Tíminn - 14.09.1979, Blaðsíða 2

Tíminn - 14.09.1979, Blaðsíða 2
2 Föstudagur 14. september 1979 Til sölu Land Rover árgerð 1971, diesel, með mæli, lengri gerð. Ný dekk og fleira. Yfirfarin vél. Verð 1800- 2 milljónir. Góð kjör. Til sölu á sama stað uppistöður 1x4 ca. 250- 300 m. Verð kr. 70.000. — Simi: 75836. Kópmiskaupsiyv Gj Kópavogsbúar Gustsfélagar og hesthús Tómstundaráð og Hestamannafélagið Gustur vilja hér með gefa ungum Kópa- vogsbúum og Gustsfélögum allt að 18 ára, kost á að hafa hesta á fóðrum i sam- eignarhesthúsi þessara aðila. Umsóknar- frestur er til 25. september n.k. og skal umsóknum skilað á Félagsmálastofnun- ina, Álfhólsvegi 32, en þar eru jafnframt veittar nánari upplýsingar i sima 41570. Félagsmálastjórinn i Kópavogi Tíminn er peningar Auglýsid i Timanum Hjúkrunarfræðingar Sjúkrahúsið á Húsavik óskar að ráða hjúkrunarfræðinga nú þegar. Allar uppl. veitir hjúkrunarforstjóri i sima 96-4-13-33. Sjúkrahúsið á Húsavik s.f. Hjólbarðasólun, hjólbarðasala og öll hjólbarða-þjónusta HEITSÓLUN Mjög gott verð F.ÍRum fyrirli/tfýandi fleslar stærðir hjólbaróa. sólafta og nýja Tðknm illir veDjulegtr starðlr bjðlbarðs Ul sðlunsr DmfelfruD — JsfniaKlssUIDng Fljót og góð þjónusta Opið alla daga PÓSTSENDUM UM LAND ALLT VINNU STOfAN Hf Skiphott 35 105 REYKJAVtK slmi 31055 am m mn mt m i fyrstu blokkinni á Raufarhöfn veröa 11 Ibúöir, 8 leigulbúöir og 3 ibúöir til útrýmingar heilsuspiliandi húsnæöis. Timamyndir B.H. Af vatnsveitu og vegamálum á Raufarhöfn: Mikill kraftur í vegagerð á Sléttu og yfir Hálsa AM- /,Hér kom upp salt- mengun snemma í vor í þrem af þeim fjórum bor- holum# sem Raufar- hafnarbúar hafa tekið neysluvatn sitt úr, og því hef ur verið unnið að þvi að undanförnu að koma þess- um máium í lag," sagði Sveinn Eiðsson, sveitar- stjóri á Raufarhöfn í við- tali við Tímann um daginn. Sveinn sagði að sem betur færi, heföi Orkustofnun hins vegar verið búin að gera rannsóknir vegna vatnsveitumála á Raufar- höfn sl. haust og fundið ágæta uppsprettu 7 km innan við þorpið. Hefði þvi verið hægt að ganga beint i aö koma henni i gagniö nú I sumar, þegar þessi vandkvæði komu upp. Hafði stofnunin þá ný- lokið við skýrslu um athúganir sinar og stóð til að verkið yrði unniö 1981. Hafði verkfræðistofa Stefáns Ólafssonar umsjón með hönnun og næg fyrirgreiösla fékkst. Er gert ráö fyrir að vatns- veitulögninni verði lokiö aö mán- uði liðnum. Búið er að grafa leiösluna niður og aöeins eftir að moka yfir hana og tengja. Verður vatnsmagniö 40-50 litrar á sek. en þörfin er um 17 lftrar á sek. Þá sagði Sveinn að veriö væri að undirbúa lagningu slitlags á um kflómetra löngum kafla I þorpinu og yrði slitlagiö lagt út 12. eða 13. september. Verið er nú að vinna að vega- bótum á Sléttu frá Siguröarstöð- um og inn á Raufarhöfn og enn á veginum austur af, yfir Hálsa, og Nýja slitlagiö verður lagt út 12. eöa 13. september. Vatnslögnin nýja hefur nú verið grafin niður og aðeins eftir að moka yfir hana og tengja. hefur verkið gengið meö mikilli prýöi og múgur manns unniö að vegbótunum, sem eins og kunn- ugt er var samþykkt að ráðast i að tillögum Hafisnefndar, eftir beiska reynslu af takmörkunum vegakerfisins á þessum slóðum i vor. Bar Sveinn lof á dugnaö vegagerðarmannanna. Iþróttahús er nú i byggingu á Raufarhöfn og sundlaug og miöar þvi verki vel. Þá er í smiðum 11 ibúða blokk, meö 8 leiguíbúöum og 3 ibúðum til útrýmingar heilsuspillandi húsnæði. Foss- brún frá Selfossi annast smiði þessara mannvirkja. Ibúum á Raufarhöfn fjölgar jafnt og þétt á milli ára, enda at- vinna meira en nóg og er eink- um skortur á iönlæröum mönn- um, ekki slst vélsmiðum. Getur Raufarhafnarhreppur boðið vél- smiöum sem koma vildu norður hina bestu aðstöðu fyrir stofnun fyrirtækis. Ný togveiðisvæði opnuð við Vestfirði A þessu korti má sjá nýju togveiftisvæðin, en þau fyrstu voru opnuð I. september. Á s.l. vori voru á Alþingi sam- þykkt lög um breytingu á lögum nr. 81 31. mai 1976, um veiöar i fiskveiöilandhelgi tslands. I breytingu þessarl felst, að bátum undir 20 metrum er nú heimilt að stunda veiöar með botnvörpu úti fyrir Vestfjörðum á eftirgreindum timabilum og svæðum: 1. A timabilinu frá 1. septem- ber til 30. nóvember á svæöi utan linu, sem dregin er 4 mflur utan við viðmiöunarllnu, og markast svæöiö af linum, sem dregnar eru réttvlsandi 315gr. frá 66gr. 23min. 6sek. N og 23gr. 24min. 5sek. V og réttvisandi 360gr. frá 66gr. 31. min. 7sek. N og 23gr. 01 mfn. 0 sek. V. 2. A timabilinu frá 1. október til 30. nóvember á svæði utan linu, sem dregin er 4 milur utan við- miðunarlinu, og markast svæðiö af linum, sem dregnar eru rétt- visandi 300gr. frá punkti 65gr. Framhald á bls 19

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.