Fréttablaðið - 06.10.2006, Síða 80
48 6. október 2006 FÖSTUDAGUR
FÓTBOLTI Johan Cruyff, sem áður
gerði garðinn frægan hjá Barce-
lona og hollenska landsliðinu,
sagði að hann hefði mikla trú á
Eiði Smára en hann myndi hins
vegar láta Javier Saviola lönd og
leið. „Eiður spilar fyrir liðið en
Saviola er meiri einstaklings-
hyggjumaður,“ sagði Cruyff, sem
er vanur að tjá sig umbúðalaust
um gang mála hjá Barcelona og
sitt sýnist hverjum um skoðanir
hans. Flestir hlusta þó þegar
gamla kempan talar.
Jorge Valdano, fyrrum leik-
maður Real Madrid og argent-
ínska landsliðsins, sagði í íþrótta-
blaðinu Sport að frammistaða Eiðs
Smára til þessa væri ótrúlega góð.
Hann hefði leikið í um 100 mínút-
ur, skorað tvö mörk og lagt annað
upp. „Í fyrstu lítur hann þó út fyrir
að vera hálf klaufalegur í saman-
burði við félaga sína sem leika á
meiri hraða en það á eftir að breyt-
ast,“ bætir Valdano við, sem nú er
innanbúðar hjá Real Madrid, erki-
fjendum Barcelona. - jse
Johan Cruyff og Jorge Valdano:
Frammistaða Eiðs
Smára ótrúlega góð
MARK GEGN BILBAO Eiður Smári Guðjohnsen hleypur frá marki Athletic Bilbao eftir
að hafa skorað annað mark Barcelona í 3-1 sigri liðsins um síðustu helgi.
NORDIC PHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Nicolas Anelka, leik-
maður Bolton, hefur verið kall-
aður inn í franska landsliðið.
Raymond Domenech, landsliðs-
þjálfari Frakka, ákvað að bæta
Anelka í hópinn vegna meiðsla
sem Louis Saha og Sidney Govou
eiga við að glíma þessa dagana
en þó er ekki útilokað að Saha og
Govou geti leikið með Frökkum
annaðhvort gegn Skotum á morg-
un eða gegn Færeyjum á mið-
vikudaginn.
„Það kemur í ljós á laugar-
daginn hvort þeir geta spilað en
annars erum við með lausn á því
vandamáli,“ sagði Domenech.
Anelka lék síðast fyrir landsliðið
í mars á þessu ári og hefur skor-
að sjö mörk í 31 landsleik. - dsd
Nicolas Anelka í náðinni hjá Raymond Domenech:
Anelka aftur í franska landsliðið
NICOLAS ANELKA Er kominn í franska
landsliðið að nýju.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Hörður Antonsson,
formaður meistaraflokksráðs
Fylkis, neitaði því ekki í samtali
við Fréttablaðið í gær að félagið
hefði áhuga á að klófesta Baldur
Bett. Fréttablaðið greindi frá því
fyrr í vikunni að Baldur ætli ekki
að framlengja samning sinn við
FH þar sem hann hefur verið
undanfarin ár.
Hörður sagði þó að félagið
hefði ekki rætt við hann enda er
Baldur samningsbundinn FH til
loka ársins og má samkvæmt
reglum KSÍ ekki ræða við önnur
félög fyrr en 15. október næst-
komandi.
Baldur varð þrefaldur
Íslandsmeistari með FH. - esá
Leikmannamál Fylkis:
Baldur Bett á
leið til Fylkis?
FÓTBOLTI Enskir netmiðlar sögðu
frá því í gær að Reading, lið þeirra
Ívars Ingimarssonar og Brynjars
B. Gunnarssonar, ætli sér að verð-
launa Ívar og þrjá aðra leikmenn
liðsins fyrir góða spilamennsku
það sem af er leiktíðinni með
nýjum samningstilboðum. Ívar
hefur spilað hverja einustu mín-
útu fyrir Reading í deildinni á
tímabilinu og fengið mikið lof
fyrir frammistöðu sína. Hann
hefur m.a.s. skorað eitt mark en
það var sigurmark liðsins í sigri á
Manchester City, 1-0. Leikmenn-
irnir sem sagðir eru eiga von á
nýjum samningi á næstu dögum
eða vikum eru Graeme Murty,
Marcus Hahnemann, Glen Little
og Ívar.
Fréttablaðið náði tali af Ívari í
gær en hann sagði að Reading
væri ekki búið að bjóða sér nýjan
samning. „Þeir hafa ekki boðið
mér neitt ennþá en það er hugsan-
legt að viðræður fari af stað eftir
einhverjar vikur en meira hefur
ekki verið ákveðið,“ sagði Ívar en
núverandi samningur hans við
Reading rennur út árið 2008.
„Samningurinn minn er ekkert að
renna út en þetta er bara eins og
gengur og gerist, ef hlutirnir
ganga vel að þá er eðlilegt að menn
ræði saman. Þetta hefur ekkert
verið rætt en það kæmi mér ekk-
ert á óvart ef viðræður færu í
gang á næstu vikum.“
Fyrir tímabilið var búist við að
Reading yrði í fallbaráttunni á
þessari leiktíð en eins og stendur
er liðið í sjöunda sæti, þremur
stigum frá toppliðunum, Manchest-
er United og Chelsea. „Þetta hefur
eiginlega gengið framar vonum
hjá okkur, þó að við höfðum alltaf á
tilfinningunni að við gætum staðið
okkur vel. Þetta hefur gengið bara
eins og í sögu og við erum með
mjög samstillt lið og einnig með
marga góða leikmenn í liðinu sem
hafa verið að standa sig mjög vel.
Það er bara vonandi að við náum
að halda öllum heilum og halda
áfram að spila svona,“ sagði Ívar
og bætti því við að sjálfstraustið
kæmi samhliða góðu gengi. „Ég
held að það hafi verið mjög mikil-
vægt hjá okkur að vinna fyrsta
leikinn gegn Middlesbrough. Eftir
þann sigur fór fólk að hafa trú á
okkur og sem betur fer höfum við
bara náð að byggja á því.“ - dsd
Fréttir á Englandi herma að Reading ætli að verðlauna Ívar með nýjum samningi fyrir góða spilamennsku:
Þetta hefur gengið framar vonum hjá okkur
ÍVAR INGIMARSSON Má eiga von á nýju
samningstilboði á næstu vikum.
NORDIC PHOTOS/GETTY