Tíminn - 15.09.1979, Blaðsíða 3

Tíminn - 15.09.1979, Blaðsíða 3
Laugardagur 15. september 1979 3 ÓHUGNAÐUR ÚR DJÚPINU • Drauganetin halda aflahlut sfnum Margir sjómenn og aörir er á- huga hafa á sjávarafla hugleiöa þann möguleika, aö svokölluö „drauganet” hiröi árlega um- talsverðan „afla”, en drauganet eru net og netatrossur er neta- bátar missa i sjóinn af einhverj- um ástæöum. Þorskanet tapast i hafiö á hverri vertiö og valda þvi óveður, sterkir straumar og margt annað. Sönnun fyrir veiði i //drauganet" Þeir sem bjartsýnastir eru, halda þvi fram, að ekki stafi veruleg hætta af drauganetum. Mjög fljótt safnist i þau botn- gróður og lifræn efni, sem eyði þeim og geri þau hættulaus nytjafiskum okkar, aðrir telja að draugenetin taki til sin mik- inn afla, þvi fyrir kemur að tog- arar fá netjadræsur með úldn- um fiski i vörpurnar. Skipverjar á skuttogaranum BESSA 1S 410 uröu fyrir merki- legri reynslu, er skipið var að veiðum i sumar. Þá kom i vörp- una þorskur, sem haföi um sig netadræsu, en I netadræsunni, sem fiskurinn synti meö, voru auk þess fastar tvær grálúður. Grálúðurnar toguðu þorskinn á milli sin og var netið búiö að sargast inn i fiskinn og á lit- myndum, sem blaöið hefur und- ir höndum (og hér birtast i svart hvitu) sést blóði drifið sárið, þvi grálúðurnar tvær eru um þaö bil að sarga þorskinn i sundur á milli sin. Yfirleitt er ekki rætt um fiska frá dýraverndunarsjónarmiði og engin löggjöf er um meðferö á fiski frá þessu sjónarmiði, en slikur óhugnaður hlýtur að minnsta kosti leiða hugann að þvi, hvort ekki sé unnt með ein- hverju móti að fækka drauga- netum og setja strangar reglur um frágang þorskanetja, þann- ig að þau haldi ekki áfram aö „veiöa” árum saman eftir að þau tapast. Þetta er unnt að gera með þvi t.d. að ganga frá netunum með teinum og öðru, sem rotnar á ákveðnum tima, þvi netin sjálf eru úr sterkum gerviefnum, sem geta enst mjög lengi. JG Okkur er Ijóst. aó þar sem mynd þessi er ekki prentuð i lit, þá sjást hin hroöalegu mein á þorskinum illa, er hann hefur hlotiö meö þvi að dröslast um djúpiö meö netadræsu og tvær lifandi grálúöur sér viðhlið. En ógnvekjandi er til þess aö vita, aö „drauganetin” eru aö veiðum árum —ef ekki áratugum —saman á fiskimiöum okkar. „Stereó” út- varpið færist sjálfkrafa nær • Línuleiga til Landsímans yrði mesti kostnaðarliðurinn, segir Hörður Vil- hjálmsson, fjármálastjóri útvarpsins AM - „Þótt tvirása eða ööru nafni "stereó” útsending, sé það áhugamál útvarpsráðs, sem einna auðveldast er aö fá fram- gengt, þá er þetta viökvæmt mál vegna landsbyggöarinnar,” sagöi Höröur Vilhjálmsson, fjármála- stjóri Rikisútvarps, i viötali við Tiinann i gær þegar viö spuröum um livaö þessu máli liöi. Höröur sagöi, að sá tækjabún- aður sem til þyrfti væri ekki stór- kostlegur og þar sem nú færi smátt og smátt fram endurnýjun á búnaði útvarpsins, svo sem hljómborði og útsendingarboröi og öðru, þá væri ekki um annað að ræða en nýju tækin yrðu ætluð fyrir ”stereó” sendingar. Viðbót- arútbúnaður, sem tengja þarf við FM sendana vegna þessa.er auð uppsettur og raunar þegar fvrir hendi á Vaðlaheiðarsendinum og kemur brátt á fleiri. Stúdió útvarpsins eru hins veg- ar of þröng og þyrfti að bæta þar um, til þess að full hljómgæði fá- ist f slikri útsendingu, en annar helsti kostnaðarliður yröi linu- leiga til Landsimans, sem mundi tvöfaldast, þvi helmingi fleiri lin- ur þarf til þess að koma slikri Hörftur Vilhjálmsson sendingu áfram. Mundi sá kostn- aður verða tilfinnanlegastur. Engar endanlegar ákvaröanir hafa verið teknar enn, en svo sem af oröum Harðar má sjá, virðist ekki fjarri lagi aö ætla að aðstaða til þess að hefja tvirása útsend- ingar sé að skapast af sjálfu sér, og kann þvi að vera skemmra i þessar endurbætur en menn kynnu að ætla, þótt þær komi ekki öllum að jafn miklum notum til að byrja með. Grænfriðungar hyggja á málaferli • Landhelglsgæslan aíhendir bátana í lok hvalveiðivertíðar AM — Erlendar frétta- stofur skýra frá þvi að Greenpeace-samtökin hafi i hyggju að fara í mál við Landhelgisgæsl- una innan tiðar vegna þeirrar meðferðar sem áhöfn Rainbow Warrior hefur sætt i siðasta leiðangri sinum á islensk hvalveiðimið. Ekki er kunnugt um hvaða dómstóla samtök- in ætla að leita til. Pétur Sigurðsson, forstjóri Landhelgisgæslunnar sagði Timanum i gær, að bátarnir sem gæslan lagöi hald á, væru enn vel geymdir i vörslu hennar og mundu eigendur þeirra fá þá i hendur að nýju i lok hvalveiði- vertiðar. „Ætli einhver að berja fólk með priki halda menn auð- vitað fýrir honum prikinu, þar til hann áttar sig”, sagði Pétur. Varðskip aðstoðar belgískan togara nesi. Hafði togvinda AM— Kl. 21 i fyrrakvöld hans bilað. bað belgiski togarinn Belgian Lady um aðstoð til þess að ná inn vörp- unni, þar sem hann var að veiðum i hólfi 30 mfl- ur vestur af Snæfells- Þröstur Sigtryggsson skipherr sagði blaðinu að varöskipið hefl komið á vettvang um miðnætti og hefði gangið vel að koma vii unum um borð i varðskipið, ser siðan dró vörpuna inn fyri belgiska skipið. Litil veiði mu hafa verið á þessu svæði. Fimm hafa þegar sótt um sýslumannsembættið í Mýra-og Borgarfjarðarsýslu AM — í lok næstu viku rennur út mnsóknar- frestur um borgar- fógeta- og borgar- dómaraembætti i Reykjavik, en auk þess umsóknarfrestur um stöðu sýslumanns i Mýra- og Borgar- fjaiðarsýslu. Sýslumannsembættið i Mýra- og Borgarfjaröarsýslum hefur verið laust til umsóknar frá þvi er fyrrverandi sýslumanni, Asgeiri Péturssyni, var veitt bæjarfógetaembættið i Kópa- vogi. Hann hafði gegnt sýslu- mannsembættinu i 18 ár. Aö sögn Baldurs Möller ráðu- neytisstjóra i dómsmálaráðu- neyti, hafa þegar borist fimm umsóknirum embættið, en hann taldi vafalaust að fleiri umsókn- ir mundu berast áður en fresturinn rennur út hinn 21. september n.k.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.