Tíminn - 16.03.1979, Blaðsíða 6
6
Föstudagur 16. mars 1979
Útgefandi Framsóknarflokkurinn
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson og Jón Sigurösson. Auglýsinga-
stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur,
framkvæmdastjórn og auglýsingar Siöumóla 15. Slmi
86300. — Kvöldslmar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl.
20.00: 86387. Verö I lausasölu kr. 150.00. Askriftargjald kr.
3.000.00 -á mánuöi. Blaöaprent
J
, Hörmulegur
skyndifundur
Það má hiklaust fullyrða, að þjóðin fagnaði þeim
tiðindum sem Rikisútvarpið flutti á sunnudags-
kvöldið, að daginn áður hefði náðst á rikisstjórnar-
fundi fullt samkomulag um efnahagsfrumvarp for-
sætisráðherra, ásamt breytingum á þvi. Menn gera
sér ljóst, hvar i flokki sem þeir standa, að mikil
nauðsyn er nú styrkrar samstöðu um raunhæfari
aðgerðir gegn verðbólgunni en beitt hefur verið
undangengin misseri. t
Þessi fögnuður rikti þó ekki lengi. Daginn eftir
var kvaddur saman skyndifundur i stjórn Alþýðu-
sambands íslands. Þar var samþykkt i miklu fljót-
ræði að mótmæla kjarabótakafla frumvarpsins,
enda þótt áður væri búið að gera á honum miklar
breytingar til samræmis við óskir launþegasamtak-
anna. Þessi mótmæli höfðu þau áhrif, að ráðherrar
Alþýðubandalagsins breyttu um afstöðu og neituðu
að standa að frumvarpinu i óbreyttu formi. For-
sætisráðherra varð þvi einn að leggja það fyrir
þingið, þar sem ekki var réttlætanlegt að draga það
lengur, að það kæmi þar til umfjöllunar.
Allt bendir til að ályktun áðurnefnds skyndifund-
ar, sem getur átt eftir að reynast örlagarikur, hafi
verið tekin að óhugsuðu ráði, þvi að aðallega hafi
verið farið eftir mjög villandi og hlutdrægum upp-
lýsingum og útreikningum sérfræðinga og starfs-
manna Alþýðusambandsins. Aðalefni þessara út-
reikninga virðist hafa verið það, að samkvæmt
verðbótaákvæðum frumvarpsins myndi verða 6-7%
kauplækkun á árinu. Það er svo blásið út, að hér sé
verið að gera stórkostlega árás á launakjörin.
Inn i þessar upplýsingar og útreikninga sér-
fræðinga og starfsmanna Alþýðusambandsins vant-
ar tvennt, sem skiptir höfuðmáli. í fyrsta lagi vant-'
ar upplýsingar og útreikninga um það, hvaða áhrif
það myndi hafa á verðbólguna, ef greiddar væru
fullar verðbætur samkvæmt núgildandi kerfi. Þá
myndi koma i ljós, að þessar verðbótagreiðslur
myndu verða að litlu eða engu i verðbólgubálinu,
sem af þeim greiðslum hlytist. Þær myndu þvi ekki
verða til að auka kaupmáttinn, þótt krónutala
kaupsins hækkaði. Reynslan frá siðasta ári sannar
þetta ótvirætt, en oft hefur verið vitnað til hennar.
1 öðru lagi vantar það i upplýsingar og út-
reikninga sérfræðinga og starfsmanna Alþýðu-
sambandsins, hvaða áhrif hin stóraukna verðbólga
sem hlytist af fullum verðbótum, myndi hafa á at-
vinnuöryggið. Tvimælalaust er hægt að fullyrða, að
hún myndi veikja það stórlega og valda atvinnu-
leysi. Það er ekki að ástæðulausu, að margir félag-
ar i Alþýðusambandi íslands óttast, að atvinnuleysi
geti verið á næstu grösum, að óbreyttum ástæðum.
En reiknimeistarar og sérfræðingar Alþýðusam-
bandsins þurfa ekki að óttast það.
Skyndifundur stjórnar Alþýðusambands Islands
ber þess sorgleg merki, að þar er farið að stjórnast
alltof mikið af ráðunautum og sérfræðingum, en
minna hirt um tengslin við félagsmennina sjálfa og
álit þeirra. Þeir, sem hér eru mest til ráðuneytis og
upplýsingaöflunar, tilheyra yfirleitt þeim öfgaöfl-
um Alþýðubandalagsins, sem vilja núverandi stjórn
feiga. Þeim hefur vissulega tekizt að koma ár sinni
vel fyrir borð á skyndifundinum. En ekki er þó enn
séð, hvort þeir ná settu marki. Enn er von, að heil-
brigð skynsemi hinna óbreyttu félaga i Alþýðusam-
bandi íslands geti mátt sin meira en reiknings-
kúnstir sérfræðinganna.
Þ.Þ.
Erlent yfirlit
Atökin um eyjarnar
á Suður-Kínahafi
Klna telur sig ráða þar frá fornu fari
Hua Kuo-feng
SENNILEGT þykir, aö innan
ekki langs tíma hefjist viöræöur
milli stjórna Kina og Vietnams,
þar sem reynt veröi aö koma á
skaplegri sambúö milli land-
anna. Stjórn Klna bauö til þess-
ara viðræöna meöan innrás
Kinverja stóö sem hæst, en
stjórn Vietnams svaraöi þvi, aö
hún tæki ekki þátt I slikum viö-
ræðum fyrr en allur kinverskur
her væri farinn frá Vletnam. Þá
myndi ekki standa á henni aö
taka þátt í slikum viðræöum. Ef
kín versk stjórnarvöld draga all-
an her sinn frá Vletnam, eins og
þau hafa heitið, ættu umræddar
viöræöur að geta hafizt bráö-
lega.
Þaö er svo annað mál, hvort
þessar viðræöur leiöa til skap-
legrar sambúðar milli Klna og
Vietnams. Þaö mun aö sjálf-
sögðu fara mjög eftir þvi hvaöa
kröfurKInverjar setja á oddinn.
Vietnamarstanda þaö réttir eft-
ir innrásina, að þeir munu ekki
ganga að neinum afarkostum.
Þaö þykir ekki liklegt, eins og
sumir fréttaskýrendur hafa
gizkað á, að Kinverjar muni
krefjast breytinga á landamær-
um Kina og Vietnams. Þau eru
talin nokkurn veginn glögg,
ólikt þvi, sem er um landamæri
Víetnams og Kambodiu. Stjórn
Kina lýsti lika yfir þvi, þegar
hún hóf innrásina, aö hún myndi
ekki krefjast neins af
vietnömsku landi.
Vafalaust hefur stjórn Kina
þó undanskiliö eyjarnar á Suö-
ur-Kinahafinu, þvi aö Kinverjar
telja þær allar heyra undir
Kina, en bæöi Vietnam og
Filippseyjar og raunar Taiwan
gera tilkall til þeirra. Hér er um
aö ræða óbyggöa eyjaklasa,
sem látnir voru afskiptalausir
þangaö til fyrir nokkrum árum
og enginn gerði formlegt tilkall
til fram að þeim tima. ,KIn -
verjar byggja tilkall sitt til
þeirra á þvi, aö Klna hafi frá
fornufari ráöið yfir Suöur-KIna-
hafinu og falli hinar óbyggðu
eyjar þar þvi undir yfirráð
þeirra.
ÞAÐ hefur gert þessar eyjar
aö þrætuepli á slöari árum, aö
olia hefur fundistá þessusvæöi.
t tilefni af þvi lýsti stjórn
Chiang Kai-sheks þvl yfir 1947,
að eyjarnar tilheyröu Kina.
Stjórn kinverskra kommúnista
hefur svo endurnýjaö þessar
kröfur.
Hér er einkum um aö ræöa tvo
eyjaklasa, Paracel-eyjar og
Spratly-ey jarnar. Suö-
ur-Vietnam geröi á sinum tlma
tilkall til Paracel-eyja.og leiddi
þaðtil þess, að Kinasendi þang-
aðherlið 1974, oghefur haft þar
bækistöðvar siöan. Eftir sam-
einingu Vietnam-rikjanna, hef-
ur stjórnin i Hanoi gert tilkall til
eyjanna, en þó ekki reynt neitt
að hrófla við stöðvum Kinverja
þar. Hins vegar sendi hún 1975
herlið til Spratlyeyja og setti
upp bækistöövar á nokkrum
þeirra, sem hún hefur haft þar
siðan. Um likt levti sendu bæöi
Taiwan og Filippseyjar herliö
þangaö, sem setti þar upp bæki-
stöövar, sem hefur verið haldiö
við siöan. Kinverjar hafa enn
ekki komið upp bækistöövum
þar, en halda eigi að siöur tíl-
kalli sinu til streitu. Það eru
þannig ekki færri en fjögur riki,
sem nú gera tilkall til
Spratley-eyja. Filippseyingar
hafa þegar hafið oliuvinnslu viö
þær eyjar, sem liggja næst
þeim. Spratley-eyjar eru allar
mjög litlar en margar og
dreifðar yfir stórt svæði.
AF HALFU Kinverja hefur
ótvirætt veriö gefið til kynna, aö
þeir munu fylgja fram tilkalli
sinutil umræddra eyja meö her-
valdi, ef ekki tekst að ná frið-
samlegri lausn, sem þeir telja
æskilegast. Sumir frétta-
skýrendur gizka á, að fyrirhug-
uð kaup Kinverja á
Harrier-flugvélunum bresku,
standi i' sambandi við þaö, að
þeir hyggist ná yfirráðum yfir
þessum eyjum, en flugvélar
þessar þurfa litiö lendingar-
rými.
Þá hefur það veriö ágiskun
sumra fréttaskýrenda, aö litil
rússnesk flotadeild, sem undan-
farið hefur haldið sig á þessum
slóöum, eigi aö verja stöövar
Vietnama á Spratleyeyjum, ef
Kinverjar gera tilraun til aö
hernema þær.
Þaö er olian, sem er megin-
orsök þess, aö deila er nú hafin
um þessar eyjar, sem áður voru
látnar afskiptalausar, enda
taldar óbyggilegar. En hér er
raunar deilt um miklu meira.
Kinverjar vilja halda fomu til-
kalli sinu til Suður-Kfnahafsins,
þvi aö það tryggir þeim ekki
aðeinsoliuna, heldur lfka eftirlit
meösiglinguáleiðum, sem geta
átt eftir að reynast hernaðar-
lega mikilvægar. Þess vegna
fylgjast bæði Japan og
Singapore með þessum átökum
og telja þau skipta sig verulegu
máli.
Andstæöingar Kinverja telja
tilkall þeirra til Suður-Kina-
hafsins merki um að þeir vilji
a.m.k. ná aftur öllum yfirráö-
um, sem þeir höföu, þegar veldi
þeirra var mest fyrr á öldum.
Þ.Þ,