Fréttablaðið - 06.10.2006, Blaðsíða 22
6. október 2006 FÖSTUDAGUR22
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 6.295 +1,39% Fjöldi viðskipta: 369
Velta: 7.803 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 69,00 +3,92% ... Alfesca 5,05
+0,60% ... Atlantic Petroleum 558,00 -6,22% ... Atorka 6,47 -0,15%
... Avion 31,20 +0,65% ... Bakkavör 58,40 -0,34% ... Dagsbrún 5,09
+0,79% ... FL Group 22,20 +0,00% ... Glitnir 20,30 -0,49% ... Kaup-
þing 857,00 +3,25% ... Landsbankinn 26,40 +0,00% ... Marel 77,00
+0,65% ... Mosaic Fashions 17,30 -0,58% ... Straumur-Burðarás 17,10
-0,58% ... Össur 123,50 +0,82%
MESTA HÆKKUN
Actavis +3,92%
Kaupþing +3,25%
Össur +0,82%
MESTA LÆKKUN
Atlantic Petrol. -6,22%
Flaga -2,87%
Straum.-Burðarás-0,58%
Moggafjólur
Ætla mætti að Jón Karl Helgason, hinn knái bók-
menntafræðingur, eða alnafni hans í kvikmynd-
unum, hafi tekið við störfum forstjóra Icelandair
af Jóni Karli Ólafssyni. Undanfarna daga hafa
nokkrar fréttir tengdar Icelandair birst, þar
sem forstjóri félagsins er feðraður sem
Helgason. Kannski eru listirnar sterkari
í hugum fólks en viðskiptin? Og
talandi um Moggafjólur þá birtist
viðskiptafrétt á síðum blaðsins í
gær þar sem greint frá því að
hópur íslenskra fjárfesta hefði
keypt hollenska drykkjar-
framleiðandann Refresco
fyrir fjörutíu milljarða króna,
samkvæmt tilkynningu frá
seljandanum 3i. Þetta er ein
stærsta fjárfesting Íslendinga fyrr
og síðar og átti sér stað í apríl
síðastliðnum.
Ferðamenn flykkjast á norðlensk hótel
Íslenskir sem útlendir ferðamenn flykktust á
íslensk hótel í ágúst og fjölgaði gistinóttum í
öllum landshornum samtals um 5,7 prósent.
Í ágúst stendur þó Norðurland uppi sem
ótvíræður sigurvegari þar sem gistinætur
fóru úr 14.400 í 17.800 milli ára sem er 23
prósenta aukning. Á samanlögðu svæði
Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða
fjölgaði gistinóttum um sautján prósent,
á Suðurlandi fjölgaði um 7,5 prósent en
á Austurlandi fjölgaði þeim um fjögur
prósent. Höfuðborgarsvæðið rekur
svo lestina með eins prósents
aukningu á gistinóttum. Í takt
við fjölgun gistinótta fjölgaði
gistirýmum. Í ágúst í ár stóðu
bæði fimm prósent fleiri
herbergi og fimm prósent fleiri
rúm ferðamönnum til boða en
í ágúst í fyrra.
Peningaskápurinn ... MARKAÐSPUNKTARStjórn Englandsbanka ákvað í gær að
halda stýrivöxtum í Bretlandi óbreyttum
í 4,75 prósentum. Ákvörðunin kemur
ekki á óvart enda bjuggust flestir grein-
ingaraðilar við þessari niðurstöðu.
Seðlabanki Danmerkur ákvað í gær að
feta í fótspor evrópska seðlabankans í
gær og hækka stýrivexti um 25 punkta í
3,5 prósent.
Heimsmarkaðsverð á hráolíu hefur
hækkað nokkuð á helstu fjármálamörk-
uðum í gær í kjölfar þess að Edmund
Daukoru, olíumálaráðherra Nígeríu og
forseti samtaka olíuútflutningsríkja,
OPEC, sagði samtökin vera að íhuga að
draga úr olíuframleiðslu til að sporna
gegn verðlækkunum á olíu. Nú þegar
hafa tvö aðildarríki ákveðið að draga úr
framleiðslunni.
Og Vodafone heitir eftir-
leiðis Vodafone á Íslandi.
Í gær var skrifað undir
samning við Vodafone
Group um notkun vöru-
merkisins. Hann er sá
fyrsti sinnar tegundar
í heiminum og markar
upphaf nánara samstarfs
fyrirtækjanna.
Og fjarskipti ehf. hefur gert samn-
ing við alþjóðlega farsímafélagið
Vodafone Group um nánara sam-
starf og samnýtingu vörumerkis
þess síðarnefnda. Hér eftir mun Og
Vodafone því heita Vodafone á
Íslandi og verða vörur og þjónusta
fyrirtækisins markaðssett undir
vörumerki Vodafone.
Samningurinn var kynntur með
viðhöfn í nýjum höfuðstöðvum
félagsins við Skútuvog í gær. „Þetta
eru mikil tímamót fyrir okkur.
Samningurinn felur í sér nánara
samstarf fyrirtækjanna en áður
hefur verið. Með honum fáum við
fullt leyfi til að nota vörumerki
Vodafone og jafnframt fullan
aðgang að þeirra vöru- og þjónustu-
framboði,“ sagði Árni Pétur Jóns-
son, forstjóri Vodafone á Íslandi,
og benti á að þetta væri í fyrsta
sinn sem samstarfsfyrirtæki Voda-
fone Group fengi leyfi til þess að
nota nafn og merki Vodafone án
þess að vera í eigu samstæðunnar.
Árni Pétur segir mikla viður-
kenningu í því fólgna fyrir fyrir-
tækið og starfsfólk þess að Voda-
fone Group skuli velja það sem
fyrsta fyrirtækið í heiminum í nýju
samstarfsfyrirkomulagi. „Af sam-
starfsfyrirtækjum í yfir þrjátíu
löndum, flest mjög stór, völdu þeir
að fá okkur til að ryðja brautina
fyrir þennan farsímarisa,“ segir
Árni Pétur og kveður með sam-
komulaginu íslenskum notendum
tryggð betri þjónusta, betra sam-
band og hagstæðara verð en áður.
„Íslendingar eru löngu hættir að
láta landamæri stöðva sig og greið-
ari aðgangur að neti Vodafone á
heimsvísu á eftir að lækka sím-
reikninginn erlendis verulega sem
kemur sér vel fyrir ferðaglaða
Íslendinga, hvort sem ferðast er í
vinnu eða í fríi,“ segir hann. Um
leið og skrifað var undir samning-
inn var einnig kynnt þjónustan
Vodafone Passport sem gildir í
átján löndum, en í þeim eru 83 pró-
sent af reikisímtölum Íslendinga.
„Notendur greiða sama mínútu-
verð og þeir væru staddir hér,“
segir hann og nefnir sem dæmi að
kostnaður við fimm mínútna símtal
hingað frá Bretlandi lækki um tæp
áttatíu prósent. „Það munar um
minna fyrir neytendur.“
Matthias Jungemann, fram-
kvæmdastjóri samstarfssviðs Voda-
fone Group, fagnaði einnig sam-
starfinu. „Íslenski markaðurinn er
framsækinn og símnotendur kröfu-
harðir og vel að sér í tæknimálum.
Vodafone á Íslandi hefur sýnt og
sannað að þeir kunna sitt fag þegar
kemur að markaðssetningu og inn-
leiðingu á nýjungum Vodafone.
Þeir hafa unnið sér fullt traust
okkar sem endurspeglast í að
Íslendingar fá fyrstir þjóða leyfi til
þess að nota Vodafone nafnið eitt
og sér.“
Jungemann segir að Vodafone
komi til með að horfa til reynslunn-
ar af samstarfinu hér áður en sam-
bærilegir samningar verði gerðir í
öðrum löndum. En kveður um leið
mikilsvert að fá með þessum hætti
komið vörumerki Vodafone sem
víðast til neytenda og í því sé akkur
fyrirtækisins fólginn.
olikr@frettabladid.is
Verð símtala í útlöndum
lækkar í kjölfar samnings
Greining Glitnis spáir sex prósenta hækkun Úrvalsvísitölunnar á fjórða
ársfjórðungi og fimmtungshækkun vísitölunnar fyrir árið í heild. Að mati
deildarinnar leynast enn kauptækifæri í bréfum nokkurra félaga.
Í afkomuspá Glitnis segir að nokkrir þættir hafi snúið við innlendum hluta-
bréfamarkaði. Þar má nefna betri stemningu fjárfesta, ágæt kauptækifæri
hafi myndast eftir lækkanir fram yfir mitt ár, fjárfestar hafi ofmetið hátt
vaxtastig og síðast en ekki síst hafi óvissu verið eytt eftir að bankarnir luku
við að fjármagna sig fyrir næsta ár.
Glitnir spáir Kaupþingi langmestum hagnaði fyrirtækja í Kauphöll og í
raun methagnaði fyrir félag á einum ársfjórðungi því hann mun verða 39,3
milljarðar á þriðja ársfjórðungi. Þá spáir Glitnir Existu yfir 24 milljarða króna
hagnaði, FL Group um 7,8 milljarða hagnaði, Landsbankanum um það bil
6,2 milljörðum og Straumi 5,3 milljörðum króna.
Verðkennitölur hlutabréfa lækka samkvæmt spá Glitnis. Þannig lækkar
vænt V/H hlutfall markaðarins (markaðsvirði/hagnaði) úr 13,9 frá því í júlí í
13,2 þrátt fyrir hækkun markaðsverðmætis að undanförnu. Væntur hagnað-
ur hefur hækkað auk þess sem innkoma Existu lækkar meðaltalshlutfallið.
Þá hækkar vænt arðsemi eigin fjár að meðaltali frá síðustu spá og verður
um 25 prósent. - eþa
Glitnir reiknar með
frekari hækkunum
KAUPÞINGI SPÁÐ 39 MILLJARÐA HAGNAÐI SEM YRÐI MET.
ÞÉTT SETNIR BEKKIR Fjölmenni var á fundi Glitnis þar sem bankinn kynnti spá sína
um afkomu félaga á þriðja ársfjórðungi og horfur á markaði. Fréttablaðið/GVA
NÁNARA SAMSTARF HANDSALAÐ Matthias
Jungemann, framkvæmdastjóri samstarfs-
sviðs Vodafone Group og Árni Pétur Jóns-
son, forstjóri Vodafone á Íslandi, afhjúpuðu
saman nýtt merki Vodafone hér á landi.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Stjórnarformaður og þrír hátt settir stjórnendur í
Mosaic Fashions seldu í gær samtals 69.960.585
hluti í félaginu. Salan fór fram á genginu 17,2 og
var söluandvirði hlutanna því rúmlega 1,2 milljarðar
króna. Þetta voru þeir Stewart Binnie, stjórnarfor-
maður félagsins, Richard Glanville fjármálastjóri,
Derek Lovelock forstjóri og Meg Lustman, fram-
kvæmdastjóri viðskiptaþróunar. Eftir söluna eiga
stjórnendurnir þrír og stjórnarformaðurinn samtals
eftir 324.540.754 hluti í félaginu.
Meðal kaupenda að hlutunum voru Glitnir banki,
Fons, eignarhaldsfélag í eigu Pálma Haraldssonar
og Jóhannesar Kristinssonar, og aðrir fjárfestar.
Jafnframt keyptu þeir Gunnar Sigurðsson og Þór
Sigfússon, stjórnarmenn í Mosaic, samtals 1.744.186
hluti í félaginu. - hhs
Stjórnendur selja í
Mosaic Fashions
DEREK LOVELOCK, FOR-
STJÓRI MOSAIC Hátt settir
stjórnendur í Mosaic hafa
selt 69.960.585 hluti í
félaginu.
Sigþóra Gunnarsdóttir
Sölumaður í verslun RV
R
V
62
17
Höldum óhreinindum á mottunni
Úti- og innimottur fyrir íslenskar aðstæður
Á til
boð
i
í ok
tóbe
r 20
06
Úti-
og in
nimo
ttur
af ým
sum
ger
ðum
og s
tærð
um
…fjarlægir óhreinindi og vætu af skóm
…hindrar að gólfið innandyra verði hált
…heldur anddyrinu hreinu og snyrtilegu
gólfmottukerfið