Tíminn - 31.12.1978, Qupperneq 8

Tíminn - 31.12.1978, Qupperneq 8
'M .1H !1 !(; 8 Sunnudagur 31. desember 1978. 'J Frá Akureyri Ferbafólk á Akureyri Vaölaheiðin. Sér og til hærri fjalla. Á kortinu sem Helgi Arnason gaf út og rituð er kveðja á 1924, sést aö þá var ennhestaöld á Is- landi. Bilar að visu ofurlltiö farnir að láta til sin taka. Þarna biöa margir farskjótar hús- bænda sinna við „Bautann” og virðast standa á grænni jörö. Margthefurbreytstsiðan. Mirg stóru gömlu timburhúsin voru ekki bara kassar.en báru turna og sum útskurð eins og t.d. Verslun Eyjafjciður, sem áður hefur verið birt mynd af. Hér er brugðið upp gamalli mynd af Hótel Oddeyri. Otgefandi Alls- herjar-Póstfélagið. Sér á fleiri hús, og einnig báta dregna á land. Ingólfur Davíðsson: Byggt og búið í gamla daga — ■ ■ — ■ ’ Uppi á Akureyrarbrekku gnæfir gamli gagnfræöaskólinn, mikiö hús og viröulegt. A Alþingiárið 1903 vorusamþykkt lög um gagnfræðaskóla á Akur- eyri. Skyldu heimavistir vera 45-50. Bæjarstjórn gaf lóð undir skólahúsið I norðaustur horni Eyrarlandstúns, en Sigtryggur Jónsson snikkari (trésmiða- meistari) tókst á hendur að byggja húsið fyrir 55 þúsund krónur. Hornsteinninn var lagö- ur 4. júni 1904, en fullert var húsið þá um haustið. Mööruvallaskóli hafði brunniö i marz 1902. Veturna 1902-1904 var skólinn haldinn í leiguhús- næöi (Barnaskólanum). Lengi fór öll starfsemi skólans fram I hinu veglega timburhúsi og leikfimihúsi rétt hjá, en hin sið- ari ár hefur mjög aukist húsa- kostur (Mööruvellir o.fl.) eins og alkunnugt er. A Möðruvöll- um i Hörgárdal, og fyrstu árin á Akureyri stýrði Jón Hjaltalin skólanum. Siðan varð Stefán Stefánsson skólameistari og eftir hann Siguröur Guðmunds- son, Þórarinn Björnsson, Stein- dór Steindórsson og Tryggvi Gislason. A dögum Sigurðar Guðmundssonar fékk skólinn menntaskólaréttindi og voru fyrstu stúdentarnir á Akureyri útskrifaðir voriö 1928 fimm að tölu. En voriö áður fóru nokkrir nemendur skólans suður og luku prófi við menntaskólann I Reykjavik. Margar góöar minn- ingar á undirritaður frá skóla- verunni á Akureyri. Arið 1929 lukum við þar prófi sjö saman, þar af fyrsti kvenstúdentinn nyröra, Guðriöur Aöalsteins- dóttir. Hér er gömul mynd af skólan- um, sem Jóh. Ragúelsson hefur gefið út einhvern tima fyrir 1918, þvi að á kortiö er rituð orö- sending það ár. Nú er umhverfið breytt, vaxinn upp trjálundur frá dögum Stefáns skólameist- ara við suöurgaflinn, og röð reyniviöa, sem frú Halldóra ólafsdóttir gróöursetti framan viöskólann. 1 þriðja lagi skartar hinn alkunni „Lystigaröur Akureyrar” rétt hjá, en þann garð stofnsettu konur árið 1912. Akureyrarhöfn — Pollurinn — blasir viö og handan hans kjjlajL fírnr !■ i Gamli ga g nf ræöas kólinn á Akureyri Hotel Oddeyri Hótei Oddeyri 1 |V*. J I ÖDD B) BI p r fm• I? $m > |r|:i ■: í*

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.