Tíminn - 30.05.1979, Side 17
Miðvikudagur 30. mai 1979
17
Lesendur skrifa
Enn um sjónvarpið
Þær eru orðnar margar
kveðjurnar, sem sendar hafa
verið sjónvarpinu 1 dagblöðum
undanfarin misseri. 1 flestum
þeirra kveður við sama tón.
Höfundarhafaalltá hornum sér
og fátt eða ekkert virðist vel
gert, enda er það neikvæða fólk-
ið, sem lætur til sin heyra en
það jákvæða þegir oftast. Ég tel
mig vera i siðari hópnum enda
er ég þeirrar skoðunar, að þau
tiu ár, sem sjónvarpið hefur
verið starfrækt, hefur það á
engan hátt brugðist þegar á allt
er litið. Það verður aldrei gerð
sú dagskrá sem allir geta sætt
sig við til fulls. Ahorfendum
ætti að vera ljóst, aðsú dagskrá,
sem boðið er uppá miðar að þvi
ao gera sem flestum til hæfis,
Allt um það, ég hef ákveðna
skoðun á þvi hvernig bæta má
dagskrá og nýta betur þenn-
an áhrifamikla fjölmiðil til auk
innar menningar.
Ég tel að auka eigi kennslu
t.d. i tungumálum, garðrækt óg
ýmsum þáttum helstu atvinnu-
veganna. Þetta efni er sjálfsagt
að endurtaka, og ætti það að
vera stofnuninni nokkur sparn-
aður. Efni af þessu tæi hefur áð-
ur verið á dagskrá, en horfið að
mestu i seinni tið og kann það
eflaust að starfa af þröngum
fjárhag. Vonandi stendur þetta
til bóta.
Einn er sá liður á dagskránni,
sem oft er fjallað um i blööum,
en það er barnatiminn. Er það
mjög eðlilegt að þessi liður veki
mikla athylgi, þar sem hann
næctil svo margra og óllkra
áhorfenda og áheyrenda. Það
eru ekki aðeins börnin, sem
hafa ánægju af barnatimunum,
heldur veit ég að margt gamalt
fólk horfir á hann t.d. á heimil-
um aldraðra. Frá áramótum
hefur þessi þáttur verið i umsjá
Svövu Sigurjónsdóttir kennara.
I byrjun voru þættir hennar all
frábrugðnir fyrr þáttum að þvi
leyti, að hún kom fram með
meira fræösluefni en áður hefur
verið og fléttaði saman gamni
og alvöru. Það ætti að vera öll-
um foreídrum gleðiefni, þegar
börn þeirra eru uppfrædd og
leidd til meiri þroska um leið og
þeim er skemmt.Þetta kunna þó
þvi miður ekki allir foreldrar að
meta og telja að skólunum beri
að sjá um alla fræöslu — engar
smákröfur það. Það kann þó að
vera að þessir foreldrar kæri sig
ekki um meiri fræðslu en
skyldunámið börnum sinum til
handa. Hljóta þessir foreldrar
að vera afar lélegir uppalendur
i flestum tilvikum.
Svo undarlega hefur brugðið
við þrjá sl. sunnudaga að um-
sjónarmaður barnatimans
Svava Sigurjónsdóttir hefur
hvorki komið fram til að heilsa
og kynna né kveðja i lokin. Þetta
tel ég með öllu óþolandi ókurt-
eisi og litilsvirðingu giö áhorf-
endur — og umsjónarmann.sé
þetta ekki gert að hennar ósk.
Hverju sætir þessi fáránlega
nýbreytni? Við horfum ekki svo
á iþróttaþætti, að umsjónar-
maður sé ékki mikinn hluta tim-
ans i fullri stærð á ákerminum,
og þegar hann lýsir hlaupi eru
allir löngu komnir i mark áöur
en hann hefur kynnt þá.' Siðast-
liðinn laugardag kynnti þessi
sami maður rúmenska fim-
leikastúlku sem austur-þýska,
og til öryggis endurtók hann
vitleysuna. Það var ekki nóg
með að nafn og þjóðerni stæöi á
skerminum heldur voru búning-
arnir mjög auðþekkjanlegir —
sá rúmenski hvitur en þýski
rauður. Þeir sem eru með
skerta heyrn losna blessunar-
lega viö mistök af þessu tæi.
Fyrir þetta fólk þarf aö hafa
texta með öllu efni, jafnt inn-
lendu sem erlendu.
Siðustu þrir þættir af
stundinni okkar hafa verið svo
lélegir að furðu gegnir- Uppistaö
an hefur verið erlend (sænksk)
hugmynd með andlit á hvolfi.
Stjórnandi upptöku virðist svo
heillaður af þessari innihalds-
lausu vitleysu, aö hann ofgerir
taka þetta’i hiprlLTfeendur-
taka þetta i Það
er annars alvarlegt áhyggjuefni
hvort ekki fer aö rætast úr með
að fá sæmilega hæfa upp-
tökustjóra, sem kunna til verka.
Þaö var sorglegt að sjá hvernig
svo einstæðu og frábæru efni
sem Dagur hestins var gjör-
samlega klúörað. Myndatakan
var dæmigerð fyrir algeran
byrjanda sem sneri til suðurs
þegar þulur talaði um hross I
norðri. Nærmyndir voru engar
frekar en vélarnar væru bilaðar
eða allt tjóðrað fast. Þetta var
hörmulegt slys, sem ekki má
endurtaka sig.
Fleira væri hægt að týna til,
en ég ætlaði ekki að vera nei-
kvæður svo mál er aö linni að
sinni.
Velviljaður sjónvarpsáhorf-
andi.
NUERU
GÓÐRÁÐ
ODYR!
Þér er boöið aö hafa samband viö verkfræöi-
og tæknimenntaöa ráögjafa Tæknimiöstöövar-
innar ef þú vilt þiggja góö ráð i sambandi
viö eftirfarandi:
Stjórnlokar
(loftogvökvi)
Eitt samtal viö ráögjafa okkar, án
skuldbindingar, getur sparað þér stórfé hvort
sem um er aö ræða vangaveltur um nýkaup
eöa vandamál viö endurnýjun e
viögerö á þvi sem fyrir e
íf^lii
VERSLUN - RÁÐGJÖF-VIDGERDARÞJÚNUSTA
IÆKNIMIÐSTÖÐIN HF
Smiðjuveg66. 200 Kópavogi S:(91)-76600
Auglýsið í
Tímanum
Fermingar i Stafholts-
prestakalli á Hvita-
sunnudag.
í Hvammi kl. 11.
Kristin Þórisdóttir,
Hóli.
Leifur Einar Leopoldsson,
Hreðavatnsskála.
Þórhallur Björnsson,
Hreðavatnsskála.
Þorsteinn Þorsteinsson,
Brekku.
1 Stafholti kl. 2.
Asta Brynjólfsdóttir,
Stafholti.
Björk Olafsdóttir,
Kaðalstöðum.
Sigriður Helga Skúladóttir,
Svignaskarði.
Þórdis Sveinsdóttir,
Eskiholti.
Jón Aðalsteinn Tómasson,
Hofstöðum.
Logi Vigþórsson,
Varmalandi.
Valdimar Þorvaldsson,
Kópavogi.
Páll Ásgeir
afhenti
D
R
E
K
I
trúnaðarbréf
í Noregi
Hinn 15 . þessa mánaðar
afhenti Páll Asgeir Tryggvason,
sendiherra, Ólafi V. Noregskon-
ungi trúnaðarbréf sitt sem sendi-
herra Islands i Noregi.
Kaupi bækur
gamlar og nýjar, is-
lenzkar og erlendar,
heilleg timarit og
blöð, einstakar bæk-
ur og heil söfn. Skrif-
ið eða hringið.
Bragi Kristjónsson
Skólavörðustig 20
Reykjavik. Simi
29728.
K
U
° B
B
U
R
\Vá, betta er
viðburðarikur
dagur.
Þetta eri fyrsta bókfinkan’
sem ég sé. Hlustaðu á 11
hana! Hún, er æst og gefur
frá sér mikil
KannsM ertu
,fyrsti fuglaskoðar
.inn hennar.