Fréttablaðið - 06.10.2006, Qupperneq 72
6. október 2006 FÖSTUDAGUR40
tonlist@frettabladid.is
V
in
ni
ng
ar
v
er
ða
a
fh
en
di
r h
já
B
T
S
m
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.
SENDU SMS JA CBF
Á NÚMERIÐ 1900!
ÞÚ GÆTIR UNNIÐ
MIÐA FYRIR TVO.
VINNINGAR ERU B
ÍÓMIÐAR,
DVD MYNDIR OG M
ARGT FLEIRA!
Í kjölfar tveggja kvikmyndahátíða
sem haldnar hafa verið hér á höfuð-
borgarsvæðinu hefur skapast mikil og
góð umræða um fjárstyrki stjórn-
valda til kvikmyndabransans á Íslandi.
Ýmsir aðilar hafa komið að máli og
lofað beinum og óbeinum styrkjum til
að laða erlenda kvikmyndajöfra hing-
að til lands og eins til að styrkja
íslenskt kvikmyndagerðarfólk.
Umræða þessi er að sjálfsögðu öll góð
og blessuð og hljóta allir að fagna
henni. Eftir innan við tvær vikur hefst hins vegar tónlistarhátíðin
Iceland Airwaves en hún hefur verið einn af helstu burðarásum
íslensks tónlistarlífs undanfarin ár.
Að svipuð umræða fari af stað og hefur verið í kringum kvik-
myndahátíðarnar ætti því að vera afar rökrétt skref. Íslenskt tónlistar-
líf hefur gróið vel að undanförnu en betur má ef duga skal. Íslensk
stjórnvöld eiga alveg að geta stutt betur við bakið á íslensku tónlistar-
fólki og öðrum sem starfa í þeim geira, líkt og á að gera fyrir íslenska
kvikmyndageirann. Helsti styrktaraðili íslenskra tónlistarmanna á
ekki að vera Icelandair, eins og maður fær oft á tilfinninguna, heldur
ríkið og sveitarfélög landsins. Það ætti einnig að vera hagur stjórn-
valda að laða hingað erlenda tónlistarmenn til þess að bæði taka upp
plötur og halda tónleika. Sveitarfélög gætu til dæmis lækkað álögur
fyrir tónleikahaldara, sem myndi auðvelda þeim innflutning á vin-
sælum listamönnum. Smábærinn Horsens í Danmörku hefur sem
dæmi gert slíkt og í síðasta mánuði spiluðu þar bæði Madonna og
Rolling Stones.
Styrkir þurfa ekki endilega að hljóða upp á fæði, uppihald, tækja-
kaup eða annað slíkt heldur má líka reyna að hanna umhverfi hér-
lendis þannig að tónlistarlífið geti blómstrað enn frekar. Hér er ekki
verið að halda því fram að stjórnvöld styrki ekki íslenskt tónlistarlíf,
þvert á móti. Frekari umræða þarf samt sem áður að skapast og ætti
komandi Airwaves-hátíð að vera kjörinn vettvangur til þess.
Ósk um umræðu
TÓNNINN GEFINN
Steinþór Helgi Arnsteinsson
> Plata vikunnar
Brain Police - Beyond the Waistland
„Fjórða plata Brain Police veldur
töluverðum vonbrigðum. Ekkert nýtt
er á ferðinni, enginn slagari og sömu
gítarlykkjur og áður.“ FB
Í SPILARANUM
Beck - The Information
Jenny Wilson - Love and Youth
Dirty Pretty Things - Waterloo to Anywhere
Mates of State - Bring it Back
Asobi Seksu - Citrus
D
IR
TY
P
R
ET
TY
T
H
IN
G
S
M
A
TES O
F STA
TE
Hljómsveitin Skakkamanage hefur gefið út sína
fyrstu plötu. Nefnist hún Lab of Love og kemur
út á vegum Smekkleysu.
Skakkamanage hefur áður gefið út sjö
tommu vínylplötu með tveimur lögum sem
kom út fyrir um það bil ári. „Við höfum verið
að vinna í þessari plötu alveg síðan þá,“ segir
Svavar Pétur Eysteinsson. „Þessi plata er bæði
hress og dramatísk og róleg og allt þar á milli.
Þetta er óður til ástarinnar og daglega lífsins,“
segir Svavar.
Skakkamanage var stofnuð í ársbyrjun 2004 af
Svavari, Berglindi Hässler og Þormóði Dagssyni.
„Þegar við fórum að taka upp plötuna ákváðum
við að það væri gaman að þétta bandið og feng-
um fólk til að spila með okkur,“ segir Svavar. Þeir
sem hafa bæst við sveitina, sem nú er orðin sex
manna, eru Örvar úr múm, Björn Kristjánsson og
Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson úr Flís.
Næstu tónleikar Skakkamanage verða í
Smekkleysubúðinni klukkan 17 í dag. Á morgun
spilar sveitin síðan í Máli og menningu. Útgáfu-
tónleikar verða haldnir 14. október. - fb
Óður til ástarinnar
SKAKKAMANAGE Fyrsta plata sveitarinnar er komin
út. Nefnist hún Lab of Love.
MYND/HÖRÐUR SVEINSSON
STEVIE WONDER - SONGS IN THE
KEY OF LIFE
Þetta er plata sem ég
ólst upp við. Pabbi var
mikill Stevie-aðdá-
andi og blastaði hann
rosalega. Þessi plata
festist mest í mér af
plötunum Stevie Wonder. Ég er til
dæmis að spila hann í bílnum mínum
akkúrat þessa dagana. Það er greini-
legt að uppeldið hefur skilað sér.
Það er til dæmis Love‘s in the Need
of Love Today, fyrsta lagið á plötunni.
Og svo As, sem ég uppgötvaði ein-
hvern tímann að væri uppáhaldslagið
hennar Opruh Winfrey!
AÐRAR GÓÐAR: Það eru bara fleiri plöt-
ur með Stevie Wonder. Og svo gamla
efnið með Tom Waits.
JOHN MAYER
- CONTINUUM
Þetta er amerískur gaur
sem er ansi skemmtilegur. Ég veit
eiginlega ekki af
hverju ég byrjaði
að hlusta á hann,
því ekki er hann
mjög þekktur hér
á landi. Tónlist-
in sem hann spilar er svona
amerískt popprokk, ekki ósvip-
að Dave Matthews Band. Ég sá
einhvern tímann myndband í
sjónvarpinu og svo heyrði ég
eitt lag þegar ég var að spila uppi á
Skaga og ákvað í kjölfarið að kíkja á
hann. En hann er mjög vinsæll úti í
Bandaríkjunum. Egill Atla félagi minn
komst að því þegar hann var úti í
skóla að það þyrftu allir að kann-
ast við John Mayer.
UPPÁHALDSLÖG: Slow Dancing in
a Burning Room og Waiting
on the World to Change.
AÐRAR GÓÐAR: Pharrell-plat-
an, In my Mind.
FYRST OG SÍÐAST DANÍEL HJALTASON
DANÍEL HJALTASON
Fótboltamaðurinn og þjónustu-
fulltrúinn býr vel að tónlistarupp-
eldi pabba síns.
Aðgangur að nýrri tónlist
hefur aldrei verið greiðari
heldur en nú. Hún flæðir
yfir mann á MySpace og
tónlistarfjölmiðlar keppast
við að hampa nýjum hetjum
árið um kring. Framboðið
er mikið og þess vegna
stundum erfitt að átta sig.
Trausti Júlíusson staldraði
við þrjár sveitir sem eru
ólíkar, en eiga það sam-
eiginlegt að standa upp úr
fjöldanum.
Skráðir tónlistarmenn á MySpace
skipta milljónum og stór hluti
þeirra eru nýliðar í leit að athygli.
Tónlistarbloggsíður og vefmiðlar
bjóða gjarnan upp á sýnishorn af
nýrri tónlist og það er varla gefið
út tónlistarblað lengur nema disk-
ur, oft með kynningu á nýjum
nöfnum í bransanum, fylgi með.
Framboðið er gríðarlegt og engin
leið að fylgjast með öllu sem er í
gangi. En það er auðvitað ekki
ástæða til þess að hætta að reyna.
Hér á eftir kemur stutt kynn-
ing á þremur hljómsveitum sem
hafa vakið athygli að undanförnu.
Margar aðrar nýjar sveitir hefðu
getað ratað í grein af þessu tagi,
en þessar þrjár, Peter, Björn and
John, The Pipettes og Band of
Horses eiga það sameiginlegt að
hafa nýverið gefið út fínar plötur
sem eru fáanlegar í íslenskum
plötubúðum.
Sænsk eðaltríó
Sænsk tónlist hefur verið í mikilli
sókn undanfarin ár. Peter Björn
and John er tríó frá Stokkhólmi
sem var að senda frá sér sína
þriðju plötu, Writer‘s Block, en
hún er jafnframt sú fyrsta sem
fær dreifingu utan Svíþjóðar.
Hljómsveitin var stofnuð af þeim
Peter Morén, Björn Yttling og
John Eriksson árið 1999. Þeir eiga
allir feril að baki með öðrum sveit-
um. Björn, sem er aðallagasmið-
urinn, er að auki eftirsóttur upp-
tökustjóri og meðlimur í
djassbandinu Yttling Jazz.
Farmiði Peter Björn and John
inn í sviðsljósið er smáskífan
Young Folks sem er ótrúlega gríp-
andi og flottur smellur sem manni
finnst að ætti að hljóma látlaust á
öllum útvarpsstöðvum. Í því lagi
syngur Victoria Bergsman með
sveitinni, en hún var áður í hinni
efnilegu The Concretes, sem
Björn tók m.a. upp. Writer‘s Block
er ein af skemmtilegri plötum árs-
ins. Fersk, fjölbreytt og mátulega
poppuð.
Stelpupopp í nýju samhengi
Stelpusveitin The Pipettes var
stofnuð í Brighton á Englandi
fyrir tveimur árum að frumkvæði
umbans Monster Bobby. Í sveit-
inni eru þrjár söngkonur, Becki,
Rose og Gwenno. Hugmyndin með
The Pipettes var að taka tónlist
stelpusveita sjöunda áratugarins
og uppfæra hana og matreiða fyrir
21. öldina. Eftir þrjár smáskífur
sem vöktu athygli árið 2005 gerði
The Pipettes samning við Memphis
Industries, plötufyrirtækið sem
sló í gegn með The Go! Team-plöt-
unni Thunder, Lightning, Strike
fyrir tveimur árum.
Fyrsta plata The Pipettes, We
are the Pipettes, sem kom út fyrir
stuttu er full af grípandi indie-lit-
uðu stelpupoppi sem minnir mikið
á sveitir eins og The Ronettes, The
Shirelles of The Supremes þó að
sykurhúðin sé ekki alveg jafn
þykk. Til að gera þetta enn meira
sannfærandi klæðast stelpurnar
gjarnan doppóttum kjólum. Text-
arnir eru samt svolítið öðruvísi
eins og sést á laganöfnum eins og
Your Kisses are Wasted on Me.
Ekki nógu frumleg sveit til að
komast ofarlega á árslista, en
skemmtileg engu að síður.
Allt alltaf ...
Rúsínan í pylsuendanum er svo
Seattle-sveitin Band of Horses.
Hún var stofnuð af þeim Ben Brid-
well og Matthew Brooke fyrir
tveimur árum á rústum hljóm-
sveitarinnar Carissa‘s Wierd. Hún
vakti athygli á South by Southwest
hátíðinni í vor og nú er fyrsta plat-
an hennar, Everything All the
Time, nýkomin út hjá Sub-Pop
útgáfunni. Heilsteypt plata sem er
full af flottum lagasmíðum og
áhrifamiklum flutningi. Söngur
Bens minnir bæði á Wayne Coyne
söngara Flaming Lips og Brian
Wilson.
Everything All the Time hefur
fengið frábærar viðtökur gagn-
rýnenda. Bæði Pitchforkmedia og
Stylus hampa sveitinni mikið og
nú er bara að sjá hvort velgengni
hennar verður jafn afgerandi og
Arcade Fire fyrir tveimur árum
og Wolf Parade í fyrra.
Upp á yfirborðið
BAND OF HORSES Seattle-sveit sem slegið hefur í gegn með fyrstu plötu sinni.
THE PIPETTES Skemmtilegt stelpupopp.
PETER BJÖRN & JOHN Sænsk eðalsveit
sem nú heyrist í fyrsta skipti utan
Svíþjóðar. Smellurinn Young Folks er
frábært lag.