Fréttablaðið - 06.10.2006, Síða 44
Björn Hlynur Haraldsson er einn
athyglisverðasti leikari þjóðarinnar.
Hann fer með hlutverk Sigurðar Óla í
Mýrinni sem frumsýnd verður 19. októ-
ber og hefur farið á kostum sem Pétur
Gautur í Þjóðleikhúsinu undanfarið.
Hann hefur einnig leikið í stórum sýn-
ingum í London á móti stórstjörnum
en líður best með vinum sínum í Vestur-
porti. Breki Logason hitti Hlyn á kaffi-
húsi í miðbænum og ræddi við hann
um leikhúsið, framtíðina og skyndileg-
ar vinsældir hans hjá hommunum.
„Þetta var nú eiginlega bara ákveðið
svolítið fyrir mig með því að hleypa
mér inn í leiklistarskólann. Ég hafði
ekkert leikið áður og hélt ég kæmist
ekkert inn því ég væri ekki nógu hress.
Allt í einu var ég svo lentur í átta
manna hópi með fólki sem varð bestu
vinir mínir, og er enn í dag,“ segir Björn
Hlynur um leiklistarferilinn.
Vinirnir úr leiklistarskólanum stofnuðu
síðan Vesturport og allir þekkja sigra
leikhópsins úti um allan heim.
En afhverju hefur Vestuporti
gengið svona vel?
„Ég held það sé mikið útaf því að við
viljum ekki láta neitt frá okkur sem við
erum ekki ánægð með. Við erum líka
mjög gagnrýnin á hvert annað og þol-
inmóð. Það er líka í lagi að gefa fólki
smá breik, mér finnst oft á tíðum voða-
leg offramleiðsla á leikhúsi. Þetta er
eitthvað svona tuð sem ég hef lengi
verið með en málið er að þetta er ekki
bara venjuleg vinna.“
Er leiklistin eitthvað meira?
„Já, ég held það. Þetta er svolítið eins
og kveikiþráður sem brennur smátt og
smátt upp ef þú gerir of mikið af hlut-
um sem þér mislíkar, fyrir peninga eða
annarskonar upphefð. Þetta brennur
þá upp þangað til grunnáhuginn á
starfinu er farinn og ég held það sé
erfitt að ná í hann aftur.“
Björn Hlynur er úr Reykjavík, ólst upp
í Vogahverfinu og fór í MS. „Ég fædd-
ist reyndar í Garði á Suðurnesjum og
bjó þar fyrstu fjögur ár ævi minnar.
Pabbi var sveitarstjóri þar.“
Alltaf verið svona mikill töffari?
„Þegar ég var unglingur var ég svona
íþróttalúði í jogging-galla, þangað til
það var orðið hálf kjánalegt. Ég ólst
upp beint fyrir framan Þróttaravöllinn
og þar átti mín framtíð að vera. Síðan
fór ég að vinna í malbiki og á trésmíða-
verkstæði á Keflavíkurflugvelli fjórtán
ára gamall, og þurfti að hætta í boltan-
um. Þetta herti mann og kom mér úr
jogging-gallanum.“
Björn Hlynur hefur leikið bæði á sviði
og í kvikmyndum. Hann segir þetta
tvennt ólíkt og fílar mjög vel að skipta
á milli. „Ég er mjög heppinn að hafa
lent í starfi sem er svona fjölbreytt. Ég
hef til dæmis legið í drullupolli í Norður-
mýrinni og staðið á sviði í Þjóðleikhús-
inu á sama klukkutímanum.“
Hann er mjög vel metinn innan leik-
húsgeirans og hefur lítið verið að
markaðssetja sig sem einhverja
ákveðna týpu. Oft virðist löngunin til
þess að gera eitthvað sem hann er
sáttur með vera sterkari en frægð og
peningar.
Satt?
„Ég held það sé þannig með mig og
vini mína í Vesturporti að við þurftum
að taka netta bílskúrspælingu á þetta
fyrst, eins og við værum hljómsveit.
Við fórum bara inn í bílskúr og æfðum
okkur. Vorum ekkert boyband sem var
sett saman af Einari Bárðarsyni, held-
ur þurftum að gera fullt af mistökum til
þess að ná markmiðum okkar.
Ég held hinsvegar að þetta samfélag
sem við búum í þurfi engar ímyndar-
pælingar. Það er enginn leikari eða
leikstjóri sem selur hér eins og í
Bandaríkjunum, og ég er mjög feginn
því. Ég hef það bara fyrir reglu að gera
aldrei neitt sem ég vil ekki gera.“
Björn Hlynur lék í sýningu í London
síðasta vetur sem hét Bloodwedding
og fékk mikla athygli þar í borg. „Þá
fattaði ég bara hvað það er gott að
vinna með hópnum mínum og það
voru milljón hlutir sem mig vantaði. Ég
komst samt að því að leikhúslíf í Lond-
on er ekki eitthvað sem ég ætla að
eyða hálfri ævinni í að eltast við.“
En ætlarðu þá ekkert meira út?
„Ég þarf kannski bara að gefa þessu
meira rými og tíma til þess að gera
þetta almennilega. Ég er með umboðs-
mann úti og það er alltaf eitthvað að
koma upp. Ég hef farið í prufur en ekki
fengið tilboð sem ég hef þurft að
hafna.“
19. október verður kvikmyndin Mýrin
frumsýnd og fer Björn Hlynur með
hlutverk Sigurðar Óla, aðstoðarmanns
Erlendar.
„Það sem er skemmtilegast við þessa
mynd er að það hefur ekki gerst í hálfa
öld að meirihluti þjóðarinnar hefur
lesið sömu bókina. Og fólk virðist vera
að missa vitið yfir því hver eigi að leika
hvaða hlutverk. Flestum er nokk sama
hver leikur Hamlet í Þjóðleikhúsinu en
um leið og það er komið að því að
velja einhvern löggugæja í krimma
verða allir brjálaðir, en þetta er bara
spennandi.“
Spennandi saga?
„Já, sagan er náttúrlega frábær. En
manni datt aldrei í hug að íslenskir
krimmar gætu virkað þegar þessir
gæjar byrjuðu. Hvað þá að búa til
löggumynd á Íslandi. Maður finnur eftir-
væntinguna og Þjóðverjarnir eru mjög
spenntir líka, enda hefur Arnaldur selt
einhver milljón eintök þar í landi.“
Björn Hlynur segir karakterinn sinn
vera meiri vælukjóa í myndinni en í
bókinni en hann hafi þurft að skapa
hann út frá hinum í myndinni. „Hvorki
ég, Ingvar, Ólafía Hrönn eða nokkur
annar getur hermt eftir því sem hver
einasti íslendingur hefur í hausnum á
sér. Við vinnum svolítið með þennan
pirring á milli Erlendar og Sigurðar
Óla. Þetta er svona gamli skólinn og
ungi hrokagikkurinn sem finnst flestir
glæpir á Íslandi hálf hallærislegir.“
Nú ert þú fjallmyndarlegur.
Hjálpar það mikið?
Hann hlær og verður nett vandræða-
legur. „Ég veit nú ekki alveg að hverju
fólk er að leita. Konur milli sextugs og
sjötugs halda uppi leikhúsi á Íslandi
og ef það væri ekki fyrir þessar góðu
konur væri ég örugglega farinn að
vinna bara í Skífunni.“
Vinsæll hjá stelpum?
„Æi, ég veit það ekki...er maður ekki
bara orðinn of gamall. Það er alveg
sama hvað ég segi um þetta, það
kemur alltaf kjánalega út. En ég er
allavega vinsæll hjá hommunum.“
Ha, hommunum?
„Já eftir að ég lék í myndinni Strákarnir
okkar fékk ég mikla athygli frá þeim. Ég
var samt ekkert svakalega hommalegur
í myndinni og gagnrýnandi Morgun-
blaðsins sagði að ég væri álíka sann-
færandi hommi og Arnold Schwarzen-
egger, sem ég veit ekki hvort ég eigi að
taka sem hrósi eða ekki.“
Það er létt yfir okkar manni, sem er að
klára mótorhjólapróf þessa dagana.
„Mamma hefur samt alltaf bannað mér
að vera á mótorhjóli.“
Ertu næsta stórstjarna Íslands?
„Ég veit það ekki. Ef ég spái of mikið í
það að ná einhverjum stalli og verða
stórstjarna verð ég bara algjörlega
týndur og vitlaus. Svo lengi sem þú
vinnur þína vinnu vel og ert metinn að
verðleikum ertu góður.
„Ég er samt hrikalega leiður á þessu
stjörnukjaftæði hérna á Íslandi og hélt
fyrst að meðan ég væri ekki að básúna
um mitt einkalíf í einhverjum blöðum fengi
ég það tilbaka með því að vera látinn í
friði ... segi ég og er í viðtali í blaði,“ segir
Björn Hlynur og hlær en bætir svo við:
„Á meðan maður selur ekki sál sína fyrir
eitthvað sem skiptir engu máli og stend-
ur uppi með smá sjálfsvirðingu, þá er
þetta í góðu lagi.“
SIRKUS06.10.06
8 viðtalið
Leiðist þetta stjörnu-
kjaftæði á Íslandi
LEIKARINN BJÖRN HLYNUR HARALDSSON LEIKUR SIGURÐ ÓLA Í MÝRINNI
„Konur milli sextugs og sjötugs halda uppi leik-
húsi á Íslandi og ef það væri ekki fyrir þessar
góðu konur væri ég örugglega farinn að vinna
bara í Skífunni.“ [B.H.H]