Ísafold - 19.12.1876, Blaðsíða 4
116
íZMsarí/mr-preslakall var augl.
5. þ. m., og Stóruvellir 4. (ekki 2.).
— Helðu rsgjaílr úrstyrktar-
sjóði Christians konnngs Níunda í minn-
ingu þjóðhátíðinnar hefir landsh. veitt 31.
ágúst þ. á.
Helga Magnússyni, sýslunefndarmanni
og óðalsbónda á Birtingaholti í Ár-
nessýslu, 160 kr. og
síra Jaltobi GuSmundssyni á Sauðafelli
í Dölum 160 kr.
Samkvæmt skýrslu hlutaðeigandi sýslu-
nefndar tók Helgi við ábýlisjörb sinni í
niöuniiðslu og órœkt, en hefir reist parstóran,-
skipuleganog velhúsaðan bœ, sljettað 10 dag-
sláttur í túninu og umgirt það allt með 740
faðma löngum garði, grcett útúr órœktarmóa
og umgirt yfir 2 dagsláttur, keypt til þessara
jarðabóta plóg og herfi og fleiri útlend jarð-
yrkjutól, aukið áburð að miklum mun, og
byrjaði á því fyrstur manna í sínu byggðar-
lagi; skorið fram 800 faðma af tvístungn-
um vatnsveitingaskurði á engjum sínum; haft
bezta fjenaðarhirðing í sínu byggðarlagi og
bœtt kynstofn fjárins; fjekk lofsorð á Kaup-
mannahafnarsýningunni 1872 fyrir vöruvönd-
uu. Hann byrjaði búskap sinn í Birtinga-
holti fyrir 25 árum af frernur litlum efnum,
en hefir grœðzt talsvert fje, og verið þó
mesti ómagamaður — átt 13 börn, komið 2
sonum sínum til skólamenntunar, og er ann-
ar þeirra orðinn prestur, og auk þess alið
upp 3 tökubörn meðgjafarlaust —. Auk
þess hefir hann verið mesti hvatamaður alls
konar framfara í búnaði, stofnað jarðabóta-
fjelög og stýrt þeim, gegnt ýmsum alþjóðleg-
nn störfum, o. s. frv.
Samkvæmt skýrslu hlutaðeigandi sýslu-
nefndar hefir siraJakob, sem erfátœkur fjöl-
Skyldumaður, gjört miklar ogjmjög vandaðar
húsa- og jarðaboetur á Sauðafelli þau tvö
ár, sem hann er búinn að vera þar. Hann
hefir reist þar fallega og trausta timbur-
kirkju, byggt prýðilega upp mikið af bœjar-
húsunum, sljettað 628 ferh. faðma í túninu
úr grýttum móum og götutroðningum, og
gjört steinlagt lokræsi undir, 50 faðma langt;
skorið fram vatnsveitingaskurði á túni og
engjum, gjört 50 faðma brú yfirfen og for-
arbleytu norðan að bœnum, trausta, og varan-
lega, og grafið lokræsimeð henniallri; fundið
nýtt mótak á jörðinni, o. s. frv. (Stjórnart.).
Hitt og þetta.
— Svo telst til, að á allri jörðunni sjeu
afgreiddar 5 miljónir sendibrjefa um vikuna
að jafnaði, eða 300,000 á klukkustundinni.
Pappírinn, sem fer í sendibrjef um árið, er
ætlað á að nemi 46 miljónum punda.
— Ung stúlkaí Neworleans (iAmeríku)
krafði 10000 dollara af manni einum í bæt-
ur fyrir það, að hann hefði heitið að eiga
hana, en svikizt um þegar til kom. Eptir
langt þref jafnaði einn málaflutningsmaður
sökina milli þeirra þannig, að stúlkan fjekk
í sárabœtur fjóra baðmullarsekki fulla og
nýja regnhlíf. En fyrir ómak sitt tók mála-
fiutningsmaðurinn alla baðmullarsekkina fjóra,
svo að stúlkan bar að eins regnhlífina, frá
borði.
Sheridan, dvaldi einhverju sinni um tírna
úti á landsbygðinni, hjá gamalli konu, sem
vildi tala við hann öllum stundum, en hon-
um leiddist þaðheldur. Einhvern dagbeiddi
hún hann að ganga með sjer í aldingarði
hennar; hann færðist undan og kvað veðrið
ekki gott. Litlu síðar mættí hún honum
einum á gangi í aldingarðinum. „Hvað er
nú, herra Sheridan“, mælti hún, „er veðrið
nú betra en áðan“? „Lítið eitt“, svaraði
hann, „þó að eins handa einum, en ekki
handa tveimur.
„Advertistar" nefnist trúarflokkur einn i
Massachusetts í Yesturheimi. þeir búast
við syndaflóði innan skamms, og hefir for-
maður flokksins stofnað hlutafjelag til að
koma upp örk, svo mikilli, að hún beri alla
þá fjelaga með búshlutum þeirra og gangandi
fje. Farið á að kosta 80 kr. á þiljum uppi,
en 200 kr. í fyrstu káetu; svo er og til tekið
farargjald fyrir hverja skepnu o. s. frv. Örk-
in er nú í smíðurn og langt komin.
— Gyðingurinn: „Segðu mjer, Móses litli,
hefurðu lesið söguna um hannJósef?“—„Já,
faðir minn“. — „Geturðu þá sagt mjer,
hvaða synd bræður hans drýgðu, er þeir
seldu hann“ — „Já, þeir tóku of lítið fyrir
hann“.
— Á sýningunni miklu í Philadelphíu í
sumar var vasaklútur, sem kostaði 3000 kr.
(þrjú þúsund króna).
— pjóðverjarnir Behm og Wagner, sem
munu vera mestir hagskýrslnamenn í heimi,
telja nú mannfólkið á jörðunni 1396,500,000.
þar af byggja Norðuráifu 303 miljónir, Aust-
urálfu 799 milj., Suðurálfu 206 milj.. Vest-
urheim 84milj., og Eyja-álfu hálffimmtamilj.
— Challenger, skip það hið mikla, er Bret-
ar gjörðu út fyrir nokkrum árum i heims-
könnunarferð, kom meðal annars við á Ný-
Guinea í Ástralíu og lagði þar inn í flóa
þann, er Humbertsflói er nefndur. þar hittu
skipverjar einhverja hina menntunarminnstu
menn, er sögur fara af. þeir þekktu eigi
járn, og gengu allsberir, jafnt karlar sem
konur. Óðara en skipið lagðist, flykktust
eyjarskeggjar utan að því á ótal bátum og
báðuskipstjórnai'mannleggja upp í ána, sem
re.nnur út í flóann. Hann lætur það eptir
fjTÍr þrábeiðni þeirra; en þegar gufuskrúfan
fór að snúast og eyjarskeggjar heyrðu buslið
í henni, urðu þeir dauðskelkaðir, lögðu á
flótta, lustu upp herópi og lögðu örvar á
streng.
— í New-York voru árið 1820 íbúar 100,000,
en 1875 1,018,000. Hefir íbúatalan tvöfaldazt
á 55 árum.
Auglýsingar.
í ísafold 111. 15. hefir Einar bóndi
Magnússon á Lambastöðum skrifað
greinarkorn, sem hann hefir sett á
auglýsingar stimpil, og þvkist hann
þar vera að auglýsa, að hann rouni
traða hross nágrannanna; en ef grein
hans er iesin í kjölinn, þá virðist hún
öllu fremur smiðuð til þess, að sýna
almenningi, hvílíkur forkur og fyrirtaks-
maður hann sje, um leiö og hann
reynir til að sverta mig dálítið i aug-
um almennings. Án þess að mjer nú
detti annað ( hug, en fyrirlíta gjör-
samlega ummæli hans um mig, finn
jeg mig þó sannleikarmm skyldtigann
um, að auglýsa almenningi, að öll um-
mæli hans um mig i nefndri grein
hans eru belber tilhæfulaus ósannindi;
svo einkar ósvífinn er þessi maður,
þótt ótrúlegt megi virðast, að hann
auglýsir tilhæfulaus ósannindi vísvit-
andi í opinberu blaði. þetta samsvar-
ar dngnaðarframkvæmdum hans öðrum
i fjelagslegu tilliti, t. a. m. hrossa-
tröðuninni, sem hann framkvæmdi
með mesta fylgi, og það svo, að þegar
áleið sumarið og dimma tók nótt, þá
tók hann, sjálfsagt í misgripum (! I),
mjólkurkýr frá mjer og nágrönnum
mínum, og læsti þær inni í hrossa-
tröð með griðungum. þá má ekki
heldur gleyma afreksverkinu því, að
hann ( haust er leið reif stein fyrir
stein niður hestarjett mína fyrir sunn-
an tún milt, þegar hann ætlaði að fara
að hlaða garðinn sinn hinn mikla, sem
herra Sveinn búfræðingur og fleiri
skynsamir menn álita hið mesta axar-
skapt. Allt þetta er hátt-talandi vottur
um dugnað og framtakssemi þessa
akjörna 3. i stjórnarnefnd fyrir Sand-
víkurhrepps-deild jarðabótafjelagsins í
Árnessýslu*, og þyki mjer það engin
furða, þólt þessi maður, sem heíir
svona mikið fyrir stafni, ekki hefði
tíma til að leggja til eitt handarvik (
engja-frumskurð þann, sem jeg að til-
vísun og með ráði herra Sveins bú-
fræðings byrjaði nú í haust. Hann
hefir þá hka máske um þær mundir
hait það í hjáverkum, að rita einhvern
lofgjörðarpistilinn um sjálfan sig; —
ekki mun at veita, — því varia mun
lofgjörð í þá stefnu koma annarsstað-
ar frá.
Kaldaðarnesi 13. október 1876.
Einar Ingimundsson.
Auteríka.
Ankor-línunnar atlantiska-
hafs_ guiuskipafjelag flytur Yeslurfara
frá íslandi yfir Skolland til allra hafna
í Ameriku; og á það fjelag, eins og
kunnugt er, hin beztu skip til fólks-
flutninga.
Fæði ókeypis á ferðinni yfir At-
lantshafið, svo og læknishjálp og
meðöl, ef þörf gjörist.
Ef nægilega margir vildu fara,
sendir fjelagið eitt af hinum miklu
skipum sinum hingað til lands, og flvt-
ur það þá beina leið hjeðan lil Ámeriku.
t’eir, sem ætla sjer að fara til
Vesturheims, ættu að hagnýta sjer
tilboð þessa fjelags.
Nánariupplýsingar og sannanir fást hjá
herra Egilsson ( Reykjavik.
Reykjavík, 2. desbr. 1876.
pr. Henderson Brothers.
W. P a y.
Jslenssk frímerki eru
keypt við háu verði af Fr. Berlhini (
Nr. 19 í Herluf-Troilesgade í Kaup-
mannahöfn
— Inn- og útborgun sparisjóðsins
verður fyrst um sinn á skrifstofu land-
fógetans á hverjum laugardegi, frá kl.
4—5 e. m.
ýSgf’ Kærsveitamenu geta vitjað ísafoldar
í Apótekinu.
— Hinn nafnfrægi enski mælskumaður
íssfuld keoiut ót 2 —3«ar á mánubi, 32 bl. | Ársverbib greibist í kaoptíb, eða þá hálft A sumarmálum, hálft á
um árit, Kostar 3 kr, árgaugnrinn (er-
laudis 4 kr.), stók nr. 20 a. Sólolaim: 7.
hvert expl.
haostlestum. Augiýsingar eru teknar í blatit fyrir 6 a. smáleturs-
línan eba jafnmikib rúm, en 7 a, meb venjulegu meginmálsletri. —
Skrifstofa ísafoldac et í Duktorshúsinu (í Blíbarhúsum).
iiitstjóri: Björn Jónsson, cand. phii.
Laudáprentsmibjan f Reykjavík,
Einar pórðarson.