Ísafold - 17.03.1876, Blaðsíða 1

Ísafold - 17.03.1876, Blaðsíða 1
3 é « f o I fc. III 5» Föstud/iffinn 11. marzmánaðar. ísra. Eptirmæli ársins 1875. ih. Af landsstjórn er fált til frásagnar árið sem leið. Ilið nýja löggjafarþing reið í garð, að vísu í ótrauðum og fjör- miklutn atorkuhug, en engin slórvirki liggja eptir það þennan fvrsta fund, sem ekki er heldur von, þar sem það átti svo víða óruddar merkur yfir að sækja, en samvinnu þsss markaður mjög -stultur tími. Af þessum örstutta tíma eyddist líka helzt lil mikið í hið ólán- lega kláðamál; sá tími varð hjer um bil ávaxtarlaus, eptir því sem áður er á vikið. Að vöxtunum til fjekk þingið þó furðumiklu aflokið ; það lagði mjög kapp á að gefa sem flestum tillögum og ósk- um þjóðarinnar einhvern gaum; en þær voru margar, því lengi hafði slikt ver- ið látið safnazt fyrir, eins og kunnugt er. Nú þólt slik mikilvirkni sje siður en eigi lastandi, er þó einsætt, að meir ber að lita á hitt, hvsrt svo atorkusam- lega hafi verið snúizt við þeim málun- um, sem framfarir lands og lýðs eru mest undir komnar, að vel megi við una. Um það munu dómar manna eigi á einn veg, og sumir næsta óbilgjarn- ir. Engum getur þó dulizt, að þetta þing kom þó af stað þeim málnm, er vjer teljum framfarir vorar einkan- lega bundnar við, en sem áður liafði varla verið lofað að bæra á sjer; þaö eru menntunar- eða skólamál vor, og samgöngumálið. það veitti fje til að koma á stofn hinum fyrsta gagnfræðis- skóla hjer á landi (á Möðruvöllum I Uörgárdal) og kom því tii leiðar, að stjórnin skipaði nefnd til að íhuga skóla- mál vor yfir höfuð að lala og búa þau undir næsta þing. Með vegalögunum og ályktuninni til að koma á gufuskips- ferðum umhverfis landið má kalla við- unanlega byrjað á samgöngumálinu. Yegalögin leggja helztu fjallvegi lands- ins undir allsherjarstjórn þess, og mæla svo fyrir, aö kostnað til þeirra skuli greiða úr landssjóði. Með fjölgun lækna og yfirsetukvenna bætti þingið úr mikl- um skorti, sem lengi hafði verið kvart- að undan. Launalögin voru og þarf- leg að því leyti, sem engin regluleg lög voru áður til um laun embættismanna úr landssjóði, en misjafnlega hefur mælzt fyrir launabót þeirri handa hin- um æðri embættismönnum, sem ný- mælum þessum var látin verða samfara. Stjórnarbaráttan við Dani lá að miklu leyti niðri árið sem leið, og ljet þingið sjer nægja að balda í horfinu; til frekari aðgjörða var tíminn of stutt- ur, með því líka mörgum þótti sem málstað vorum mundi engu miður borg- ið, ef vjer Ijetum reynsluna styrkja hann: sýna, að vjer höfum gild rök við að styðjast, þar sem vjer leljum stjórnar- bót þá, er vjer höfum fengið, mjög svo ónóga oss. þingið minntist að eins ineð fám orðum á hin fornu skulda- skipti vor við Dani, og ítrekaði þá sjálf- sögðu kröfu frá vorri hálfu, að sett verði nefnd manna, jafnskipuð Dönum og fslendingum, til að rannsaka reikn- ingaviðskipti hinnar dönsku stjórnar við oss. Hið óheutuga fyrirkomulag á stöðu ráðgjafa vors var annað umtalsefni þingsins hjer að lúlandi, enda veilli þetta fyrsta þing eptir stjórnarbótina næga reynslu fyrir þvf, að það fyrir- komulag má eigi án vera bráðra bóta. Ilefði að líkindum mátt að miklu leyti komazt hjá hinu óþægilega og vafnings- sama kláðaþrasi á þinginu, efþarhefði verið til andsvara maður, sem gat talað afdráttarlaust í stjórnarinnar nafni, og með fullri ábyrgð fyrir þinginu. Jafnvel þótt íslandsráðgjafinn sje f einni og sömu persónu og einn af dönsku ráðgjöfunum, verður að geta þess hjer meðal fslenzkra frjetta árið sem leið, að nvr maður komst í þessa tign, um það leyti sem árið var hálfnað, í stað Kleins, stjórnarskrár-«föðurins». Hinn nýji ráðgjafi heitir Nellemann, pró- fessor f lögum við háskólann í Kanp- mannahöfn og landsþingismaður, að vfsu valinkunnur maður og einhverorð- lagðasti vísindamaður f sinni fræðigrein á Norðurlöndum, en fjarstæður hefir hann verið talinn flokki framfaramanna f Danmörku. Oss íslendingum er hann lítl reyndur enn, enda er líkara, að ráðgjafar vorir verði s^int.svo lang- gæðir í tigninni, ef þeir eiga að verða áfastir dönsku ráðgjöfunum, að tími verði til að reyna þá. — ( stjórnardeilu vorri við hina dönsku stjórn hafa danskir blaðamenn sumir lengi haft það lag, til að gjöra vorn málslað sem ískyggilegastan, að eigna þras þetta þjóðlegri óvild vorri við 17 bræður vora, hina dönsku þegna kon- ungs vors, er einslakir menn hafi kveykt og alið með vjelum og klækjum, og er eigi trútt um, að nokkrir vor á meðal hafi orðið til að ganga f lið með þeim, sjálfsagt óviljandi, með þvf að slengja saman stjórnmálaviðureigninni og við- skiptum beggja þjóöanna að öðru leyti. Af þeim toga er það spunnið, að koma konungs hingað i hitt eð fyrra átti að eyða allt f einu öllu stjórnmálaþrasinu, átti að mýkja svo skap vort og blíðka, að vjer gleymdum sökum vorum á hend- ur stjórninni f Danmörku. Á sama hátt litu þessir menn á þjóðhátíðargjöf Kaupmannahafnarbúa, likneski Thor- valdsens, sem var afhjúpað hjer i höf- uðstaðnum á afmælisdag hans 19. nóv. f. á., og sömuleiðis á samskotagjafir konungs vors og annara Dana, handa öskusveitafólkinu f Múlasýslum; gætandi eigi þess, að slík hjálpsemi við bág- stadda menn á ekkert skylt við stjórn- arviðskipti, enda láta bæði Danir og aðrir hana koma engu sfður niður á þjóðum, sem slanda þeim mjög fjarri, bæði að kyni og stjómtengdum. Sams- konar hjálpsemi og vinahót höfum vjer fslendingar og leitast við að sýna ein- mitt Dönum, eptir vorum veika mætti, þegar þeir hafa orðið fyrir einhverju óláni, og það þótt vjer ættum f megn- asta þjarki við þá, ut úr fornum og nýjum skuldaskiptum og stjórnarmálum vorum, og höfum hvorki búizt við nje ætlazttil, að slíkt hefði nein veruleg áhrif á þá viðureign/ Að ætlast til að vina- hótin eða bræðralagið komi fram f þvf, að sleppa rjetti sfnum og gjöra sig að undirlægju, nær engri átt; bræðralagið gelur því að eins orðið fullkomið, að því fylgi algjöriegt jafnrjetti. — Vjer megum eigi ljúka svo þess- um eptirmælum, að vjer látum þess ó- getið, að land vort átti árið sem leið að sjá á bak nokkrum meðal nafnkennd- ustu merkismanna vorra. |>að voru þeir Jón Guðmundsson, málaflutningsmaður Og ritstjóri þjóðólfs, Fjetur Havstein, amlmaður, og Jósef Shaptason hjeraðs- læknir. Máttu þeir allir heita mikil- menni, eptir þvf sem hjer er að skipta, en voru hnignir að aldri og fjöri,. er þeir fjellu frá. Jón Guðmundsson stóð lengst æfi sinnar sem hetja f brjósti fylkingar undir þjóðinerkjum vorum, og

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.