráöa
sem mestu. Aö þvi getur hins
vegar komiö, aö hann veröi aö
grfpa I taumana, en forsetinn
hefur verulegt vald samkvæmt
stjórnarskránni, ef hann kýs aö
beita þvi.
Eanes er 43 ára gamall. Hann
gekk ungur I herskóla og hélt
siban áfram á þeirri braut.
Hann hefur gegnt herþjónustu i
öllum fyrri nýlendum Portúgala
og veriö heiöraöur f jórum sinn-
um fyrir vasklega framgöngu.
Meöan hann var I hernum lagöi
hann stund á nám 1 lögum og
sögu. Hann er sagöur mikiQ
starfsmaöur og krefjast góörar
vinnu af starfcfólki slnu. Hann
er heldur hlédrægur 1 fram-
göngu og ekki ræöugarpur.
Slöan hann varö forseti, hefur
hann feröazt mikiö um landiö og
reynt ab kynna sér ástand mála
frá sem flestum hliðum. Þaö
hefur veriö sagt um hann, aö
hann njóti meira álits en vin-
sælda. Fyrir átta árum giftist
hann konu, sem var oröin skrif-
stofustjóri 1 menntamálaráöu-
neytinu, og eiga þau tvo unga
syni. HeimilisUf hans er taliö til
fyrirmyndar.
Þ.Þ.