Tíminn - 27.11.1979, Síða 8

Tíminn - 27.11.1979, Síða 8
8 Þriöjudagur 27. nóvember 1979 BOKAFREGNIR: Steingrímssaga Steinþórssonar tlt er komin islensk stórsaga, sjálfsævisaga Steingrims Stein- þórssonar, forsætisráöherra, og nefna Utgefendur bókarinnar, Bókaútgáfan örn og örlygur, bókina STEINGRIMS SOGÚ. Steingrimur Steinþórsson var einn af oddvitum og skörungum islenskra stjórnmála um miöbik þessarar aldar, og iót þar aö sér kveöa i fulla þrjá áratugi frá 1930 til 1960. Hann var bóndasonur af kjarnaættum Ur Mývatnssveit, ólst þar upp á kotbýli og ætlaöi aö veröa þar bóndi sjálfur eftir búnaöarnám á Hvanneyri. En ráörikatvik breyttu þviogbeindu för hans á Landbúnaöarháskól- ann i Kaupmannahöfn. Eftir heimkomuna geröist hann fyrst kennari á Hvanneyri, en siðan bdndi og skólastjóri á Hólum i Hjaltadal, forystumaður i félags- málum héraösins, alþingismaöur Skagfiröinga i 26 ár, búnaöar- málastjóri og loks forsætisráð- herra og landbúnaðarráðherra. Hann lést 14. nóvember 1966. Steingrimur skráöi lengst af vandaöar dagbækur, og hóf aö rita sjálfsævisögu sina eftir dag- bókunum og traustu minni þegar á miöjum aldri og hélt þvi áfram meö hléum fram aö sjötugu. Þá hafði hann aö fullu ritaö rúmlega helming sögunnar, og einnig drög og tekiö saman mikiö safn heimilda aö siöari hlutanum, en honum entist ekki heilsa til aö ganga frá handriti að siöustu þáttunum. Steingrims saga er mjög sér- stæö fyrir margra hluta sakir. Nefna má aö meginkaflarnir voru ritaöar skömmu eftir timabil sin, og eru þvi mjög ferskir og ná- tengdir vettvangi, mönnum og málefnum. Ritun fyrta þriðjungs þessa fyrra bindis lauk höfundur 1943, annars hluta 1944 og hins þriöja 1953. Annaö sérkenni sögunnar er óvenjulega nærfærnar, opinskáar og tæpitungulausar mannlýs- ingar á miklum fjölda samferöa- fólks, jafnt Ur hópi alþýöu sem fyrirmanna. Enginn islensk ævi- saga kemst til jafns viö Stein- grims sögu aö þessu leyti. Þriðja einkenniö er hispurs- leysi og óhlifni höfundar viö sjálfan sig, og opinská hreinskilni um lif sitt og störf. Ymsum kann aö viröast, aö hann sé helsti dóm- skár i mannlýsingum og oröskár i frásögn af mönnum og mál- efnum, en þar er ekki farið i manngreinarálit, og sjálfum sér hlffir hann ekki. Steingrims saga er i 19 megin- köflum sem aftur skiptast i 384 undirkafla. Þá erog formáli sem Andrés Kristjánsson og Orlygur Hálfdánarson rita, en þeir bjuggu bókina til prentunar. Lesmáls- siöur Steingrims sögu eru 280 og myndasiður 48 og geyma 182 myndir, flestar af samtiðar- mönnum Steingrims AIls er þvi bókin 328 blaðsiður. Steingrims saga er filmusett, umbrotin og prentuö I prentstofu G. Benediktssonar og bundin i Arnarfelli hf. Kápugerö annaöist Sigurþór Jakobsson. STONGRLMS SAGA Sföustu 26 bindin I höndum Arna Bjarnarsonar. Mynd Róbert. FRl — Síöustu 26 bindin af Almanaki Ólafs S. Thorgeirs- sonar hafa nú veriö endurprent- uö hjá Bókaversluninni Eddu á Akureyri og sá Árni Bjarnarson um útgáfuna. Arni hóf verkiö fyrir tæplega 2 árum, en alls eru þetta 60 bindi og ná yfir árin 1895 til 1954. Margvislegur fróðleikur er i Almanakinu um lif og störf þeirra íslendinga sem námu land vestanhafs, i Kanada og Bandarikjunum. Má i þvi sam- bandi nefna stóran hluta úr landnámssögu þeirra mörg þús- und tslendinga sem fluttu vest- ur. Nemur sá þáttur um 2336 bls. en bindin i heild eru um 9000 bls. Auk þess birtir Almanakið dánarskrá vesturfara á hverju ári og er nokkuö sagt frá upp- runa fólksins, nánustu ætt- mönnum, hvenær og hvaðan þaö flutti af islandi o.s.frv. Einnig má nefna, aö i Almanakinu eru um 500 mynd- ir. Nýir kaupendur Almanaksins fá aö greiöa þaö meö mánaöarlegum afborgun- Síðustu 26. bindin af Almauaki Olafs S. Thor- geirssonar komin út Aðalkosni ngaskrif stofa Framsóknarflokksins í Rejkjavík Ranðarárstíg 18, sími 21480 Allar almennar upplýsingar eru veittar f sima 24480. Stuðningsmenn látið skrá ykkur til sjálfboðastarfa. — Framlög i kosninga- sjóðinn eru þegin með þökkum, skrifstofan er opin frá 8 til 22. SIMAR EFTIRTALINNA KJORSVÆÐA ERU: Alftamýrarskbli 18379 Arbæjarskóli 18679 Austurbæjarskóli 19197 Breiðagerðisskóli 18410 Breiðholtsskóli 19168 Fellaskóli 19425 Langholtsskóli 19053 Laugarnesskóli 18675 Melaskóli 18912 Mióbæjarskóli 19583 Sjómannaskóli 19092 olduselsskóli 19356 B-LISTl.W í ItEVKJUÍk Óskilahross í Gaul- verjabæjarhreppi 1. Veturgömul hryssa. Moldótt, ómörkuð. Rák og stjarna á nefi. 2. Brúnstjörnóttur hestur, 3-4 vetra, marklaus. 3. Móbrún hryssa, sokkótt, l-2ja vetra, ómörkuð. Hreppstjórinn. um ef þeir óska eftir. Allir 60 ár- gangarnir kosta aðeins 95.000 kr. og gildir verö og tilboö til 31. des. nk. Richard Perkins: Flóainanna saga, Gaulverjabær and Haukur Erlendsson Þetta er 36. ritiö i bókaflokknum Studia Islandica og höfundur Richard Perkins háskólakenn- ari I Lundúnum sem fjallar um tilurð Flóamanna sögu Eru skýringartilgátur höfundar i þvi sambandi tvær. Hin fyrri er sú, að frumrit sögunnar hafi verið skrifað fyrir Hauk Erlendsson lögmann i' Gaulverjabæ (d. 1334), en textagerð hennar sem staðiö hafi fremst i Vatnshorns- bdk (Vatnshyrnu) fýrir Jón Hákonarson bónda i Viöidals- tungu (f. 1350). Hin siöari er hins vegar að Jón Halldórsson biskup i Skálholti (d. 1339) hafi haft hönd i bagga viö ritun sög- unnar, en hún þarfekki endilega að koma i' veg fyrir þá skýring- artilgátu aö sagan hafi verið rit- uð fyrir Jón Erlendsson i Gaul- verjabæ. Rit þetta er á ensku, 97 blað- siöur að stærð, prentaö i Leiftri. Efniságrip fylgir á islensku, þýtt af Sverri Tómassyni. Ritstjóri Studia Islandica er Sveinn Skorri Höskuldsson prófessor. Bókaútgáfa Menningarsjóös srtou r RfflfAHO PLIiKINS FI.O\MA.VNA SAGA. GVLLVERJABF.lt AND IIAUKR ERLENDSSOA Bjarni Guönason: Fyrsta sagan Þetta er 37. ritið i bókaflokknum Studia Islandica. Fjallar höf- undur, Bjarni ' Guönason prófessor, um Hryggjarstykki, bókfrá 12. öld sem samin var af Eiriki nokkrum Oddssyni. Margt er á huldu um þessa bók sem hefur varðveist i safnritum norskra konungasagna, m.a. Heimskringlu. Söguhetjan er Sigurðurslembir sem barðist til rikis i Noregi og var af lifi tek- inn 1139 á hroðalegán hátt. Höfundur telur Hryggjar- stykki vera fyrstu frumsömdu söguna á islenska tungu, og leit- ast hann við að sýna fram á að fyrsta sagan sé samin um miðja 12. öldog söguritun hafi þvi haf- ist tveimur áratugum fyrr en álitið hefur verið. Jafnframt telur höfundur aö fyrsta sagan sé mikilvægur tengiliöur milli erlendrar og innlendrar menn- ingar þar sem fyrirmynd sög- unnar hafi öörum þræöi verið erlendar pislarsögur. Þannig fær upphaf islenskrar sögurit- unar eðlilega skýringu. Fyrsta sagan skiptist i þrjá meginkafla sem bera fyrirsagn- irnar Viöfangsefnið, Hryggjar- stykki og Afangar i bókmennta- sögu 12.aldar. Aftaster útdrátt- ur bókarinnar á ensku. Fvrsta saganer 175 blaðsiður að stærö, prentuð i Leiftri. Rit- stjóri Studia Islandicaer Sveinn Skorri Höskuldsson prófessor. Bókaútgáfa Menningarsjóös B-listann vantar ýmsar gerðir bifreiða á kjördag 2. og 3. desember. Vinsamlegast látið skrá ykkur í síma 24480 (Rauðarárstíg 18).

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.