Tíminn - 11.04.1979, Side 11

Tíminn - 11.04.1979, Side 11
Miðvikudagur 11. apríl 1979 11 Áfengisneysla Tvöföldun nevslu ■ fjórföldun skaða Útdráttur úr fyrirlestri Ole Jörgen Skog, — starfsmanns viö ,,Statens institut for alkohol- forskning” i Osló. Skog vann ásamt kanadiskum • vi'sindamönnum viö rannsókn á sambandi heildarneyslu áfengis - og tjóns er af notkun áfengis leiiSr. Skog nefnir fyrst aö kenningin um þýöingu heildarneyslunnar byggist á þvi tvennu: aö þvi meir sem maöur notar áfengi þeim munmeirilikur eru á þvi aö neysla veröi honum til tjóns — að ljóst er náiö samband heildarneyslu áfengis og fjölda þeirra er neyta þess i miklum mæli. Skog vikur að þvi aö margir séu tregir til að viöurkenna þaö sam- band. Aö visu sé hægt aö láta sér detta í hug að færri ofneytendur séu á Italíu en í Noregi þó aö heildarneysla sé mun meiri á Ita- liu. Og i sjálfu sér gæti sú tvöföld- un áfengisneyslu er oröiö hefur i Noregi á siðustu 20 árum hafa átt sér stað án f jölgunar ofneytenda — þ.e. menn gætu hafa horfið frá bindindi og svokallaöir hófneyt- endurgætuhafaaukiöneyslu sfna án þessaö fylla flokk ofneytenda. En staðreyndin er súaö aukning- in i Noregi heiúr leitt til fjölgunar ofneytenda og mun fleiri slikir eru á Italiu en i Noregi. Skog rekur siðan aö áfengis- neysla skiptist eftir ákveðnu mynstri sem sé hiö sama I ólikum löndum og á mismunandi timum. Hann ber saman áfengisnotkun I Noregi og Frakklandi. Att er viö notkun I litrum af hreinu áfaigi á ári. Noregur 40% neytenda minna en 5 1 30% neytenda milli 5 og 10 1 15% neytenda milli 10 og 15 1 7% neytenda milli 15 og 20 1 8% neytenda meir en 20 1 Frakkland: 40% neytenda minna en 15 1 30% neytenda milli 15 og 30 1 15% neytenda milli 30 og 45 1 7% neytenda milli 45 og 601 8% neytenda meir en 60 1. 1 Noregi neyttu flestir innan siðasta hópsins milli 20 og 40 litra en um 1/4 eöa 2% meir en 40 1 á ári. Ef neysla i Noregi tvöfaldast enn á næstu 20 árum veröur fjöldi þeirra erneyta yfir 40 Isá sami og þeirra er nú neyta yfir 20 1 eöa 8%, segir Skog, þ.e.a.s. tvöföldun heildarneyslu leiöir til fjórföldun- ar ofneytenda. Elr til skýring á aö aukning heildarneyslu leiðir til þessa? Skog færir fram vixláhrif ein- staklings og umhverfis. Hansen hefúráhrif á neyslu Petersens og Petersen á venjur Hansens. Hann setur upp eftirfarandi dæmi: Petersen fær betur launaöa stööu og finnst hann geta veitt sér að kaupa barskáp og fylla hann rikulega. Honum þykir sem nýja staðan skyldihann til aö taka upp venjur „betri borgara” en þær telur hann vera að hafa áfengi oftar um hönd en áður haföi veriö vani hans. Afengisneysla hans eykst þvi — án þess þó aö fari yfir þaö sem viöurkvæmilegt þykir. barsem Petersen notar áfengi meir en áður aukast likur til þess aöhann bjóöi vinum sinum áfengi er þeir heimsækja hann. Vinun- um finnst aftur aö þeir verði aö veita Petersen áfengi er hann sækir þá heim. Þannig skapast nýjar venjur i umgengni þessa hóps: Afengiö verður æ sjálfsagöara. Nielsen einn úr hópnum, verður einnig fyrir áhrifum. Hann getur ekki kallast ofneytandi en notar áfengi til muna meir en félagar hans. Hingaö til hafa venjur þeirra óbeint haldið aftur af honum, nú snýst dæmiö viö. Vænta má að hann noti sér tækifæriö til aö fá sér oftar I glas og svo getur farið aö hann veröi ofneytandi. Aukin notkun svokallaöra hóf- neytenda leiöir þannig til breytingar á áfengisvenjum þeirra sem standa nærri ofneyslu og i framhaldi af þvi til fjölgunar ofdrykkjumanna og drykkjusjúk- linga. (Grein O.J. Skog: „Alkohol-alkoholskaderkontroll- politikk” Norsk Tidskrift om Edruskapsspörsmal nr. 3/1976). kennt honum — hann er einn hinna fyrstu ungu fiðlara um áratugi, sem aldrei var nemandi Björns ólafssonar. Þessi verk voru á efnis- skránni: Sónata I D-dúr eftir Handel, Rondó I G-dúr eftir Mózart, i fiöluútsetningu Kreisl- ers, Sónata eftir Jón Nordal, einleikssónata fyrir fiölu nr. 2 eftir Ysaye, og sónata eftir Debussy Af þvi aö hér var um próftónleika aö ræöa, hlaut maöur aö hyggja aö öllum kunnáttuatriöum: tónmyndun, bogatækni, vibratói — og kom- ast að þeirri niöurstööu aö þau væru harla vel af hendi leyst. Það er eins meö fiöluna...Qg tilþrifum, frekar en viö er aö búast: listamaðurinn meö hon- um á eftir aö þroskast, og hann getur þá fyrst fengiö útrás, þegar tæknin er fyrir hendi. Annars fer fyrir listamanninum eins og segir I ljóöi Steins Steinarr: „Ég reyndi aö syngja, en rödd min var stirö og hás, eins og ryðgaö járn væri sorfiö meö ónýfri þjöl. Og ég reyndiá ný, og ég grét og baö eins og barn. Og brjóst mitt var fullt af söng, en hann heyröist ekki.” Mér þótti flutningurinn takast best i tveimur af samtimaverk- unum, sónötu Jóns Nordal, og öörum sónötum þessa timabils — Hindemith samdi vist hina fyrstu þeirra — og eins og þær mjög áheyrileg. Þetta voru mjög skemmtileg- ir tónleikar eins og raunar flest- ir hljómleikar Tónlistarskólans. Þaö hvarflar aö manni, aö þessi ár, sem unga fólkiö er i Tónlistarskólanum, hljóti aö vera bestu ár ævi þeirra: tiltölulega áhyggjulaust lif viö tónlistariðkanir, kammermúsik oghljómsveitarleik. Siöantekur alvara liTsins við — en þaö er önnur saga. 8.4 Siguröur Steinþórsson Fiðluieikarinn Þórhaiiur Birgisson og Þorsteinn Gauti Sigurðsson pfanóleikari sem lék undir með honum á próftónleik- unum. A þriöjudaginn I fyrri viku (3. apríl) hélt Þórhallur Birgisson siöari próftónleika sina viö Tónlistarskólann I Reykjavik. og lék fimm verk viö undirleik Þorsteins Gauta Sigurössonar. A fyrri tónleikum sinum lék Þórhallurfiölukonsert Mendels- sohns meö Sinfóniuhljómsveit tslands: þvi miöur gat ég ekki sótt þá tónleika, en mönnum þóttu þeir góöir. Þorsteinn Gauti var einmitt aö ljúka sinu prófi frá Tónlistarskólanum fyrr i vetur, og nú munu þeir báöir, Þórhallur og Þorsteinn, vera á förum til New York til framhaldsnáms. Þórhallur er nemandi Guönýjar Guömunds- dóttur, en áöur munu þeir Jón Sen og Ingvar Jónasson hafa tónlist blásturshljóöfærin, aö tónninn skiptir öllu máli, þvi hljóðfæra- leikarinn skapar hann ,,af sjálf- um sér” (auk þess sem ekki skaöar aö hafa gott hljóöfæri), og fingrafimi er til einskis, ef tónninn erlélegur. Og Þórhallur spilaði bráöfallega. Hins vegar lék hann ekki meö miklum einleiksverki Ysaye. Hinn siöarnefndi (1858-1931) var belgiskur, og einn fremsti fiölarisinstima. Fiöluverk hans þykjaaö vonum svinslega erfiö, og vafalaust vel fallin til aö leika á próftónleikum, og hinn ungi Þórhallur lék meö glæsi- brag! Sónata Jóns ertalsvert lfk Fiðlutónleikar Ofninn í gang efttr páska AM — Til stóð að ofn járnblendiverksmiðjunn- ar að Grundartanga tæki til starfa nú allra fyrstu dagana i april, en vegna minni háttar tafa, svo sem skorts á ýmsu efni og öðru, hefur þetta tafist og er nú áformað að ofninn verði gangsettur skömmu eftir páska, að sögn fjár- málastjóra fyrirtækisins, John Fenger. John Fenger sagði enn, aö únnið heföi verið að prófun 3/missa kerfa vegna gangsetn- mgarinnar, en þegar ofninn hef- úr verið gangsettur munu liöa úm 10-15 dagar, þar til byrja má ?ö tappa af honum. Væri orsök- m sú, að álagiö á hann er smá aúkiö dag frá degi, uns réttu marki er náð. Nú um mánaðamótin tóku fv®r deildir, reksturs- og flutn- mgadeild, tií starfa aö Grundar- mnga. Hráefnisflutningar hafa S®ngiö vel og allmörg skip eru i^gar búin aö losa farm sinn af kvarsi, járni, kolum og koksi. Ekki hefur enn veriö ákveöiö hvaða aöilum veröa fengnir flutningarnir meö fullunnu vör- una, en Isskip, sem annast hrá- efnisflutningana er eitt þeirra fyrirtækja, sem boöiðhefur I þá. Auk þeirra skip Eimskips, sam- bandsins og erlendir aöilar. Kostnaöur við verksmiöju- bygginguna er enn verulega undir upphaflega áætluðu marki, sem var 320 milljónir norskra króna, en er nú aöeins komin I 285 milljónir norskra króna. LITASJONVORPIN mæla með sér sj<f sérstök vildarkjör 35% út T< og restin á 6 mán. * i ^ Skipholti 19simi 19800 BUÐIN nordÍYIende ini'iiiiiijufijii'iIIL HIIJ1 (11 1 n-~Tfy - ------- •• NOP OfTlE NDE

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.