Fréttablaðið - 06.10.2006, Side 4
4 6. október 2006 FÖSTUDAGUR
GENGIÐ 05.10.2006
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
119,246
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
67,99 68,31
128,16 128,78
86,38 86,86
11,583 11,651
10,316 10,376
9,279 9,333
0,5777 0,5811
100,55 101,15
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
LÖGREGLUMÁL Ökumaður slapp
lítið meiddur eftir að bifreið hans
valt á Landvegi, skammt frá
afleggjaranum að Laugalands-
skóla um sjö leytið í gærmorgun.
Að sögn lögreglu var mikil
hálka á veginum og virðist sem
ökumaður bifreiðarinnar hafi
ekki áttað sig nægilega fljótt á
aðstæðum.
Bifreiðin rann til á veginum og
valt eina veltu. Ökumaðurinn
óskaði sjálfur eftir hjálp og gat
komið sér út úr bifreiðinni. Að
sögn lögreglu bjargaði bílbelti
ökumannsins því að ekki fór verr.
Bifreiðin er mikið skemmd eða
jafnvel ónýt. - mh
Bílvelta í mikilli hálku:
Slapp ómeiddur
úr bílveltu
HEILBRIGÐISMÁL Jóhannes M. Gunn-
arsson, framkvæmdastjóri lækn-
inga á Landspítala - háskólasjúkra-
húsi, segir það varhugaverða þróun
að tilteknar aðgerðir skuli ekki
lengur vera framkvæmdar innan
veggja spítalanna. Ýmsar sértækar
aðgerðir, hnéuppskurðir og aðgerð-
ir á öxlum, séu nær eingöngu fram-
kvæmdar á einkastofum.
„Það er ekki heppilegt að ákveð-
in þjónusta hverfi algjörlega út af
spítölunum, eins og hefur gerst.
Spítalinn er háskólastofnun sem
gegnir mikilvægu samfélagslegu
hlutverki við að samtvinna þjálfun
starfsfólks og heilbrigðisþjónustu.
Að því leytinu er það óeðlilegt að
spítalinn hafi ekki aðstöðu til þess
að byggja upp þekkingu við vissar
aðgerðir sem aðeins er farið að
bjóða upp á utan spítala. Í því sam-
hengi get ég nefnt sérstaklega
krossbandaaðgerðir á hné, sem fara
nær eingöngu fram utan spítalans.“
Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis-
ráðherra lýsti því yfir í Fréttablað-
inu í gær að hún væri alfarið á móti
einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu
en frumvarp sem felur í sér styrk-
ingu heimilda til aðkomu einkafé-
laga að heilbrigðisþjónustu verður
lagt fram á Alþingi á næstunni.
Ríkið hefur á undanförnum
árum gert þjónustusamninga við
einkafélög, sem taka að sér ákveðna
þjónustu en hún er að stærstum
hluta greidd af ríkinu.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for-
maður Samfylkingar, telur einka-
vætt heilbrigðiskerfi leiða ótvírætt
til ójafnaðar. „Ég tel það algjört
grundvallaratriði að tryggja að allir
njóti jafns aðgangs að heilbrigðis-
þjónustu, án tillits til efnahags og
stöðu í samfélaginu. Ég er því ekki
fylgjandi einkavæðingu í heilbrigð-
iskerfinu. Einkavæðingin felur það
í sér að einstaklingar greiði í aukn-
um mæli með beinum hætti fyrir
þjónustu sem boðið er upp á. Þetta
er því ekki einungis spurningin um
rekstur, heldur ekki síst um aðgang
að þjónustunni og greiðslufyrir-
komulag. Einkafélög geta hins
vegar komið að ákveðnum rekstrar-
þáttum í heilbrigðiskerfinu.“
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstri hreyfingarinnar –
græns framboðs, segir Sjálfstæðis-
flokkinn gæla við einkavæðingu í
heilbrigðisþjónustunni. Hann hafn-
ar slíkum hugmyndum algjörlega
og bendir á heilbrigðiskerfið í
Bandaríkjunum sem víti til varnað-
ar. „Það er alveg ljóst að hugur
Sjálfstæðisflokksins stefnir í átt til
frekari einkavæðingar í heilbrigð-
iskerfinu. Við erum talsmenn
algjörlega gagnstæðs sjónarmiðs.
Reynslan af einkavæddu heilbrigð-
iskerfi er herfileg. Hvergi í heimin-
um er heilbrigðisþjónusta óskil-
virkari og dýrari en í
Bandaríkjunum, þar sem hún er að
mestu einkarekin. Það er nauðsyn-
legt að forðast það eftir fremsta
megni að fara með heilbrigðiskerfi
í bandaríska átt, því það er lang-
samlega dýrasta og versta heil-
brigðiskerfi í heiminum.“
magnush@frettabladid.is
Tilteknar aðgerðir
horfnar af spítölum
Sérstök verkefni innan heilbrigðiskerfisins hafa að undanförnu færst til einka-
félaga. Varhugavert að halda ekki þekkingu innan spítalanna, segir Jóhannes
M. Gunnarsson. Forðumst einkavæðingu, segir Steingrímur J. Sigfússon.
LANDSPÍTALINN VIÐ HRINGBRAUT Sértækar aðgerðir hafa í auknum mæli færst til
einkasjúkrahúsa á undanförnum árum. Nær engar krossbandaaðgerðir á hné fara
lengur fram á Landspítala - háskólasjúkrahúsi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON Vill
forðast einkavætt
heilbrigðiskerfi
eins og heitan
eldinn.
INGIBJÖRG
SÓLRÚN GÍSLA-
DÓTTIR Telur
einkavæðingu
ekki rétta leið
innan heilbrigðis-
þjónustunnar.
���������������������������������������������������������������������� ������������
�������������
������������
���������� ����������
����������������������������������������������������������������
����
�����
�����
��
BRASILÍA, AP Tveir bandarískir
flugmenn flugu einkaþotu sinni á
brasilíska farþegaflugvél í
síðustu viku, með þeim afleiðing-
um að síðarnefnda vélin hrapaði
ofan í Amazonfrumskóginn. Allir
155 farþegarnir um borð fórust.
Flugmennirnir neita ásökunum
brasilískra flugmálayfirvalda um
að hafa slökkt á radarvara vélar
sinnar fyrir slysið, en sá sýnir
öðrum flugmönnum staðsetningu
vélarinnar. Flugmennirnir eru í
farbanni, en hafa ekki verið
handteknir. - smk
Tveir bandarískir flugmenn:
Rákust á flugvél
og 155 fórust
FLUGMENNIRNIR Joseph Lepore og Jan
Palladino rákust á brasilíska farþegavél
með þeim afleiðingum að 155 manns
fórust. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÖGGÆSLA Markmið nýs lögreglu-
embættis á höfuðborgarsvæðinu er
að auka öryggi og öryggistilfinn-
ingu þeirra sem búa og starfa á höf-
uðborgarsvæðinu. Þetta sagði
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra í gær við kynningu áherslu-
atriða nýs lögregluembættis á höf-
uðborgarsvæðinu.
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri
höfuðborgarsvæðisins, var skipað-
ur í sumar og síðan þá hefur verið
unnið að stofnun þessa nýja emb-
ættis og staðfesti dómsmálaráð-
herra skipurit þess í dag til bráða-
birgða.
Þeir þættir sem taldir eru skipta
mestu máli ef auka á öryggistil-
finningu íbúa höfuðborgarsvæðis-
ins eru aukin sýnileg löggæsla, efl-
ing hverfalöggæslu í samvinnu við
sveitarfélög, stofnanir og einstakl-
inga, skilvirkari rannsóknir á saka-
málum, skilvirk upplýsingamiðlun
innan embættisins og til almenn-
ings og að nýta fjármuni betur.
Gert er ráð fyrir því að starf-
semi embættisins skiptist í tvö
meginsvið, annars vegar löggæslu-
svið og hins vegar stjórnsýslu- og
þjónustusvið. Aðstoðarlögreglu-
stjórar fara með yfirstjórn þessara
tveggja sviða. Unnið verður að frek-
ari tilflutningi stjórnenda- og starfs-
manna til hins nýja embættis.
- kdk
Nýtt lögregluembætti á höfuðborgarsvæðinu:
Öryggi borgaranna aukið
Á FUNDINUM Björn Bjarnason dóms-
málaráðherra og Stefán Eiríksson
lögreglustjóri kynntu áherslur nýs lög-
regluembættis á höfuðborgarsvæðinu,
skipulag og yfirstjórn.
LÖGREGLUMÁL Tveir menn brutu
sér leið inn í íbúðarhús í vestur-
bæ Kópavogs í gærmorgun og
veittust að húsráðanda með
kúbeini. Hann náði að verjast
árásarmönnunum en þeir náðu þó
að hafa með sér á brott sjón-
varpstæki húsráðanda. Tilefni
árásarinnar er að sögn lögreglu
talið vera bílaviðskipti sem fóru
illa.
Ekki var búið að handtaka
mennina síðast þegar af fréttist
en lögreglan telur sig vita hverjir
voru þarna að verki. Hún hvetur
mennina til að gefa sig fram sem
fyrst.
- þsj
Bílaviðskipti fóru illa:
Hótuðu manni
með kúbeini
Vítsenglar í Tromsö
Mótorhjólagengið Hells Angels,
eða Vítisenglar, hefur opnað útibú í
Tromsö í Noregi. Þar með er gengið
orðið stærsta mótorhjólagengi
Noregs, með sex útibú, en önnur
mótorhjólagengi stækka þar nú líka
óðum.
NOREGUR
Helga Jónsdóttir hefur verið ráðin
framkvæmdastjóri BSRB. Hún tekur
við af Svanhildi Halldórsdóttur sem
lét af störfum í haust eftir áratuga
starf. Helga hefur starfað í fjármála-
ráðuneytinu frá árinu 1999 og er með
meistarapróf í hagfræði.
STÉTTARFÉLÖG
Nýr framkvæmdastjóri
ALMANNATRYGGINGAR Bótaþegar
Tryggingastofnunar ríkisins geta
einungis skipt ávísun frá stofnun-
inni með því að leggja andvirðið
inn á eigin bankareinkning. Þetta
er gert til að tryggja öryggi í
bankaviðskiptum blaðafulltrúa
KB-banka.
Gjaldkeri hjá Tryggingastofnun
kannaðist hins vegar ekki við að
viðskiptavinir þyrftu að stofna
bankareikning til að skipta ávísun
og sagði það „ekki í samræmi við
almenna þekkingu“ að halda slíku
fram. Samkvæmt lögum um
strikaða tékka, má banki einungis
kaupa strikaða tékka af viðskipta-
manni sínum, eða öðrum banka- kóþ
Tryggingastofnun ríkisins:
Verða að eiga
bankareikning
Alls bíða 200 börn eftir að komast
að á frístundaheimilum í Reykjavík.
2.190 börn hafa fengið vist. Enn vant-
ar 30 starfsmenn til starfa.
FRÍSTUNDAHEIMILI
200 börn bíða