Tíminn - 15.12.1978, Page 17

Tíminn - 15.12.1978, Page 17
Föstudagur 15. desember 1978 Ný bók: Spjallað og spaugað — endurminningar Rögnvalds Sigurjónssonar Almenna bókafélagiö hefur sent frá sér ævisögu Rögnvalds Sigurjónssonar pianóleikara skráöa eftir frásögn listamanns- ins af Guörtinu Egilsson. Bókin heitir Spilaö og spaugaö, og er æskusaga Rögnvalds „frá þvi aö hannlék sér meö öörum börnum i Vesturbænum og inni i Laugar- nesi viö Reykjavik þar til hann stendur andspænis opnum dyrum á frægustu tónlistarhöllum heimsins,” eins og segir aftan á kápu bókarinnar. Guörún Egilsson ritar formála fyrir bókinni og segir þar m.a.: „....hafi örlögin gletzt viö Rögn- vald Sigurjónsson, hefur hann kunnaö aö glettast á móti. Ævintýralegt lifshlaup hans og listamannsferill er svo sam- tvinnaö kimni hans og gáska, aö jafnvel örlagaþrungin atvik veröa einatt brosleg i munni hans ogmeöförum. Þess vegna er saga hans umfram allt skemmtileg”. Þetta fyrra bindi ævisögu Rögnvalds endar á þvi, þegar hann flyst heim frá Bandarikj- unum áriö 1945, eftir aö hafa haldiö sina frægu tónleika i Washington, þar sem hann „sló i gegn”. Bókin er 115 blaösiöur aö stærö auk tuttugu myndaslöna. Hún er unnin i prentsmiöjunni Odda. Verö bókarinnar er kr. 6.960.00. Ný bók frá Menningarsjóði: Læknisfræði eftir Guðstein Þengilsson Þetta er ellefta bindi i Alfræöi Menningarsjóös og samið af Guö- steini Þengilssyni lækni (og Magnúsi Blöndal Bjarnasyni lækni aö hluta) Fjallar bókin um læknisfræöi og lyfjafræöi undir uppflettioröum i stafrófsröö likt og önnur rit i þessum flokki. Er megináhersla lögö á skýr- greiningar, tilrauntil útskýringar á þvi hvaö uppflettioröiö merki hvaöviöséátt. Efni ritsins er sótt I ýmsar áttir, þýtt endursagt eöa frumsamiö eftir atvikum. Læknisfræöi er 159 blaösiöur aö stærö. Bókin erprentuöi Odda en bundin I Sveinabókbandinu. Ot- gefandi er Menningarsjóöur. önnur rit i bókaflokki þessum eru: Hannes Pétursson: Bókmenntir, Ólafur Björnsson: Hagfræöi, Einar Laxness: tslandssaga I-II Hannes Pétursson og Helgi Sæ- mundsson: tsienskt skáldatal I-II, Ingimar Jónsson: tþróttir I-II, Þorsteinn Sæmundsson: Stjörnu- fræöi — Rimfræöi, Hallgrimur Helgason: Tón- menntir I, 011 ritin i Alfræöi Menningarsjóös eru myndskreytt. íslenskar úrvalsgreinar þriðja bindi Bók þessi er 3. bindi greina- safnsins sem Bjarni Vilhjálmsson þjóöskjalavöröur og Finnbogi Guðmundsson landsbókavöröur hafa valið. Flytur hún 24 greinar frá 19. öld. Er þeim raöaö eftir aldri og um röö sumra fremur farið eftir þvi hvenær þær voru ritaöar eöa fluttar en birtingar- tima þeirra á prenti. Höfundur ritsmiöanna i ts- lenskum úrvalsgreinum III eru: Magnús Stephenson, Jóhanna Briem, Jónas Hallgrimsson, Sigurður Breiöfjörö, Konráö Gislason, Tómas Sæmundsson, Jón Hjaltalin, Jón Sigurösson, BÆKUR Gisli Brynjólfsson, Sveinbjörn Hallgrimsson, Sveinbjörn Egils- son, Jón Arnason, Arnljótur Ólafsson, Guöbrandur Vigfússon, Benedikt Gröndal, Páll Melsteö, Jón ólafsson, Grlmur Thomsen, Steingrimur Thorsteinsson, Gestur Pálsson, Vilhelm H. Páls- son, Briet Bjarnhéöinsdóttir, Val- týr Guömundsson og Einar Bene- diktsson. Um tiluröartima greinanna segja útgefendur i formála: „19. öldin er heillandi tímabil I sögu islenskrar tungu og bókmennta. Þjóöin vaknar þá til nýs skilnings á hlutverki sinu og rétti. Og þeim fjölgar óöum, er kveöja sér hljóös og hvetja hana til dáöa á hreim- miklu og hrífandi máli”. Þetta þriöja bindi tslenskra úr- valsgreina er 163 blaðsiöur aö stærð. útgefandi er Bókaútgáfa Menningarsjóös og Þjóövinafé- lagsins. Bókaútgáfa Menningarsjóðs gefur út: Dýrmæta llf eftir Jörgen Frantz-Jacobsen Bók þessi er úrval af sendibréf- um sem færeyski rithöfundurinn Jörgen-Frantz Jacobsen (1900-38) ritaöi á löngu áraskeiöi vini sin- um og landa skáldinu William Heinesen. Segir höfundurinn hispurslaust og af óvenjulegri bersögli frá sálarlif i sinu i barátt- unni við banamein sitt svo og frjórri lífsnautn sinni en sér I lagi óstýrilátum ástum slnum og „Barböru” og gerir grein fyrir hrifnæmri aödáun á uppruna og átthögum margþættum skoöun- um og listrænum viöhorfum. Jörgen-Frantz Jacobsen er vlö- kunnur fyrir hina sérstæöu skáld- sögu Barböru (Far veröld þinn vég)sem hann samdi á dönsku og kom út aö honum látnum. Haföi hann samtiöarfólk aö fyrirmynd- um margra persóna hennar og lýsir m.a. sjálfum sér i dular- gervi séra Páls og ómótstæöilegri en fjöllyndri æskuunnustu sinni sem Barböru. Jörgen-Frantz Jackobsen kom hingað til tslands ritaöi greinar um islensk efni og var nákunnugurmönnum ogmál- efnum hér. Aðalsteinn Sigmunds- son kennari þýddi tvær bækur hansá Islensku skáldsöguna Bar- böru og ritið Færeyjar land og þjöö William Heinesen tóksamanog bjó til prentunar bréfin i Dýr- mæta lifi en Hjálmar Ólafsson menntaskólakennari Islenskaöi bókina. Hún er 121 blaösiöa aö stærö prentuö i Odda. Bókin er prýdd nokkrum ljósmyndum. út- gefandi er Menningarsjóöur. íslensk plöntunöfn eftir Steindór Steindórsson frá Hlöðum Rit þetta er eftir Steindór Stein- dórsson frá Hlööum, fyrrum skólameistara á Akureyri, og byggist á Flóru Islands eftir Stefán heitinn Stefánsson, en I 1. og 2. útgáfu hennar voru taldar rúmlega 400 tegundir blóm- plantna og byrkninga. 1 nafna- skrá þessarar bókar eru hins vegar 1200-1400 nöfn, og má af þvi sjá að sumar tegundir hafa mörg heiti. Er hér um að ræöa merki- lega tilraun til þess aö fá yfirlit um plöntuheiti á Islensku máli og leggja grundvöll aö sliku fræöi- starfi. Höfundur lýsir tildrögum bókarinnar I fróölegum inngangi og geri r þar itarlega grein fyrir efni hennar og tilgangi. Aöalhluti ritsins er svo skráin um plöntu- nöfnin I stafrófsröö eftir latnesku heitunum sem notuö eru i 3. út- gáfunni af Flóru tslandsen á eftir henni fer nafnaskrá þeirra á Is- lensku og að endingu skrá um skammstafanir og helstu heim- ildarrit. tslensk plöntusöfn er 207 blaö- siöur aö stærö I stóru broti. Setn- ingu, prentun og bókband annaö- ist prentsmiöjan Edda. Útgefandi er Bókaútgáafa Menningarsjóös og Þjóövinafélagsins. Nýstárleg matreiðslubók Út er komin ný og nýstárleg matreiöslubók eftir Sigrúnu Daviösdóttur. Hún ber undirtitil- inn „handa ungu fólki á öllum aldri”. Aftan á bókarkápu stendur meöal annars: „t þessari bók eru dcki upp- skriftir aö öllum mat, en vonandi góöar uppskriftir aö margs konar mat. Og þetta er ekki siður bók um mat. ...nú hafa fæstir tíma til að standa lengi yfir pottunum, en þar meö er ekki sagt aö þaö sé alltaf fljótlegast né ódýrast aö kaupa hálftilbúinn mat. Oft boröar fjölskyldan aöeins eina meginmáltiösaman á dag, ogþaö er sjálfsagt, aö hún útbúi hann i sameiningu”. Matreiöslubókin er 412 blaösiö- ur aö stærö. Hún er unnin I Prent- stofuG. Benediktssonar. Menningarsjóður gefur út SÖGUR eftir Þorgeir gjallanda Bók þessi er úrval úr sögum Þorgils gjallanda (Jóns Stefáns- sonar 1851-1915) en Þóröur Helga- son cand. mag. hefur búiö til prentunar og ritaö itarlegan inn- gang um skáldskap og ritstörf höfundar. Sögur eru gefnar út af Rannsóknastofnun 1 bókmennta- fræöi viö Háskóla Islands og Menningarsjóöi og fjóröa bókin l flokknum Islensk rit en stjórn hans hafa meö höndum Njöröur P. Njarövik óskar 0. Halldórsson og Vésteinn Olason. — Skrá um útgáfur ogheimildir i bókarloker eftir Ólaf Pálmason mag. art. I Sögum eru smásögurnar „Leidd i kirkju”, „Séra Sölvi”, „Ósjálfræöi”, „Fölskvi”, „Valur”, „Skirnar kjólinn”, „Karl i Kothúsi”, „Brekku-Gulur „Kapp er best meö forsjá”, 17 „Heimþrá” og „Krummi” og skáldsagan „Upp viö fossa”. Sögunum er raöaö eftir ritunar- tima nema „Upp viö fossa” sem hér rekur lestina. Bókin er 301 blaösffia aö stærö sett prentuö og bundin I Prentsmiöju Hafnar- fjaröar. útgefandi er Menningar- s jóöur. Aöur hefur komiö út i bóka- flokknum Islensk rit: Jón Þorláksson: Kvæði frumort og þýdd. Úrval. Bjarni Thorarensen: Ljóömæli, Úrval. Daviö Stefánsson: Ljóð Úrval. Nýtt bindi af Öldinni okkar Komin er út hjá bókaútgáfunni Iöunni öldin okkar 1961-1970. Þá eru „Aldirnar” orönar nlu tals- ins, og gera skil sögu þjóöarinnar Isamfleytt 370 ár, i lifrænu formi núti'ma fréttablaös. Myndirnar i bókunum eru nær þrem þúsund- um, og mun ekki vera I neinu ööru ritverki slikur fjöldi íslenskra mynda. „Aldirnar” eru þannig lifandi saga liöinna atburöa I máli og myndum, sem geyma mikinn fróöleik, enda hafa þær náö mik- illi hylli Islenskra lesenda. vmrnl enginn rníi.. ELECTROLUX WH SS ER MESTSELRA ÉUMSl ÍMÚR ‘<£U ri ■ "W .v:>" W - -w j f\ 1 árs ábyrgð Electrolux þjónusta Hagstæð greiðslukjör Electrolux Sérstök stilling fyrir straufri efni — auöveldari notkun. BlO-kerfi — lengir þvottatimann fyrir óhreinan þvott. Ryðfritt stál I tromlu og vatnsbelg — lengri endingartími. 3falt öryggi á hurð — örugg fyrir börn. 3 höft fyrir þvottaefni og mýkingarefni. Lósigti aö framan — auövelt að hreinsa — útilokar bilanir. Vinduhraði 520 snún/mín — auðveld eftirmeöferð þvottar. Vökvademparar — mjúkur, hljóölaus gangur. 60 cm breiö, 55 cm djúp, 85 cm há. Islenskur leiðarvlsir fylgir hverri vél. Vörumarkaðurinn fif. Ármúla ÍA simi 86117 Electrolux þvottavélin er til á lager á þessum útsölustööum: AKRANES: Þóröur Hjálmarsson, BORGARNES: Kf. Borgfiröinga, PATREKSFJORÐUR: Baldvin Kristjánsson ÍSAFJÖRÐUR: Straumur hf., BOLUNGARViK: Jón Fr. Einarsson, BLÖNDUOS: Kf. Húnvetninga, SIGLUFJORÐUR: Gestur Fanndal, OLAFSFJÖRÐUR: Raftækjavinnustofan sf., AKUREYRI: Akurvík hf., HtlSAVIK: Grlmur og Arni, VOPNAFJORÐUR: Kf. Vopnfiröinga, EGILSSTAÐIR: Kf. Héraösbúa, ESKIFJORÐUR: Pöntunarfélag Eskfiröinga HÖFN: KASK, ÞYKKVIBÆR: Friörik Friöriksson, VESTMANNAEYJAR: Kjarni sf„ KEFLAVÍK: Stapafeli hf.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.