Tíminn - 31.12.1978, Síða 5
Sunnudagur 31. desember 1978.
5
Dr. Gyili Þ. Gíslason:
Sjónvarpsþættirnir um sögu
hugmynda um efnahagsmál og
áhrif þeirra á framvindu
sögunnar, sem hagfræöingurinn
John Kenneth Galbraith hefur
samiö fvrir breska sjónvarpiö
og islenska sjónvarpiö hefur
sýntaö undanförnu, hafa vakiö
mikla athygli aö veröleikum.
Þaö er sem kunnugt er dr. Gylfi
Þ. Gislason, sem þýtt hefur frá-
sögn Galbraihts meö myndefni-
nu og fór Timinn þess á leit viö
Gylfa aö hann segöi lesendum i
nokkrum oröum frá þessum
merka hagspekingi og gerö þátt
anna. Varö Gylfi vel og góöfús-
lega viö þeirri ósk.
John Kenneth Galbraith er án
efa einn kunnasti hagfræöingur,
sem nú er uppi. Liklega er
einnig óhætt að fullyröa,að
enginn hagfræöingur á þessari
öld hafi orðið jafnþekktur og
jafnmikið lesinn af almenningi.
Hann var og er prófessor við
Harvard-háskóla En almenn-
ingivarðhann fyrst kunnur sem
einn af forystumönnum hóps
viðurkenndra mennta-
mann.sem studdu Kennedy, er
hann bauð sig fram til forseta-
kjörs, og áttu án efa talsveröan
hlut að sigri hans. Hann var
náinn vinur Kennedys og varð
einn af ráðgjöfum hans. Hann i
hafði reynslu 1 stjórnarstörfum, j
þvi að hann hafði gegnt mikil-'
vægu embætti 1 Washington á
striösárunum. Kennedy gerði i
hann að sendiherra i Indlandi en
hann undi sér ekki sem best 1 þvl,
starfi og hvarf afttur að fyrra
starfi sinu við Harvard-há-
skóla.Skömmu siöar var
Kennedy myrtúr. Siöan hefur
hann litil afskipti haft af stjórn-
sýslu i Bandarikjunum. En
þeim mun athafnasamari hefur
hann verið i ritstörfum sinum.
Galbraith hefur ekki hlotið
frægð sina sem frumlegur
höfundur á sviði hefðbundinnar
háskólafræðimennsku I hag-
fraéði. Hann mun t.d. aldrei hafa
verið tilnefndur sem hugsanleg-
ur nóbelsverðlaunahafi i hag-
fræði. En hann hafði orðið
heimsfrægur þegar 1958 fyrir
bók sina, Nægtaþjóöfélagið,
(The Affluent Society). Þar
gagnrýnir hann hefðbundna
hagfræði og r.ekur nauösyn þess
að endurskoða hugmyndir um
markmið efnahagsstarfsemi,
sérstaklega i Bandarikjunum og
öðrum auöugustu þjóðfélögum
heims. Þar fari of mikil orka I
framleiðsluaukningu, sem full-
nægi tilbúnum þörfum, en of litil
i félagslegar umbætur, fegrun
umhverfis og auðugra mannlif.
Næsta stórvirki hans var
Iðnrikið nýja (The New
Industrial State). Bókmennta-
félagiö hefur i Lærdómsritum
sinum gefiö út Utdrátt úr henni,
Iönriki okkar daga, en það eru
fyrirlestrar, sem hann flutti um
efnið i breska útvarpið. Hefur sú
bók komiö út i mörgumútgáfum
og er hér vel kunn.
Þriðja verkið 1 þessum bóka-
flokki, sem má telja höfuðverk
Galbraiths, er ritið Hagfræði og
almannaheill (Economics and
the Public Purpose), en þar
fjallar hann um hlutverk rikis-
valdsins i nútíma iðnriki, sem
hann telur að verulegu leyti
stjórnað af sérfræðingum stór-
fyrirtækja á grundvelli einka-
ætlunargerðar þeirra.
Fyrir fáum árum fékk breska
útvarpið Galbraith til þess að
semja sjónvarpsþætti um sögu
John Kenneth Galbraith
hugmynda um efnahagsmál og
á áhrif þeirra á framvindu
sögunnar. Tók undirbúningur
þeirra langan tima.Þeir urðu
þrettán talsins, en árangurinn
varð lika frábær. Þessir þættir
urðu geysivinsælir i Bretlandi
og hafa siðan farið um allan
heim. 1 þáttunum er Galbraith
ekki hlutlaus i þeim skilningi, aö
hann endursegi aðeins það, sem
aðrir fræðimenn á sviði hag-
fræði og þjóðfélagsfræði eða
stjórnmálamenn hafa sagt.
Hann lýsir hugmyndum auð-
vitað rétt og af skilningi, en
hann hefur eigin ^skoðanir á
gildi þeirra og túlkar áhrif
þeirra með persónulegum hætti.
Yfigripsmikil þekking hans
leynir sér auðvitað ekki, en
hann hefur eigin skoðanir, sem
hann lætur I ljós á mjög sér-
stæðan, og oft mjög fyndinn
hátt. En hann gætir þess vel að
blanda ekki saman staðreynd-
um og lýsingu á hugmyndum
annarra og eigin skoðunum.
Menn vita þvi alltaf, hvað eru
hans skoðanir og hvað annarra.
Dr. Gylfi Þ. Gklason
Þegar I ljós kom, hversu
gifurlega athygli þessir þættir
vöktu, samdi Galbraith upp úr
þeim bók, The Age of
Uncertainty, sem nýlega er
komin út i islenskri þýðingu eft-
ir Geir Hárde hagfræðing,undir
nafninu öld óvissunnar. Kafla-
skipti hennar er hin sama og
sjónvarpsþáttanna, en fjallað
um efnið i lengra máli.
Ég hefi mikla ánægju af að
vinna að þýöingu þessara
sjónvarpsþátta. Það er mikið
vandaverk, þvi að Galbraith er
ekki aðeins mikill hagfræöing-
ur, heldur einnig mikill rit-
höfundur, sem raunar hef-
ur skrifað um fleira en hag-
fræði. En mér þykir vænt um,
að almenningur virðist hafa
áhuga á efni sem þessu.
Þeir sem reka fyrirtæki sin vel meta það og vega í hverju sé
sparnaður
Kaupfélag Árnesinga eitt best rekna kaupfélag á landinu taldi sér
hagkvæmt að kaupa
TRABANT
enda keyptu þeir ekki aðeins einn heldur fimm Trabantbifreiðar.
Þeir sem vilja spara kaupa
TRABANT
enda hagkvæmustu bílakaupin með tilliti til vaxta, afskrifta, viðhalds
og benzínkostnaðar.
TRABANT/WARTBURG UMBOÐIÐ
Vonar/andi við Sogaveg Simar 8-45-10 £t 8-45-11
Nokkur orð um John
Kenneth Galbraith
höfund sjónvarpsþáttanna
„Öld óvissunnar,,