Tíminn - 13.03.1979, Page 17

Tíminn - 13.03.1979, Page 17
16 H.IIUUHÍ Þri&judagur 13. mars 1979 ooooooc PUNKTAR Einu sinni er hver Stefán skoraði 12 mörk nýliði Þa& vakti talsveröa athygli undirritaös i leik Vals og HK aö Varmá um helgina, aö Jón Pétur Jónsson skyldi láta út úr sér eftir- farandi: — Blessaöur taktu þessa menn útaf. Atti Jón þá viö nýliö- ana Brynjar Haröarson og Gisla Rafalowitch. Heldur var tekiö aö syrta i álinn hjá Val og HK saxaði óöum á forskot þeirra. Jóni fannst nýliöarnir eiga meiri sök á þessu en aörir og beindi þvi áðurnefnd- um oröum til Hilmars Björns- sonar þjálfara. Jón, mundu þaö, aö einu sinni er hver maöur nýliöi og þú varst einnig nýli&i hér áöur. Reknir upp úr heita pottinum Þeir dómurum Gunnari Kjartanssyni og ólafi Stein- grimssyni brá heldur betur i brún er þeir voru aö slappa af i heita pottinum i Laugardalnum á sunnudagsmorguninn, þegar nöfn þeirra voru skyndilega kölluö upp i hátalarakerfi laugarinnar. Voru þeir beönir aö snara sér út á flug- völl og drifa sig til Vestmanna- eyja til aö dæma leik Þórs, Vm. og Stjörnunnar. Eins og dómur- um sæmir þeystu þeir af staö og dæmdu af stakri prýöi i Eyjum. k Skortur á nauösynlegri yfirveg- un ætlar greinilega aö ver&a HK dýrkeyptur i vetur. A sunnudag fengu þeir tslandsmeistara Vals I heimsókn upp a& Varmá. Lengst af var ekki ýkja mikill munur á liðunum, en einmitt þegar mest reið á brugöust taugar hinna ungu leikmanna HK. Valsmenn unnu leikinn 22:20 eftir aö hafa leitt 10:9 f hálfleik. Leikurinn var i jafnvægi nær allan fyrri hálfleikinn og skiptust liöin á um aö skora og munurinn var lengst af ekki nema 1 mark — Valsmenn iöulega yfir. Þorbjörn Jensson kom Valsmönnum yfir i upphafi en HK svaraöi meö tveimur mörkum og komst yfir I fyrsta og eina sinniö i leiknum. Einar Þorvaröarson, markvöröur HK, átti stórleik aö þessu sinni og hann varöi vitakast Jóns Péturs á 5. minútu. Jón fékk boltann aftur en aftur varði Einar. HK tókst þó ekki aö nýta sér þennan meöbyr þvi Valsmenn skoruðu mæstu þrjú mörk og komust I 4:2.HK jafnaði 4:4 og siöan var allt i járnum út hálfleik- inn. Valsmenn komust snemma í seinni hálfleiknum I 13:10, taldi maöur þá aö dagar HK væru tald- ir. Þeir gáfust þó ekki upp og Stefán Halldórsson, sem skoraöi fyrstu fjögur mörk HK I s.h. Byrjaður að leika á ný Siguröur Gunnarsson, Vikingur- inn ungi, lék á sunnudagskvöldið meö 1. flokki Vikings gegn Fram. Viröist svo sem Siguröur sé aö ná sér af meiöslum, sem hann varö fyrir fyrir áramótin er liðbönd I fæti hans slitnu&u. Ekki er aö efa aö Siguröur mun veröa Viking- unum mikill styrkur i hinni höröu baráttu, sem framundan er I 1. deildinni. Stutt „come-backM Einar Magnússon átti stutt „come-back” gegn Fram á sunnudagskvöldið. Einar var settur inn á snemma I seinni hálf- leiknum, en haföi ekki veriö inni á nema i tæpa minútu, er hann braut illa af sér og var rekinn út af i tvær minútur. Stutt „come- back” þetta. FH-Haukar i kvöld 1 kvöld kl. 20 leika i Hafnarfiröi FH og Haukar I 1. deild kvenna. Bæöi liöin hafa hlotiö 13 stig i 1. deildinni — Haukar úr 12 leikjum en FH úr aöeins 8. Aö leiknum loknum taka karlaliö félaganna viö boltanum og hefst leikur þeirra kl. 21 e&a upp úr þvi. Ekki er að efa aö Haukarnir hyggja á hefndir, en þeir töpuöu stórt fyrir „stóra bróöur” i bikarnum fyrir skömmu. ÍR-Njarðvík 1 kvöld kl. 21.30 leika I Hagaskól- anum ÍR og Njar&vikingar. Leikur þessi er I undanúrslitum bikarkeppni KKl en i hinum undanúrslitaleiknum leika Fram og KR. Þaö þarf ekki aö taka þaö fram, aö þaö veröur hart barist i kvöld þvi þessi tvö lið hafa leikið fjórum sinnum i úrvalsdeildinni I vetur og unniö tvö leiki hvort liö. Njarövikingar hafa unniö sina heimaleiki og 1R bá&a heimaleiki sina. Jón kúluvarpari Þaö vakti mikla athygli i leik Þórs og 1R á laugardaginn þegar Jón Indriöason bjó sig undir aö taka vitaskot undir lok leiksins. Fyrra skot hans fór ofani, en i hinu slðara brá Jón á leik eins og honum er einum lagiö og varpaöi hann boltanum aö hætti kúlu- varpara I átt aö körfunni. Ekki var aö sökum aö spyrja — boltinn fór langt yfir körfuspjaldiö. KA GERÐI GÓÐA FERÐ KA frá Akureyri bætti heidur betur stööu sina i 2. deildinni er þeir komu til höfu&borgarinnar um helgina og unnu tvo góöa sigra. Fyrri leikurinn var gegn Leikni og vannst hann 33:20 eftir aö KA haf&i leitt 16:10 f hálfleik. A sunnudag léku þeir svo viö Þróttara og unnu þá 29:25 i mikl- um markaleik. Linumaöurinn Þorleifur Ananiasson var heldur betur I stuöi þvi hann skoraöi hvorki fleiri né færri en 16 mörk í leiknum og átti hvaö drýgstan þátt I sigri KA. Þá léku Þór, Vm og Stjarnan ái sunnudaginn og vann Þór 24:18 eftir aö hafa leitt 12:10 I hálfleik. Styrktu þeir þar meö stö&u sina I deildinni til muna og eiga nú gó&a möguleika á 1. deildarsæti i haust. minnkaöi muninn I 13:14. Fyrir vikiö var honum refsaö af Vals- mönnum með þvi að taka hann úr umferö, en ekki dugöi þaö lengi þvi Stefán kallar ekki allt ömmu sina. Valsmenn komust þrjú mörk yfir á ný — 17:14 HK minnkaði muninn I 16-18 en þá komu þrjú Valsmörk I röö og leikurinn var unninn. Staöan 21:16 og tæpar 9 min. eftir. HK sýndi i sér tenn- urnar i lokin en þaö dugöi ekki til, enda Valsmenn meö leikreynt liö, sem flanar ekki aö neinu Sem fyrr var þaö skortur á yfir- vegun og leikreynslu, sem varö HK öðru fremur að falli. Var þar enginn öörum fremur sekur, en Stefán mætti aö ósekju stilla sig örlitfð. Hjá HK var Einar bestur i markinu, en Stefán meö sin 12 mörk var ekki langt á eftir. Þá var Jón Einarsson sprækur I horninu og Kristinn Ólafsson átti að venju mjög góöan leik a lin- unni. Leikmaöur sem lltið ber á en er ákaflega traustur. Hilmar og Ragnar voru óvenju aögeröa- litlir. Hjá Valsmönnum var meöal- mennskan allsráöandi lengst af. Liöiö er ákaflega jafnt hvar sem á þaö er litiö. Aö þessu sinni voru þaö þeir Jón Pétur og Steindór, sem stóöu einna helst uppúr en Steindór er óþarflega grófur. Bjarni var seinn 1 gang svo og Brynjar I markinu. Þá ber aö geta Brynjars Haröarsonar ný- liöa. Hann var ekki lengi inni á en sýndi góö tilþrif og kunnugir segja hann jafnvigan á báöar hendur — nokkuð óvenjulegt I is- lenskum handknattleik. Leikurinn var yfirleitt prúö- mannlega leikinn og var aöeins um eina eöa tvær brottvikningar aö ræöa, og munaði þar mestu um aö Erling hjá HK kom ekki inná. Markveröirnir vöröu vel i leikn- um. Einar tók 16 skot, en Brynjar 11, þar af aðeins 3 I fyrri hálfleik. Dómarar voru þeir Rögnvaldur Erlingsson og Guömundur Kol- beinsson og dæmdu vel en voru e.t.v. örlitiö of fljótir á sér á stundum. Mörk HK: Stefán 12/5, Hilmar 2, Kristinn 2, Jón 2, Fri&jón 2,og Karl 1. Mörk Vals:Jón Pétur 6, Jón K. 5/4,Steindór 4, Stefan 2, Þorbjörn J. 2, Þorbjörn G, Bjarni og Brynj- ar 1 hver. Ma&ur leiksins: Einar Þor- varöarson, HK. Fátt sem gladdi Q llfTQ íí ~ ^egar íR inSar unnu sigur 18:17 d'Ugd'U yfir Fylki i afspyrnulélegum leik Þaö var ekki handknattleikur upp á marga fiska, senf IR-ingar og Fylkismenn sýndu I Laugar- dalshöllinni á laugardaginn, þeg- ar þeir mættust i 1. deildarkeppn- inni. Feilsendingar, hnoð og mis- tök voru aOaleinkenni leiksins, sem var afspyrnulélegur og leiö- inlegur á aö horfa. tR-ingar, sem mega muna fifil sinn fegurri, mör&u sigur 18:17 yfir Fylki. Þaö er af sem áöur var, þegar IR-li&iö lék léttleikandi handknattleik og skemmtilegan — nú einkennist leikur li&sins af kerfisbundnum handknattleik, sem leikmenn liösins rá&a ekki viö. Leikurinn var jafn I byrjun — 4:4 eftir 15 min., en IR-ingar höföu siöan yfir 8:5 i leikhléi — og þegar 15 min. voru til leiksloka var staðan 13:10 fyrir 1R. Fylkis- menn náöu aö minnka muninn og fengu þeir tvisvar tækifæri til aö jafna metin — tækifæri, sem þeir nýttu ekki. lR-ingar komust siöan I 18:15, en þá skoraöi Einar Agústsson 18:16 og eftir þaö, eöa siöustu 49 sek. leiksins, léku Fylkismenn maöur á mann — náöu aö minnka muninn i 18:17, og þegar 9 sek. voru til leiksloka náöu þeir knettinum, en i látunum hentu þeir honum út af vellinum og sigur IR-inga var i höfn. Bjarni Bessason var besti leik- maöur IR-liösins i þessum leik. IR-ingar geta þakkaö Jens Ein- arssyni fyrir sigurinn — hann varöi þrjú vitaköst og munaöi um minna. Jón Gunnarsson, markvöröur var besti leikmaður Fylkis — hann varöi oft mjög vel og er greinilegt aö hann er kominn i hóp okkar bestu markvaröa. Mörkin i leiknum skoruöu: 1R: — Bjarni B. 5, Siguröur S. 4(4), Gu&jón 2, Brynjólfur 2, Guö mundur Þ. 2, Bjarni H. 1, Hafliöi 1 og Arsæll. Fylkir: — Einar E. 4, Gunnar B. 3, Magnús 2(2), Stefán H. 2, Krist- inn S. 2, Orn 1 og Siguröur S. 1. Maöur leiksins: Jón Gunnarsson, Fylki. Slakir Framarar voru kafsigldir — af stórsnjöllum Vfkingum Slakir Framarar uröu stór- snjöllum Vikingum ekki mikil hindrun I 1. deild tslandsmótsins um helgina. Þaö var aöeins I upp- hafi, sem jafnræ&i var meö ii&un- um —siöar skildu leiöir. Vlkingar unnu öruggan sigur 32:20 eftir aö hafa leitt 14:9 i hálfleik. Einar Magnússon lék nú aö nýju meö Víkingum eftir dvöl i Þýskalandi en heldur virka&i kappinn óöruggur og þungur. Þaö var mikil stemmning me&al áhorfenda þegar leikurinn hófst. Framarar höföu lýst þvi yfir fyrir leikinn, aö nú yröi ekkert gefiö eftir. Þaö var þó ekki á leik þeirra aö sjá a& þeir hygöust sigra i leiknum. Viggó Sigur&sson, sem var I sannkölluöu landsliösformi i Höllinni skoraöi fyrstu tvö mörk leiksins og þar meö var tónninn gefinn. Fram náöi aö jafna 3:3 og þar meö var sagan Öll. Vikingar sigu framúr að nýju, en tókst ekki aöhristaFramara almennilega af sér fyrr en Sigurbergur varð aö yfirgefa völlinn um stundarsakir vegna meiösla. Þá var ekki aö sökum aö spyrja — Vikingar sigu örugglega framúr og höföu fimm mörk yfir i leikhléi, en staöan var 10:9 þegar Sigurbergur fór út af. Þá má svo segja að Víkingarnir hafi gert út um leikinn strax I upphafi seinni hálfleiks. Þeir komust strax 117:10 og spurning- in varö aöeins hversu stór sigur t þeirra yröi. Um miöjan seinni hálfleikinn var munurinn orðinn 10 mörk —23:13 og hann hélst nær út leikinn en þá bættu Vikingar Framhald á bls. 23 Þriöjudagur 13. mars 1979 17 OOOOOOOH Dwyer í banastuði skoraði 44 stig — þegar Valur vann KR 79:74 i gærkvöldi John Hudson fékk rautt spjald Tim Dwyer var bókstaflega alls staöar á vellinum þegar Vals- menn lögöu KR-inga 79:74 aö viö- stöddum tæplega 1000 áhorfend- um i Laugardalshöllinni I gær- kvöldi. Valsmenn voru yfir allan ieiktimann og sigur þeirra fylli- lega sanngjarn. Hafa nú þrjú lið, KR, Njarövik og Valur öll tapaö 6 stigum hvert. Valur og Njarövik eiga eftir innbyröisleik. Mikil stemmning var i Höllinni þegar leikurinn hófst og greini- legt aö hvorugt liðiö hugöist gefa sinn hlut. Varnarleikurinn var mjög góöur — einkanlega hjá Val og komust KR-ingar litt I gegnum hana. Jafnt var á meö liöunum í upphafi en um miöjan fyrri hálf- leikinn höföu Valsmenn náö 8 stiga forskoti — 24:16. Þeir juku muninn markvisst allan hálfleik- inn — komust mest yfir 14 stig en munurinn i hálfleik var 13 stig — 47:34. KR-ingar mættu ákveðnir til leiks eftir hlé oggreinilegt var aö nú átti aö duga eöa drepast. Vals- mönnum tókstþó aö auka forskot sitt I 16 stig — 57:41 og voru þá* liðnar rúmar 7 minútur af seinni hálfleiknum. KR-ingar tóku þá mikinn kipp og áöur en varöi var staöan 66:67 Val I vil. Menn bjuggu sig nú undir, aö KR tæki leikinn I sinar hendur einkum og sér I lagi vegna þess aö Torfi Magnússon var kominn út af meö 5 villur. Svo varö þó ekki og Vals- menn héldu haus og rúmlega þaö. Þeir juku muninn á ný og voru komnir á skrið á ný er flautaö var til leiksloka. Valssigur var I höfn og fögnuöur mikill. KR-ingar voru að vonum óhressir með tapiö - einkum John Hudson. Hann geröi sér þvi litið fyrir gekk aö öörum dómara leiksins, Guðbrandi Sigurðssyni og sló hann fyrst og sparkaði siö- an i hann. Við náöum tali af Guö- brandi og spurðum hann út I at- vikið. — Ég sé enga ástæöu til þess að vera nokkuð aö leyna þvi aö Hud- son sparkaði i mig, sagöi Guö- brandur. — Ég gaf honum að sjálfsögöu rautt spjald og þaö er nú I höndum aganefndar hversu strangt bann Hudson fær — það veröur þó aldrei minna en einn leikur. Sannarlega ljótur endir á ann- ars mjög skemmtilegum leik. Dómgæslan heföi e.t.v. getaö ver- ið betri en ekki vaö þaö aö sjá að dómarnir bitnu&u meira á ööru liöinu. Meðdómari Guöbrandar var Sigurður V. Halldórsson. Stig Vals : Dwyer 44, Rikharður 13, Kristján 8, Torfi 4, Hafsteinn 4, Sigurður 4 og Gústaf 2. Stig KR: Hudson 31, Jón 16, Garðar 11, Birgir 6, Arni 6, Einar 2 og Gunnar 2. Maöur leiksins: Tim Dwyer., Val. Stjörnuskin í Garðabæ Þaö er óhætt aö bóka aö Stjarnan i Garðabænum á eftir aö skina glatt i sumar. Þeir hafa nefnilega fengiö til liös viö sig þrjá fyrrverandi liösmenn sfna. Þorvaridur Þóröarson, sem varöi mark FH af miklu kappi s.l. sumar, hefur tilkynnt félaga- skipti yfir i sitt gamla félag og hann mun leika með þvi I sumar. Þá hefur annar leikmaöur, Guö- mundur Yngvason, sem lék meö Þrótti Neskaupstaö s.l. sumar, tilkynnt félagaskipti yfir I Stjörn- una. Guömundur lék meö Stjörn- unni á unglingsárum sinum og lék m.a. meö unglingalandsliöinu Hann gekk siðan yfir i KR. Þá mun Magnús Teitsson ætla aö ganga yfir i sitt gamla félag, en hann hefur leikiö meö FH undanfarin ár. Magnús hefur enn ekki gengið frá félagaskiptunum en mun hafa fullan hug á þvi. Ekki er aö efa aö þeir kappar munu styrkja félagiö til muna, en Stjarnan hefur nokkur undan- farin ár veriö á barmi 2. deildar, án þess þó aö geta unniö sér sæti þar. Southampton lagði Albion Leikmenn Southampton komu heldur betur á óvart I gærkvöldi er þeir unnu West Bromwich Albion i 5 umferö ensku BSkar- keppninnar á „The Dell” i South- ampton. Laurie Cunningham kom WBA yfir á 52. minútu. Þegar 13 minútur voru eftir aö leiknum var Terry Curran brugöiö innan vita- teigs og David Peach jafnaöi metin úr vitaspyrnunni, Siðan varð að framlengja og Phil Boyer skoraði sigurmarkiö á 13. minútu framlengingarinnar. Mesti áhorfendafjöldi keppnis- timabilsins horföi á leikinn — 25.755, en leikvangur Southamp- ton er mjög litill. Southampton mætir Arsenal i 6. umferð bikars- ins. 1 gær var dregið i undanúrslit bikarsins. Liverpool mun leika gegn Tottenham eöa Manchester United og sigurvegararnir i' leikj- um W olves/Shrewsbury og Arsenal/Southampton munu mætast f hinum undanúrslita- leiknum. Þór krækti sér í tvö stig í Iokabaráttunni Þórsarar náu tveimur stigum I lokabaráttunni i úrvaldsdeildinni i körfubolta er þeir unnu IR-inga ISkemmunniá laugardaginn meö 88:83.1R leiddi 43:41 i hálfleik. Þórsarar leiddu til aö byrja meö og þaö var ekki fyrr en á 8. minútu aö 1.R jafnaöi, 14:14. Siöan var aftur jafnt 18:18, en þá tóku Þórsarar á honum stóra sinum og náöu forystunni á ný og leiddu meö 2-3 stigum út nær allan hálf- leikinn. ÍR komst yfir 36-35 I fyrsta sinn og leiddi, sem fyrr sagöi, I hálfleik 43:41. Sú forysta var þó skammvinn þvl Þórsarar jöfnuöu og komust siöan yfir strax-1 upphafi seinni hálfleiksins. Munurinn á liöunum var þetta ú-2 stig þar til IR jafn- aöi 75:75 á 36. minútu Siöan var aftur jafnt 81:81, en þá seig Þór endanlega framúr. Um gang leiksins má segja, aö fráköstin hafi ráöiö úrslitum. Aö þessu sinni hirtu þeir Eirikur og Birgir flest frákastanna, en Stef- án læddist þó stundum inn á milli og hirti fráköst fyrir 1R. Fráköst- in hafa verið veikasti hlekkurinn hjá Þór I vetur en nú voru þau i lagi — og þá vannst sigur. Einhver deyfö virtist rikja hjá IR-ingum enda ekki aö neinu aö keppa fyrir þá.Hjá þeim var Paul Stewart bestur, en einnig átti Stefán mjög góöan leik og var sterkur i vörn. Þá áttu Kolbeinn og Kiddi Jör. ágætan leik. Hjá Þórsurum var Mark Christiansen aö venju áberandi bestur, en Eirikur og Jón, ásamt Karli og Birgi, átti sinn besta leik í langan tima. Dómgæslan i leiknum var ekki beint upp á marga fiska. Hún var I höndum þeirra Flosa og Guö- brands Sigurössona og fórst þeim verkefniö óhönduglega. Stig Þórs: Mark 26, Eirikur 16, Jón 16, Birgir 14, Karl 12, Þröstur og Sigurgeir 2 hvor. Stig 1R: Stewart 21, Stefán 16, Kolbeinn 14, Kristinn 14, Jón 8, Sigmar 8 og Kristján 2. Ma&ur leiksins: Mark Christiansen, Þór Hart barist I leik KR og Vals fyrr i vetur. t gærkvöldi höföu Vals- menn betur og hafa nú þokaö áér aö hliö KR I úrvalsdeildinni. MARKVARSLAN í LAMASESSI Framstúlkurnar stigu enn eitt skref i átt til tslandsmeistara- tignarinnar i vetur er þær unnu Vikingsstúlkurnar 16:12 I frekar lélegum leik i Höllinni á sunnu- dagskvöldiö. Lengst af var ekki ýkja mikill munur á liöunum og heföu Vikingsstúlkurnar ekki klúöraö fjórum vitaköstum heföi útkoman getaö oröiö nokkuö önn- ur en raun bar vitni. t hálfieik leiddi Fram 7:5. Fram komst i 3:0 áöur en Vik- ingsstúlkurnar vöknuöu til lifsins. Þaö munaöi miklu fyrir þær aö Agnes Bragadóttir lék ekki meö og svo má ekki gleyma mark- vörslunni, sem var afspyrnuslök. Var lengst af nóg aö hitta markiö og fór boltinn þá rakleiöis i netiö. Svo virtist sem Vlkingsstúlk- urnar ætluöu aö jafna metin þvi þær minnkuöu muninn i 7:8 og aftur 9:10. Þá hófst raunasaga Vikinganna i vltaköstunum og á skömmum tlma varöi Kolbrún I marki Fram þrjú viti og auk þess fór eitt vita- kast Vikinga I stöng. Slikt getur ekkert liö, sem er I fallbaráttu, leyft sér og þvl varö tap hlutskipti þeirra sem oftast áöur. Liöiö er þó greinilega á réttri leiö undir stjórn Bogdans. Bestar hjá Fram voru þær Guörfður og Oddný. Kolbrún varöi litiö utan vitanna. Þá var Jóhanna Halldórsdóttir sterk aö venju. Hjá Vikingi bar mest á Ingunni, en einnig vakti Iris athygli fyrir góö skot, en var litiö meö. Mark- varslan er þeirra höfuöverkur og liöiö á ekki von meöan hún ekki batnar. Mörk Fram: Guöriöur 7/4, Oddný 4/1, Jóhanna 3, Jenny 2. Mörk Vikings: Ingunn 5/1, Sigrún 3, Iris 2/1, Heba 1/1 og Sólveig 1. Kona leiksins: Guörlöur Guöjóns- dóttir, Fram. Þetta er alger „þursaflokkur” — sagöi einn áhorfenda um kvennalið Breiðabliks — Þetta er nú meiri þursaflokk- urinn þetta Brei&abliksliö, varö einum áhorfanda aö Varmá aö oröi þegar kvennaliö Breiöabliks hljóp inn á fyrir leikinn gegn Val á sunnudaginn. Vissuiega má aö mörgu leyti taka undir þessi orö, þvisumar leikkvenna Breiöabliks eru tröll aö vexti og handboltinn ekki beint áfer&arfriöur hjá þeim. Hvaö um þaö — Valur vann þenn- an leik 16:13 eftir aö hafa leitt 8:5 i hálfleik. Mikiö jafnræöi var meö liöun- um i byrjun og t.d. var jafnt 2:2 eftir 10 min. leik, en siöan skor- uöu Valsstúlkurnar næstu sex mörk og komust I 8:2 — sigurinn tryggöur. Blikastúlkurnar áttu svo siöasta oröiö þvi þær skoruöu siöustu þrjú mörk hálfleiksins. Seinni hálfleikurinn var ekki beint skemmtilegur á aö horfa en liöin voru mjög jöfn þrátt fyrir aö undir niðri heföi maöur trúaö aö Valsstúlkurnar gætu unniö leik- inn létt ef þær bara nenntu þvi. Lokatölur uröu eins og fyrr sagöi 16:13. Hjá Val var engin annarri fremri, en þær Harpa, Elin og Oddný áttu allar ágætan leik. Þá varöi Jóhanna i markinu þokka- lega. Hjá Breiðabliki var Sigur- borg langbest en Asa og Hrefna áttu ennfremur góöan leik. Þá vakti Jónina athygli. Skotanýting kvennanna i leiknum var ekki alltaf upp á þaö besta. T.d. skaut Hulda 16 skotum og skora&i aö- eins 2 mörk — 12,5% nýting. Ann- ars var Magnea I marki UBK langbesta manneskjan á vellinum og varöi mjög vel þrátt fyrir hrip- leka vörn. Mörk Vals: Harpa 5, Oddný 4, Sigrún 3/1, Elin 2, Agústa og Björg 1 hvor. Mörk UBK: Sigurborg 4, Hrefna 3, Hulda 2, Asa 2, Auður og Jónina 1 hvor. Kona leiksins: Magnea Magnúsdóttir, UBK. Umsjón: Sigurður Sverrisson

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.