Tíminn - 02.02.1979, Síða 3

Tíminn - 02.02.1979, Síða 3
Föstudagur 2. febrúar 1979 3 Skýrslur um endurgreiðslur til þingmanna sendar skattstjóra AM — Eins og blaðiö skýrði frá I gær urðu allmiklar umræður á Alþingi á þriðjudag um bifreiða- styrk þingmanna, en hann hefur ekki verið talinn fram til þessa, þótt meginregla sé að svo skuli Lögreglubfllinn eftir áreksturinr i gær. - Timamynd G.E. ..Óhemju tillitslevsi gert. Hefur forseti sameinaðs þings nú ákveðið að fela skrif- stofu þingsins að taka saman skýrslu um endurgreiðslur til þingmanna, vegna útlagðs kostnaðar þeirra. Verður þessi skýrsla nú send rikisskattsjóra. Friöjón Sigurðsson, skrifstofu- stjóri Alþingis, sagði blaðinu I gær að enn gæti hann ekki gefiö upplýsingar um hverjum upp- hæðum þessar greiðslur næmu i heild sinni, þar sem enn væri ekki búiö að vinna þessa samantekt. Friðjón sagði að ferðakostnaður hvers þingmanns væri nú 250 þúsund fyrir hálft ár frá 1. júli, en auk þess hefðu þingmenn utan af landi, sem eru um helmingur þingmanna, greiðslur vegna hús- næöiskostnaöar, sem nú næmu 55 þúsundum á mánuði frá þing- byrjun, en hefðu verið 39 þúsund. Fastar greiðslur vegna feröalaga eru þó eingöngu ætlaðar til venju- bundinna ferða i kjördæmi þing- manna, en auk þess eiga þeir rétt til aukagreiðslna fyrir allt að tvær feröir á mánuði. Enn fá utanbæjarþingmenn greiddar 4000 krónur á dag i dvalarkostnað frá þingbyrjun, en þeir sem búa i grennd við Reykjavik 2000 krónur, þ.e. þeir sem búa I Kópa- vogi og Hafnarfirði, en ekki Sel- tirningar, þar sem Seltjarnarnes hefur frá gamalli tiö skoðast sem hluti af Reykjavik. Friðjón minnti á, aö samkvæmt 10. grein 8. lið tekjuskattslag- anna, teldust þéssar greiöslur ekki til tekna og heföi þvi veriö fariðmeðþærá fyrrgreindan hátt gagnvart skatti. Þá benti hann á að þær greiðslur sem opinberir starfsmenn fá á ferðalögum f jarri heimili sinu væru mun hærri en þetta, en dagpeningar þeirra á ferðalögum innanlands, vegna kaupa á gistingu og fæði væru 11 þúsund krónur frá 1. nóvember. Þeirra greiðslur væru endurskoð- aöar ársf jórðungslega, en greiðslur til þingmanna ekki nema einu sinni á ári og það eftir á, sem talsvert heföi aö segja i verðbólguþjóðfélagi. Hann sagöi aðallar tölulegar upplýsingar um þessi mál hefðu alltaf verið opin- berar og verið birtar I blöðum og allt tal um launung væri þvi út I hött. Þótt þessir peningar skoðist ekki tekjur sem fyrr segir, sagði Friðjón að framvegis mundi samt verða sentyfirlitum þær til skatt- stjóra frá þinginu, til að forðast upphlaup á borö við það sem varð á þinginu á þriðjudag. Engey seldi í Hull SOS—Reykjavlk Skuttogarinn Engey RE 1 seldi 184.5 tonn af fiski I Hull i gær. Engey fékk 53.6 millj. fyrir aflann — meöalverð kr. 290 fyrir kg, sem er léleg saia. vegfarenda á slvsstað” — það sanna slysin I Kópavogi i gær ESE — Þaö slys varð á Kringlu- mýrarbraut I gær að maður sem átti þar leið missti stjórn á bifreið sinni með þeim afleið- ingum að hún hafnaði á næsta Ijósastaur. Við höggið kastaðist maður- inn á framrúðuna og auk höfuð- áverka sem hann hlaut viö höggið mun' hanri h’afá hárið- leggsbrotnað. Að sögn lögreglunnar I Kópavogi mun maðurinn hafa misst meðvitund um stund og var hann þvl hjálparlaus I bllnum, en svo virðist sem að enginn vegfarenda hafi haft rænu á þvi að rétta manninum hjálparhönd. Þess má geta I þessu sam- bandi að er lögreglan úr Kópa- vogi var á slysstað við Kópa- vogslækinn I gær var ekið á lög- reglubilinn þar sem hann stóð utan vegar og virðist sem svo að sá sem þar átti hlut að máli hafi ekki sinnt akstrinum sem skyldi heldur beint sjónum slnum að slysinu við Kópavogslækinn. Sagði varðstjóri I Kópavogs- lögreglunni I gær að það væri alveg merkilegt hvernig vegfar- endur kæmu fram. — Stundum væri ekki nokkur leið að vinna á slysstað fyrir forvitnum áhorf- endum, en I öörum tilvikum væri forvitnin ekki eins mikil eins og dæmið með manninn sem lenti I slysinu á Kringlu- mýrarbrautinni sannaði. Þaö væri sama hvernig sem á þessi mál væri litið, tillitsleysi veg- farenda væri I flestum tilvikum algjört. HEI -Siðastliðiö miðvikudagskvöld var haldinn I Sigtúni aðal- fundur Félags ungra framsóknarmanna i Reykjavik og var hann mjög vel sóttur. Nýr formaður var kjörinn Jósteinn Kristjánsson með 114 atkvæðum en Kjartan Jónasson fékk 54 atkvæði. Aörir I stjórn voru kjörnir: Arnheiöur Sigurðardóttir, Bjarni Gunnarsson, Björk Jónsdóttir, Hagerup Isaksen, ólafur Tryggvason, ólafur örn Pétursson, Sigurður Hólm, Skúli B. Árnason og Þórarinn Einars- son. i varastjórn eru: Kjartan Jónasson, Katrin Marisdóttir, Jón- geir Hiinason og Sigurjón Einarsson. Hin nýkjörna stjórn hyggst koma saman til fyrsta fundar f kvöld kl. 18 að Rauöarárstfg 18 og mun þá skipta með sér verkum. Timamynd G.E. r-------------------v Næst síðasti dagur Opið til kl. 7 í kvöld V___________________J Póstránið i Sandgerði: Á yfir höfði sér ailt að 10 ára fangelsi GP — Engar nýjar fregnir eru af póstráninu I Sandgeröi I fyrradag enda virðist ræninginn hafa horfið algjörlega spor- laust. Leið eins og þá aö rekja pen- ingaseðlana kvað rannsóknar- lögreglan i Keflavik næsta óhugsandi þar sem peningaseðl- arnir voru á engan hátt skráöir eða i númeraröð. Talið er aö maöurinn hafi haft á brott með sér nærri hálfa milljón króna. Samkvæmt 252. grein hegn- ingarlaganna mun maðurinn, ef hann næst, eiga yfir höföi sér allt frá 6 mánaöa til 10 ára fangelsi, allt eftir hversu hart dæmist I máli hans. Iðnaðarmannahúsinu, Hallveigarstíg 1 Tilboð dagsins Vj J Blússur verð aðeins kr. 3.900.- Kveninniskór frá kr. 390 Kvenpeysur frá kr. 990 Kvenblússur frá kr. 950 Pils frá kr. 1.900 Brjóstahöld frákr. 800 Brjóstahaldarasett frá kr. 990 Sokkabuxur frá kr. 195 Strigaskór frá kr. 495 Kuldastigvél frá kr. 3.400 Snjóbomsur frá kr. 2.700 Stigvél frá kr. 490 Barnasmekkbuxur frá kr. 2.200 Flauels- og gallahuxur frá kr. 2.500 \inn uskyrtur frákr. 1.300 Herraskyrtur frá kr. 1.500 (iluggjatjaldaefni frá kr. 790 Flónel efni frá kr. 230 Flauel efni frákr. 690 Denim efni frá kr. 990 Köflótt léreft frákr. 495

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.