Fréttablaðið - 06.10.2006, Qupperneq 6
6 6. október 2006 FÖSTUDAGUR
Hefur þú smyglað ólöglegum
varningi til landsins?
Já 34,7%
Nei 65,3%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ertu farin(n) að telja dagana
til jóla?
Segðu skoðun þína á visir.is
KJÖRKASSINN
SKIPULAGSMÁL Verndun götumynd-
ar á húseignunum á Lindargötu
21, 23 og 25 hefur verið aflétt.
Þetta var samþykkt í skipulags-
ráði og í borgarráði nýverið, að
sögn Helgu Bragadóttur skipu-
lagsfulltrúa hjá Reykjavíkurborg.
Eigendur umræddra húsa hafa
tjáð Fréttablaðinu að athafna-
menn hefðu bankað upp á hjá
þeim og viljað kaupa eignir þeirra
„á markaðsverði.“ Fengu þeir
vikufrest til þess að svara tilboð-
unum.
Fasteignasalar sem Fréttablað-
ið ræddi við í gær lögðu áherslu á
að mikilvægt væri fyrir húseig-
endur sem fengju tilboð af þessu
tagi að leita ráðgjafar hjá löggild-
um fasteignasölum áður en þeir
gengju til samninga. Verðgildi
eignar í miðborginni gæti snar-
hækkað ef útlit væri fyrir að leyfi
fengist til að rífa gamalt hús og
setja niður meira byggingarmagn
á lóðinni.
„Það hafa borist fyrirspurnir
frá eigendum einhverra af þess-
um gömlu húsum um hvort flytja
megi þau í burtu,“ segir Helga.
„Ekki hafa borist beiðnir um
breytingar á deiliskipulagi á þess-
um lóðum, né heldur beiðnir um
niðurrif húsa, en þær fara til
byggingarfulltrúa. Slíkar umsókn-
ir eru metnar hverju sinni, en
vissulega eru reitir með eldri
húsum í miðborginni sem við vilj-
um gjarnan halda í.“
Helga segir að deiliskipulagið
sem er í gildi fyrir Lindargötu 21,
23 og 25 nú kveði á um sama bygg-
ingarmagn og gömlu húsin séu.
Sækja þurfi um breytingu á deili-
skipulagi ef setja eigi niður meira
byggingarmagn á lóðunum.
Ljóst er að hugur ýmissa stend-
ur til þess að fjölga íbúðum á til-
teknum lóðum við Lindargötu. Til
dæmis er nú til umsagnar hjá
skipulagsfulltrúa umsókn um
breytingar á deiliskipulagi á Lind-
argötu 28, 30 og 32. Þar standa nú
hús, en samkvæmt deiliskipulagi
mega þau víkja.
Verið er að sækja um að byggja
meira á umræddum lóðum heldur
en gert er ráð fyrir í deiliskipu-
lagi, en þær umsóknir eru lagðar
inn fyrir hönd lóðahafa.
jss@frettabladid.is
LINDARGATA Verndun götumyndar á þessu svæði við Lindargötu hefur verið aflétt, samkvæmt samþykktum borgarráðs og skipu-
lagsráðs.
Verndun götumynd-
ar Lindargötu aflétt
Verndun götumyndar á nokkrum húseignum við Lindargötu hefur verið aflétt.
Eigendur húsanna hafa fengið heimsóknir að undanförnu frá athafnamönnum
sem vilja kaupa af þeim á markaðsverði. Þeir fá viku til að hugsa sig um.
BORGARRÁÐ REYKJAVÍKUR
Uppsagnir hjá borginni
Samfylking lét bóka á fundi borgar-
ráðs í gær að það sé áhyggjuefni að
40 prósent sviðsstjóra hefðu sagt upp
störfum hjá Reykjavíkurborg frá því
nýr meirihluti tók við völdum. Í gær
hafi svo ný uppsögn borist frá Helgu
Bragadóttur skipulagsfulltrúa.
Fyrirspurn vegna flugum-
ferðar
Vinstri græn lögðu fram fyrirspurn
um flugumferð á Reykjavíkurflug-
velli á fundi borgarráðs í gær vegna
fjölmiðlaumfjöllunar um umtals-
verða aukningu á umferð æfinga-
og kennsluflugs og umferð stórra
flugvéla um Reykjavíkurflugvöll. Segja
vinstri græn að aukningin samræmist
ekki stefnu borgarinnar.
Lögregla haldi uppi lögum
Vinstri græn lögðu fram tillögu á
fundi borgarráðs í gær um að hafnar
verði viðræður milli borgarinnar og
lögreglunnar um næstu skref í að
uppfylla stefnu borgarinnar, eftir
að fram kom í svari borgarstjóra
að meintir nektarstaðir í miðborg
Reykjavíkur hafi ekki leyfi til að starfa
sem slíkir.
Rætt um kurteisi
Rætt var um kurteisi og mannasiði
á fundi borgarráðs í gær af því tilefni
að borgarstjóri og formaður borgar-
ráðs brugðu sér af fundi til að halda
blaðamannafund um fjárhagsstöðu
borgarinnar.
STJÓRNMÁL Allir þingmenn stjórn-
arandstöðuflokkanna á Alþingi;
Samfylkingarinnar, Vinstri
grænna og Frjálslynda flokksins,
standa að þingsályktunartillögu
um endurskoðun lífeyrismála.
Samkvæmt henni á að ganga
lengra en kveðið er á um í sam-
komulagi ríkisstjórnarinnar og
Landssambands eldri borgara
frá í sumar um kjarabætur aldr-
aðra og öryrkja.
Samkvæmt tillögunni verður
tekjutrygging aldraðra 85 þús-
und krónur og öryrkja 86 þús-
und, að viðbættum vísitölubreyt-
ingum. Um leið verði dregið úr
skerðingu, þannig að í stað þess
að skattskyldar tekjur yfir frí-
tekjumarki skerði tekjutrygg-
ingu um 45 prósent þeirra tekna
sem umfram eru, verði hlutfallið
35 prósent.
Þá er kveðið á um að lífeyris-
þegar geti haft 900 þúsund krón-
ur í tekjur á ári – 75 þúsund krón-
ur á mánuði – án þess að
tekjutrygging skerðist.
Samkomulag ríkisstjórnarinn-
ar og Landssambands eldri borg-
ara miðar að því að frítekjumark-
ið verði 200 þúsund krónur á ári
frá 2009 en hækki upp í 300 þús-
und krónur.
Tillögur stjórnarandstöðunn-
ar eru viðbót við samkomulagið
frá í sumar. Samkvæmt útreikn-
ingum kosta þær 6,5 milljarða
króna. - bþs
Stjórnarandstaðan vill ganga lengra en ríkisstjórnin við að bæta kjör lífeyrisþega:
Frítekjur verði 900 þúsund á ári
STJÓRNARANDSTAÐAN Hefur flutt
sameiginlega þingsályktunartillögu sem
miðar að því að bæta kjör lífeyrisþega.
DÓMSMÁL Íslenska ríkið var í gær sýknað af kröfum
rúmlega tvítugs manns frá Víetnam sem hafði
krafist þess að úrskurður dómsmálaráðuneytis um
að vísa honum úr landi yrði ógiltur. Maðurinn hafði
komið hingað til lands með móður sinni fyrir fimm
árum, þegar hann var 16 ára.
Á tveimur árum hlaut hann fjóra refsidóma,
meðal annars fyrir kynferðisbrot gegn barni,
stórfellda líkamsárás og þjófnað. Vegna þeirra
dóma sat maðurinn í fangelsi í rúmt ár en var sleppt
í ágúst 2004 eftir helming afplánunar sökum ungs
aldurs.
Útlendingastofnun tók ákvörðun um að vísa
manninum úr landi skömmu síðar auk þess sem
honum var bönnuð endurkoma til Íslands í tíu ár.
Dómsmálaráðuneytið staðfesti þann úrskurð og var
manninum tilkynnt um þær málalyktir í janúar
2005. Hann taldi úrskurðinn brjóta stjórnsýslulög
þar sem andmæla- og rannsóknarreglur hefðu verið
brotnar. Einnig hélt hann því fram að hvorki hefði
verið tekið tillit til þess að hann hefði ekki náð
fullorðinsaldri þegar brotin voru framin né að hann
hefði ekki að neinu að hverfa í Víetnam þar sem öll
hans nánasta fjölskylda byggi hér á landi. Héraðs-
dómur Reykjavíkur félst ekki á kröfu mannsins og
því stendur úrskurður dómsmálaráðuneytisins. - þsj
Héraðsdómur staðfesti úrskurð um að vísa rúmlega tvítugum manni úr landi:
Hlaut fjóra dóma á tveimur árum
Það hafa borist fyrir-
spurnir frá eigendum
einhverra af þessum gömlu hús-
um um hvort flytja megi þau í
burtu
HELGA BRAGADÓTTIR
SKIPULAGSFULLTRÚI REYKJAVÍKURBORGAR
MENNTAMÁL Stjórn og starfsmenn
Háskólans á Bifröst funduðu í
gærkvöld með það að markmiði
að draga úr ólgu sem hefur verið
við skólann. Ástæðurnar eru
stjórnunarhættir og skipulags-
breytingar innan skólans.
„Við komum okkar skilaboðum
á framfæri og lögðum jafnframt
fram tillögur til úrbóta sem vel
var tekið í af stjórn og rektor,“
sagði Hólmfríður Sveinsdóttir,
formaður starfsmannafélags
skólans, en samkvæmt heimildum
beindist óánægjan einkum að
stjórnunarháttum Runólfs
Ágústssonar rektors. Ekki náðist í
rektor í gærkvöld. - kdk
Fundað á Bifröst í gærkvöld:
Vona að dragi
úr ólgunni
DÓMSMÁL Ungur maður var í
síðustu viku dæmdur af Héraðs-
dómi Vestfjarða til að greiða 160.000
krónur í sekt fyrir að hafa haft í
fórum sínum 77 grömm af hassi.
Maðurinn kastaði hassinu út um
glugga bifreiðar sem hann var
farþegi í þegar hann veitti því
eftirtekt að lögreglan væri á slóð
hans. Vegna ungs aldurs mannsins
þótti því ofangreind refsing hæfileg.
- þsj
Dæmdur til að greiða sekt:
Kastaði hassi út
úr bifreið
SAMGÖNGUMÁL Sturla Böðvarsson
samgönguráðherra hefur falið
Vegagerðinni að leita eftir
samningum við Flugfélag Íslands
um flug á milli Reykjavíkur og
Vestmannaeyja sem stutt verður
af ríkinu. Ákvörðun var tekin um
þetta eftir að Landsflug ákvað að
hætta áætlunarflugi til Eyja. Um
er að ræða tímabundinn samning
meðan útboð til lengri tíma er
undirbúið. Á vef ráðuneytisins
kemur fram að það hafi verið
eindregin ósk Eyjamanna að
sætaframboð yrði aukið. Flugfélag
Íslands hafi verið eini valkostur-
inn sem hefði flugvélakost til að
mæta þeim óskum. - kdk
Flugfélag Íslands til Eyja:
Áætlunarflugið
stutt af ríkinu