Tíminn - 15.12.1978, Blaðsíða 13
Föstudagur 15. desember 1978
13
Langholtskirkja:
20 milljón'
vantar
ATA — Arið 1972 var grafinn
grunnur að kirkju Langholtssókn-
ar og í október árið eftir hófust
byggingarframkvæmdir á grunn-
inum. t dag er kirkjan að verða
fokheld, þaðvantar ekki mikið til
að loka kirkjunni. En til að það
megi takast fyrir veturinn svo
ekki verði skemmdir á bygging-
unni i vetur af völdum vatns og
veðra, þarf að safna allálitlegri
fjárupphæð. Það mun verða leit-
ast viö að afla þeirrar upphæðar
meðfrjálsum framlögum sóknar-
barna.
Sóknarfélög Langholtssóknar
hafa öllum öðrum fremur út-
vegað fé og styrkt allar fram-
kvæmdir safnaðarnefndar og
byggingarnefndar. Kvenfélagið
hefur lagt fram tiu milljónir og
Bræðrafélagið hefur lagt fram
fimm milljónir til kirkju-
byggingarinnar. Ennfremur hafa
fjöldamargir einstaklingar lagt
' fram verulegt fjármagn.
Nú hefur kirkjan sem sagt að
mestu komist undir þak, en
skuldir nema 20 milljónum i vixl-
um, vinnu og efni. Þessarar upp-
hæðar verður að afla.
Sóknarnefnd, prestarnir báðir,
byggingarmeistari og hringjari,
alls tfu manns, gáfu það einstæða
fordæmi á fundi sinum I sumar að
leggja fram úr eigin vasa 200
þúsund krónur hver maður, eða
alls tvær milljónir. Nú verður
leitað til sóknarbarna Langholts-
sóknar, að þau fylgi þessu góða
fordæmi og láti eitthvað af hendi
rakna til kirkjubyggingarinnar.
1 þessu sambandi verður
sóknarbörnum Langholtssókn-
sent bréfmeð giróseðli. Akveðin
upphæð er sett inn á seðilinn, tiu
— til
að koma
kirkjunni
undir þak
þúsund krónur, en að sjálfsögðu
er heimilt að breyta þeirri tölu
eftir fjárhagslegri getu hvers ein-
staklings. Það skal tekið fram, að
framlagið er frádráttarbært til
skatts.
Tilgangur og takmark kirkju-
bygginga á tslandi er gjörbreytt
frá þvi sem áöur var. Aður var
miðað við einfaldar samkomur
með söng og ræðu á sunnudögum.
Nú eru þetta hibýli og húsnæði
fyrir margþætta menningar- og
félagsstarfsemi fólksins.
Safnaðarheimili kirkjunnar, sem
nú er talið jafn nauösynlegt eða
enn nauðsynlegra en kirkjuhúsið
sjálft, má telja menningarstöð
hverrar sóknar, ef vel er að verki
staðið, og auk þess liknarstöð á
ýmsan háft.
1 safnaðarheimili Langholts-
sóknar eru þrir samkomusalir og
eru þeir notaðir flesta daga frá
morgni til siðkvölda. Má nefna að
AA deildirnar hafa starfað þar
rúman áratug og þar hafa
Alanon og alteen veriö stofnuð.
Alls halda þessi samtök um 200
fundi ár hvert. Fyrir þessa að-
stööu hefur aldrei verið krafist
húsaleugugjalda. Þessi samtök
halda skemmtanir á hverju ári 1
Langholts-
kirkja í
byggingu
safnaöarheimilinu, og er sagt að
það séu einhverjar mestu gleði-
samkomur I borginni er AA menn
koma saman og skemmta sér án
áfengis að sjálfsögðu.
Éinnig má nefna, að I safnaðar-
heimilinu er starfað
við handavinnu, föndur, fótsnyrt-
ingu og hársnyrtingu aldraöra og
hafðar samkomur fyrir blinda,
fatlaða og aldna og er aðstæðan
góð enda engar tröppur eða þrep,
hvorki i safnaöarheimilinu né
fyrirhugaðri kirkjubyggingu, og
þvi auðvelt að aka hjólastólum út
og inn.
Það er hvatning sóknarnefndar
til ibúa Langholtssóknar, aö þeir
aðstoöi menningarstofnun viö aö
koma starfsemi sinni undir þak,
og leggi fram sinn skerf.
Taflfélag ísafjarðar og Skáksamband
Vestfjarða:
Harma umfjöllun
fjölmiðla um deilur
vegna
gjaldkerakjörs
Timanum liefur borist eftirfar-
andi yfirlýsing frá Taflfélagi Isa-
fjarðar og Skáksambandi Vest-
fjarða:
„Viö fögnum kjöri Friöriks
Ólafssonar i embætti forseta
FIDE og þökkum öllum, sem
stuðluðu að sigri hans I þeim
kosningum. Er þaö vonokkar, aö
þrátt fyrir annasamt starf, sjái
Friðrik sér áfram fært aö taka
þátt i skákmótum og vera þannig
enn um sinn i fylkingarbrjósti Is-
lenskra skákmanna.
Við hörmum að kjör gjaldkera
FIDE skyldi verða að ágreinings-
efni og hvaða umfjöllun þessi
ágreiningur hefur hlotið i fjöl-
miðlum.
Viö viljum af þessu tilefni lýsa
yfir fullu trausti á stjórn Skák-
sambands tslands og ekki sist
forseta þess og varaforseta.
Þrjár nýjar kápur frá Max
Tegurtd: 936 Tegund: 934
stæröir: 36-42 1 Stærðir: 36-42
Litir: Dökkbrúnt/ grátt, svárt, kjtir: Dökkbrúnt, dökkblátt, fölgrænt,
dökkblátt, grænt. : f - rauÖguít
Sendum gégn póstkröfu. — Opið tíl Id. 10 ó laugárdag
Tegund: 940
Stærðir: 36-42
Litirr Dökkbrúnt, grátt, svart,
dökkblátt, grænt.
Laugavegi 66, sími 25980