Fréttablaðið - 06.10.2006, Síða 2
2 6. október 2006 FÖSTUDAGUR
MATARVERÐ Húsnæðiskostnaður-
inn er stærsti útgjaldaliður heim-
ilanna og hefur vaxið verulega
síðustu árin, ef marka má tölur
Hagstofunnar sem sýna meðalút-
gjöld heimilis á ári 2002 og 2006.
Matarkostnaðurinn var stærri
útgjaldaliður en ferðaútgjöld fjöl-
skyldunnar árið 2002 en nú er bíla-
og ferðakostnaður orðinn stærri
liður.
Stærstu útgjaldaliðir fjölskyld-
unnar skiptast í fernt. Húsnæðið
stendur fyrir tæplega 27 prósent-
um og hefur sá liður vaxið hlut-
fallslega síðustu árin, innkaup á
mat og drykkjarvörum eru tæp-
lega fjórtán prósentum og hafa
minnkað lítillega, ferðakostnaður
hefur hinsvegar aukist stórum
skrefum á þessum fjórum árum
og nemur tæpum átján prósentum
en útgjöld vegna tómstunda hafa
minnkað hlutfallslega og nema nú
ellefu prósentum.
Matarútgjöldin nema áttatíu og
níu prósentum af meðal matarút-
gjöldum heimilanna. Hlutfallslega
fer mest af útgjöldunum í kjöt eða
tæp tuttugu og tvö prósent. Mjólk
og mjólkurvörur taka líka stóran
hlut eða tæp átján prósent. Drykkj-
arvörurnar eru ellefu prósent en
fiskurinn innan við fimm prósent.
Tæp tíu prósent af matarútgjöld-
um fjölskyldunnar fara í sykur,
súkkulaði og sælgæti.
Henný Hinz, verkefnisstjóri
hjá ASÍ, segir tölurnar ekki gefa
neinar upplýsingar um kostnað-
inn, aðeins um skiptingu útgjalda.
„Ef við tökum matinn sem dæmi
þá segja þessar tölur að matar-
kostnaðurinn hafi hlutfallslega
minnkað vegna þess að húsnæðis-
kostnaðurinn hefur aukist en þetta
þarf ekki að þýða að maturinn sé
orðinn ódýrari. Það fer bara meira
af kökunni til húsnæðis.“
Henný segir mikilvægt að hafa
í huga að tölurnar endurspegli
meðalneyslu. „Það segir sig sjálft
að fólk með lágar tekjur eyðir
hlutfallslega meira í mat en fólk
með háar tekjur. Þessar meðaltöl-
ur segja því ekkert um skipting-
una hjá mismunandi hópum. Þær
endurspegla bara neyslu allra
heimila,“ segir hún og telur að
lægra matvöruverð komi öllum
vel þó að það komi best þeim sem
lægstu tekjurnar hafi.
Henný kemur ekki á óvart að
ferðakostnaðurinn hafi hækkað.
Landsmenn hafi keypt dýrari bíla
og kostnaður vaxið í samræmi við
það. „Bílafloti landsmanna hefur
verið að stækka þannig að það
hefur áhrif,“ segir hún.
ghs@frettabladid.is
Kjötvörur stærstar í
matarútgjöldunum
Stærsti hlutinn af útgjöldum heimilanna fer í húsnæði og næststærsti hlutinn í
ferðakostnað. Matarkostnaðurinn er þriðji stærsti útgjaldaliður heimilanna. Af
matnum taka kjötvörur mest, rúman fimmtung af matarútgjöldunum.
SPURNING DAGSINS
MEÐALÚTGJÖLD HEIMILANNA
20%
15%
10%
5%
0%
Matur og
drykkjar-
vörur
Áfengi og
tóbak
Föt og
skór
Húsnæði,
hiti og
rafmagn
Húsgögn
og heimil-
isbúnaður
Heilsu-
gæsla
Ferðir og
flutningar
Tóm-
stundir og
menning
Menntun Annað
Hróbjartur, hvað er tölvupóst-
urinn að gera í Brussel?
Ég veit ekki hvað hann er að gera í
Brussel. Ég hef ekki ekki sagt nein-
um að hann sé þar.
Forsíðufyrirsögn Blaðsins í gær var „Póst-
arnir eru í Brussel“, og var þá átt við að
máli Jónínu Benediktsdóttur vegna birt-
ingar Fréttablaðsins á tölvupósti hennar
hefði verið skotið til Mannréttindadóm-
stóls Evrópu, en hann er staðsettur í
Strassborg. Hróbjartur Jónatansson er
lögmaður Jónínu.
20,1%
15,9%
13,56%
3,8%
3,06%
5,7%
26,53%
5,8%
5,35%
3,6%
3,68%
14,7%
14,4%
11,4%
0,5%0,5%
12,3%
10,89%
■ 2002
■ 2006 (m.v. sept.)
HLUTFALL MATAR AF
HEIMILISÚTGJÖLDUM
1. september 2006
16,1%
21,5%
4,9%
17,6%
9,73%
5,9%
11,1%
Brauð og kornvörur
Kjöt
Fiskur
Mjólk, ostar og eggÁvextir og
grænmeti
Drykkjarvörur
Sykur
og sælgæti
Annað
Olíur og feitmeti
11,8%
1,5%
4,6%
17,46%
2,9%
3,1%
sími
sími
FRÉTTABLAÐIÐ Páll Baldvin
Baldvinsson hefur verið ráðinn
fulltrúi ritstjóra á Fréttablaðinu.
Páll Baldvin
hefur verið
ritstjóri DV
síðan í janúar á
þessu ári og var
áður menningar-
ritstjóri á sama
blaði. Áður var
Páll listrænn
ráðunautur hjá
Leikfélagi
Reykjavíkur og
dagskrárstjóri
Stöðvar tvö.
Meginverksvið Páls verður
umfjöllun um menningarmál.
Páll Baldvin tekur til starfa á
Fréttablaðinu í dag og býður
ritstjórn blaðsins hann velkominn
til starfa. - st
Nýr liðsmaður á Fréttablaðinu:
Páll Baldvin
fulltrúi ritstjóra
PÁLL BALDVIN
BALDVINSSON
Fulltrúi ritstjóra á
Fréttablaðinu.
EINSTÖKU
föndurvörurnar loksins á Íslandi!
SKRIFSTOFUVÖRUR
Borgartúni 29 • Sími 515 5170 • Opið virka daga kl. 8-18 og laugardaga kl. 11-16
www.oddi.is
VINNUMARKAÐUR Kjararáð hefur
ákveðið að hækka laun ráðherra,
þingmanna og helstu embættis-
manna þjóðarinnar um þrjú
prósent til viðbótar þeim 2,5
prósentum sem þessir hópar
fengu um síðustu áramót. Ákvörð-
unin gildir frá og með 1. júlí.
„Þetta er rökrétt niðurstaða,“
segir Gylfi Arnbjörnsson,
framkvæmdastjóri ASÍ. „Kjara-
ráð horfir þarna til þess sem
gerðist í sumar þegar Forsendu-
nefndin komst að þeirri niður-
stöðu að enginn launamaður
skyldi fá minna en 5,5 prósenta
launahækkun á tólf mánaða
tímabili og sérstakur taxtaviðauki
var settur fyrir þá lægst laun-
uðu.“ - ghs
Ákvörðun Kjararáðs:
Hækka laun
þingmanna
og ráðherra
STJÓRNMÁL Þeir sem eru skatt-
skyldir – fólk og fyrirtæki – þurfa
að greiða 14.580 krónur í skatt til
Ríkisútvarpsins ohf. á ári hverju.
Þetta kemur fram í frumvarpi
menntamálaráðherra um breyt-
ingu Ríkisútvarpsins í hlutafélag í
eigu ríkisins, sem lagt var fram á
Alþingi í gær. Skatturinn verður
lagður á eftir 1. janúar 2009 en
fram að því verða afnotagjöldin
áfram innheimt.
Afnotagjöldin nema nú rúmum
35 þúsund krónum á ári. Séu tveir
skattskyldir í heimili þarf fjöl-
skyldan að greiða tæpar þrjátíu
þúsund krónur til Ríkisútvarpsins
á ári. Séu fjórir skattskyldir nemur
fjárhæðin tæpum sextíu þúsund
krónum á fjölskylduna.
Frumvarpið er í meginatriðum
samhljóða frumvarpi sem lagt var
fram á síðasta þingi.
Ríkisútvarpinu ohf. verður
heimilt að standa að annarri starf-
semi sem tengist starfsemi þess en
óheimilt að eiga hlut í öðru fyrir-
tæki sem gefur út dagblað eða
rekur útvarpsstöð.
Menntamálaráðherra fer með
eignarhlut ríkisins í Ríkisútvarp-
inu ohf. Stjórn þess verður kjörin á
Alþingi og ræður hún útvarps-
stjóra sem ræður aðra starfsmenn.
Hlutverk stjórnar verður hliðstætt
hlutverki stjórna hlutafélaga. - bþs
Ríkisútvarpið verður hlutafélag í eigu ríkisins samkvæmt nýju frumvarpi:
Útvarpsskatturinn 14.580 á ári
ÞORGERÐUR KATRÍN GUNNARSDÓTTIR
menntamálaráðherra hefur lagt fram
frumvarp um breytingu Ríkisútvarpsins
í hlutafélag.
SVÍÞJÓÐ, AP Sænska Ríkisþingið staðfesti í gær kjör
Fredriks Reinfeldt, leiðtoga Hægriflokksins, í
embætti forsætisráðherra. Þar með voru stjórnar-
skiptin innsigluð eftir tólf ára óslitna valdatíð
jafnaðarmanna.
Hinn 41 árs gamli Reinfeldt sagði að það væri
skrítin tilfinning að taka við valdataumunum. Hann
er yngsti forsætisráðherrann í sænskri stjórnmála-
sögu síðan árið 1926.
Göran Persson, sem sat í tíu ár í forsætisráð-
herrastólnum, óskaði arftakanum til hamingju með
stuttu handabandi eftir að atkvæðagreiðslan fór
fram. 175 þingmenn borgaralegu flokkanna fjögurra
greiddu Reinfeldt atkvæði sitt en 169 þingmenn
jafnaðarmanna, græningja og vinstrisósíalista voru
á móti. Fimm þingmenn voru fjarverandi.
Reinfeldt mun kynna ráðherralista hinnar nýju
ríkisstjórnar Svíþjóðar í dag og halda fyrstu
stefnuræðu sína. - aa
TEKINN VIÐ Fredrik Reinfeldt talar í
þinginu í Stokkhólmi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Stjórnarskiptin í Svíþjóð innsigluð með atkvæðagreiðslu á þingi:
Reinfeldt formlega tekinn við
SAMGÖNGUR Greint hefur verið frá
því í fjölmiðlum að eitt stærsta
flugfélag heims, Ryanair, hafi
ákveðið að hefja áætlunarflug til
Íslands næsta sumar og er þetta
haft eftir fréttabréfi Félags
íslenskra atvinnuflugmanna.
Blaðafulltrúi Ryanair á aðal-
skrifstofu félagsins á Írlandi segir
ekkert hæft í þessum sögusögnum.
Félagið hafi enga ákvörðun tekið
um þetta. „Keflavík er meðal
margra tuga annarra flugvalla í
Evrópu sem Ryanair flýgur ekki til
og það er í sífelldri endurskoðun
hvort til þeirra skuli flogið eða
ekki,“ sagði blaðafulltrúinn í viðtali
við Fréttablaðið í gær. - kóþ
Lággjaldaflugfélagið Ryanair:
Engar áætlanir
um Íslandsflug
BANDARÍKIN, AP Fjórar af Amish-
telpunum fimm sem myrtar voru
fyrr í vikunni í Pennsylvaníu í
Bandaríkjunum voru jarðsettar í
gær. Útför þeirrar fimmtu verður
haldin í dag.
Tvær telpnanna sem létust voru
sjö ára, en hinar átta, tólf og
þrettán ára. Tvær þeirra voru
systur. Fimm telpur liggja enn á
sjúkrahúsi eftir árás byssumanns-
ins inn í skóla trúarsafnaðarins,
misalvarlega slasaðar.
Talsmaður Amish-fólksins hefur
beðið umheiminn um að fyrirgefa
byssumanninum, sem ekki var af
þeirra trú, og um að biðja fyrir
eftirlifandi eiginkonu hans og
þremur ungum börnum. - smk
Barnamorðin í Pennsylvaníu:
Telpurnar born-
ar til grafar
LÍKFYLGDIN Fjölmenni var við útför
Amish-stúlknanna í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Mál Öryrkjabandalags
Íslands gegn fjársýslum íslenska
ríkisins verður tekið til aðalmeð-
ferðar í Héraðsdómi Reykjavíkur í
dag.
Málshöfðun ÖBÍ byggir á
samkomulagi frá 2003 milli ÖBÍ og
ríkisins, þess efnis að frá og með 1.
janúar 2004 skyldi grunnörorkulíf-
eyrir, þeirra sem samkvæmt lögum
um almannatryggingar hafa verið
metnir 75 prósent öryrkjar eða
meira, hækka þannig að grunnlíf-
eyrir skyldi tvöfaldast.
Aðalkröfu ÖBÍ var vísað frá en
málið tekið til dóms á forsendum
varkröfu félagsins. - mh
Mál ÖBÍ og íslenska ríkisins:
Málið tekið til
aðalmeðferðar