Tíminn - 13.03.1979, Síða 7

Tíminn - 13.03.1979, Síða 7
Þriöjudagur 13. mars 1979 7 Rekstrarlán til sauðfjárbænda 1 Timanum 21. febrúar s.l. er grein eftir Halldór Þórðarson á Laugalandi þar sem rætt er um rekstrar- og afurðalán land- búnaðarins. Vegna þess að þar er ýmsum óskyldum tölum blandað saman, þykir mér rétt að gera nokkrar athugasemdir, ef það gæti orðið bændum og fleiri aðilum til aukins skilnings á þessum málum og komið i veg fyrir að menn drægju rangar á- lyktanir af þvi sem fram kemur i grein Halldórs. Hann birtir ú r skýrslu Seðla- bankans frá 31. okt. 1977 tölur um rekstrarlán til sauðfjár- bænda, sem voru þá kr. 878.222 þúsund. Þá var langt komið eða lokið slátrun þess fjár, sem lán- að var út á. Fjártalan reyndist 873J199 dilkar og 70.709 fullorðn- ar kindur, eða samtals 944.108 kindur. Rekstrarlánin eru þvi um 930 kr. pr. kindað meðaltali eða ca. 9% af áætluðu grund- vallarverði kjöts i september- grundvelli þá um haustið. A grundvallarbúið hefði þetta gert ca. kr. 372 þús. Þetta var veitt i sjö áföngum frá mars — sept. og er i september um 6,3% af brúttó framleiösluverðmæti grundvallarbúsins. Ekki verður sagt að það séu rausnarleg rekstrarlán. Þá nefnir Halldór uppi- greiðslulán, sem veitt voru i maimánuði 1977 til sláturleyfis- hafa, að upphæð krónur 822.893 þús. Þessu fé var skipt á milli þeirra sem slátruðu sauðfé bænda haustið 1976 til að gera - þeim fært að auka útborgun upp i eftirstöðvar afurðaverðs frá þvi hausti og þetta fé átti að greiða bændum strax skv. lána- reglunum. Þetta gæti verið ca. 10-15% viðbót við þau 70-75% af haustgrundvallarverði, sem venja er að greitt sé bændum að haustinu með þá veittum af- urðalánum. Samanlagt gæti þá útborgunin i maímánuði verið farin að nálgast 90% haust- grundvallarverðsins. Þessu fé má á engan hátt blanda saman við rekstrarlánin, þó svo að ýmsir geri þaö. Það er ekki unnt að nota það fé tvisvar eða i tvennum tilgangi á sama tima. Og þá er ástæða til að ræða afurðalánin. Þau eru veitt að mestu i nóv. og desember ár hvert. Þá ber að greiða upp rekstrarlánin, uppgjörslánin, fóðurbirgðalánin og uppi- greiðslulánin. Það má ekki leggja afurðalánin, sem úti standa i lok október, við rekstrarlánin svo sem Halldór á Laugalandi gerir. Afurðalán i lok október eru svo að segja öll veitt út á mjölkurvörubirgðir og eru sauðfjárbændum óviðkom- andi. Afurðalánin, sem veitt eru i nóvember og desembermánuð- um, eigg að standa undir haust- greiðslu til bænda og þeim kostnaði sem þá er fallinn á kjötið við slátrun og frystingu þess. Kjötbirðgirnar eru settar að veði fyrir lánunum. Lánin eru sem næst 72% af heildsölu- verði kjötsins en nokkru minna á aðrar sláturvörur. Gert er ráð fyrir að i nóvember sé búið að selja og greiða ca. 10% af kjöti hvers hausts og þvi geti slátur- leyfishafar greitt um 80% haustgrundvallarverðsins til bænda. Nokkuð er þetta mis- munandi og þeir sem litla haustsölu hafa, telja sig ekki geta greitt meira en 75% og til eru þeir sem eru enn lægri i fyrstu greiöslu til bænda. Já, gott væri ef þetta gengi. Nú segir Halldór á Lauga- landi að greiða skuli afurðalán- in til bænda „vafningalaust” og 95% strax i sláturtið. Já, gott væri ef þetta gengi greiðlega. Mér þætti fróðleikur i þvi að heyra hvernig ætti að koma fyrir veðsetningu fyrir lánunum, ef þau gengju beint til bænda og hvort bændum væri ætlað að sjá um mánaðarlegar endurgreiðslur + vexti af lán- unum, svo sem afurðasölufélög- in gera nú og hvernig ætti að iryggja hverjum einstökum bónda fé til þessara hluta. Ég þykist vita að Halldór kunni leiðir i þvi efni og sé ljúft að miðla af þeirri þekkingu sinni okkur fávisum og misvitrum til upplýsingar og gagns. Ég sé á öllu að Halldór hefur nægan tima og vilja til að skrifa og upplýsa þjóð sina og er vel að Gunnar Guöbjartsson slikir menn skuli enn vera á meðal bænda, sem láta ekki brauðstritið beygja sig. Þá nefnir Halldór fóður- birgðalán, sem veitt voru vetur- inn 1976-1977 að upphæð kr. 111 milljónir, Þetta fé gengur til nokkurra verslunarfyrirtækja um norðanvert landið, þar sem hafishætta er. Það er gert til að gera þeim aðilum fært að kaupa birgðir af kjarnfóðri að haustinu og geyma yfir veturinn. Þetta er ekki bundið sauðfjárræktinni — heldur er þetta gert til að tryggja fóður fyrir hvers konar búpening, ef hafis leggur að landinu og hamlar þvi að unnt sé að sigla á hafnir norðanlands með þungavörur. Þessu má þvi ekki blanda saman við rekstrar- lán til sauðfjárbænda. Enn nefnir Halldór uppi- greiðslu haustlána kr. 1.277.369 þús. Þessi lán eru veitt slátur- leyfishöfum i sláturtiðinni til að greiða vinnulaun og annan út- lagðan beinan kostnað við slátr- un fjárins. Þessum lánum er þvi heldur ekki ætlað að standa undir kostnaði við búrekstur bænda og eiga þvi ekki heima i „rekstrarlán til sauöfjár- bænda.” Og enn nefnir Halldór sérstök rekstrarlán kr. 175 millj. og minkalán, rúmlega 60 millj. króna. Minkalánin ganga ein- göngu til loðdýrabúanna og eru sauðfjárbændum óviðkomandi. Hin sérstöku rekstrarlán eru að ég ætla veitt kjötflytjendum á meðan þeir biða eftir uppgjöri útflutnings þá.m. útflutnings- bótagreiðslum úr rikissjóöi og eru þvi ekki rekstrarlán til sauðfjárbænda i venjulegri merkingu. Meginmál að fá lánin aukin Ég vona að þessar skýringar sýni hversu rekstrarlán til sauö- fjárbænda eru litil og það er á- stæðulitið fyrir bændur að deila innbyrðis um ráðstöfun þessar- ar smáu fjárhæðar. Hitt er miklu meira mál að fá rekstrar- lánin aukin. Rétt er að minna á að A- burðarverksm iðja rikisins lánar verulegan hluta áburðar- ins til þess tima að haustinu að afurðalán eru greidd. Þessi lán eru fengin erlendis og eru háð gengisáhættu. Þau eru lánuð bændum án gengisábyrgðar, en tap vegna gengisbreytinga kemur fram i hækkuðu áburðar- verði árið eftir, ef gengi Is- lensku krónunnar lækkar. Lánin ganga að jöfnu til mjólkurfram- leiðenda, sauðfjárbænda og garðyrkjubænda. Ég bið þvi eftir næstu grein hans með upplýsingum um þetta efni. Ritað 4. mars 197 ■immrn'iar Þann 21. mai 1974 staðfesti forseti íslands lög um grunn- skóla. Lögin voru mjög frá- brugðin þeim lögum sem sam- þykkt voru 1946 og höfðu verið I gildi — þó með örlitlum breyt- ingum — allt til 1974. Þvi má segja að grunnskóla- lögin færi islenska skólakerfið inn i nútimann. í okkar þjóðfelagi eru gerðar miklar kröfur. Þjóðfélagið gerir ákveðnar kröfur til okkar og við á móti kröfur til þess. Til að geta fullnægt sem flestum kröf- um er gripið til hinna ýmsu ráða. Það er orðið almennt i dag að báðir foreldrar vinni úti. Þetta leysir mörg vandamál en skap- ar einnig önnur. Foreldrar og börn þeirra hittast ekki nema á kvöldin og um helgar. Börnin verða þvi að læra að bjarga sér sjálf eins fljótt og þau geta. En hvar eru börnin á daginn? Jú! á dagvistunarstofnunum, i skól- anum, á götunni eða á einhver j- um öðrum stöðum. Þegar börn eru komin á skólaaldur eru þau I skólanum á daginn. Með auknum aldri barnanna gerir skólinn meiri kröfurog verða þau þvi að vera lengi i skólanum. Tólf ára eru börnin allt að 36 kennslustundir á viku yfirleitt frá átta til tvö fimm daga vikunnar. A þessum tima er það kennarinn sem er númer eitt hjá barninu, það hlýðir honum, tekur við fyrir- mælum frá honum, hlýðir á boð- skap hans og svo framvegis. Börnin læra af kennaranum hvað sé rétt og rangt, þau læra almenna kurteisi og lenda i tog- streitu viö önnur form sem rilcja á heimili þeirra og svona mætti lengi halda áfram. Þetta á öllum foreldrum að vera ljóst. Þeir eiga aö gera sér grein fyrir að kennarinn er gifurlega mótandi aðili á börn þeirra. Þeir eiga þvi að gera þær kröfur til kennarans aö hann sé fær um að rækja starf sitt vel. En hvaða kennara er kleift að rækja starf sitt vel? Grunnskólalögin kveða svo á r að kennarar skuli skila þriggja ára háskólanámi til að öðlast réttindi til kennslu i grunnskól- anum, stúdentspróf er ekki lengur nóg, grunnskólinn aðal menntastofnun barna ykkar krefst háskólamenntaðra kenn- ara til að geta framkvæmt sln markmið. Með setningu grunnskólalag- anna var sú staðreynd þvi enn itrekuð hvað uppeldi „þeirra sem erfa landið” var mikilvægt. Það mátti ekki lengur vera maður með stúdentspróf, það var einfaldlega ekki lengur i takt við timann, það heyrði for- tiðinni. Það var þvi verið að segja viö okkur aö það sé ansi Örn Pálsson ..... ...... ■■ ■ -i — nemandi i KHÍ mikill ábyrgðarhluti að senda barn i skóla þar sem ekki eru kennarar með fullgildandi kennaramenntun. Margir spyrja eflaust hvar er þann skóla að finna hér á Islandi? Ja! þvi miður eru þeir ekki margir, kannski er enginn slikur skóli til i landinu. En öll lög þurfa sinn aðlög- unartima, einnig grunnskóla- lögin, en sá er hængur á að sá timi má ekki vera langur. „Erfingar landsins” hafa ekki efni á að biða, þvi þróun þjóðfé- lagsins heldur stöðugt áfram og eitt af megin markmiðum grunnskólalaganna er að gera einstaklinginn hæfan til að ganga inn i nútimaþjóðfélag. Út frá þessari staðreynd hlýt- ur fullgild kennaramenntun aö skapa hæfari einstaklinga fyrir þjóðfélagið og stuðlar þvi um leið aó bættu þjóðfélagi. Góðir lesendur! það er nauð- synlegt að vera á varðbergi gagnvart uppfræðslu barnanna, þeirra sem erfa landið, þeirra sem taka við. Látið það ekki liö- ast, að uppfræðarann skorti þekkingu til að knýja fram þau markmið sem nútimaþjóðfélag krefst af börrum ykkar.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.