Tíminn - 23.12.1978, Page 19
Laugardagur 23. desember 1978
19
Frá upphafs-
dögum
Skemmtilegar
þj óðlíf smyndir
heimsveldis
Neville Williams: Francis
Drake — landkönnuöur og sjó-
ræningi.
• Örn og örlygur, Evlk. 1978.
232 bls.
Hér fyrr á árum var þaö siöur
Breta aö spyrja þegar þeir
spuröu stríö, eöa þótti ófriövæn-
legt: „Hvarer flotinn”. Ogekki
aö furöa, flotinn var kjarni
brezka sjóveldisins, vörn Bret-
landseyja og stolt flestra rétt-
þenkjandi Englendinga. Frá þvl
um miöja 18. öld og allt fram til
loka fyrri heimsstyrjaldarinnar
voru yfirburöir Breta á höfun-
um ótviræöir, og geröist einhver
svo djarfur aö ógna sjóveldi
þeirra, var honum jafnan skjótt
komiöfskilningum þaö, hverjir
væru herrar úthafanna.
Bókin um Francis Drake seg-
ir frá miklum ævintýramanni
og sæfara. Francis Drake er i
fremstu röö þjóðhetja i Breta-
veldi. Hann var uppi á siöari
hluta 16. aldar á rikisstjórnarár
um Elisabetarl., og átti mikinn
þátt i þvi aö skapa brezka sjó-
veldiö. Drake var enginn venju-
legur flotaforingi. Hann var i
senn landkönnuöur, sjóræningi
og drottinhollur, jafnvel
ofstækisfullur mótmælandi.
Hann vandist ungur sjó-
mennsku viö strendur Bret-
lands, sigldi siöan til Karabia-
hafs og landa Spánverja i
Ameriku, þar sem hann lagöi
stund á flestar greinar „verzl-
unar og sjómennsku”, þræla-
sölu, rán og strandhögg. Siöar
varö hann fyrstur Englendinga
til þess aö stýra skipi umhverfis
jöröina og lenti þá i miklum
haröræöum og hlaut frægö fyrir.
Loks tók hann þátt i vörn Bret-
lands þegar Spánverjar sendu
flotann ósigrandi til þess aö
gjörsigra Breta. Varö þaö hin
mesta sneypuför, sem kunnugt
er þótt Bretar séu af fastheldni
sinnienn á varöbergi gegn þeim
flota.
Frá ævintýrum og svaöilför-
um Francis Drake segir i þess-
ari bók. Höfundur hennar,
Neville Williams, er I hópi kunn-
ari sagnfræöinga I Bretlandi og
starfar nii sem ritari Brezku
Akademfunnar. Bók hans um
Francis Drake mun teljast til
þess fk>kks, sem gjarnan er
nefndur „alþýöleg sagnfræöi”,
þ.e. skemmtilega rituö sagn-
fræöi, þar sem réttu máli er
aldreihallaö.en höfundur gerist
ekki fræðilegurum of. Hefur sú
grein sagnfræöirita átt miklum
vinsældum aö fagna á undan-
förnum árum. Neville Williams
er sérfræöingur i sögu 16. aldar,
en hann kann vel aö rita á
aiþýölegan máta. Frásögn hans
er öll hin liprasta og aöeins
örsjaldan leyfir hann sér fræöi-
legar vangaveltur, en þó alltaf i
hófi. Arangurinn veröur fróðleg
og skemmtileg bók, sem á er-
indi til allra áhugamanna um
sögu. Eini gallinn, ef galla
skyldi kalia, er sá, aö bókin er
skrifuö frá brezku sjónarmiði og
þótt höfundur láti andstæöinga
Drakes af öörum þjóöernum
jafnan njóta sannmælis þykir
mér hæpiö aö t.d. spænskir
sagnfræöingar myndu hafa
fjallaö um þetta efni á sama
hátt.
Mikiö myndefni prýöir bók-
ina, samti'ma málverk, kopar-
stungur og teikningar, og einnig
eruf bókinni mörg landakort frá
16. öld. Er fengur aö þessu öllu:
Nafna- og atriöisoröaskrá fylgir
bókinni og sömuleiöis skrá um
eigendur mynda. Nákvæm
heimildaskrá er hins vegar ekki
birt, en bókaskrá er t bókarlok,
þar sem áhugasömum lesend-
um er visaö til rita, sem höfund-
ur telur i senn aögengileg og
fróðleg um Drake og tímabil
hans.
Kristin R. Thorlacius hefur
þýtt bókina á Islenzku og á hún
lof skiliö fýrir sitt verk. Allur
frágangur bókarinnar er prýöi-
Páll Þorsteinsson: Þjóölifs-
myndir.
Örn og örlygur, Rvrk. 1978.
147 bls.
1 þessari bók Páls Þorsteins-
sonar á Hnappavöllum eru
fimmtán þættir, þar sem brugö-
ið er upp myndum úr Islenzku
þjóölífi aö fornu og nýju. 1 flest-
um þáttanna er aö nokkru eöa
öllu leyti fjallaö um mannlif eöa
náttúru I heimahéraöi höfundar,
Austur-Skaftafellssýslu.
Þættir Páls eru mislangir. Sá
lengsti nefnist Samgöngumál og
er þar rakin saga sam-
göngumála á íslandi allt frá
landnámsöld og fram á okkar
Páll Þorsteinsson
daga. Framan af er stiklaö á
stóru, en frásögnin verður Itar-
legri þegar nær dregur i tlma,
og viröist mér sem á köflum geti
þessi þáttur oröiö hentugur til
uppflettingar, auk þess sem
hann gefur gott yfirlit yfir sam-
göngumál á Islandi i aldanna
rás.
Eins og áöur sagöi f jalla þætt-
ir Páls um margvisleg efni. Þeir
eru allir fróölegir og athyglis-
veröir og sumir hinar þörfustu
hugvekjur. Sjálfum finnst mér
mestur fengur aö þáttunum um
Bústaö Kára Sölmundarsonar,
Villiféö á Eystrafjalli og Vatna-
jökulsferð W.L. Watts. Þá ber
og aö nefna þáttinn Oskaland,
en hann á erindi til allra.
Bók Páls Þorsteinssonar er
ekki stór, en hún er fróöleg og
vekjandi. Höfundurinn er mjög
vel máli farinn og kann vel aö
stýra penna. Lífsskoðanir hans,
ástin á landinu heiöarleiki og
drengskapur koma skýrt fram
og mættu veröa mörgum
fyrirmynd: hinar fornu dyggöir
eru ekki aldaúða á Islandi og
mættu enn verða okkur nokkur
stoð. Hafi Páll Þorsteinsson
heila þökk fyrir þessa þörfu bók.
Orn og örlygur gefa bókina út
og er útgáfan smekkleg, en
prófarkalestur mætti vera betri.
Jón Þ. Þór.
legur.
Jón Þ.Þór.
bókmenntir