Fréttablaðið - 06.10.2006, Síða 86
6. október 2006 FÖSTUDAGUR54
HRÓSIÐ …
FRÉTTIR AF FÓLKI
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8
1 George Bush Bandaríkjaforseti.
2 Take That.
3 11-5 fyrir FH.
LÁRÉTT
2 þó 6 tveir eins 8 magur 9 traust 11
peninga 12 heiti 14 liðamót 16 tveir
eins 17 regla 18 for 20 frá 21 könnun.
LÓÐRÉTT
1 fjör 3 rykkorn 4 skordýr 5 viður 7
pirraður 10 erlendis 13 svelgur 15
glufa 16 þunnur vökvi 19 holskrúfa.
LAUSN
LÁRÉTT: 2 samt, 6 úú, 8 rýr, 9 trú, 11
fé, 12 titil, 14 liður, 16 ll, 17 agi, 18 aur,
20 af, 21 próf.
LÓÐRÉTT: 1 fútt, 3 ar, 4 mýfluga, 5 tré,
7 úrillur, 10 úti, 13 iða, 15 rifa, 16 lap,
19 ró.
Eins og greint var frá í Fréttablað-
inu fyrir nokkru frestuðust tökur á
stórmyndinni A Journey Home
vegna handritavandamála en
myndin er byggð á skáldsögu Ólafs
Jóhanns Ólafssonar. Þær sögur
gengu fjöllum hærra að aðalleik-
kona myndarinnar, Ósk-
arsverðlaunahaf- inn
Jennifer
Connelly, væri
ósátt við hand-
ritið en það
segir Krist-
inn Þórðar-
son hjá
Saga Film,
sem fram-
leiðir
myndina,
vera fjarri sanni. „Því er hins
vegar ekki að neita að það þurfti
að vinna aðeins í handritinu og
laga ákveðna hluti,“ útskýrir Krist-
inn. „Connelly setti ekki fram nein-
ar athugasemdir en það voru skipt-
ar skoðanir á milli leikstjórans Liv
Ullmann og framleiðenda myndar-
innar. Hins vegar voru allir
sammála um að vinna aðeins
betur í handritinu og því var
ákveðið að vera ekki að ana
neinu,“ bætir Kristinn við.
Upphaflega skrifaði Ólafur
Jóhann handrit að mynd-
inni en síðan tók Liv Ullmann við
því og er handritið því nokkurs
konar samstarfsverkefni þeirra á
milli.
Samkvæmt upphaflegri áætlun
var gert ráð fyrir að tökur hæfust
nú í október en þeim hefur verið
frestað fram á næsta ár. Ástæðan
fyrir þessari miklu töf er ákaflega
einföld að sögn Kristins en A
Journey Home gerist að sumri til
og því var ekki hægt að fara í
tökur nú þegar vetur kon-
ungur er á næsta leiti. „Við bíðum
bara í startholunum og förum aftur
af stað í mars eða apríl og byrjum
að ráða til okkar leikara í önnur
hlutverk,“ segir Kristinn en eins
og kunnugt er mun eiginmaður
Connelly, breski gæðaleikarinn
Paul Bettany,
leika á móti
spúsu sinni.
- fgg
Allir í startholunum fyrir Slóð fiðrildanna
JENNIFER CONN-
ELLY Leikur á móti
eiginmanni
sínum í kvik-
myndinni A
Journey Home
sem verður að
hluta til tekin
upp á Íslandi.
ÓLAFUR JÓHANN ÓLAFSSON
Skrifaði uppkast að handriti
sem leikstjórinn Liv Ullmann
tók síðan við. Aðstandendur
myndarinnar vildu ekki taka
neina áhættu og var mynd-
inni frestað um hálft ár.
LIV ULLMANN Leikstýrir A
Journey Home en Saga
Film er einn framleiðenda
myndarinnar.
Sést hefur til Erps Eyvindarsonar, sem oft er
kenndur við Rottweiler hundana, á rölti um
götur borgarinnar með chihuahua-hund upp
á arminn. Sá orðstír fer af rottweiler-hund-
um að þeir séu einna grimmastir hunda og
árásargjarnir með eindæmum. Chihuahua-
hundarnir hafa hins vegar unnið sér það helst
til frægðar að fara vel í kvenmannsveski.
Þegar Fréttablaðið spurði Erp út í viðbrigðin
sagðist hann bara vera helgarpabbi tíkarinn-
ar sem ber nafnið Mía.
„Kærastan mín á hana og ég gekk henni
bara í föðurstað. Þetta er ekta lítill latínó-
hundur frá Mexíkó sem rífur kjaft við allt og
alla, líka miklu stærri hunda. Hún er samt
allt annað en hugrökk ef eitthvað gerist,“
sagði Erpur, og bætti því við að heimahagar
Míu virðist vera henni í fersku minni. „Hún
étur bókstaflega allt. Allt sem maður missir á
gólfið líka, alveg eins og hún sé ennþá á göt-
unni í einhverju ógeðslegu, mexíkósku
slömmi,“ sagði Erpur. „Þetta er æðislegur
hundur,“ bætti hann við og sagðist hafa fulla
trú á því að hún væri jafn skemmtileg sem
Rottweiler.
Erpur segir Míu hafa marga kosti fram
yfir rottweilerhundana. „Það er til dæmis
miklu betra að eiga chihuahua þegar maður
þarf að þrífa skítinn eftir hann. Það er ekkert
smá sem kemur úr rottweilerunum,“ sagði
Erpur, en honum finnst einnig þægilegt að
ferðast með dýrið.
Mía gefur öðrum kjölturökkum ekkert
eftir hvað varðar hundatískuna. „Hún á fullt
af grimmum göllum og fær mikið gefins,“
sagði Erpur. Þetta er margt mjög fyndið, hún
á til dæmis ADIDOG íþróttagalla, sem er ein-
hver stæling á adidas-merkinu. Ég hef ekki
keypt neitt á hana sjálfur nema mexíkana-
hatt sem hún vill ekki vera með.“
Erpur stundar nú nám í Margmiðlunar-
skólanum, en hann sagðist vera að skrifa og
semja á fullu samhliða náminu. „Ég er alltaf
að gera eitthvað, svo kemur bara í ljós í hvaða
birtingarformi þetta verður seinna, hvort
það verður tónlist eða eitthvað allt annað.“
Hann segist ekki verða var við að honum og
Míu sé veitt sérstök eftirtekt á förnum vegi.
„Það eru helst stelpur sem eru líka með litla
hunda sem stoppa okkur og vilja spjalla. Ég
veit samt um nokkra stráka sem eiga chihua-
hua,“ sagði Erpur. „Þó það verði að viður-
kennast að þeir eru fæstir á sama stað og ég
hvað varðar kynhneigð,“ bætti hann við. - sun
ERPUR OG MÍA Erpur hefur heitið því að gefa Míu
aldrei áfengi, en fyrsta chihuahua-hundinn sem
Erpur kynntist fyllti hann þar til hundurinn stóð á
haus. FRETTABLAÐIÐ/TEITUR
Úr Rottweiler í Chihuahua
...fær Ingunn Snædal fyrir að
hafa hlotið ljóðabókarverðlaun
Tómasar Guðmundssonar en
verðlaunin fékk hún fyrir
handritið Guðlausir menn –
Hugleiðingar um jökulvatn og
ást.
Fjölmiðlamaðurinn góðkunni
Kristján Þorvaldsson verður bráð-
um stoltur faðir á ný eftir 23 ára
hlé ef svo má að orði komast.
Kristján er sem kunnugt er pabbi
leikarans Þorvaldar Davíðs.
Barnsmóðirin heitir Árdís Sigurð-
ardóttir og á hún von á sér um
miðjan nóvember en hún starfar
sem blaðafulltrúi hjá breska sendi-
ráðinu og er þetta hennar fyrsta
barn.
Þegar Fréttablaðið hafði uppi á
Kristjáni sat hann í makindum á
skrifstofu sinni hjá hinu nýja
útgáfufélagi Birtingi þar sem hann
ritstýrir Mannlífi, tímariti sem
Kristján þekkir nokkuð vel enda
starfaði hann þar í tvö ár áður en
hann skipti yfir á Séð og heyrt.
„Mér líst bara vel á þetta,“ svaraði
Kristján þegar hann var inntur
eftir því hvernig honum litist á að
verða pabbi aftur. Mikil frjósemi
er hjá starfsmönnum Birtings því
ekki er langt síðan yfirritstjórinn
Mikael Torfason eignaðist sitt
þriðja barn, strákinn Jóel Torfa,
með konu sinni Maríu Unu.
Kristján sagðist vera ánægður
með að vera kominn aftur í hring-
iðu fjölmiðlanna en hann hætti
sem kunnugt er hjá Séð og heyrt í
mars síðastliðnum eftir tíu ára
starf og kom það mörgum í opna
skjöldu. Fróði gaf þá tím-
artið út en mikið vatn hefur
runnið til sjávar síðan.
Fróði hefur verið tekinn
til gjaldþrotaskipta og
nýtt útgáfufélag verið
stofnað með Sigurð G.
Guðjónsson fremstan í
flokki. „Já, það var virki-
lega gott að snúa aftur. Ég
var kominn að
ákveðnum enda-
punkti hjá Séð
og heyrt, fór í
þriggja mánaða
leyfi og sneri
aftur endur-
nærður,“ sagði
Kristján. „Þetta er ekki sama fyr-
irtækið og ég vann hjá undir
það síðasta. Hér eru metnað-
arfullir eigendur, breytt
vinnubrögð og það er horft
til framtíðar.“
freyrgigja@frettabladid.is
KRISTJÁN ÞORVALDSSON: STENDUR Á TÍMAMÓTUM
Verður faðir á ný
PABBI Á NÝ Kristján Þorvaldsson á von á nýjum erfingja um miðjan nóvember.
ÁRDÍS SIGURÐARDÓTTIR Starfar sem
blaðafulltrúi hjá breska sendiráðinu.
MIKAEL TORFASON Frjósem-
in er allsráðandi hjá
hinu nýja útgáfu-
félagi Birtingi en
Mikael eignaðist
sem kunnugt er
nýjan erfingja fyrir
skömmu.
Slúðursíðan Orðið á götunni
hefur farið mikinn við að
spá fyrir um hverjir ætli
að bjóða sig fram í næstu
alþingiskosningum. Á síðunni í
gær voru tveir landskunnir menn
orðaðir við framboð, þeir eru
vissulega þekktir fyrir afskipti
sín af stjórnmálum en hafa
jafnframt getið sér gott orð fyrir
hljómborðsleik. Þetta eru þeir
Guðmundur Steingrímsson,
hljómborðsleikari Ske, og Jakob
Frímann Magnússon sem gegnir
sömu stöðu hjá Stuðmönnum.
Þeir félagar eiga ýmislegt annað
sameiginlegt því þeir eru báðir
sagðir ætla bjóða sig fram í
Suðvesturkjördæmi, eru báðir
búsettir í Reykjavík
og hafa báðir
sterk tengsl við
Hafnarfjörð.
Jakob bjó þar
um stundarsakir
en kærasta
Guðmundar,
leikkonan Alexía
Björg Jóhannes-
dóttr, er
rótgróinn
Hafn-
firðingur.
Íslenskir íþróttafréttamenn
lentu í hremmingum í gær á
leið sinni til móts við íslenska
knattspyrnulandsliðið í
Lettlandi. Hörður Magnússon
og kollegar hans nokkrir tóku
daginn eldsnemma, vöknuðu
um fjögurleytið að morgni og
brunuðu út í Leifsstöð. Þegar
þar var komið kom
hins vegar í
ljós bilun í
vél Iceland
Express sem
átti að flytja
þá til Kaup-
mannahafnar,
en þaðan átti
að fljúga með
SAS til Riga.
Hörður og félagar
þurftu því að
dúsa á Kefla-
víkurflugvelli
í meira en
ellefu tíma í
gærdag.
-fgg/hdm
FRÉTTIR AF FÓLKI
Rapparinn Halldór Halldórsson,
Dóri DNA, gerði stuttan stans á
tímaritaútgáfunni Birtingi í vikunni.
Dóri hafði ráðið sig í vinnu sem
blaðamaður og var falið að skrifa
í vikuritið Séð og heyrt. Hann hóf
störf á mánudaginn en síðdegis
sama dag sagði hann upp störfum.
Mun barnabarn
nóbelsskáldsins
Halldórs Laxness
ekki hafa verið hrifið
af því að skrifa fréttir
af hjónaskilnuðum
og ástamálum fræga
fólksins.