Ísafold - 18.03.1878, Blaðsíða 4
20
í SAFOLD.
mest einræmi á einu, ogr það var, að
Rússar áskildu sjer fasta stöð við sundið,
svo að þeir gætu vakað yfir, að eng-
inn út í frá kæmi því á sitt vald. Eng-
lendingum þótti þessu til sín stilað, og
því sendu þeir flotaforingja sínum,
Hornby aðmíráli, boð á nýjan leik, og
buðu honum að halda um Dardanella-
sundið og upp að höfuðborginni. Rúss-
ar höfðu þá svo tögl og hagldir í Mikla-
garði, að soldán þorði ekki að leyfa
Bretum sigling um sundið, en þeir voru
við því búnir, og ljetu flotann halda í
óleyíi Tyrkja inn í Marmarahafið. í
orði kveðnu var svo látið, að Bretar
vildu vera í námunda við höfuðborgina
til að vera þegnum sínum, sem þar voru,
til hjálpar, ef róstur og uppþot kynnu
að orsakast af návist Rússa. Englend-
ingar lögðust við akkeri við eyjar, er
Prinseyjar heita, fram undan Mikla-
garði, en nær hinni ströndinni. Rúss-
um varð heldur hverft við þessa gest-
komu, og ljetu Breta þegar vita, að
þeir mundu senda her sinn inn í Mikla-
garð, ef það væri ráð hinna að senda
lið í land og setja það á vörð í borg-
inni. Englendingar vægðu enn til og
Ijetu flotann hörfa aptur úr því lægi,
sem áður var nefnt, og leggjast suður
við Dardanellasund. þetta gerðist í
miðjum febrúarmánuði, en það var sem
Tyrkir yrðu nokkuð tregari en áður
að ganga að öllum ókostunum, og því
ljet Nikulás keisari þá vita, að hann
mundi láta her sinn fara inn í höfuð-
borgina, ef þeir gerðu meiri vífilengjur.
Vopnahljes-samninginn skrifuðu full-
trúar Tyrkja undir 31. janúar, og ná-
ýega alla kastalana fyrir norðan Balk-
an höfðu Rússar á sínu valdi 8. febrú-
ar, en eptir það var samið um friðar-
kostina. það var sem sje ráð Rússa,
að hafa fullan friðarsáttmála við Tyrki
sjeríhöndum, og koma frammeðhann
á ríkjafundi, eða á fundi þeirra ríkja,
sem hlut áttu að Parísarsamningnum
1856. Um stórveldafund hafa mörg
skeyti farið milli höfuðríkja álfu vorr-
ar, þar sem friðargerðin skyldi lögð til
samþykkta og austræna málið tilfullra
lykta. Að svo komnu hefir þeim samizt
um að halda samfund í Baden-Baden,
en þó er enn svo við sig vaxið, að
margir efast um, að á fund verði farið.
Verði fundurinn þar haldinn, hafa þjóð-
verjar áskilið sjer forsætið. Bismarck
var nýlega kvaddur skýrslu um horf
þ>ýzkalands til austræna málsins eptir
þeim vöxtum, sem á því erunú orðnir,
og þykir flestum, sem hann hafi orðið
Rússum vilmæltari en sumir mundu
kjósa.—þ>ess skal hjer getið, að Grikkir
rjeðu loks til, þegar Tyrkir voru full-
þrotnir á landi, og sendu 12000 manna
inn í þessalíu til liðs við uppreistar-
menn soldáns, en urðu felmtsfullir, er
Tyrkir ætluðu að veita þeim heimsókn
á flota sínum, og æptu á stórveldin sjer
til hjálpar. þau rjeðu þeim að senda
köllin til hers síns og kveðja hann aptur.
fetta ráð höfðu Grikkir, og stilltust
svo þau vandræði að sinni. Annars
hafa Krítarbúar hafið uppreist, og sett
sjer landsstjórn, og segjast vilja sam-
tengjast Grikklandi. Ef ríkjafundur
verður, þá getur verið að mál og hagur
Grikkja fái nokkra rjettingu, en vart að
því skapi, sem þeir segjast eiga tilkall til.
[Hjer bætir frjettaritarinn við lausafregnura og á-
gizkunum um friðarskilmálana, en það fellum vjer
úr, með. því að þegar póstskipið lagði af stað frá
Skotlandi 8. þ. m. voru þangað komnar áreiðan-
legri sögur um friðinn, sem hjer segir, eptir brjefi
til vor frá herra J. A. Hjaltalín] :
Edinburgh, 8. marz 1878.
Fulltrúar Rússa og Tyrkja skrifuðu
undir frið'arskilmálana í San Stefano á
sunnudaginn er var [3. marz]. Skulu
þeir Rússakeisari og soldán hafa selt
hvor öðrum fullar tryggðir að hálfum
mánuði liðnum. Skilmálarnir eru enn
eigi birtir almenningi, og verða eigi,
fyr en tryggðirnar eru fram seldar af
hálfu hvorra tveggja. Sagt er að þeir
sjeu þessir: Tyrkjar greiði Rússum
216 miljónir króna, Rússar fái vígin
Batúm, Kars, Ardahan og Bayazid í
Armeníu; hjeraðið Dóbrúdsja og eyj-
arnar í Dunármynni. Búlgaría sje gjörð
fylki sjer og hafi Rússar þar setulið í
2 ár. Bosnia og Herzegovína fái og
sjálfsforræði. Siglingar milli Svartahafs
og Miðjarðarhafs og aðrar fleiri greinir
bíði stjórnendafundarins. Er talið líklegt,
að hann verði seint í þ. mán.
(í niðurlagi frjettanna, sem verður
að bíða næsta blaðs, eru helztu tíðindi
konungaskipti á Italíu og páfaskipti í
Róm — Viktor Emanúel dó io. janúar,
en Píus níundi 7. febr.; hinn nýi kon-
ungur heitir Umbertó I., elzti son Vik-
tors, og páfinn nýi Leo 13. — ÁFrakk-
landi eru þjóðvaldsmenn komnir að
stjórn, og fer þar allt skaplega síðan.
Vetur ágætur um alla Norðurálfu.
Flokkur Vinstrimanna í Danmörku
klofnaður. Jarðskjálptar ógurlegir í
Suður-Ameríku: hrundu 2 stórborgir,
önnur þeirra Líma, höfuðborgin í Perú.
Hræðilegt hallæri í Kína norðanverðu).
Póstskipið (Valdemar, Ambrosen)
hafnaði sig hjer 16. þ. m. Hafði feng-
ið gott ferðaveður, logn fráFæreyjum.
Farþegjar: Jakob Sveinsson snikkari,
Pjetur Hafliðason verzlunarmaður, og
Löwe ljósmyndari.
Ný lög. Hinn 14. desbr. f. á. hefir
konungur vor ritað undir þessi lög frá
síðasta alþingi:
11. Lög um skatt á ábúð og afnotum
jarða og á lausafje.
12. Lög um húsaskatt.
13. I.ög um tekjuskatt.
14. Lög um laun sýslumanna og bæj-
arfógeta.
15. Lög um skattgjöld á Vestmanna-
eyjum.
16. I.ög um að launum lögregluþjóna
í Reykjavíkurkaupstað sje ljett af
landssjóði.
17. Lög um rjettindi Ábæjarkirkju í
Skagafirði.
18. Lög um ýmisleg atriði, er snerta
fiskiveiðar á opnum skipum.
19. Lög um að selja kornvörur og kol
eptir vigt.
18/378
20. Lög um gagnfræðaskóla á Möðru-
völlum í Hörgárdal.
21. Lög um að skipta þingeyjarsýslu
og Skaptafellssýslu, hvorri um sig,
í tvö sýslufjelög.
og 27. f. m. undir
22. Lög um kirkjutíund í Reykjavíkur-
lögsagnarumdæmi.
23. Lög um afnám konungsúrskurðar
13. marz 1833 [um húsaleigustyrk
handa lyfsalanum í Reykjavík].
J>au 1 o _sem áður voru staðfest, eru
talin upp í ísaf. IV 25, 27 og 30.
Ostaðfest eru þá enn þessi 7 : skipta-
lögin, vitagjaldslögin, kaupmannalögin,
lögin um fiskiveiðar útlendra þegna Dana-
konungs, einkarjettarlögin, gjafsókna-
lögin og tíundarlögin.
Póstsskipaferðaáætlunin er nú kom-
in. Aðalpóstskipið, sem verður Phönix
hjer eptir, hagar ferðum sinum einsog
í fyrra, og strandferðaskipið (Diana) fer
3 ferðir, sömu leið til og frá landinu og
hitt, en kemur fyrst á Seyðisfjörð, fer
þaðan fyrstu ferðina sunnan um land
til Reykjavíkur og síðan áfram vestur
og norður fyrir á sömu hafnir og í fyrra
flestar, og til Eskifjarðar, og þaðan svo
áfram til Rvíkur sunnan um land, en
frá Rvík aptur vestur og norður fyrir
til Austfjarða, hjer um bil á sömu hafnir
og áður; aðra ferð frá Seyðisfirði norð-
an um land til Rvíkur og síðan alla
hina sömu leið aptur ; þriðju ferð er eins
hagað að öðru en því, að heim í leið
fer skipið frá Rvík sunnan um land til
Seyðisfjarðar, eins og i fyrra. Díana
byrjar fyrstu ferð frá Khöfn 8. maí.
Hæstirjettur hefir dæmt í 3 ísl. málum í
vetur: Ákurgerðismálinu, milli Garða-
prests og Knudtzonsverzlunar í Hafnar-
firði (sbr. Dómasafn 1873,013.50), þriggja-
marka-ómagamálinu frá Grenjaðarstað
(Dsafn. 1874, bls. 11), og barnsútburðar-
málinu frá Skógtjörn, — og staðfest
landsyfirrjettardómana í þeim öllum.
Reýkjanesvitinn. Ríkisþing Dana kvað
hafa veitt fje til hans að sinni hálfu.
Krisuvíkurnámarnir. Með næstu ferð
kvað von á Paterson til að vinna þá í
sumar með fullu fylgi.
Frá Hyja-íslandi góðar frjettir. -— Komin 9
nr. af F r a m f a r a.
Mohn, stórkaupmaður í Björgvin, aðalvið-
skiptamaður verzlunarfjelaganna hjer á landi, hefir
orðið gjaldþrota í vetur.
Auglýsingar.
Áskorun. Hjer með skora jeg á þá,
sem hafa fengið lán úr þeim sjóðum,
sem jeg hef undir höndum, að borga
rentu af láninu á 11. júní gjalddegi sam-
kvæmt skuldabrjefum þeirra, þar eð
lengri dráttur á slíkri borgun er sjóð-
unum til svo mikils skaða, að jeg má
ekki láta hann við gangast.
Skrifstofu biskups, í Reykjavík, 16. marz 1878.
P. Pjetursson.
I sölubúð O. P. Möllers sál. kaup-
manns verður fyrst umsinn seldur ým-
islegur vamingur fyrir peninga út í
hönd með niðursettu verði.
Reykjavík, 18. marz 1878.
Fyrir hönd dánarbúsins
Georg Thordal.
Ritstjóri: Björn Jónsson, cand. pliilos.
Prentsmiðja „ísafoldar11.— Sigm. Guðmundsson.