Tíminn - 02.02.1979, Side 6

Tíminn - 02.02.1979, Side 6
6 Föstudagur 2. febrúar 1979 Ctgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson og Jón Sigurósson. Auglýsinga- stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og auglýsingar Sióumúla 15. Sfmi 86300. — Kvöldsimar blaóamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verb i lausasölu kr. 125.00. Askriftargjald kr. 2.500.00 á mánuói. Blaðaprent V________________________________________________________ J Erlent yfirlit Er Carter líklegur til að ná endurkjöri? Hann hefur Brown og Kennedy sitt til hvorrar hliðar Tilveruréttur verslunar Hin nýja skýrsla verðlagsstjóra um innflutnings- verslunina hefur að vonum vakið mikla athygli og mismunandi viðbrögð. í viðtali við TIMANN nú i vikunni bendir Hjalti Pálsson, framkvæmdastjóri Innflutningsdeildar Sambandsins, á það að margt sé i þessari skýrslu harla brotakennt, lauslegar áætlanir og ónákvæmar ályktanir dregnar af ófull- kominni upplýsingaöflun. Um þetta segir Hjalti Pálsson m.a.: „Skýrslan hefði styrkst hefðu spilin verið lögð einarðlega á borðið og hver aðili um sig hefði orðið að gera grein fyrir sinu máli”. Hjalti Páisson telur þetta þeim mun mikilvæg- ara atriði sem „þessari atvinnugrein hefur svo oft verið mismunað vegna lýðhylli og annars fagurgala að furðulegt er”. Um einstök atriði skýrslunnar segir Hjalti Páls- son m.a.: „Mega yfirvöld gjarnan vita að þau fyrirtæki sem versla með brýnustu matvörur landsmanna halda ekki út miklu lengur, ef skella á skollaeyrum við að- vörunum manna sem engra eiginhagsmuna hafa að gæta i þessum málum, en reynt hafa að sinna al- mannahag”. Og að tilefni ummæla verðlagsstjóra um umboðs- laun verslunarinnar, þar sem almannasamtök samvinnumanna eru dregin i einn dilk með óskyld- um aðilum segir hann: „Fyrir hönd Sambandsins neita ég alfarið að svo og svo margar milljónir i umboðslaun skili sér ekki i rekstri samvinnuverslunarinnar”. Hér vikur Hjalti Pálsson að mjög mikilsverðu at- riði þessara mála. Samvinnuverslunin er almanna- samtök, og hún leggur alla reikninga sína og bók- haldsuppgjör fram á opinberum vettvangi. Það er þvi illa til fundið að dylgja um fjárhagsmálefni hennar. A hinn bóginn hlýtur það að verða málstað ann- arra innflytjenda og heildsala til mikillar styrktar ef þeir legðu á svipaðan hátt fram ársuppgjör, enda tiðkast það viða um lönd að fyrirtæk jum beri skylda til að opinbera stöðu sina og rekstrarárangur með slikum hætti. Reyndar ætti það að vera eðlileg og sjálfsögð krafa allra þeirra heiðarlegu og samviskusömu manna, sem eru yfirgnæfandi meirihluti þessarar stéttar sem og annarra stétta, að slikur háttur yrði tekinn upp hér á landi hið fyrsta. Hjalti Pálsson var i viðtalinu við TÍMANN inntur eftir þvi hvað hann teldi til úrræða i verslunar- og innflutningsmálum, og svaraði á þessa lund: „Það verður fyrst og fremst að veita þeim aðilum sem sýsla með nauðþurftir tilverurétt og viður- kenna að verslunin sé jafnrétthár atvinnuvegur og aðrir burðarásar þjóðlifsins. Orelta verðlagslöggjöf á að leggja niður, en efla i staðinn frjálsræði i við- skiptum þannig að dugnaður og árvekni veiti þá umbun sem eðlileg er talin. Þegar á heildina er litið þá á niðurstaðan að verða heilbrigðari rekstur og fjölþættari þjónusta”. öðru verður ekki trúað en viðskiptaráðherra hljóti að bregðast vel við þessum ummælum full- trúa samvinnuverslunarinnar, svo mjög sem ráð- herrann lætur sér tiðrætt um viðskipti á félagsleg- um grundvelli. JS RÉTTUR helmingur er nú liö- inn af kjörtimabili Carters for- seta. Þaö er venja bandariskra fjölmiöla að staldra viö á slikum timamótum hjó nýjum forseta og draga af þvi ályktanir um, hvernig hann hafi reynzt og hvort af þvi megi ráða, aö hann sé llklegur til að ná endurkjöri aö tæpum tveimur árum liön- um. Forsetakosningar fara jafnan fram I byrjun nóvember, en forseti tekur ekki viö völdum fyrr en tveimur mánuöum siöar. Næsta forsetakjör veröur i byrjun nóvember 1980. Próf- kjörin I sambandi við kosning- arnarhefjast hins vegar i' fehrú- ar 1980, en áöur en þau byrja fer fram meira eöa minna langur undirbúningur. Raunverulega má segja aö undirbúningur frambjóðenda vegna forseta- kjörsins 1980 sé hafinn. Sjálfir staldra fbrsetarnir aö sjálfsögðu viö á þessum tima- mótum og láta ráöunauta sina og sérfræöinga gera tillögur um, hvernig timinn fram aö kosningunum veröi bezt notaöur tii aö styrkja stööuna, fyrst I prófkjörunum og siöar i sjálfum kosningunum. Edward M. Kennedy 1 SAMRÆMI við áöurgeröa venju hafa bandarisk blöö birt undanfariö margar greinar um störf Carters forseta, stefnu hans og sigurhorfur i forseta- kosningunum 1980. Niöurstaöa flestra þeirra er sú.aö Carter hafi sýnt, aö hann sé vel greind- ur og að hann hafi ekki reynzt illa, en hins vegar hafi hann tæpast sannað enn sem komið er, aöhann sé slikur foringi sem Bandarikin þarfiiast á þessum tima. Fjölmiölum kemur saman um aö Carter hafi gert ýmsa sæmi- legahluti á sviði utanrikismála eins og Panamasamninginn. Þá hafi hann heldur styrkt tengslin viö Vestur-Evrópu og Japan, en þaö sé mikilvægt aö Bandarikin, Vestur-Evrópa og Japan geti haft sæmilega samstöðu. Fyrir atbeina Youngs, sendiherra Bandarikjanna hjá Sameinuöu þjóöunum, hafi sambúðin viö Afriku veriö bætt. Hins vegar hafi Carter ekki enn tekizt aö ná samkomulagi við Sovétrikin um Salt-samninginn og sambúöin viö þau hafi heldur stirönað.m.a. vegna þess, að mannréttinda- barátta Carters hafi beinzt of einhliða gegnþeim. Þá hafihon- um enn ekki tekizt að koma á samkomulagi milli ísraels og Egyptalands og þess vegna geti ljóminn sem stafaöi um skeiö frá fundinum i Camp David fölnað. Mannréttindabaráttan svonefnda,sem Carter hóf I upp- hafi kjörtimabils sins, hafi mælzt vel fyrir i fyrstu en þó orðið umdeildarii seinni tíö, þvi aö henni hafi verið beitt mis- munandi eftir þvi hvort sam- herjar eða andstæöingar Bandarikjanna áttu hlut að máli. T.d.sé henni beitt öðruvisi gegn Kina en Sovétrikjunum. Erfitt er að dæma um, hvort það veikir eða styrkir Carter, að tekiö var upp stjórnmálasam- band við Kina um áramótin. Skoöanakannanir leiöa i ljós aö meirihluti kjósenda er bæöi ánægður og óánægöur vegna þess máls, þ.e.a.s. ánægöur yfir þvi aö stjórnmálasamband við Kina hefur komist á, en óánægður yfir slitum stjórn- málasambands viö Taiwan. 1 innanlandsmálum hefur oltiö á ýmsu hjá Carter, því að sambúðin viö þingiö var stirö framan af en hefur fariö heldur batnandi. Hann hefur þvi ekki fengið fram nema takmarkaö af þvi sem hann hefur farið fram á. Þannig samþykkti þingiö ekki nema takmarkaö af orkufrum- varpi hans, sem stefndi aö þvi aö gera Bandarikin óháöari inn- flutningi á oliu. Nýjar deilur geta verið framundan I sam- bandi við þaö aö Carter gerir nú tillögur um ýmsan sparnaö sem m.a. nær til félagsmála. Hann telur þennan samdrátt nauösyn- legan þátt i baráttunni gegn verðbólgunni. Hún var 1977 6.75%, en fór upp i 9.25% á siðasta ári og myndi þaö þykja ógnvekjandi ef hún héldi áfram aö aukast. Margir fréttaskýr- endur telja aö gengi Carters i prófkjörunum og forseta- kosningunum, ef hann veröur valinn til framboðs, fari eftir þvi, hvorthonum tekst aö draga úr verðbólgunni eða ekki. 1 PRÓFKJÖRUNUM á fýrra helmingi næsta árs telja ráöu- nautar Carters hyggilegast aö reikna með tveimur hættuleg- um keppinautum, öörum til hægri en hinum til vinstri. Til hægri er Brown rikisstjóri i KaliforniUy en til vinstri er Kennedy öldungardeildar- maður. Það þykir vlst, aö Brown gefi kost á sér i próf- kjörunum, en Kennedy hefur hingaö til neitaö þvi' aö hann stefni aöframboði. Hann veröur hins vegar fyrir vaxandi þrýstíngi og mun ráðunautum Carters þvi þykja hyggilegast aö reikna meö honum. Ráöunautar Carters munu telja hyggilegastaö Carter skipi sér i miðið undir þessum kring- umstæöum. Stefnuskrárræöan, sem hann flutti á sameiginleg- um fundi beggja þingdeilda i slöasta mánuöi,þykir bera vitni um þetta. Fjárlagafrumvarpið fyrir 1980, sem nýlega hefur verið lagt fram, þykir einnig vitna um þetta. Þar er fylgt vissri sparnaðarstefnu. Ut- gjöldin hækkaum 7.7% fráfyrra ári og nema alls 541.6 milljöröum dollara. Tekjuhalli er áætlaður um 29 milljaröa dollara og er það minni halli en um langt skeið. Otgjöld til varnarmála eru nokkuð hækkuö eða um 3% að raungildi og er það gert til að mæta þvi fyrir- heiti, sem Nato-rikin gáfu á siöastl. ári,um aö hækka fram- lög sin sem þessu næmi. Til þess aö draga úr lækkun tekjuhallans og til aö mæta hækkun varnar- útgjalda er gert ráö fyrir ýms- um sparnaði m.a. til félags- mála. Sá samdráttur mun sæta gagnrýni Kennedys en Brown mun telja sparnaöinn of litinn. Þannig hefur Carter skipaö sér i miöið hvernig sem þaö gefst honum. Þ.Þ. Edmund G. Brown

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.