Tíminn - 31.12.1978, Page 21
Sunnudagur 31. desember 1978.
21
Þögull vitnisburður
Kvikmyndahornið
Fyrir nokkru buðu forráöa-
menn Laugarásbiós blaöa-
mönnum og nokkrum gestum aö
sjá nýja heimildarmynd sem
bióiö hefur fest kaup á og hyggst
sýna á laugardögum kl. 3 eftir
áramótin. Hér er um aö ræöa
enska kvikmynd, The Silent
Witness eða Likklæði Krists eins
og hugmyndin er að kalla
myndina á islensku.
Kvikmyndin fjallar um hin
heilögu likklæöi sem geymd
hafa verið i kirkju á Turin á
Italiu. Þessi likklæði hafa valdiö
miklum heilabrotum allt frá
árinu 1898, en þá voru teknar
nokkrar myndir af þeim. Þegar
myndirnar voru framkallaðar
kom i ljós mynd af manni.
Á allra siöustu árum hafa ver-
ið framkvæmdar nákvæmari
rannsóknir á likklæðinu og hef-
ur tekist að rekja uppruna þess
til Palestinu. Aldursgreiningar
hafa leitt i ljós að klæðið er frá
timum Krists.
Ennfremur hefur mynd lik-
klæðisins verið varpað i gegnum
þrividdar sjónvarpsskerm og
kom þá ljós ótrúlega skýr
mannsmynd.
Allt þetta er rakið i þessari at-
hyglisverðu og vel gerðu
heimildarkvikmynd sem sjálf-
sagt er að hvetja menn til að
sjá. G.K.
The Silent Witness (Screenpro
Films)
Bresk heimildarmynd frá 1978
Stjórn: David W. Rolf
Kvikmyndun Bahram Mano-
cheri
1 litum, 55 min.
Sýningarstaöur: Laugarásbió.
Myndin á þvi sem kallað hefur verið likklæði Krists. Skildi Jesus þetta eftir sem sönnunargagn fyrir upprisunni?
Hraðfrystihús Eskifjarðar hf.
ESKIFIRÐI
óskar starfsfólki og viðskiptavinum
farsœldar á nýja árinu
Þakkar ánægjulegt samstarf og viðskipti á liðnu ári