Tíminn - 27.06.1979, Blaðsíða 20
Gagnkvæmt
tryggingafélag
Frönsk hjön á sjúkrahús
eftir bllveltu í Námaskarði
GP/JI —1 gær fór litill fólksvagn
útaf veginum austarlega I Náma-
skarðinu. Þarsem blllinn fór út af
er um 30 metra hár kantur og
mun billinnhafa oltið þar niður og
er nær ónýtur eftir. tbllnum voru
frönskhjón og samkvæmt upplýs-
ingum sjúkrahússins á Húsavik
er konan nokkuð slösuð, mikið
marin en óbrotin. Maðurinn hins
vegar skarst lltillega á höföi en er
annars hress.
BQlinn mun hafa farið út af i
beygju og hefur það vakið athygli
þeirra, sem þarnahafa fariðum,
að beygjan er áengan hátt merkt
og gæti það verið skýringin á
þessú leiðinlega óhappi.
RA-UÐARÁRSTÍG 18,
SÍIVII 2 88 66
GISYING
MORGUNVERÐUR
Sovéski markaðurinn
okkur nauðsynlegur
# lögð verður áhersla á að auka hann, segir Guðmundur H. Garðarsson
HEI — „Það liggur fyrir, að
gagnkvæmur áhugi rikir hjá Is-
lendingum og Sovétmönnum á að
halda viðskiptum milli landanna
gangandi. En engin leið er að
svara þvl, aöhve miklu leyti sala
okkar afurða til Sovétrlkjanna er
tengd ollukaupum okkar þaðan.
Þvl hygg ég aö enginn geti svar-
aö, jafnvel ekki Sovétmenn sjálf-
ir”, sagði Þórhallur Asgeirsson I
viðskiptaráðuneytinu, er hann
var spuröur aö þvi, hvort fisk-
markaðir okkar i Sovétrlkjunum
væru I hættu ef við snerum okkar
oliuviðskiptum t.d. til Norö-
manna.
Guömundur H. Garðarsson hjá
Sölumiðstöð hraöfrystihúsanna
var spurður hins sama. Hann
sagði sovéska markaðinn hafa
veriö mjög mikilvægan fyrir is-
lenskan sjávarútveg og fiskiðnað,
þótt sveiflur hafi verið I sölu
þangað. Miðaö við þær aögerðir,
sem nú væri verið aö gera til
verndarþorskstofninum og þar af
leiðandi aukna sókn I ufsa, karfa
og grálUöu, væri þessi markaður
nauðsynleguroglögð yrði áhersla
á að auka hann.
Nú hefur oft verið talaö um aö
Sovétmenn greiddu lágt verð fyr-
ir fiskinn. Guðmundur sagði fóik
verða að gerasér grein fyrir þvi,
að ekki væri um sömu vöru aö
ræða I verðsamanburöi, þótt sami
fiskur ætti í hlut. Sovétrlkin gerðu
miklu minni kröfurtil umbúða og
frágangs en Bandarikja-
markaöurinn, þannig að fram-
leiðslan þangað væri mun ódýr-
ari. Þá mætti ekki gleyma þvi, aö
Sovétmenn hefðu haáckað veröið
við hvern samning undanfarin ár.
Fullyrðingar um að ekki hafi orð-
ið hækkanir á fiski til Sovétrlkj-
anna væru þvl rangar, þótt
kannski mætti deila um hvort þær
væru nægilega miklar.
Þá yröi að taka mið af þvi, að
um væri að ræða fisktegundir,
sem takmarkaðir og jafnvel engir
markaðir væru fyrir annarstað-
ar. Sala þessara tegunda til
Bandarikjanna hafi að vlsu veriö
aukin, en markaöurinn þar væri
takmarkaður.
Einnig benti Guömundur á, að
ef Sovétmenn á annað borð
minnkuðu kaup sín af okkur, þá
væriekki aðeins fiskurinn I hættu.
Þótt fiskafurðir værustærsti hluti
Utflutnings okkar þangað, þá
heföu þeir líka stóraukið innflutn-
ing héðan t.d. á ullarvörum.
Skipasund 80 selt
á 28 milljónir
Kás —A fundi borgarráðs I gær
var tekið tilboði I húseignina
Skipasund 80, sem er I eigu
borgarinnar, en auglýst hafði
verið til sölu. Tilboðið hljóðaði
upp á 28 milljónir kr.
Þetta tilboð, sem var frá Hilm-
ari Sæmundssyni, var að visu
ekki það hæsta að krónutölu, en
þegar útborgun og tlmi afborg-
unargreiðslna höfðu verið tekin
inn i, reyndist það hagstæðast.
1 Skipasundi 80 var áður skóla-
dagheimili. Borgarstjórn ákvað á
siðasta áriað leggja það niður, en
flytja starfsemina I hús Thor-
valds ensfélagsins.
íslenskt og afburðagott
Viljirðu tryggja rekstraröryggi heybindivélarinnar,
ættirðu að kaupa heybindigarnið okkar.
Tvær gerðir fáanlegar:
Gult 360 m/kg - siitstyrkur: 120 kg.
Blátt 430 m/kg - slitstyrkur: 100 kg.
Og að sjálfsögðu fæst það hjá kaupfélögunum
um land allt.
HAMPIÐJAN HF
Jóhann Jóhannesson skokkar slð-
asta spölinn i landshlaupinu
mikla, sem haldið var á vegum
FRI og lauk á Laugardalsveliin-
um i morgun, en þar hófst það
fyrir 9 dögum eða 17. júni s.l.
Miðvikudagur 27. júní 1979 142. tbl. — 63. árg.
örn Eiösson formaöur FRt afhendir Þór Magnússyni þjóðminjaverði kefiið sem hlaupið var með, en
það verður varðveitt á Þjóðminjasafninu um ókomna tiðkomandi kynslóðum tilsýnis.
TRÉSMIDJAN MEIDUR
SÍÐUMÚLA 30 ■ SÍMI: 86822
Sýrð eik etr
sígild eign
fcCiÖCiM
Jógúrt
minnkar
blóðfitu
Hópar visindamanna I
tveim bandariskum háskólum
hefur fundið aöferð til að
draga Ur æðakölkun, sem er
einn algengasti sjúkdómurinn
sem viðer að strlða á Vestur-
löndum. Eftir tilraunir sem
gerðar hafa verið bendir allt
til að meö þvi að borða jógúrt
daglega sé hægt að lækka
blóðfituna og draga þannig
stórlega úr hættu á æðakölk-
un. Þannig að lyfið við þessum
vágesti velmegunarinnar er
ekki að fá í lyfjabúð heldur I
kaupfélaginu eða hjá kaup-
manninum. Upplýsingar þess-
ar eru Ur sænska blaðinu Ar-
betet.
Borgarráð þiggur
gjöf frá Silla
Kás — A fundi borgarráðs i gær
var lagt fram bréf frá Guömundi
Ingva Sigurössyni, lögfræðingi. I
þvl tilkynnir hann að samkvæmt
erföaskrá Sigurliða Kristjánsson-
ar, sem oftast var kallaöur Silli
ÍSilli og Valdi), hafihann ánafnað
leykjavQcurborg 30 hektara af
jörðinni Asgaröi i Grlmsnesi.
Bróðurpart jaröarinnar arf-
leiddi Sigurliöi Skógrækt rikisins.
Hjartavernd var arfleidd að 50
hekturum og sumarbústaði við
Sogiö. 30 hektara ánafnar hann
síöan Reykjavlkurborg með
þeirri ósk,aöþar verði komið upp
i framtiðinni sumarbúðum fyrir
drengi á aldrinum 6—14 ára.
Borgarráö samþykkti að þiggja
gjöfina.
Þess má geta, aö hreppsnefnd
Grimsneshrepps hefur gertsam-
þykkt þar sem hreppurinn áskilur
sér aö neyta forkaupsréttar á
jörðinni.