Ísafold - 23.03.1878, Síða 4
24
ÍSAFOLD.
til svo ómerkilegt verk í hennar þjón-
ustu, að vel fari ef um það á að fjalla
með óþrifalegum hrosshóf. jþessi til-
raun hans — og eins ritdómaramennsk-
an — ætti að kenna honum að hafa
hugfast hið ágæta heilræði:
Skomager, bliv ved din Læst!
og að breyta eptir því eptirleiðis; að
vera ekki að bögglast við andleg störf,
hvað ómerkileg sem þau eru, heldur
unasjer, eins og hingað til, — „neffsl á
askbofni, með asklok fyrir himinn“.
Forngripasafnið. Vjer viljum enn
að nýju vekja athygli manna á Forn-
gripasafninu, og biðjum vjer því alla þá
sem kynnu að eiga nokkra gamla hluti
er fáanlegir væru, að senda oss þá til
safnsins, hverju nafni sem nefnast, vjer
munum borga slíka hluti eptir efnum
safnsins og þeirra fornfræðislega gildi,
en hinir gjöra þó enn betur, er gefa
hlutina eða selja með vægu verði. þeir
sem ekki kynnu að geta komið slíkum
munum til okkar vegna einhverra kring-
umstæðna, biðjum vjer að skrifa oss um
þá og lýsa þeim, að vjer eptir því gæt-
um gjört ráðstöfun.
Vjer viljum taka það fram, að menn
sjeu ekki að pukra með slíkahluti eða
selja þá út úr landinu, án þess að hafa
áður boðið þá Forngripasafninu, vjer
höfum komizt að því, að á þann hátt
hafa margir góðir hlutir gengið úr greip-
um oss, og farið út úr landinu, og að
enda hefir verið selt frá kirkjum, án
þess að fá leyfi stipsyfirvaldanna (bisk-
upsins); slíkt verður ekki afsakað, þar
nógar eru nú ferðir og samgöngur hing-
að til Reykjavíkur.
Forngripasafnið er sú eina vísinda-
lega stofnun hjer á landi þesskyns, og
mættum vjer ekki hafa minna „ættar-
bragð“ af forfeðrum vorum, en að leggj-
ast allir á eitt að hlynna að því. Safn-
ið á sjer marga velgjörðamenn hjer á
landi, sem hafa sent þvi gjafir í fornum
munum, og þannig er það orðið til í
fyrstu; þar að auki hefir það fengið
nokkuð fje í heild sinni frá því opin-
bera til að kaupa gripi fyrir, fyrst frá
stjóminni útlendu meðan svo stóð á, og
síðan frá alþinginu; ber oss því nauðsyn
til að láta þetta allt verða að þeim not-
um, sem ætlast er til, og láta hvorki
skeytingarleysi eða aðra smámunasemi
hamla því.
fað er kunnugt, að allar menntað-
ar þjóðir verja ærnu fje til að safna forn-
menjum, ekki einungis í sinu eigin landi,
heldur og senda menn jafnvel í aðrar
heimsálfur í því skyni, því þeir vita vel
að fornir hlutir eru sá „þegjandi vott-
ur, semlýgur sízt“ um hinn fyrri tíma,
ef menn bera skynbragð á gildi þeirra
hluta. Ef vjer nú vildum nokkuð fara
að dæmi þessara þjóða, ættum vjer ekki
að horfa í lítilfjörlegan kostnað eða ó-
mak að hirða það, sem er í okkar eig-
in landi, heldur en að láta það missast
fyrir fullt og allt; nú eru einmitt síð-
ustu forvöð, og hefði átt að vera gjört
fyrir löngu ? þó vjer sjeum ekki auð-
ug þjóð, þá erum vjer vel færir um þetta,
enda sýnum vjer það, að vjer leggjum
ærið fje til sums, sem ekki er þýðing-
armeira fyrir landið en forngripasafnið.
Síðan 1870 hefir engin skýrsla get-
að komið yfir safnið, eða fornfræðisleg
lýsing á þeim hlutum, og hefir því þó
margt og mikið aukizt síðan, bæði keypt
og gefið, en þessu verður ekki hrundið í
lag nú þegar eins og vjer vildum, eða
vera ætti, bæði fyrir húsrúmsleysi fyrir
safnið, og vegna fjelevsis, þetta getum
vjer sýntogsannað nær sem vera skal.
Nú er nóg til í 2 herbergi eins stór og
þessi 2 sem eru; þar að auki er safnið
lítt flokkað eptir aldri og kyni hlutanna,
því öllu þurfti að hrúga saman sem mest
mátti vera, tíl að geta sýnt það, því
þar við bætist, að safnið þarf að núm-
erast allt að nýju, sjálfsagt allt sem
komið hefir síðan 1870, enda miðarnir
fallnir af mörgu hinu, þvf kuldi og hrá-
slagi er ekki hentugur fyrir foma hluti
úr járni; þannig eru nú ástæður safns-
ins, svo allir sjá að því þarf að taka al-
varlegt tak, þegar því verður viðkomið.
Vjer höfum því eigi önnur ráð sem
stendur, enn að reyna að auglýsa í blöð-
unum eptirþví sem vjer getum við kom-
ið. þá merkustu hluti sem komið hafa
síðan 1870, og eins það sem hjer eptir
mun koma, einkanlega það sem gefið er.
Forngripasafnið er opið á miðviku-
dögum og laugardögum frá kl. 1—2.
Jón Arnason. Sigurður Vigfússon.
*
* .*
17. janúar 1878 hafa stiptsyfirvöld-
in kvatt Sigurð Vigfússon til að vera
umsjónarmaður forngripasafnsins, ásamt
með inspektor Jóni Arnasyn.i sem um
undanfarin ár einn hefir haft umsjón
safnsins á hendi.
Eldgosið, er vjer gátum fyrir skemmstu,
var í hrauninu norður og austur af Heklu,
á þrem stöðum, að því er næst hefir
orðið komizt. fað byrjaði 27. f. m. og
stóð næstu dagana á eptir, með tölu-
verðum jarðskjálptum, og nokkru ösku-
falli; en virðist hafa slotað síðan. Að
minnzta kosti hefir enginn mökkursjezt
hjeðan síðan snemma í þ. m. Askan
er að dómi landlæknis vors hin sama
og sú sem fjell í Heklugosinu síðasta,
1845, ipjög skaðleg mönnum og skepn-
um. Ytarlegri frjettir — eptir brjefum
úr næstu sveitum við eldsupptökin —
höfum vjer eigi rúm fyrir í þetta sinn.
Veirarfar hefir verið hið örðugasta á
Norðurlandi: snjóar miklir og sífelldir
umhleypingar; víða orðið heytæpt. En
nú að líkindum kominn þar bati. Hjer
syðra var og ótíð fyrra part þ. m.;
stakasta gæftaleysi. En nú góðviðri
nokkra daga.
Aflabrögá. Nú er hjer hlaðfiski að
heita má um allan Faxaflóa sunnan-
verðan hvern dag, sem róa gefur. Ur
Bolungarvík er og sagt mokfiski, og
góður afli undir Jökli.
Bjargarvandræði eru nú öll úti, eins
og sjá má á þessu. En með því að afla-
frjettirnar voru eigi komnar norður þeg-
ar póstur lagði af stað, komu nú það-
an með honum eitthvað framundir 2000
kr. af samskotafje handabágstöddum hjer
syðra, mest úr fáeinum sveitum í Eyja-
firði og þingeyjarsýslu, þar á meðal t.
d. um 600 kr. úr einni sókn (Húsavík-
ur). Sem nærri má geta, verða gjafir
þessar fráleitt notaðar. Sem dæmi upp
á framúrskarandi höfðinglyndi Norðl-
inga getum vjer þess, að frá einum
bónda, Jóni Guðmundssyni á Ásgerðar-
stöðum í Hörgárdal, „sem er enginn
ríkismaður“, kom 100 kr. ávísun. „Hann
reisti bú af litlum efnum—er oss skrif-
að—, og á mörg börn, sem nu eru fyrst
að komast úr ómegð, en frá því hann
byrjaði búskap hefir hann ávallt verið
einhver beztibjargvættursveitar sinnar“.
Manntjón. Laugardaginn 9. þ. m.
týndist skip með 7 mönnum í róðri frá
Birni óðalsbónda Jónssyni á (þórukoti
í Njarðvík, í vestanroki með dimmviðr-
isfjúki. Skipið rak upp hjá Flekkuvík
á Vatnsleysuströnd.
23/sT8
Brauðaveitingar. Hinn 20. þ. m. veitti
landsh. Vallanesbrauð síra Bergi Jónssyni, fyrr-
um prófasti, á Asi í Fellum, v.1853, og s.d. Hóla, Við-
vík og Hofstaði í Skagaíirði síra Páli Jónssyni á
Völlum í Svarfaðardal, v. 1841. Um það brauð
sóttu aulc hans þeir síra Gunnar Olafsson á Höfða
(v. 1843), síra Magnús Thorlacius (v. 1847), síra
Markús Gíslason (v. 1862), sira Isleifur Einarsson
(v. 1864), og síra Oddgeir Guðmundsson (v. 1874)
en um Vallanes síra J>orsteinn prófastur |>órarins-
son á Berufirði (v. 1858) og síra J>orvaldur Ásgeirs-
son á Hofteigi (v. 1862).
Heiðursmerki og nafnbót. Hinn 23. f.
mán. sæmdi konungur vor Asgeir alþingismann á
J>ingeyrum Einarsson heiðursmerki Dannebrogs-
manna, og gjörði s. d. Ara lækni Arason á
Flugumýri að kanselíráði.
Auglýsingar.
J>að hefir fleirum sinnum vakið ept-
irtekt vora, að frásagnir þær, er herra
Jón Ólafsson, ritstjóri blaðsins „Skuldar“,
hefir látið prenta í nefndu blaði, um
verðlag á innlendri og útlendri vöru í
verzlununum hjer á Seyðisfirði m. fl.
þar að lútandi, eru meira og minna
ranghermdar, og sumar með öllu til-
hæfulausar. Vjer undirskrifaðir viljum
því hjer með biðja alla, og sjer í lagi
skiptavini vora, að trúa e k k i slíkum
frásögnum, eður nokkru því, er herra
Jón Ólafsson kynni framvegis að setja
í nefnt blað og snertir verzlanir þær, er
við veitum forstöðu, nema að nöfn okk-
ar sjeu undir það rituð.
jþess skulum vjer geta, að vilji herra
Jón Ólafsson fá sannar fregnir um verð-
lagátjeðum vörum hjá okkur, þámun-
um vjer láta honum þær í tje, að þvi
leyti kringumstæður leyfa.
Seyðisfirði, 4. jan. 1878.
J. Chr. Thostrup. J. A. Holm.
Sigurður Jónsson.
Jeg undirskrifaður auglýsi hjer með
fyrir öllum skuldunautum mínum, aðjeg
í dag hefi gefið herra kaupmanni Jóni
Guðnasyni hjer í bænum fullmakt til
þess, að innheimta allar skuldir til mín,
ogskalallt, sem velnefndur Jón Guðna-
son gjörir í þessu tilliti, vera eins og
jeg það sjálfur gjört hefði.
Reykjavík, 18. marz 1878.
//. C Robb.
* * *
Um leið og herra kaupmaður H.
C. Robb auglýsir hið ofangreinda, inn-
kallast hjer með allir þeir, sem skuldir
eiga að lúka velnefndum H. C. Robb,
til þess hið allra fyrsta, að semja við
migum tjeðar skuldir, að minn'sta kosti
fyrir 20. dag næstkomandi júnímánað-
ar, þar eð þeir ella mega vænta þess,
að jeg framfylgi kröfunum eptir lands-
lögum og rjefti.
Reykjavík, 19. marx 1878.
Jón Guðnason.
FUNDIZT hefir gullhringur með
steini í nálægt húsi Tómasar læknis.
Fjármark Sigurðar Magmíssonar í
Gróf í Ytrihrepp: blaðstýft apt. hægra,
hangandi fjöður framan vinstra.
Ritstjóri: Björn Jónsson, cand. philos.
Prentsmiðja „ísafoldar11.— Sigip, Guðmundsson,