Ísafold - 12.12.1878, Page 2

Ísafold - 12.12.1878, Page 2
122 ÍSAFOLD. 12/i2-8 Við höfum nú reyndar stundum heyrt annan þingrnann Skagfirðinga kallaðan „landshöfðingjaritara11; en þrátt fyrir þetta nafn sjáum vjer ekki, að þing- maður þessi þurfi að vera eða geti verið landshöfðingja háðari en hver annar embættismaður í umboðsstjórn- inni, svo sem amtmenn landfógeti sýslu- menn o. fi. Skyldi það vera ætlun „Hs“, að alls enga embættismenn ætti að kjósa á þing, jafnvel ekki yfirkennara hins lærða skóla? Reykvíkingur. Ágreiningurinn milli forstjóra hinn- ar íslenzku stjórnardeildar og vor um skilninginn á lögum þeim „um rjettindi hjerlendra kaupmanna og kaupfjelaga“, sem stjórnin, vildi ekki staðfesta, er eins og sjá má á grein deildarstjórans í 30. tölublaði „Isafoldar“, sér í lagi um það, „hverja þýðing eigi að leggja í orðið „hjerlendur". Vjer getum nú verið höf. samdóma um það, að velja mætti betra orð, þó ekki af þeirri or- sök, sem, hann tilfærir, að lögin eru gefin út í Danmörku, því það virðist oss hvorki gjöra til nje frá, þegar allir vita, að lögin þó eiga að gilda fyrir annað land enþað, sem þau eru gefin út í, heldur fyrir þá sök, að orðið er ekki nógu á- kveðið. Máske hinni íslenzku stjórnar- deild falli betur, að orða fyrirsögn lag- anna: um rjettindi íslemkra kaupfjelaga og kaupmanna, sem búsettir eru á ís- landi. Sje svo, er vonandi, að alþing láti það eptir henni, nema það sem betur færi, kysi heldur aðra fyrirsögn, t. d. „um strandsiglingar og lausaverzl- un“. Upphafið á fyrstu gr. frumvarps- ins yrði þá: Heimilt skal öllum íslenzkum kaup- fjelögum, og kaupmönnum þeim, er búsettir eru á íslandi, en öðrum eigi o. s. frv. Vér köllum kaupfjelögin fslenzk, hvar sem kaupstjóri er búsettur, á með- an meiri hluti hlutabrjefanna eríhönd- um Islendinga, Eins og höf. skilur, er ómögulegt að ákveða fjelögum bólfestu með öðru móti. En ef meiri hluti hluta- brjefa kæmist í útlendar hendur, þá þyrfti kaupstjóri að vera hjer búsettur. Höfuðspurningin fyrir alþing og fyrir íslendinga er að styðja að því eptir mætti, að verzlun vor verði sem innlendust. þ>að er svo langt frá því að meiningin sje að útiloka Dani eða útlendinga frá að verzla hjer, að öllu fremur er leitazt við að hvetja þá til að taka sjer hjer bólfestu. Hitt er sjálfsagt og tíðkast í öllum löndum, einn- ig Danmörku, að búsetunni eða bólfest- unni fylgja sjerstök rjettindi, og þá sjer í lagi rjettindi til strandsiglinga, hvort sem þau eru bundin við þjóðerni skipsins, eða bólfestu eigandans, eða hvortveggja, það hlýtur að koma af því, hversu lengi höf. er búinn að dvelja erlendis, að hann trúir því „að kaup- menn þeir, er nú hafa fasta verzlun á íslandi, en eru þar þó ekki búsettir, verði sviptir atvinnugrein, sem fyrir þá getur verið mikilsvarðandi“, og „myndi að líkindum neyddir til að hætta við alla verzlun“, ef umrædd lög hefðu útkomið. f’eir, sem hafa sagt höf. þetta, hafa ranghermt; það er minnsti verzl- unararðurinn, sem þessir menn hafa af lausaverzlun sinni með ströndum fram. Margir þeirra stunda hana lítið eður að eins með höppum og glöppum. Einn- ig ber það til, að sumir hinna stærri kaupmanna hafa svo víða verzlanir, að það væri þýðingarlítið fyrir þá, að keppa við sjálfa sig, en engan veginn þýðingar- laust fyrir landsbúa, ef aðrir verzlunar- menn kæmu keppni inn í verzlunina á þeim stöðum, effa í nánd við pá staffi, þar sem heita má, að einokun eigi sjer stað, svo sem á Eyrarbakka, Papós, Beru- firði, Búðum, Olafsvík o. s. frv. — Hættan í þessu falli er engin. Margir af þeim stærri kaupmönnum hjer á landi eru þar á ofan orðnir svo „fastir“, þótt ekki sjeu búsettir, að þeir myndu varla geta losazt við verzlanir sínar svo iljótt, þótt vildu; en það kemur ekki til mála, að þeir vegna þessara laga, þegar lög verða, vilji losast hjeðan. Höf. heíir því misskilið tilgang laganna, ef hann heldur þau lúti að því, að bolaút hjeð- an kaupmenn, sem ekki hafa hér ból- festu; meiningin er, eins og áður er sagt, að hvetja þá til að verða hjer bú- settir, að bjóða þeim nýjan arð, til þess að brúka afraksturinn af verzlununum meðal vor, í stað þess að eyðahonum í Danmörku, Norvegi, Skotlandi, Ham- borg, o. s. frv. þar sem höf. kvartar yíir íslenzku þýðingunni á brjeíi ráðherrans 12. júní í Stjórnartíðindunum, þá er ráð við því, sem sje, að ráðherrann eptirleiðis skrifi landshöfðingja á íslenzku öll þau brjef, sem birta á í tjeðum tíðindum. Enda lýsir grein höf. í „ísafold“ því, að hann er vel fær um, að semja brjef á íslenzku, og ráðherrann þekkjum vjer svo, að þó hann kunni ekki að geta skrifað mál vort, þá mun hann fullfær um, að skilja hverja íslenzku, sem ekki er þungskild- ari en íslenzkan í Stjórnartíðindunum, þegar hún er frumrituð. Aptur á mót ætlast enginn til þess að ráðherrann heldur en aðrir skilji sumar islenzku þýðingarnar af hans eigin brjefum, sem „Stjórnartiðindin11 hafa meðferðis t. d. brjefið 14. febr. 1876, um ekkjufram- færsluskyldu embættismanns, (Stjórnar- tíð. 1877 B, bls. 41). Vjer leyfum oss að endingu við þetta tækifæri að benda á eitt van- kvæði, sem opt hefir orðið tilfinnan- legt á alþingi, sem sje, hversu ófull- komin sú leiðbeining er, sem þinginu býðstafhálfu stjórnarinnar, þegar laga- frumvörp eru rædd. Hversu starfsam- ur sem landshöfðinginn er, þá er varla von, hann endist til þess aðstoðarlaust, að ræða hvert mál undirbúningslítið sem á þing kemur, og það einatt að honum óvörum. Enda sýna þingtíðind- in, að landshöfðingi á stundum ekki tal- ar eitt orð í sumum málum ; það væri því engin vanþörf á, að stjórnin eins og líka stjórnarskráin gjörir ráð fyrir, ætti sjer svaramann á þingi við hlið landshöfðingja, og væri sjerstaklega vel til fallið að forstj. hinnar fsl. stjórnardeild- ar kæmi hjer annað hvert ár og ásamt landshöfðingja leiðbeindi þinginu fyrir- fram, þegar vandamál koma fyrir. J>etta er öllu betra, en að synja um staðfestingu laga, sem afgreidd eru af þinginu, en lesa því svo textann á ept- ir í misjafnlega þýddum brjefum í Stjórn- artíðindunum. Enda hefði hinn hátt- virti deildarstjóri sjálfur í alla staði gott af því, að fá sjer við og við íslenzkt bað, því annars kann honum eins og öðrum hætta við, að verða íslands, þörf- um ókunnugur og íslenzkum skoðunum afhuga. Eigi það að fara að tíðkast, að lög, sem frá þinginu koma, nái ekki staðfestingu konungs, þá má ráðherrann og deildarstjórinn vita, að bráðum mun reka að því, að þing og landslýður fari að hreifa breytingum á stjórnarskránni; við það kemur órói í landið, og enginn veit, hve margan ófögnuð kann af því að leiða. Vjer erum sannfærðir um, að stjórnarskráin, rjett notuð bæði af hálfu þings og stjórnar, er að svo stöddu allbrúkanleg, eins og hún er, en eigi að fara að eyða tíma þingsins og fje landsins með árangurslausu lagasmíði, þá er hætt við, menn óski t. d. að fá álíka grein inn í stjórnarskrá vora, eins og 79- gT- í grundvallar lögum Norð- manna, sem sje, að stjórnin geti engum lögum hafnað, sem frá þinginu koma, optar en tvívegis. Að minnsta kosti er það ekki tilvinnandi, að eiga að heita frjálst land, og sæta þó eptir sem áður nýlendukjörum í verzlunarefnum. Ekki hefðu þeir Olafur og Magnús Stephensen stutt að þvilíku. Eignar- og tekjuskattur í Reykjavikur lögsagnarumdæmi, þeirra, sem gjalda yíir 10 kr. Eignar- Tekju- skattur. skattur. I. Hilmar Finsen . . . 14 00 CM 2. Biskup P. Pjetursson 56 149 3- Amtmaður Thorberg 4 110 4- Justitiarius J. Pjetursson 20 9i 5- J>. Jónassen konferenzr. 100 6. Rektor Jón þorkelsson 4 60 7- Bæjarfógeti Jónassen 11 45 8. Landfógeti Thorsteinsson 9 98 9- Docent H. Hálfdánarson 3i 10. Póstmeistari Finssen . 40 11. Erú Benediktssen . . 3i 12. Lektor Melsteð . . . 20 62 13- kaupm. H. St. Johnsen 20 14- Einar prentari . . . 19 i5- P. C. Knudtzon & Sön 100 16. Magnús í Bráðræði 40 5 i7- Bernhöft bakari . . 70

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.