Tíminn - 13.03.1979, Síða 13

Tíminn - 13.03.1979, Síða 13
ÞriBjudagur 13. mars 1979 13 lHMití'l' Öfgáhópur í Frakklandi Mótmælir dýrtíöinni með þvi að leggja heilu verslunarhverfin i rúst Frakkar hafa lengi óttast að hryðjuverkaaldan, sem tröllriðið hefur italíu og Vestur-Þýskalandi ætti eftir að berasttil þeirra. Ótti þessi hefur magn- ast síðustu mánuði vegna upphlaupa öfgahóps, sem kallar sig hina sjálfstæðu og hefur það göfuga markmið að berjast gegn dýrtíðinni. Áhangendur fara um tugum saman með barefli og Molotoff- sprengjur að vopni. Eyðileggja þeir og ræna versl- unarhverfi og hirða þá ekki um, hvort fyrir sprengj unum verður saklaust fólk. Fjöldi manns hefur særst í árásum þessum, en þær eru nú orðnar f jórar talsins. Hópurinn notar laugardagana til árása, en þá er einna líf legast í búðunum. í tygjum við Baader-Meinhof Þjóðfélagiö séð með augum þessara ungu manna er fasista- þjóðfélag. Vilja þeir meina, að ofbeldi þeirra sé ekki annað en svörun við ofbeldi þjóðfélagsins, sem birtíst i liki atvinnuleysis og fátæktar. Hina sjálfstæðu er að finna i háskólum og i verk- smiðjum i Paris, Strasbourg, Lyon og Toulouse. Málgagn þeirra nefiiist „Félagi” og skv. lögregluskýrslum eru félagarn- ir fæddir byltingarárið 1789. Samkvæmt upplýsingum frá frönsku leyniþjónustunni, hafa hinir sjálfstæðu tið samskipti við alþjóðleg hryðjuverkasam- tök, Palestinuskæruliöa, italska hryðjuverkahópa og þýska hóp- inn kenndan við Baader. Eru fundahöldin sögðeiga sér stað nálægt borginni Grenoble. Lögreglan hefur meira að segja þótst bera kennsl á þann, sem ofbeldinu stjórnar og á það að vera prófessor nokkur, gamall vinur „Danna rauða” eöa Daniels Cohn-Bendit. Biður hún aðeins eftir fyllri sönnunum til þess að draga hann fyrir lög og dóm. Frakkar búa sig undir að lifa með hinum sjálfstæðu. En þeir eru þegar farnir að óttast að rúðubrot, rupl og rán nægi þeim ekki til lengdar og gislingar eða morð fylgi í kjölfarið. Morðin á Hanns Martin Schleyer og Aldo Moro eru enn i fersku minni. Þaö væri kaldhæðið, ef hryðju- verkaalda brytist út I Frakk- landi, en hryöjuverkamönnum hefur einskis orðið ágengt, hvorki I Þýskalandi, þar sem þeir hafa verið til staöar i tiu ár, né á ítaliu, þar sem þeir eru fimm ára I hettunni. ,, Meinlausir draum- óramenn” Birt hefur veriö viðtal við einn af höfuðpaurum árásarinnar á verslanir við járnbrautastöðina Saint-Lazare, en sú árás var gerð rétt eftir miðjan janúar. Þá fóru þeir fjörutiu saman rændu, brutu ogkveiktu i'. Ekki hafði lögreglan hendur i hári þeirra, en meðlimir öfgahóps til hægri sáu framvindu mála og handsömuðu einn.hinna sjálf- stæðu,Gracindoaðnafni. Þegar móður Gracindos var tilkynnt um handtöku hans brást hún undrandi við og sagðist ekkert skiija i þessu pólitiska vafstri stráksins. Hun vissi ekki betur en aðaláhugamál hans væru hestar og gitarspil. Yfirleitt eru viðbrögð foreldra á þennan veg. Foreldrar Pennognon, sem handtekinn var fyrir svipaðan leik og Gracindo, sögðu hann meinlausan. „Þetta er ekki annað en draumóramaður og skáld”. Það er dálitið hægt að komast að hugsanagangi hinna sjálf- stæðu með þvi að gripa niður i þetta viðtal við höfuöpaurinn, sem auðvitað lætur ekki nafns sins getið. Málfariö er frekar slappt. „Við höfum haldið hópn- um smáum til þess að löggan eigi erfiöara með aö ná okkur. Við Saint-Lazare var alls ekki skipulagt fyrirfram að leggja allt í rúst, en það var ómögulegt að hafa hemil á strákunum. — Verstað þessir hægri menn fóru að skipta sér af Gracindo. Aldrei heföum við farið að skipta okkur af þeirra tilræðum og hjálpa þar með löggunni, aðalóvininum”. Ekki bjóst höfuðpaurinn við að hinir sjálfstæöu myndu leggja út i aðra mikla árás á Sum fórnarlambanna eru ósköp aumingjaleg fyrir eins og þessi sjálfsali f lestarstöðinni, sem útbýtir Hollywood tyggigúmmii á 200 krónur. borð viö Saint-Lazare árásina I bráð. Til þess heföu viðbrögð fólks og fjölmiðlá verið of hræðslukennd. Sérstæðir byltingar- menn: Neita að borga i bió Höfuðpaurinn grimuklæddi staðfesti að hugsjónir sinar sæktu hinir sjálfstæðu til Itali'u. Ekki telur hann nauðsyn á sterkum kjarna I hópnum eða sterku skipulagi innan hans. Hann segir að þúsundir fylgi hinum sjálfstæðu að málum beint eða óbeint. Það eru þeir, sem mótmæla dýrtíðinni með þvi að neita t.d. að borga sig inn á kvikmyndir eða stela i verslunum. „Við stelum þó ekki skotvopnum, þvi að við treyst- um okkur ekki enn i byssuleik við valdið”. Eitt segir höfuðpaurinn at- hyglisvert. Það er varöandi kröfugöngur. „Þeir sem fara i kröfúgöngur gera rikinu greiða. Allt virðist svo frjálst. Kröfu- göngur eru bókstaflega rfkis- reknar. Þeir sem aftur á mótí leggja út af örkinni með barefli að vopni, þeir hafa einhverjar hugsjónir. Vilja fá sinn skerf” Og höfuðpaurinn heldur áfram að útlista. „Það má ekki skilja orð min svo, að við séum að vinna fyrir alþýðuna. Það, sem við náum i árásum okkar, geymum við fyrir sjálfa okkur. Viðreynum að breyta lifi okkar hvað sem það kostar”. FIþýddi , Það þýðir ekkert annað en aö koma I einkennisbúningi, þegar maður á stefnumót viöblaðamenn. Þetta er höfuðpaurinn I árásinni Þannig afgreiða hinir á versianirnar I Saint-Lazare. Molotoff-sprengja I forgrunni. sjáifstæðu sig i bönkum. Nomin Ba.ha -.Taga ALÞÝÐULEIKHOSIÐ SUNNAN- DEILD Barnaleikritið NORNIN BABA-JAGA eftir Jevgeni Schwarts Þýðing: Ingibjörg Haraldsdóttir Leikstjóri: Þórunn Sigurðar- dóttir Leikmynd og búningar: Guðrún Svava Svavarsdóttir. Söngtextar: Ási I Bæ Tónlist: Eggert Þorleifsson Ólafur örn Thoroddsen og Ási i Bæ Aðstoðarieikst jóri: Guðlaug Marfa Bjarnadóttir Lýsing: Davið Walters Leikhljóð: Eggert Þorleifsson og Ól. örn Thoroddsen. Alþýöuleikhúsiö, sunnandeild, virðist um þessar mundir leggja mikla áherslu á vinnu fyrir börn, LEIKLIST og er það vel, þvi hætt er við aö þeir sem ekki koma i leikhús sem börn, láti sér þessa þykjustu lifs- ins lönd og leið, þegar þeir stækka. Ekki hefi ég samt fyrir mér neinar tölur, heldur virðist mér það dálitið sama fólkið, sem sækir sýningar. Þótt tölfræðilega sé unnt að sanna aö allir Islend- ingar fari a.m.k. einu sinni á vetri i leikhús, er þaö vissulega ekki svo, hinn „harði kjarni” sér helst allt sem boöið er, svo þaö eru margir — þvi miöur — sem heima sitja, af þvi að þeir hafa ekki vanist leikhúsinu eins og signum fiski eöa hákarli, og verða þvi litlir neytendur siðar. A þetta er minnst, vegna þess aö hópur manna hafði orð á þvi að Alþýöuleikhúsiö væri að veröa barnaleikhús, sem geröi heldur litiö fyrir fullorðna. En nóg um það. Úr leikritinu „Nornin BABA-JAGA Einkennilegur kommi Jevgeni Schwarts Jevgeni Schwarts fékk lengi bágt fyrir þaö heima fyrir að vera að þvælast með ævintýri borgara- stéttarinnar inn i leiklistarkerfi Sovétrikjanna. Eins og Ekkja Maos og þremenningarnir ill- ræmdu bönnuðu Beethoven og Svanavatnið i Kina, þótti Jevgini einkennilegur með þessi sléttu- bönd liðinnar tiöar. En svo komu betri timar, og eldforn ævintýri um baráttu hins illa og góöa voru ekki rigbundin við kaupmanninn á horninu og hans riki, heldur áttu erindi til allra manna. Það er llka auösætt I boðskap Nornarinnar. Aö þaö góöa sigrar kerfiö ef nógu lengi er barist. Sagan segir frá verkakonu, sem tapað hefur tveim sonum i ill- fygli, eöa nornina BABA JAGA, sem mun griskt orö aö uppruna og notað um illa séða förumunka og trúboða. Annars er þetta ljómandi vel skrifað verk og vel upp sett, lik- lega eitt besta verk leikstjórans til þessa, þvi„frumleiki” og sér- kennileg leikbrögö eru sem betur fer að setja ofan i leiksviðinu hér. Af leikendum vil ég sérstaklega geta um þær Helgu Thorberg, Elisabetu Þórisdóttur og Sigurð Sigurjónsson. Þá vil ég aö lokum minnast á búninga Guðrúnu Svövu Svavars- dóttur, og leikmynd hennar, en hún er vaxandi listamaður á þessu sviöi. Jónas Guömundsson.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.