Tíminn - 14.09.1979, Blaðsíða 6

Tíminn - 14.09.1979, Blaðsíða 6
6 Föstudagur 14. september 1979 Erlent yfirlit tJtgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Ritstjórar: Þór- 'arinn Þórarinsson og Jón Sigurösson. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur ólafsson. Fréttastjóri: Kjartan Jónasson. Auglýs- ingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og auglýsingar Siöumúla 15 simi 86300. — Kvöldsimar blaöamanna: 86563, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verð I lausasölu kr. 180.00. Askriftargjald kr. 3.500 á mánuöi. Blaðaprent. Ársafmæli stjórnarandstöðu Morgunblaðið helgaði eins árs afmæli rikis- stjórnarinnar bæði forustugrein og Reykjavikur- bréf. Þar var stjórninni talið allt til foráttu. í út- varpsviðtali lét formaður Sjálfstæðisflokksins um- mælt á þá leið, að hann gæti ekki sagt neitt gott um rikisstjórnina. f þessum ummælum Mbl. og Geirs Hallgrims- sonar felst slikt ofstæki, að þau missa alveg marks. Það er rétt, að rikisstjórnin hefúr á vissum sviðum ekki náð þeim árangri, sem hún stefndi að i upphafi. Þannig hefur henni ekki tekizt að draga úr verðbólgunni. En hvaða rikisstjóm hefur tekizt það á þessu umrædda ári? Verðbólga hefur nær hvarvetna aukizt á þessum tima og valda þvi hinar miklu verðhækkanir á oliunni. Séu oliuverðhækk- animar teknar út úr dæminu, myndi heldur hafa dregið úr verðbólgunni hérlendis á umræddu ári vegna aðgerða rikisstjórnarinnar. Þetta breytir hins vegar ekki þvi, að nýtt átak verður að gera til að draga úr verðbólgunni. Þetta breytir ekki heldur þvi, að margt hefur snúizt á betri veg á umræddu ári. Viðskiptahallinn við út- löndhefur minnkað verulega. Sparifjársöfnun hef- ur heldur aukizt. Atvinna hefur verið næg, öfugt við það, að atvinnuleysi hefur aukizt i mörgum löndum á sama tima. Þannig mætti telja áfram. En fyrst Mbl. og Geir Hallgrimsson ræða svona mikið um rikisstjórnina i tilefni af ársafmæli hennar, hvers vegna sleppa þessir aðilar að ræða jafnframt um ársafmæli stjórnarandstöðunnar? Þar ætti að blasa við eitthvað önnur og glæsilegri mynd, ef stjórnarandstaðan hefði haldið betur á málum en rikisstjórnin. Hvers vegna er þetta ekki gert? Svarið er ákaflega augljóst. Frammistaða stjórnarandstöðunnar hefur verið með slikum en- demum, að þögnin hentar henni bezt. Stjórnarandstaðan hefur verið eins stefnulaus og ábyrgðarlaus og framast hefur verið mögulegt. Hún hefur lofað skattalækkunum, en ekki bent á hvernig hægt væri að framkvæma þær, án tekju- halla hjá rikissjóði eða stórfellds samdráttar. Jafnframt þessu hefur hún svo krafizt mikilla út- gjaldahækkana á mörgum sviðum. Hún hefur stutt flestar kaupkröfur, sem fram hafa verið bornar, og gagnrýnt harðlega allar lagfæringar á visitöl- unni, sem stefnt hafa að þvi að draga úr verðbólg- unni. ósamræmið i tillöguflutningi hennar hefur borið þess augljós merki, að hana skortir bæði stefnu og ábyrgðartilfinningu. Vafalaust stafa þessi vinnubrögð af ýmsum ástæðum. Ein mikilvægasta ástæðan er sú, að Sjálfstæðisflokkurinn hefur raunverulega enga verkstjórn. Formaður flokksins hefur ekki slik tök á flokknum og fyrri foringjar hans. Alls konar óróaöfl vaða uppi og valda glundroða i stað stefnu- mótunar. Glöggt dæmi um þetta eru tillögur Matthiasar Bjarnasonar i Jan Mayenmálinu, sem voru fluttar án samráðs við þingflokkinn, og tveir færustu þjóðréttarfræðingar flokksins, Gunnar Thoroddsen og Gunnar Schram, munu telja veru- lega gallaðar. Slik stjórnarandstaða getur ekki aflað sér trausts. Það er von, að Mbl. þegi um ársafmæli hennar. Meðan Sjálfstæðisflokkurinn er jafn stefnulaus og stjórnlaus, hentar bæði honum og þjóðinni bezt, að hann verði áfram i stjómarandstöðu. Þ.Þ. Ógerlegt að spá um úrslitin í Sviþjóð Lokakeppnin milli sósíaldemókrata og miðflokkanna Rétt fyrir siöustu mánaöamöt birtistiDagens Nyheter i Stokk- hólmi grein eftir pólitiskan fréttaskýranda þess, Sven Svenson, þar sem hann komst aö þeirri niöurstööu, aö sósial- demókratar væru á góöum vegi meö aö vinna þingkosningarn- ar, sem fara fram i Sviþjóö 16. þ.m. Sven Svenson taldi þaö helztu skýringuna á þessu, aö miö- flokkarnir tveir, Miöflokkurinn ogFrjálslyndi ftokkurinn, heföu ekki staöiö nógu vel saman og ekki gefiö nægilega glöggt til kynna, aö valiö væri fyrst og fremst á milli þeirra og sósial- demókrata. Þetta heföu bæöi flokkur sóslaldemókrata og í- haldsflokkurinnnotaö sér. Þeim heföi tekizt aö styrkja þaö álit, aöraunverulega væri valiö milli stefnu sósialdemókrata og stefnu ihaldsmanna. Flest benti þvi til þess, aö þessir flokkar væru aö vinna á á kostnaö miö- flokkanna, og aö Ihaldsflokkur- inn yröi stærsti borgaralegi flokkurinn eftir kosningarnar, en Miöflokkurinn hefur skipaö þaö sæti um skeiö. Fram aö þessu höföu spár heldur hnigiö I þá átt, aö borg- aralegu flokkarnir myndu halda velli og sósialdemókratar myndu þvi ekki ná þvl marki aö komast til valda á ný. Sven Svensson áleit, aö þetta væri aö breytast, þegar aöeins rúmar tvær vikur voru eftir til kosning- anna. Sunnudaginn 2. þ.m. var svo birt skoöanakönnun Sifostofn- unarinnar og hún virtist leiöa i ljós, að SvenSvensson hefði haft rétt fyrir sér. Könnun þessi fór fram i ágúst. Samkvæmt henni myndi^ sósialdemókratar og kommunistar fá meirihluta á þingi og Olof Palme mynda stjórn með hlutleysi komm- únista. Skoðanakönnun Sifo, sem fór fram i júnímánuöi, haföi bent til þess, aö borgaralegu flokkarnir mypdu halda velli. Niöurstaöa hennar var á þá leið, aö borgaralegu flokkarnir myndu fá 49,5% greiddra atkvæöa samanlagt, en póslaldemó- kratar og kommunistar 48%. Ýmsir smáflokkar fengu 2,5% samanlagt. Þetta haföi nii snúizt viö. Borgaralegu flokkarnir voru komnir niöur i 47% en sósialdemókratar upp í 48,5%. 1 raun höföu þeir aöeins bætt viö sig 0,5%. Aöalbreytingin var fólgin I þvi, aö smáflokkarnir, sem engan þingmann munu fá kjörinn, fengu 4,5% I ágúst I staö 2,5% i júni. Þetta nægöi til aö tryggja sósialdemókrötum og kommunistum meirihluta sam- kvæmt skoöanakönnuninni. Hjá einstökum flokkum haföi Palme fagnaöi niöurstööum Sifo breytingin oröið mest hjá Frjálslynda flokknum. Fylgi hans haföi minnkaö úr 15,5% i júni i 12% I ágúst. Þetta tap hans virtist skiptast þannig, aö íhaldsflokkurinn haföi bætt viö sig 1%, sósialdemókratar 0,5% og smáflokkarnir 2%. Miöflokk- urinn haföi staðiö i staö meö 16% og kommúnistar meö 5%. Samkvæmt þessum niðurstöö- um fengu sóslaldemókratar 43,5% og Ihaldsflokkurinn 19%. Hann var þannig oröinn stærst- ur borgaralegu fbkkanna. Talið er, aö hann megi þakka þaö skeleggum málflutningi for- ingja sins, Gösta Bohmans. Aðeins þessir fimm flokkar eru liklegir til aö vinna þing- sæti. En auk þeirra bjóöa fram 15 flokkar aörir . Flestir þeirra fá sáralitiö fylgi eöa ekkert. Mest fylgi viröist flokkur náttúruverndarmanna eiga (1,5%), en fiokkur kristilegra (1,2%) og nýi flokkurinn (0,8%). Sósialdemókratar fylgdu niöurstööum þessarar skoöana- könnunar éftir, meö þvl aö birta ásunnudaginn (2. sept.) áætlun um það, sem þeir myndu gera fyrstu 100 dagana, ef stjórnar- forystan félli þeim I skaut. I raun var þar þó ekki um neitt nýtt aö ræöa, heldur dregnar saman i heild þær tillögur, sem þeir höföu flutt á siöasta þingi. Aöalkjarni þessarar 100 daga á- ætlunar þeirra var aö bæta hlut barna og unglinga. Þá lofuöu þeir nokkurri tekjuskattslækk- un. 1 staðinn átti aö hækka ýmsa skatta, m.a. á fyrirtækjum. Miöflokkarnir geröu sér ljóst, aö viösvo búiömáttiekki lengur standa. Þriðjudaginn næsta (4. sept.) birtu formaöur 'Miö- flokksins, ThorbjörnFalldin, og formaöurFrjálslynda flokksins, Ole Ullsten, sameiginlega á- ætlun um aögeröir, sem þeir myndu beita sér fyrir, ef stjórnarforystan félli þeim I skaut. Samkvæmt þessari á- ætlun myndu þeir lækka tekju- skattinn, hækka barnastyrki og lengja fæðingarorlof eða fæöingartryggingu foreldra úr 9 mánuðum i 12 mánuöi. Fjár til þessara aögeröa - skyldi aflaö meö verðhækkun á áfengi ogtó- baki, benzi'ni, oliu og rafmagni. Hækkun orkuverösins átti m.a. aö hafa þann tilgang aö stuöla aö betri orkunýtingu. Formaður íhaldsflokksins lýsti siöar stuðningi sinum viö tillögur miöflokkanna. 1 yfirlitsgrein, sem Sven Svenssonbirti i Dagens Nyheter rétt á eftir (5. sept.), komst hann aö þeirri niöurstööu, aö staöan væri oröin svo óviss, aö útilokaö væriaö spá um úrslitin. Skoöanakönnun, sem var birt i Stokkhólmi i fyrradag (12. sept.), viröist staöfesta þetta. Samkvæmt henni höfðu borgaralegu flokkarnir bætt stöðu sina, en aöeins munaöi 0,3% á fylgiþeirra annars vegar og sósialdemókrata og kommúnista hins vegar. Þ.Þ. Faildin og Ullsten áhyggjufullir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.