Fréttablaðið - 06.10.2006, Page 29
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Hauki Valgeiri Magnússyni var boðið að starfa á
veitingastað Jamie Oliver, en þar getur tekið marga
mánuði að fá borð.
Haukur lauk námi frá Hótel- og veitingaskóla Íslands í maí
síðastliðnum, en síðan þá hefur hann starfað á veitinga-
staðnum La Primavera.
Á Food and Fun-keppninni sem haldin var fyrr á þessu
ári má segja að lukkuhjólið hafi tekið góðan snúning í lífi
Hauks, en þar kynntist hann manni sem er yfirkokkur á
veitingastað sem er í eigu Jamie Oliver. „Ég var í útskriftar-
bekk þegar þessi keppni stóð yfir en það hefur skapast hefð
fyrir því að sá bekkur aðstoði kokka í keppninni. Það koma
um það bil tíu kokkar til landsins að keppa og ég lenti með
þessum manni sem er yfirkokkur á Fifteen – en það er mjög
vinsæll veitingastaður sem Jamie Oliver rekur í London.
Þegar keppnin var búin þá leist honum svo vel á mig að
hann bauð mér að koma út. Ég þáði það vitanlega samstund-
is, en þó hefur tekið hálft ár að koma mér úr landi,“ segir
Haukur, sem leggur í hann til London um næstu helgi.
Í þessum bransa ku víst ekki vera einfalt að koma sér
áfram og jafnvel þó að Hauki hafi persónulega verið boðið
af yfirkokki Fifteen að heimsækja veitingahúsið, þá var
kálið ekki sopið þó í ausuna væri komið. „La Primavera er
eins konar vinastaður Fifteen en núverandi yfirmaður
minn, Leifur Kolbeinsson, ýtti undir það að þeir myndu
standa við þetta tilboð,“ segir Haukur og bætir því við að
marga mánuði geti tekið að fá borð á Fifteen og þangað
komist alls ekki allir sem vilja, hvort sem um er að ræða í
eldhús eða borðsal. Hann bætir því líka við að þetta sé ekki
venjulegt veitingahús eins og fólk á að venjast. „Staðurinn
er eiginlega tvíþættur í þeim skilningi að þarna rekur Jamie
Oliver veitingastað en svo eru einnig teknir upp sjónvarps-
þættir þarna þar sem Jamie kennir afvegaleiddu ungu fólki
að elda mat og koma undir sig fótunum,“ segir Haukur full-
ur tilhlökkunar að komast í þessa starfskynningu á einum
þekktasta veitingastað Evrópu. margret.hugrun@frettabladid.is
Eldar fyrir
Jamie Oliver
Á Food and Fun hátíðinni sem haldin var fyrr á þessu ári kynntist Haukur Valgeir Magnússon, yfirkokki á
veitingastað Jamie Oliver. Þessi kynni leiddu til þess að Haukur er á leið til London í starfskynningu hjá
Jamie. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
GÓÐAN DAG!
Í dag er föstudagurinn 6.
október, 279. dagur ársins
2006.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 7.50 13.16 18.40
Akureyri 7.38 13.01 18.22
BRAGÐGÓÐIR BANANAR
Mest ræktaði ávöxtur í heimi
MATUR 2
Sushismiðjan er með sérstök
mánudagstilboð í október og
býður upp á tíu bita sushibakka
og gos á aðeins 1.300 krónur á
mánudögum.
Smjörvi er nú á sérstöku tilboðs-
verði með 20 prósenta afslætti.
Ormson er með AEG þvottavélar,
þurrkara og uppþvottavélar á
tilboðsverði þessa dagana.
Lambalæri af nýslátruðu fást
á aðeins 899 krónur kílóið í
Nóatúni.
30% afsláttur er af Goða
lambalæri í Krónunni.
Body Shop á 15 ára afmæli á
Íslandi og af því tilefni er 25
prósenta afsláttur af allri vöru
í verslununum dagana 5.-8.
október.
ALLT HITT
[ MATUR TILBOÐ ]
Nýtt frá Te&kaffi
TE OG KAFFI HEFUR SETT Á MARKAÐ NÝJA VÖRULÍNU.
Þetta eru þrjár gæða-
tegundir í hagkvæm-
um 400 gramma
umbúðum. Bæði er
hægt að fá baunir
og malað kaffi og er
verðið það sama.
Tegundirnar eru
Java Mocca sem er
léttristað, Colombia
Santos, meðalristað
og Espresso Roma,
dökkristað.
Ljómandi ilmur er af
kaffinu sem höfðar til
allra sælkera.
Java Mocca, Colombia Santos og
Espresso Roma.
BARA TÍU DROPA TAKK
Kaffidrykkir sem eftirréttir
MATUR 4