Tíminn - 28.07.1979, Side 8

Tíminn - 28.07.1979, Side 8
8 Laugardagur 28. júli 1979, r Ef mannkyn á aö geta gert sér vonir um aö halda áfram aö lifa hér á jöröinni, þá veröum viö, sem nú lifum, aö sööla um og leita á náöir vlsindanna meö öörum hætti en gert hefur veriö til þessa til aö koma i veg fyrir og stööva þá rányrkju og mengunumhverfisins, sem núá sér staö.. Þessi ummæli er aö finna I nýlegri greinargerö frá Umhverfismálastofnun Sameinuöu þjööanna, en sú stofnun hefur nýlega látiö frá sér fara til fjölmiöla nýjar til- lögur um verndun auölinda jaröarinnar. Tillögur þessar voru meöal annars ræddar á alþjöölegri ráöstefnu' i Ashkhabad I Sovétrikjunum, en þá ráöstefnu sóttu 600 visindamenn og stjórn- málamenn. Þá eru þessar til- lögur og mótaöar i náinni sam- vinnu viö Alþjóöa náttúru- verndarsamtökin, IUCN. Þar er lögö megináhersla á aö hugsaö sé ekki aöeins I bráö,- heldur I lengd, ogaö settar veröi reglur til þess aö tryggja aö spornaö sé viö þeirri óheilla- þróun, sem nú á sér staö og til að tryggja aö eftirkomendum okkar veröi lifvænlegt hér á jörð. Rányrkja Aö þvi er rányrkjuna varöar þá er listinn næstum þvi enda- laus, aö þvi er segir I greinar- gerö Umhverfismálastofnunar- innar. Við þurfum ekki annaö en aö skoöa örh'tiö nánar stööuna i dag til þess aö komast aö raun um, að þaö er sannarlega ekki aö ástæöulausu, sem þessi sér- stofnun Sameinuöu þjóöanna hefur séð ástæöu til aö vara viö þvi, sem nú er að gerast. Næstum helmingur af frum- skógum I hitabelti jarðar er nú horfinn. Aöstoöarstúlka á rannsóknar- stofu I Afrikurtkinu Cameroon athugar blóösýni úr malariu- sjúkiingi. Þar i landi fara fram rannsóknir á jurtagróöri og sjúkdómum. t landinu er aöeins einn læknir fyrir hverja 77 þúsund ibúa. Vatnsskortur er helsti þröskuidur i vegi fyrir bættu heilsufari og betra lifi ibúanna. ffiMtmilMapn PMMÍ wmmmmk . mtm :■*■■■:'■■ ■nðÉjllÉMiiMPmWs ^ < 4' WMWm v ... t .'•■■■'. ■ ":■■ . . . tss« wsÉiáA áSSS ■ : mSmSsmm ■ ■■■■ ‘ -■^.1 \'¥/:■ *$s§m Nýjar tillögur um umhverfismál frá Sameinuðu þjóðunum 43% af þeim svæöum jaröar, sem hugsanlega mætti nota til landbúnaðar hafa nú breytst I eyðimerkur, ekki hvað sist vegna skilnings- leysis mannfólksins. 20% landbúnaöarsvæðanna eru talin i verulegri hættu. Eyöi- merkur veraldarinnar halda áfram aö stækka og stækka, ekkert viröist munu breyta þvi, *ef heldur sem horfir. Hætta er talin á aö um eitt þúsund dýrategundir og 25 þúsund jurtategundir deyi út. Strandhöf og grunnsævi, — sem hafa verulega þýöingu fyrir fiskveiðar, sem hrygningar- og uppeldis- stöðvar ungviöis, — eru i mikilli hættu og ört vaxandi hættu vegna siaukinnar mengunar. Hiö sama gildir raunar um heimshöfin almennt svo og árnar. Meö rányrkju hefur verið gengiö svo nærri fjöi- mörgum náttúruauðlindum viösvegar I veröldinni, aö þær eru ýmist þegar upp- urnar eöa i þann veginn aö veröa þaö. Skógarnir. minnka Ef mannkyniö heldur áfram þessum hugsunarlausa leik með auðlindir jaröar, segir I greinargeröinni, sem áöur er getið, þá verða afleiðingarnar óhjákvæmilega hinar hörmu- legustu til lengri tima litið. Viö getum einfaldlega ekki leyft okkur að halda áfram aö misnota auölindir jarðar með þeim hætti, sem við höfum gert fram til þessa. Meö þessu er ekki einungis átt viö til dæmis oliuna og önnur þau hráefni, sem oftast ber á góma I um- ræðum fjölmiðla. Miklu fremur er átt við þá staðreynd og athyglinni aö þvi beint, aö á f jölmörgum stööum I veröldinni er skógarhögg nú stundaö meira af kappi en for- sjá. Ekki er gróöursett staö trjánna, sem felld eru, og eyöing skóganna hefur einnig i för með sér eyöingu jurta og dýralifs á þessum svæðum. Vistkerfi,semveriöhefur til um aldaraöir liöur undir k)k fýrir skammsýni og hagnaöarfikn mannsins.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.