Tíminn - 31.12.1978, Qupperneq 19
Sunnudagur 31. desember 1978.
19
barnatíminn
Umsjón: Sigrún Bjömsdóttir
Töluspil
Hvor keppandi hefur þrjár tölur (krónur, steina eða hvað sem er). Keppendurnir
eiga að færa tölurnar til skiptis eftir strikunum milli hringanna. Takmarkið er að
koma sínum tölum í byrjunarreit andstæðings síns. Ef andstæðingurinn er með
tölu í hring má hinn keppandinn ekki setja sína tölu í þann hring. En tölur f rá sama
keppanda mega allar vera í einum hring. Það má bæði færa tölurnar fram og til
baka, en það má ekki hlaupa yfir hring.
Þegar annar aðilinn getur ekki lengur fært sínar tölur vegna talna hins aðilans,
er spilið tapað.
Blöðru og
peysuleikur
I þessum leik geta tvö lið
keppt. Þá þarf tvær blöðr-
ur, eina á hvert lið. Tveir
fyrstu í hverju liði byrja
um leið. Þeir eiga að skipt-
ast á peysum, — klæða sig
úr peysu þess sem viðkom-
andi keppir með. Á meðan
eiga þeir að halda blöðr-
unni á lofti. Hún má ekki
snerta gólfið. Það lið vinn-
ur sem tekst að skiptast á
peysum og halda blöðrunni
á lofti
Börnin
hans Bamba
eftir Felix Salter
Þýð. Stefán Júliusson
„Nú kem ég," sagði Númi og rann á hann.
Búi snerist á hæli og fiýði.
„Hvers vegna flýrðu? Þú ert þó ekki hræddur?"
„Ég veit ekki hvers vegna ég flýði", sagði Búi.
„Ég veit bara það, að ég vil ekki berjast við
Núma".
„ Er það kannski af því að Númi er bróðir Lönu",
spurði Falin lágt. — Hún vissi, að ástæðan var sú.
Bambi vissi það líka.hann sagði:
„Það var rétt hjá þér Búi, að berjast ekki við
Núma. Ef þú hugsar ekki eins og f ullorðinn hjörtur,
ertu ekki undir það búinn að fá hornkórónuna
þína".
Búi og Númi berjast
Einn morgun í glaðasólskini voru þau Nanna og
Búi á gangi í grasinu. Perri, litli ikorninn, kom á
móti þeim og heilsaði.
„Heyrðu", hvíslaði hann í eyra Búa. „Ef þér
f innst að þú getir ekki barist við Núma vegna Lönu,
þá skaltu gleyma því. Hún verður aldrei reið við
þig lengi vegna þess".
„Þetta sagði faðir minn líka", sagði Búi. „Hann
vill, að ég jafni sakirnar við Núma".
Þá heyrði Búi, að Númi kom reikandi gegnum
runnana. Lana kom líka í Ijós milli trjánna. Nanna
og hún földu sig í laufinu til þess að horfa á það,.
sem gerðist.
„Þú ættir að flýta þér að leggja á f lótta", sagði
Númi storkandi.
Hann beiðekki boðanna en rann á Búa af miklum
móði. i þetta sinn beið Búi þar til Númi var alveg
kominn að honum. Þá vék hann léttilega til hliðar.
En krafturinn á Núma var svo mikill, að hann
steyptist beint á hausinn í þyrnirunna.
Framh. í næsta Barna-Tíma.
Myndgáta
. - p. •
NL'" M'
■N J+J
9-6
Ef þú getur sett rétt orð við myndirnar, þá kemur orð
sem þú kannast vel við í f eitletruðu reitina lóðrétt.
Að krumpa dagblað
I þessum leik er keppt
um hverjum tekst fyrst að
krumpa eina opnu úr dag-
blaði í útréttri hendi. Að-
eins má nota þá hönd sem
dagbiaðið er í.
Það er hægt að gefa stig
fyrir hvert unnið skipti. Þá
vinnur sá, sem flest hefur
stigin.