Tíminn - 05.12.1978, Blaðsíða 12
12
mmm
Þriöjudagur 5. desember 1978
er rétt að
byrja”
segir Jóhann 6. Jóhannsson
listmálari sem nú heldur sina 11.
einkasýningu á aöeins 7 árum
ESE — Málverkasýning Jóhanns
G. Jóhannssonar I húsakynnum
veitingahússins Artúns að Vagn-
höföa 11 hefur verið framlengd
um eina viku og lýkur sýningunni
þvl ekki fyrr en um næstu helgi.
Eins og komiö hefur fram, er
þetta 11. einkasýning Jóhanns og
sýnir hann aö þessu sinni rúm-
lega eitt hundraö verk sem flest
eru máluö á þessu ári. Þó eru
nokkur verkanna eldri eöa allt frá
árinu 1971, en þá hóf Jóhann feril
sinn sem listmálari.
Er blaöamenn Tímans bar aö
garöi aö Vagnhöföa 11 um siöustu
helgi var Jóhann aö færa út kvi-
arnar í tilefni framlengingar-
innar, þvl aö þá var opnuö I veit-
ingasal r aukasýning á 16 eldri
verkum Jóhanns, sem öll eru I
einkaeign, og sagöi Jóhann aö
markmiöiö meö þessari ,,nýju”
sýningu væri þaö aö skapa þægi-
legt andrúmsloft I veitingasaln-
um um leiö og athygli væri vakin
á veitingasalnum sem slikum.
Eins og áöur segir er þetta 11.
einkasýning Jóhanns á aöeins 7
árum, og ef tónsmiöar hans eru
einig haföar i huga, má örugglega
skipa honum á bekk meö afkasta-
mestu listamönnum þjóöarinnar.
Er Jóhann var inntur eftir
þessu atriöi, þ.e. fjölda sýninga
Þessar þrjár yngismeyjar sjá um sölu á verkum Jóhanns G. Jóhannssonar á sýningunni sem nú stendur
yfir aö Vagnhöföa 11. Timamyndir Róbert.
Jóhann G. Jóhannsson.
hans, svaraöi hann þvi til aö hann
teldi þaö persónulega nauösyn-
legtaö halda sýningar þetta oft til
þess aö fólk fengi tækifæri til þess
aö fylgjast meö þróun hans sem
listamanns.
Um þaö hvernig honum tækist
aö finna tima til þess aö sinna
bæöi myndlistinni og tónlistinni
sagöi Jóhann, aö þetta ynnist vel
hvort meö ööru, og ef hann væri
t.d. aömála, þá væri honum mikil
hvild i þvi aö gripa til tónlistar-
innar.
Um aösóknina sagöi Jóhann aö
hann þyrfti ekki aö kvarta. Fólki
heföi gengiö vel aö finna staöinn
og sérstaklega heföi aösóknin
veriö góö fyrstu helgina.
Sagöi Jóhann staöinn vera
kjörinn fyrir sýningar sem þessa
og öll aöstaöa fyrir listamenn, s.s.
lýsing, væri til fyrirmyndar, en
þaö væri meira en hægt væri aö
segja um suma sýningarsalina á
höfuöborgarsvæöinu.
Það er fegurð
fólgin í örygginu
— farið ykkur því hægt í jólaumferð-
inni og notíð endurskinsmerki
ATA — Nú er jóla-
umferðin að hefjast. Það
má greinilega finna það
i miðborginni þessa dag-
ana.
— Þaö er ábending Umferöar-
ráös til vegfarenda, aö þeir flýti
sér hægt í umferöinni, sagöi Óli
H. Þóröarson I viötali viö Tim-
ann.
— Þaö fer i taugarnar á mörg-
um aö hanga i langri bilaröö, en
skapvondur ökumaöur er meö
hættulegustu ökumönnum. Menn
ættu þvi aö aka styttra og labba
lengra. Þaö þarf ekki endilega aö
taka lengri tima.
— Allir gangandi vegfarendur
ættu aö nota endurskinsmerki.
Þaö getur enginn afsakaö fyrir
sjálfum sér aö nota ekki lifsneist-
ann, eins og viö köllum merkin.
Þaö kemur alltaf upp einhver sú
staöa aö merkin koma aö gagni.
Viö teljum einnig, aö engin flfk sé
svo falleg, aö endurskinsmerki
fegri hana ekki, þvi viö teljum
vissa fegurö fólgna i örygginu,
sagöi Óli H. Þóröarson.
Óánægja i trúnaðarmannaráði Iðju:
Framsóknarflokksins: Margir glæsi-
legir vinningar í boði
dregið á Þorláksmessu
A Þorláksmessu hinn 23. þ.m.,
fer fram útdráttur i Jólahapp-
drætti Framsóknarflokksins sem
komiö er I sölu. Miöar hafa veriö
sendir til umboösmanna og allra
þeirra einstaklinga sem eru fastir
kaupendur.
Hver miöi kostar aöeins 500
krónur og hefur verö þeirra ekki
breytzt þrátt fyrir hækkanir á öll-
um tilkostnaöi. Þaö er fremur
treyst á aö fiokksmenn og aörir
velunnarar kaupi sér fieiri miöa
eftir þvi sem ástæöur leyfa.
Margir mjög góöir vinningar
eru i boöi aö þessu sinnni og skulu
þar á meöal nefnd húsgögn fyrir
hálfa milljón I versluninni Val-
húsgögn, tvenn litsjónvarpstæki
og hljómflutningstæki af Toshiba
gerö hjá Einari Farestveit & Co,
Sunnuferö úrvals myndavél o.fl.
Þaö ber ekki slzt aö nefna mál-
verk eftir Jón Stefánsson og er
hér um aö ræöa einstakt tækifæri
til aö hreppa verk eftir þann stór-
meistara fyrir litiö. Þar aö auki
eru f boöi mjög góö verk eftir
yngri listamenn svo sem Bene-
dikt Gunnarsson, Mattheu Jóns-
dóttur og Jóhann Eyfells.
Einnig er I happdrættinu hin
veglega listaverkabók „Dýrariki
Islands” eftir Gröndal sem brátt
veröur ófáanleg svo og ritsafn
Kristmanns Guömundssonar, rit-
safn Jóns Trausta og ritsafn
Jakobs Thorarensen. Þau eru
hvert fyrir sig i mörgum bindum
og glæsilega innbundin.
Má segja aö vinningarnir séu
góö blanda eigulegra muna og
óvenjumargir þjóölegir vinningar
eftir þvi sem jafnaöarlega er I
happdrættum.
Tekiö er á móti miöapöntunum
á skrifstofu Framsóknarflokksins
Rauöarárstig 18, Reykjavik. En
þeir sem ekki geta komiö þangaö
sjálfir geta skrifaö eöa hringt og
pantaö sér miöa þannig. Siminn
er 24480. Miöarnir veröa siöan
póstsendir ásamt giróseöli og má
þá greiöa I næsta pósthúsi eöa
peningastofnun. Aörir, sem nú
þegar hafa fengiö miöasendingu
ásamt giróseöli geta gert skil á
sama hátt og eru vinsamlega
hvattir til aö gera þaö sem fyrst.
Einn hinna glæsilegu vinninga i happdrætti Framsóknarflokksins.
ViU ekki að
ríkisvaldið sé
að krúnka í
kjarasamninga
Kás — Nýverið var fundur I trún-
aöarmannaráði Iöju, félags verk-
smiöjufóiks. Þar lýsti trúnaöar-
manharáöiö yfir óánægju sinni
vegna sffeildra afskipta rikis-
valdsins af gildandi kjarasamn-
ingum og bendir þaö á, aö verö-
bætur á laun verkafólks séu af-
leiöing en ekki orsök veröbólg-
unnar. Þá minnir fundurinn á, aö
framlenging kjarasamninga
byggist á þvi aö núverandi kaup-
mattur láglauna haldist.
Þá segir i ályktun fundarins:
„Trúnaöarmannaráiöiö er nú
sem fyrr reiöubúiö aö meta aörar
kjarabætur en beinar kauphækk-
anir, en telur aö þaö eigi aö vera
verkalýöshreyfingin en ekki
rikisvaldiö sem metur þaö i
hverju tilviki hvaö skuli koma I
félagslegum réttindum og hvaö i
beinum launahækkunum.
Trúnaöarmannaráöiö telur svo
brýnt aö dregiö veröi úr þeirri
óöaveröbólgu sem geisaö hefur
undanfarin ár, aö verkalýös-
hreyfingin geti ekki sett fótinn
fyrir tilraunir sem miöa aö þvi
marki. Þá leggur fundurinn
áherslu á þaö viö stjórnvöld aö
þau beiti sér af eínurö og mætti til
aö halda uppi fullri atvinnu og láti
einskis ófreistaö til aö svo megi
veröa”.
Martröð
undanhaldsins
— eftir Sven Hazel
Ægisútgáfan hefur sent frá sér
bókina Martröö undanhaldsins
eftir Sven Hazel. Þetta er strfös-
saga, sem lýsir ógnaraöferðum
nasista Iseinni heimsstyrjöldinni,
pyndingum, dauöa og tortimingu.
Lýkur á því aö Varsjá er jöfnuö
viö jöröu. „Þaöer ekki fyrr en i
janúar, aö eldarnir dvina, blátt á-
fram af þvi aö þá er allt brunniö,
sem brunniö getur. Skipun
Himmlers hefur veriö fram-
kvæmd út I æsar. Vasjá er ekki
annaö en punktur á kortinu. lbú-
um hennar hefur veriö útrýmt.”
Martröö undanhaldsins er 240
blaösiöur, þýöandi er óli Her-
manns.