Ísafold - 26.02.1877, Page 1
Ritstjóri:
Björn Jónsson, cand. phil.
Skrifstofa: f Doktors - húsi.
Prcntsmiðja: Einars pórð-
arsonar.
Isafo 1
Argangurinn, 32arkir, kost-
ar hjer á landi 3 kr., er
greiðist í kauptíð; erlendis
4 kr., stök blöð 15 aura
Sölulaun: 7. hvert expl.
Auglýsingar kosta 8 a. línan
með venjul. megimnálsletri.
IV 4*
Reylijavik, mánuduginn 26. febrúarmán.
Dálítil alhugasemd
um
s k a 11 a iii á 1 i ð-
Af dagblöðunum Norðlingi og ísafold
má sjá, að það er ekkert efamál, að
nefndin, sem sett var til að semja
frumvarp til nýrra skattalaga, hafi með-
al annars lagt það til, að álnar-virði á
landsvísu leggist sem skattur á hvert
fas.teignar- og lausafjárhundrað í land-
inu. Um þessa tillögu nefndarinnar vil
eg gefa nokkrar bendingar:
1. Fasteignarhundruðin er ein hin
ójafnasta undirstaða fyrir skatta-
álögu, sem hugsast getu, og þessi und-
irstaða verður aldrei jöfnuð til hlítar,
hvað mörg jarðamöt sem kunna að
yerða gjörð; því valda vanþekking, ó-
líkar skoðanir, sprottnar af ýmsum á-
stæðum, öfl náttúrunnar, aðgjörðir
mannanna m. fl. Á þessa ójöfnu und-
irstöðu ætti sem minnstan skatt að
leggja; því þess ósanngjarnari verður
álagan sem hún er liærri, þegar undir-
staðan er ójöfn og hvikul.
2. Að láta skatt, sem lagður er á
fasteignarhundruð, lenda á leiguliða eða
þeim, sem hefir afnot jarðarinnar upp
í embættistekjur sínar, sje eg ekki á
hverri sanngirni er byggt. Mjer finnst
að ekki sje hægt að rjettlæta slíka
skattálögu á leiguliða, vegna þess,
að þegar hann greiðir áskilið afgjald
eptir jörðina, sem hann býr á, þá hefir
hann fullnægt í því tilliti skyldu sinni,
og þá virðist mjer ekki rjettlátt að lög-
in neyði upp á hann nýrri skyldu til
hlífðar við hinn rjetta hlutaðeiganda,
eigandann. J>essi skattálaga getur orðið
býsna tilfinnanleg á hundraðamörgum
jörðum. Slíkan skatt ættu lögin að
leggja á eigandann, en láta svo eig-
andann og leiguliðann eigast við um
það, hver skattinn greiddi. þægar þessi
sama skattálaga er lögð á þann, sem
hefir afnot fasteigna upp í embættis-
laun sín, þá rýrir hún meira og minna
iaun hans, og veldur sjerstökum
ójöfnuði, sem þessi embættismaður
verður fyrir móts við aðra embættis-
inenn, sem taka laun sín úr landssjóði.
|>essi skattálaga getur orðið þung á
þoim prestum, sem hafa að meiru leyti
embættistekjur sínar af jarða-afgjöldum,
og jarðir þessar eru undir svo hátt
leigðar, að ekki er hugsandi til, að
nokkur maður, nema til neyddur, taki
þær með hærra afgjaldi en á þeim er.
I>egar svona er ástatt, sem víða mun
vera, verður skattálagan að lenda á
prestinum, með lækkun landskuldarinn-
ar, eða jörðin verður að verða óbyggð
að öðrum kosti, eða í þriðja lagi byggð
einhverjum aumingja, sem ekki á ann-
ars úr kosti. Tökum til dæmis prest-
inn að Breiðabólstað á Skógarströnd.
Hann hefir nú embættistekjur af 112
hndr. í fasteign. Af fasteign þessari
á að greiðast eptir tillögu nefndarinn-
ar 112 ál., og hefi eg ekki vit á, að
eirmi alin af þeim verði bætt á ábú-
endur kirkjujarðanna nema máske svo
miklu sem svari jafngildi konungstíundar-
innar, sem fellur burt, en það eru 22 '/2 aL;
eru þá eptir 89*/2 al., sem tekjur prests-
ins rýrna árlegavið hina nýju skattálögu,
og verður það tilfinnanlegt fyrir þann
embættismann. Enn er eins að gæta,
og það er það, að komist þessi tillaga
nefndarinnar á, þá mun hún fyrst um
sinn valda vandkvæðum, misklíðum og
málaferlum. Leiguliði mun segja við
landsdrottinn: Eg fer burt, nema þú
greiðir skattinn; 0g vilji landsdrottinn
halda leiguliðanum, verður hann að
greiða skattinn. Leiguliði getur líka
þumbast og haldið eptir af landskuld-
inni því, sem skattinum nemur, fram
yfir tíundarupphæðina, verði hann þá
svo sanngjarn, og þá verður landsdrott-
inn annaðhvort að sætta sig við það,
eða höfða mál. J>að sem eg hefi nú
vikið á, getur orðið mjög óþægilegt
fyrir landssjóðinn, svo marga á hann
landsetana, nema umboðsmennirnir verði
látnir brenna fyrir, og kveinka þeir sjer
þá einhverjir.
3. þegar fasteignar- 0g lausafjár-
skattur er lagður á leiguliða, þá er í
raun rjettri lagður tvöfaldur skattur á
suma menn af sömu eign til sama sjóðs,
en sje ábúandinn eigandi jarðarinnar,
og hvíli á honum tekjuskattur, verður
skatturinn þrefaldur. Hundraðatalið á
hlynnindalausri landjörð er byggt á því,
sem hún fram fleytir af lifandi fjenaði.
Sje enginn lifandi fjenaður til, hver
verða þá not jarðarinnar? Hvern arð
getur hún þá borið? Arðurinn, sem sá
fjenaður færir, sem fram færist ájörð-
unni, eru hin sönnu afnot hennar.
Jörðin er verkfæri í hendi notand-
ans til að koma arðinum tii leiðar, af
stofni, sem er að öllu laus við jörðina,
nema ef jarðarkúgildin slcyldi telja til
þess. þegar nú skattur er lagður á
hlynnindalausa jörð, þá er hann lagður
á verkfærið í hendi notandans, og kalla
13
eg n e y ð a r-úrræði að gjöra það. þeg-
ar skatturinn er lagður á peninginn,
sem ábúandinn fram færir á jörðunni,
þá má kalla hann a t v i n n u-skatt, og
er hann góð undirstaða skattgjalds, úr
því það þarf að vera, sje það hæfilega
lagt á. þegar skattur er lagður á gjald
það, sem leiguliði greiðir fyrir það, að
hann má nota annars eign til að fram
fleyta peningi sínum, eða sem eigandi
og ábúandi um leið tekur, sem menn
kalla, undir sjálfum sjer móts við leigu-
liða, kallast það t e k j u-skattur. þarna
eru þá komnir þrír skattar af sama
hlut til sama sjóðs, sem sami maður
geldur alla, sje hann eigandi og ábú-
andi um leið; en sje hann leiguliði, þá
ber hann tvo þeirra, en eigandi einn.
Sje nú þessar skattálögur hver um sig
þungar, þá kúgast þeir, sem fyrir
þeim verða.
4. Ein alin á hvert fasteignar-
hundrað er allt of há skattálaga móts
við eina alin á hvert lausafjárhundrað.
Að sönnu er áþekkt um verð á fast-
eignarhundraðinu í hverri óvalinni jörðu
0g á lausafjárhundraðinu, sem sje frá
90 til 100 kr.; en hreinn arður af
hverju lausafjárhundraði er sjálfsagt
fjórfalt meiri en af hverju fasteign-
arhundraði, oggetur því legið á lausa-
fjárhundraðinu talsvert hærri skattur,
heldur en á fasteignarhundraðinu, enda
þótt þess sje gætt, að á hinu fyrrtalda
hvílir að auk þung álaga til jafn-
aðarsjóðsins.
5. Ein alin á hvert fasteignar-
hundrað er of há álaga, skoðuð út.
af fyrir sig. þnnggjald þess, sem býr
á 10 hndr. og tíundar 3 hndr. lausa-
fjár, er nú sem næst blU al.; eptir til-
lögu nefndarinnar verður það 13 ál. —
pinggjald þess, sem býr á lOhndr. og
tíundar 5 hndr. lausafjár, er nú nálægt
10 ál.; eptir tillögu nefndurinnar verð-
ur það 15 ál. finggjald þess, sem býr
á 20 hndr. jörðu 0g tíundar 17 hndr.
lausafjár, en er þó ekki í skatti, er nú
rúmar 17 ál.; on eptir tillögu nefndar-
innar verða það 37 ál.; en sje liann í
skatti, stenzt á þinggjald það, sem nú
er, og hitt sem í vændum er eptir til-
lögu nefndarinnar. Hið væntanlega
þinggjald hlýtur að verða óbærilegt öll-
um fátækum sveitabúcndum, sem búa
áhundraðadýrum jörðum, við lítið lausa-
fje, og hjá allflestum mun það verða
óþokkasælt.
Eg þvkist nú hafa sýnt fram á, að