Tíminn - 11.04.1979, Qupperneq 6

Tíminn - 11.04.1979, Qupperneq 6
6 Miftvikudagur 11. aprll 1979 r V Otgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson og Jón Sigurösson. Auglýsinga- stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og auglýsingar Siftumúla 15. Sími 86300. — Kvöldsimar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verö i lausasölu kr. 150.00. Askriftargjald kr. 3.000.00 -á mánuöi. Blaöaprent Erlent yfirlit Haraldur Ólafsson skrifar: Kjarnorka í Bandaríkjunum og grunnvatnið í Kína Brotið í blað Nú er upp runnið stutt hlé á fundum Alþingis yfir Páskahátiðina, og er ekki úr vegi að staldra þá litið eitt við og lita yfir farinn veg. Meginverkefni þingsins á þessum vetri hafa eins og endranær verið á sviði efnahagsmálanna. Mikil- vægasti árangur starfsins felst i þvi frumvarpi um efnahagsmál sem samþykkt var um siðustu helgi og mun marka timamót i islenskri hagstjórn ef vel tekst til um framkvæmdina. Enda þótt ekki hafi náðst samkomulag um róttækar aðgerðir gegn verðbólgunni vegna andstöðu Alþýðubandalagsins, eru i hinum nýju lögum mörg og mjög merk ákvæði sem valda þvi að hér hefur verið brotið i blað. 1 þessu efni skiptir mestu um það að með frum- varpinu er mótuð gersamlega ný stefna að þvi er snertir fjármagnsmarkaðinn og lánakjör. Með þeim ákvæðum er stigið mjög stórt og veigamikið skref i þá átt að slá á þensluna, styrkja fjármagns- kerfið og koma hér á heilbrigðu markaðshagskerfi. Ákvæðin um bankamál, rikisf jármál og peninga- mál hniga til sömu áttar, enda verður að vera sam- ræmi milli allra þessara þátta ef árangur á að nást. Að visu tókst ekki samkomulag um öll þau um- bótaatriði, sem voru i upphaflegu frumvarpi, að þvi er lýtur að hinu úrelta kerfi verðbóta á laun, visi- tölukerfinu, sem svo mjög hefur bitnað á launþeg- um á undan förnum árum. Þrátt fyrir það eru i hin- um nýju lögum ákvæði sem munu valda hreinum umskiptum frá þvi ófremdarástandi sem rikt hefur i þessu efni. Með þvi að fá visitölu viðskiptakjara viðurkennda hefur megináfangi náðst á leiðinni til skynsamlegs launakerfis i landinu. Sá fáránlegi vitahringur, að versnandi staða þjóðarbúsins út á við valdi kauphækkunum innan lands, hefur með lögunum verið rofinn. Og sérstaklega ber að fagna þvi að þetta tókst með aðild verkalýðshreyfingarinnar sjálfrar. Það má þvi ætla að sú þjóðhagsvisitala sem nú hefur verið samþykkt geti til frambúðar orðið til þess að auka jafnvægi i þjóðarbúskapnum og tryggja betur en verið hefur kaupmátt launa. Á það verður ekki dul dregin að það veldur mikl- um vonbrigðum að ekki tókst samstaða um róttæk- ari aðgerðir gegn verðbólgunni i þessum áfanga. En hitt er þó meginatriðið að ákvæðin um fjármagns- markaðinn, verðtryggingu höfuðstóls lána, stefn- una i rikisfjármálum og peningamálum, ásamt þjóðhagsvisitölunni eru stórkostleg bylting i efna- hags- og fjármálalifi þjóðarinnar. Efnahagslögin nýju eru stórsigur i baráttunni fyrir heilbrigðu markaðarhagkerfi á íslandi. Þau marka algertimamót i sögu islenskrar hagstjórnar, efnahagsmála og launaákvarðana. Enda þótt dreg- ið hafi verið úr ákvæðunum sem stefnt var gegn verðbólgunni eru efnahagslögin grundvöllur sem reynast mun traustur þegar næsti áfangi verður stiginn i glimunni við verðbólguna. En enn sem fyrr er árangurinn undir þvi kominn að vinnufriður haldist og það er sem fyrr undirstaða stjórnarsamstarfsins að verkalýðsforystan virði þau samráð sem samstarf stjórnarflokkanna bygg- ist á. Kjarnorkuveriö á Three Mile Island, skammt frá Harrisburg i Pennsylvania. Hvaö gerist þegar kælikerfi kjamorkuvers bilar, og hitinn i kjarnanum hækkar og hækkar? Hvernig á aö kæla kerfiö aftur þannig, aö ekki veröi þær skemmdir á öryggisbilnaöi, aö geislavirkt vatn seytli út? Visindamenn og tæknifræö- ingar fengu tækifæri til aö fást . viö þetta vandamál þegar kæli- kerfi kjarnorkuversins á Three Mile Island, nálægt Harrisburg I Pennsylvania bilaöi rétt fyrir slöustu mánaöamót. öryggis- loki I kjarnorkuverinu bilaöi, meö þeim afleiöingum, aö efsti hluti úraniumhleöslunnar, sem leggur til orkuna viö rafmagns- framleiösluna, fór upp úr kæli- vatninu, og hitnaöi svo, aö efstu hleöslurnar eyöilögöust. 1 nokkrar klukkustundir leit helst út fyrir, aö stórslys yröi, en smátt og smátt tókst starfs- mönnum versins aö koma kæli- kerfinu i bærilegt lag. Nefiid sú, sem eftirlit hefur meö byggingu og rekstri kjarn- orkuvera, hóf þegar aö rann- saka hvaö geröistoghvernig viö var brugöist. Af þvf, sem fram hefur komiö viröist helst, aö um mannleg mistök hafi veriö aö ræöa, fremur en aö öryggis- kerfiö hafi bilaö. En þegar geislavirkni óx verulega i kjarnaofninum / eyöilögöust mörg stjórntæki vegna geisl- unar. Síöast þegar til fréttist var búiö aö koma i' veg fyrir aö stór- slys yröi, en hins vegar þykir ljóst, aö margir mánuöir muni llöa áöur en unnt veröur aö komast inn I kjarnaofninn til aö gera viö þaö sem þar hefur fariö aflaga, og ekki er vlst aö veriö veröi nokkru sinni opnaö aftur. Kjarnorkuveriö á Three Mile Island framleiddi rafmagn fyrir stórt svæöi. Ekki hefur oröiö vart auk- innar geislavirkni i mat eöa andrúmslofti, né vatni I grennd viö Harrisburg svo teljandi sé. Sú aukning sem oröiö hefúr er öll langt innan hættumarka. Hjá þvigat ekki fariö aö at- buröirnir viö Harrisburg hafi vakiö miklar umræöur um nýt- ingu kjarnorku til friösamlegra nota. Andstæöingar kjarnorku- verahafa bent á hve lltiö menn enn vita um starfræsklu slikra vera, og þær hættur sem þeim eru samfara. Vilja þeir aö þegar i staö veröi hætt viö byggingu allra þeirrakjarnorkuvera, sem nú eru i byggingu, og smám saman hætt aö nota þau, sem i notkun eru. Meöal almennings viröist þó gæta tvibentrar afstööu. Margir telja.aöekki séunnt aö tryggja Bandarikjunum næga orku nema meö þvl aö nýta kjarnork- una, og atburöirnir i Harrisburg séu ekki alvarlegri en svo, aö sambærilegir séu viö þá hættu, sem samfara sé annarri orku- vinnslu. Atburöirnir viö Harrisburg veröa á sama tfma og Carter forseti og Schlesinger, ráögjafi hans I orkumálum, eru aö. leggja slöustu hönd á ráöstafan- ir, sem miöa aö þvl aö draga úr orkunotkun I Bandarlkjunum, og leita annarra leiöa en brennslu steingeröra jaröefna til orkumyndunar. Schiesinger, orkumálaráö- herra Bandarlkjastjórnar, hefúr látiö svo um mælt, aö at- buröirnir viö Harrisburg muni ekki tefja byggingu kjarnorku- vera. Hins vegar veröi eftirlit hert og öryggiskröfur auknar. Vill hann ekki gera of mikiö úr þvi, sem geröist, eöa er aö gerast I kjarnorkuverinu á Three Mile Island. Þar hafi aldrei veriö um aö ræöa veru- lega hættu á geislavirkni utan versiris. Atburöirnir hafa haft mikil áhrif utan Bandarikjanna og hafa andstæöingar notkunar kjamorku vlöa notaö Three Mile Island sem dæmi um hve hættulegt sé aö fara meö kjarn- orku, til hverra nota sem er. Sums staöar hefur þó veriö látiö nægja aö saka Bandarikjastjórn um gáleysi I meöferö kjarnork- unnar. Sovéska fréttastofan TASSnotaöi tækifæriö til aö lýsa sök á hendur Bandarikjunum fyrir aö eitra umhverfi meö geislavirkum efnum. Jafnframt lýsti fréttastofan þvl, hve framarlega Sovétmenn stæöu i notkun kjarnorku til friösam- legra þarfa, og hve fullkomiö öryggiskerfi þeirra væri, — svo fullkomiö, aö óhugsandi væri, að svipaöir atburöir geröust I Sovétrikjunum og geröust á Three Mile Island. Þaö var kaldhæöni örlaganna, aö hálfum mánuöi fyrir atburö- ina I kjarnorkuverinu á Three Mile Island var frumsýnd i Bandarikjunum kvikmyndin The China Syndrome, spenn- andi og frábærlega vel gerö mynd um atburöi sem lýsa at- burðakeöju svipaöri og var i veruleikanum. The China Syndrome þýöir eiginlega Kína-einkennin, og er þá átt viö, aö keðjusprengingar, sem hefjast I biluöu kjarnorku- veri,faridýpraogdýpraog endi loks meö þvl aö eitra grunn- vatniö I Klna. I myndinni leikur Jack Lemmon kjarneölisfræöing, sem hefur eftirlit meö rekstri kjarnorkuvers I Kalifornlu. Jane Fonda leikur fréttakonu hjá sjónvarpi, sem er aö gera fréttaþátt um rekstur kjarn- orkuversins. Meö henni er myndatökumaöur, leikinn af Michael Douglas, syni Kirk Douglas. Meöan þau eru i verinu eykst skyndilega þrýst- ingur í kjarnaofninum og tekst þeim aöná myndaf atburöinum án þess, aö nokkur veröi þess var. Starfsmönnunum tekst aö koma I veg fyrir slys, en sföan er farið aö framleiöa rafmagn I verinu án þess, að tekist hafi að gera viö þá bilun, sem trufl- unum olli. Atburöurinn endur- tekur sig og myndinni lýkur á harla dramatlskan hátt, en grunnvatninu I Klna er þó borgiö. Jane Fonda og Jack Lemmon I hlutverkum slnum I myndinni The China Syndrome, þar sem segir frá svipuöum atburöum og uröu á Three Mile Isiand.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.