Fréttablaðið - 06.10.2006, Qupperneq 64
6. október 2006 FÖSTUDAGUR32
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 550 5000.
MERKISATBURÐIR
1659 Hollenskt kaupskip sekkur
við Flatey á Breiðafirði.
1847 Bókin Jane Eyre eftir
Charlotte Bronté er gefin
út.
1895 Samkomuhús Hjálpræðis-
hersins er vígt. Það
var gamli spítalinn við
Aðalstræti í Reykjavík.
1961 Háskólabíó er vígt á
hátíðarsamkomu vegna
hálfrar aldar afmælis
Háskóla Íslands.
1981 Egypski forsetinn Anwar
Sadat er ráðinn af dögum.
1993 Flogið er í fyrsta sinn
í gegnum gatið á
Dyrhólaey, Flugstjóri var
Arngrímur Jóhannsson en
Árni Johnsen var með í
för.
2000 Slobodan Milosevic foreti
Júgóslavíu segir af sér.
THOR HEYERDAL (1914-2002)
Við köllum það þróun
þegar manninum tekst
að flækja hið einfalda.
Norski mannfræðingurinn og
landkönnuðurinn er líklega
þekktastur fyrir Kon Tiki
leiðangurinn.
Á þessum degi árið 1979
varð Jóhannes Páll páfi II
fyrstur páfa til að stíga fæti
inn í Hvíta húsið í Wash-
ington. Fundur hins 39.
forseta og 264. rómverska
páfa vakti nokkra athygli
en í tvö hundruð ára sögu
Bandaríkjanna höfðu fáir
stjórnmálamenn viljað láta
bendla sig við kaþólsku
kirkjuna opinberlega.
Um fjörutíu þúsund
manns komu saman til að
berja páfann augum þegar
hann hélt messu fyrir um
þúsund presta við dómkirkju St. Matthews áður
en hann hélt til Hvíta hússins þar sem hann dvaldi
síðasta daginn af ferðalagi sínu um sex bandarískar
borgir.
Carter forseti ávarpaði
páfann á móðurmáli
hans, pólsku. Þá biðluðu
þeir til heimsins um
kjarnorkuafvopnun og
aukna hjálp til þróunar-
landa. Athöfnin fór frið-
samlega fram en hálfum
tíma fyrir heimsókn páfa
var maður handtekinn
sem hafði í fórum sínum
þrjár byssur og hníf.
Páfinn hitti Carter
forseta á ný ári síðar og
það ár bauð hann Elísa-
betu Englandsdrottningu
velkomna í Vatíkanið. Árið 1998 hafði Jóhannes
Páll páfi annar heimsótt yfir hundrað lönd og farið
hringinn í kringum hnöttinn 27 sinnum. Páfinn lést
2. apríl árið 2005.
ÞETTA GERÐIST: 6. OKTÓBER 1979
Páfinn í Hvíta húsinu
JÓHANNES PÁLL PÁFI II OG JIMMY CARTER
Lagnafélag Íslands fagnar tuttugu ára
afmæli í ár. Í tilefni afmælisins heldur
félagið stórsýningu í Vetrargarði
Smáralindar um þessa helgi. Frétta-
blaðið talaði við Kristján Ottósson, en
hann er framkvæmdastjóri félagsins
og hafði frumkvæði að stofnun þess.
„Ég fór að vinna í að gengið yrði
frá lagnakerfum svo hæglegt væri að
reka þau þegar ég hóf störf hjá bygg-
ingardeild Borgarverkfræðings árið
1975,“ sagði Kristján. Ýmsu var ábóta-
vant á þeim tíma. „Það vantaði upp á
hönnun og frágang stjórnkerfanna.
Iðnaðarmenn settu tækin upp og
tengdu eftir ófullkomnum teikning-
um, svo virkuðu tækin ekki og enginn
vissi neitt.“ Til að ráða bót á vandan-
um var vinnunefnd sett á laggirnar á
vegum Borgarverkfræðings. „Sú
vinna sem þar var unnin er enn í fullu
gildi. Nú á til dæmis handbók að fylgja
öllum lagnakerfum.“
Með tilkomu Lagnafélagsins segir
Kristján ástandið hafa batnað enn
frekar. „Áður en félagið var stofnað
töluðu hönnuðir og iðnaðarmenn
hreinlega ekki saman,“ sagði Kristján,
en honum er mikið í mun að fólk eigi
auðvelt með að stilla og skilja lagna-
kerfi sín. „Það kemur oft fyrir að
handbókum sé ekki skilað. Mér finnst
að lokaúttekt á húsi eigi ekki að geta
farið fram nema handbók fylgi kerf-
unum, allt annað er móðgun við eig-
anda hússins,“ sagði Kristján. „Ef þú
kaupir hárþurrku úti í búð færðu leið-
beiningabækling með. Af hverju ekki
þegar um er að ræða margar gerðir af
tækjum sem vinna saman í húsinu
þínu?“
Orkuveitan er eitt fyrirtækjanna
sem taka þátt í sýningunni í Smára-
lind. „Fólk getur fengið upplýsingar
um eyðsluna í húsi sínu, hvort það sé
að borga meira en vera skal,“ útskýrði
Kristján. „Þegar Lagnafélagið varð
tíu ára var Orkuveitan með þessa
þjónustu í fyrsta skipti. Ég þekki
mann sem komst að því að hann borg-
aði þrefalt meira í hitaveitu en hann
átti að gera, allt einhverjum ofni í bíl-
skúrnum að kenna. Ef menn bara vita
af þessu getur fagmaður stillt og lagað
lagnakerfið,“ sagði Kristján og hvetur
fólk til að mæta á sýninguna til að fá
svör við spurningum sem varða heim-
ili þeirra.
Til að bæta ástandið enn frekar vill
Kristján að komið sé á laggirnar eftir-
litsnefnd með iðnaðinum. „Við þurf-
um smá utanaðkomandi aðhald, sér-
staklega núna þegar hraðinn er svona
mikill. Þetta má ekki gera hroðvirkn-
islega,“ sagði hann. sunna@frettabladid.is
LAGNAFÉLAG ÍSLANDS: Á 20 ÁRA AFMÆLI Á ÁRINU
Fagna afmælinu með
stórsýningu í Smáralind
KRISTJÁN OTTÓSSON Vinnur ötullega að því að frágangur lagnakerfa geri mönnum kleift að
stilla tæki í húsum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Félag ungra Framsóknar-
manna í Reykjavík suður
hefur tekið sér nafnið Alfreð
í höfuðið á Alfreð Þorsteins-
syni, fyrrum borgarfulltrúa
og stjórnarformanni Orku-
veitunnar. Tillagan var sam-
þykkt á fundi 24. september
síðastliðinn. „Þetta var bara
tillaga sem kom upp og fólki
leist vel á. Alfreð hefur unnið
mjög gott starf fyrir þetta
kjördæmi á undanförnum
árum,“ sagði Ingvar Mar
Jónsson, nýkjörinn formað-
ur félagsins. „Svo er þetta
líka töluvert skemmtilegra
og fallegra nafn en FUF RS,“
bætti hann við.
Alfreð kvaðst vera ánægð-
ur með nafngiftina er Frétta-
blaðið spurðist fyrir um við-
brögð hans. „Félagið sendi
mér einmitt skjal um daginn
þar sem það lýsti yfir mikilli
ánægju með störf mín fyrir
borgarbúa og Framsóknar-
flokkinn og taldi að störf mín
væru til fyrirmyndar. Ég er
eðlilega ánægður með það,“
sagði Alfreð. Hann sagðist
þó ekki vera einn um heiður-
inn, því Félag ungra Fram-
sóknarmanna á Austurlandi
heitir í höfuðið á Eysteini
Jónssyni, sem var formaður
Framsóknarflokksins á árun-
um 1962-1968. Alfreð tók
undir það að nafnið væri
þjálla og hljómfegurra en
fyrra nafn félagsins. „Jú,
ætli það ekki. Mér líst bara
vel á þetta,“ sagði hann.
- sun
Ungliðar heiðra Alfreð fyrir störf sín
ALFREÐ ÞORSTEINSSON Fyrir-
mynd ungra framsóknarmanna í
Reykjavík suður. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Elskuleg móðir okkar, fósturmóðir,
tengdamóðir, amma, langamma
og langalangamma,
Hulda Pétursdóttir
sem lést þann 21. september á Fjórðungssjúkrahúsinu
á Akureyri verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju
laugardaginn 7. október kl. 11.00.
Trausti Bertelsson Erla Hjálmarsdóttir
Ólafur Bertelsson
Valgarð Bertelsson Branddís Benediktsdóttir
Jóhanna Bertelsdóttir Haukur Brynjólfsson
Heiðdís Andradóttir Guðjón Sveinsson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Guðrún Soffía Guðmundsdóttir
verður jarðsungin frá Laugarneskirkju föstudaginn 6.
október kl. 15. Þeim sem vildu minnast hennar er bent
á Minningarsjóð Sjálfsbjargarheimilisins,
Hátúni 12, sími 550 0300.
Jón Oddur Kristófersson Marín E. Samúelsdóttir
Guðmundur J. Kristófersson Inga Jóhannsson
barnabörn og langömmubörn.
Frændi minn,
Ólafur Eyjólfsson,
Bólstaðarhlíð 9, Reykjavík,
verður jarðsunginn í dag föstudaginn 6. okt. kl. 15.00
frá Fossvogskapellu.
Sigríður Alexanders.
Ástkær móðir okkar og tengdamóðir
Sigríður Gissurardóttir
frá Drangshlíð undir Eyjafjöllum
lést að Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund 28. sept-
ember sl. Útför hennar fór fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu fimmtudaginn 5. október sl.
Fyrir hönd aðstandenda,
Haukur Filippusson Ragnheiður Kristín Benediktsson
Hrefna Filippusdóttir Árni Gunnarsson
Hörður Filippusson Margrét Oddsdóttir