Ísafold - 30.01.1879, Qupperneq 3
15
latínuslcólunum steypt saman og þeir
fluttir til Reykjavíkur o. s. frv. En þó
þessi framtakssemi í sölu stólsgóssanna
auðgaði einstaka menn, efast jeg um
að hún hafi verið happasæl fyrir landið,
og því að eins er framtakssemi embætt-
ismanna lofsverð, að hún sje til að efla
almennings heill. Hver önnur merki
sjást nú upp á verklega framtakssemi
hinna fyrri embættismanna ? Hjálpuðu
þeir til að koma hjer upp bjargræðis-
vegum til lands eða sjávar ? Komu þeir
betra skipulagi á sveita- og fátækra-
stjórn ? þ>að sem í þessu tilliti hefir
verið gjört, er allt verk seinni tíma,
eins og líka alþingi, prestaskóli, lækna-
skóli, læknafjölgun, spítalar, barnaskól-
ar, vegabætur, o. s. frv. Að margir
hinir fyrri embættismenn voru mestu
búhöldar, því getur enginn neitað, en
þessa sjást nú litlar menjar, og vjer
eigum enn marga ágæta búmenn, bæði
meðal presta og veraldlegra embættis-
manna. Fæstir embættismenn í kaup-
stöðum, að minnsta kosti í Reykjavík,
hafa færi á að sýna búskapardugnað.
Höfundurinn játar, að margir af hin-
um fyrri embættismönnum hafi verið
hjcraðsríkir. fetta er nú f sjálfu sjer
ekki vítavert, þegar þeir með stjórn-
semi og ráðdeild hafa verið hjeraðs-
mönnum til fyrirmyndar; en því miður
hafa margir hjeraðsríkir höfðingjar sýnt
bændum ójöfnuð og yfirgang og svælt
undir sig eigur þeirra. þ>ví reglubundn-
ara sem hvert fjelag er, því minna ber
á, að menn sjeu hjeraðsríkir í hinni
lakari merkingu orðsins, og því minna
færi gefst þeim á að beita gjörræði og
ofstopa, og er þetta framför en ekki
apturför.
þ>að er mjer ofvaxið að dæma um
andlega starfsemi fyrri og núverandi
embættismanna, eða vega rit þeirra
hvert á móti öðru, og því sleppi jeg
því. Jeg skal fúslega játa, að fáir Is-
lendingar hafa fyrr og síðar starfað
eins lengi og með eins óþreytandi elju
að uppfræðingu landa sinna eins og
Magnús Stephensen, enda hafa dóm-
endurnir í yfirrjettinum haft betra tóm
og næði til ritstarfa en flestir aðrir em-
bættismenn; en nú hafa þeir fengið
miklu meira að gjöra en áður, þar sem
dómar fjölga með vaxandi fólksfjölda í
landinu, og þeir auk embættis síns hafa
ýmisleg umboðsleg störf á hendi.
Höfundurinn hefir sjálfur talið upp
svo mörg rit núlifandi embættismanna,
að jeg ætla, að það sje nóg til að sýna,
að þá vantar að minnsta kosti ekki
vilja til að gagnast löndum sínum. Ver-
ið getur, að sumir embættismenn kunni
að geta afkastað meiru í þessa stefnu,
en þeir hafagjört, ogóskajeg, að þeir,
án þess að vanrækja embætti sin, legðu
fram til þess alla krapta sína, eins og
jeg ekki heldur efast um, að „ísafold11
muni geta glætt áhuga þeirra á þessu,
ekki einungis með því að unna þeim
sannmælis, heldur og með þeirri sátta-
og sammálastefnu, sem upphaf greinar-
innar benti á.
þ>að er verðskuldað lof, sem „ísa-
fold“ setur upp á „konur vorar og dæt-
ur“; en jeg verð þó að gjöra þá at-
hugasemd, að „þær hafa ekki lagt und-
irstöðuna undir presta-eklcnasjóðnum11,
því að hann var stofnaður með gjöfum
og frjálsum samskotum einstakra manna,
en þær byggðu vel ofan á undirstöð-
una, með „bazar11 og „tombólu11, sem
þær gengust fyrir, að haldin var hjer
í Reykjavík sumarið 1869.
P. Pjetursson.
* *
* *
An þess að vilja þræða grein bisk-
upsins, sem yrði of langt mál, skal þess
getið, að það hefir í þessu blaði hvergi
verið tekið fram, sem „hneysa11 fyrir
biskupinn eða aðra embættismenn, að
embættin standa skör lægra, síðan lands-
höfðingjadæmið var stofnað. fað var
sagt bíátt áfram, eins og oss þótti vera.
Sje biskupinn fyrir sitt leyti ánægður
með það vald, sem hann hefir, þá sýnir
það, að hann hefir lítið erft af ráðríki
fyrri biskupa. Biskupsdæmið var fyrr
meir hin einasta innlenda máttarstoð
landsbúa gegn yfirgangi útlendrar og
innlendrar valdsstjórnar. þ>arf ekki að
vitna til Árna biskups gegn Loðni lepp;
það þarf ekki að fara lengra en til Finns
og Hannesar biskupa. f>ótt nú lands-
höfðingjadæmið væri „stofnað eptir ósk
þingsins og þjóðarinnar11, þá er erindis-
brjef landshöfðingjans, eins og dagsetn-
ingin (22. febr. 1875) sýnir, ekki frem-
ur af þingsins völdum en t. d. ráðherra-
brjefið 10. jan. 1878 (Stjórnartíð. 1878, B
bls. 46), sem kennir, að biskup má ekki
svo mikið, sem gefa presti ferðaleyfi,
nje setja prest til að þjóna prestakalli,
nema þegar nágrannaprestur er feng-
inn til að þjóna lausu brauði til bráða-
byrgða, o. s. frv. — Allt það fyrirkomu-
lag, sem stofnun landshöfðingjadæmis-
ins fylgdi, var um garð gengið á undan
fyrsta löggjafarþingi, og það má mikið
vera, ef þessi umsteypa hefir ekki far-
ið fram með vitund biskups, ef ekki
samþykki hans; þingogþjóð hafa aldr-
ei óskað, að vald biskupa vorra væri
rýrt. Sama er að segja um flutninginn
til Reykjavíkur og samsteypuna á Suð-
ur- og Vesturamtinu; hún mun hafa
verið stofnuð með vitund og samþykki
hins núverandi amtmanns, en án vitund-
ar eðavilja alpingis. (Sbr. Alþ.tíð. 1873,
II, bls. 216—217).
Lítt skiljanlegt er oss það, hvernig
biskupinn fer að leggja framtakssemi
embættismanna vorra tíma í því verk-
lega aðjöfnu við atorku 18. aldar-mann-
anna og framan af þessari, og hvernig
hann fer að spyrja, hvort þeir síðari hafi
„hjálpað til að koma hjer upp bjarg-
ræðisvegum til lands eða sjávar11. þ>að
lítur svo út, sem biskupinn sje 18. öld-
inni ókunnugur; biðjum vjer hann því,
að sýna það lítillæti, að lesa æfisögu-
brot Skúla Magnússonar og Jóns þ>or-
kelssonar, sem fyrir skemmstu hafa
staðið í þessu blaði. Má þar glöggva
sig á, hver fyrstur kom hjer upp þil-
skipa-fiskiveiðum, hver fyrstur kom hjer
á saltfisksverkun, hver fyrstur kom hjer
á betri tóvinnu og spunarokkunum, (sem
konumar munu altjend virða við hann),
hver fyrstur kom á æðarvarpi hjer syðra,
hver fyrstur kom hjer upp landlæknis-
og hjeraðslæknadæmum, hver fyrstur
kom því á, að yfirsetukonur voru sett-
ar og yfirsetukvennafræði kennd, hver
fyrstur kom hjer á handkvörnum og
vatnsmylnum, hver fyrstur ljet sjer hug-
arhaldið, að bæta uppfræðslu barna, og
hver fyrstur gafhjer stórfj'e til stofnun-
ar barnaskóla, o. fl., o. fl., sem of langt
yrði upp að telja, og sem geymt skal
verða, þangað til oss lánast, ef svo mætti
verða, að láta þettablað færa lesendum
sínum æfiminning Olafs stiptamtmanns.
En þó aldrei væri annað, og þó þeirra
stórkostlegu framfaratilrauna á 18. öld-
inni sje hvergi getið, sem biskupinn svo
hyggilega þegir um, af því þeirra eru
nú engar sýnilegar menjar (verksmiðj-
urnar, saltsuðan, kornyrkjutilraunirnar,
innflutningur hreindýra, brennisteins-
námið, o. fl.),—þá vegur sigur fyrri em-
bættismannanna á einokunarverzluninni
einn sjer, og það, að maturta- og jarð-
eplarækt, sem síðan hefir viðhaldizt, þá
komst á, meira, en allt, sem eptir þá
síðari liggur. Biskupinn telur barna-
skóla og vegabætur með framkvæmd-
um embættismanna nú á dögum. „Nú
greipt þú á kýlinu “, sagði Eysteinn.
Hverjir voru það á síðasta þingi, sem
heldur andæfðu á móti því, að fje væri
veitt aflandssjóði til sumra barnaskóla?
Lesi herra biskupinn umræðurnar í efri
deild alþingis (Alþ.tíð. 1877 I, bls. 201
—212), og mun hann finna, að bændur
og landshöfðingi voru með því, en em-
bættismenn á móti. Sama er að segja
um styrk af landsfje til kvennaskóla.
Sömu embættismenn voru þar einnig
öndverðir. Og nú vegabæturnar. Sú
fyrsta uppástunga um að veita fje til
þeirra af landssjóði kom frá fjárlaga-
nefnd neðri deildar alþingis 1875 (Alþ.
tíð. 1875, II, bls. 65) og vegabótalögin
eru eptir bónda. Sama er að segja um
strandsiglingarnar. Ekki erþað heldur
rjett, að telja alþingi, hið löggefandi al-
þingi, með afreksverkum embættismanna,
nema að því leyti, að landshöfðinginn
á þar góðan hlut að máli. En það væri
oflöng saga, aðsegja hana hjer. Hvað
prestaskólann snertir, þá stendur svo á,
að vjer erum því eins kunnugir eins og
biskupinn, hverjum það mest og bezt
er að þakka, að hann komst á. En sá
maður er, því miður, ekki meðal vor.
Enginn ætlast til þess, að embætt-
ismenn í Reykjavík sjeu búhöldar, en
hitt er annað mál, hvort landinu og em-
bættismönnunum sjálfum er það til bóta,
að þeir eru þar svo margir samankomnir
í eina bendu. Betur myndi mörg jörðin,
sem nú er niðurnídd, vera setin, ef em-
bættismaður væri þangað kominn, og,
þó hann hjeraðsríkur væri, myndi ná-
grennið fremur njóta þess en gjalda,
bæði í andlegan og líkamlegan máta.
Embættismenn fyrri tíma voru fremur
íslendingar, þessir fremur Reykvíkingar;
á þeim fyrri var sveita- en jafnframt
höfðingjabragur, á þessum er kaupstað-
arsnið, og þó þeir sjeu ekki hjeraðs-
ríkir, þá vitum vjer ekki hvort fjelagið
í Reykjavik er þar fyrir „reglubundn-
ara“ nú, en um aldamótin. Satt er það,
að aldamótin hafa stólsgóssin á sinni
samvizku, en á hvorri öldinni var það
nú aptur, að landlæknissetrið var flutt
frá Nesi og biskupssetrið frá Laugar-
nesi? Ætli að sá búhnykkur hafi ekki
orðið landinu á við nokkrar stólsjarðir?
í bókmenntum getum vjer heldur
ekki betur sjeð, en þeir fyrri beri af
þeim síðari, sjer í lagi í ollu því, setn
til nytsemda horfir. Leggjum prjedik-
anir þeirra Árna biskups og Dr. Pjet-
urs, ásamt öðrum guðsorðabókum hins