Ísafold - 02.07.1879, Side 2

Ísafold - 02.07.1879, Side 2
70 þarfleg; en þau eru það og á annan veg. Eptir því sem næst verður komizt, eiga menn hjer á landi, að opinberum sjóðum meðtöldum, um eða rúma hálfa miljón króna í konunglegum skuldabrjef- um. þeir sem hafa aflað sjer þeirra, hafa eigi átt annan kost betri að þeirra áliti, en mundu miklu fremur hafa kos- ið að leggja fje sitt i innlend skulda- brjef, er hægra væri að láta ganga mann frá manni í kaupum og sölum. þetta er enn ein ástæðan til þess, að æskilegt er að lánsfjelög sje stofnuð. Eg hefi nú talið nokkrar af hinum almennu ástæðum, er mæla fram með stofnum slikra fjelaga. Síðar mun verða farið fám orðum um gagn það, er þau geta gert til þess að bæta búnað vorn, og um það, hvort og hvernig' þau geti komizt á legg. Hþfundur nokkur, sem kallar sig „Bónda“, hefir í 6. bl. „J>jóðólfs“ þ. á. komið fram móti ísafold og bændum. Af orðum hans að ráða er það sami maðurinn, sem lagði kaupmönnum þjóðráðin í 2. tbl. „f>jóð.s“. „þ>jóð.“ sagði þá, að maðurinn væri „vitur“. Hin „vit- urlegu“ ráð voru reyndar að mjer fannst í því fólgin, að kenna kaupmönnum að ná „fastatökum“ á bændum, þó lausa- tökin, sem þeir hafa haft, hafi verið nóg til þess að hafa þá flata. En betra er það sem betra er. En sízt skyldu menn ætla, að bændur væru þannig sjálfs síns meinsmenn. Ekki vill bóndinn „fylgja11 ísafold í röksemdum um það, hvað sjeu kaup- staðarskuldir. ísafold hefir leittrök að því, að eðlilegast sje, að kalla það eitt kaupstaðarskuld, sem óborgað sje að ári liðnu. þetta er óhrakið af bónda og öðrum, og þessa skoðun aðhyllast kaupmenn opt í verkinu, þótt þeir að hinu leytinu neiti þeim biðjandi fátækl- ing á stundum um alla úrlausn, þó að hann hafi borgað fulla skuld fyrra árs. Eða hvað er eðlilegur „gjalddagi11, sem „Bóndinn11 talar um, ef ekki næsta kaup- tið eptir að lánið er tekið. En í stað þess, að gjöra sjer ljóst, hvað kaupstaðarskuldir eru, sem er þó aðalatriðið í málinu, þá ber bóndinn það blákalt fram, að tillögur “þ>jóðólfs“ hafi verið rangfærðar. Hann segir: ,,f>að stendur hvergi í „þ>jóð.“, að kaupmenn skuli ekki framar lána“. I 2. tbl. „þjóð- ólfs“ stendur þó það fyrsta þjóðráð bónd- ans, þannig orðað: „Kaupmenn semji við skiptamenn sína, að þeir hafi borg- að skuldir sínar við þá, innan 6 ára“. Er nokkur órugluð hugsun í þessum orðum, ef lán á að haldast ? Af því að ísafold hefir sagt, að skuldirnar aukist hjer vanalega í góðárunum, dregur „Bóndinn11 þá álykun, að „ekki sýnist. ómögulegt að losast við þær á 6 árum11. í þessa ályktun vantar nú það, að þau 6 ár, sem náðarfresturinn stendur, verði góð. En ráðið kemur nú fram þann 30. des. 1878, eptir ein þau bágustu ár, sem gengið hafa á suðurlandi. „Bónd- inn“ segir: „Að verzla hjer á landi án láns er flestum ómögulegt11; en hvaða afleiðing verður þá af því að borga skuldir á 6 árum ? Fyrir mörgum eng- in verzlan. f>að segir „Bóndi11, að hverj- um manni verði að þykja rjett og sann- gjörn viðskipti, að gjalda 5 af hundraði af þeim skuldum, sem safnazt hafa í skuldaverzluninni með fram af því, að verðið hefir verið hærra af því kaup- maðurinn hefir gjört ráð fyrir, að mik- ið mundi liggja arðlaust í ógreiddum útlánum, og sumt aldrei greiðast. En er þetta sanngjarnt? Minnkar þá skuld- in við það, þó að við hana bætist 5 af hundraði, og kennir reynslan það, að menn verði því áhugameiri um að borga skuldina, því hærri sem hún er? kenn- ir ekki reynslan það gagnstæða, að á- huginn að lúka skuldinni verður það minni því meira sem hún vex, og er það ekki að því leyti eðlilegt, að því hærri sem skuldin verður, því ómögu- legra verður mörgum að greiða hana? f>að er mjög óheppilegt af bóndanum, að vitna í þessu tilliti til Gránufjelags- ins ; þó Gránufjelagið væri fyrirmynd, sem annars ekki er mín skoðun, þá hefir það ekki tekið þá ákvörðun, að heimta 5 af hundraði, til að minnka skuldir% heldur af því, að eigendum hlutabrjef- anna hefir þótt það ranglátt, að sumir hefðu fje þeirra leigulaust ár eptir ár, og rýrðu með því leigu þá sem þeim ber. Eða er þá „Bóndanum11 eins annt um innstæðu útlendra kaupmanna, og Norðlingum um sín eigin hlutabrjef? En er nú þessi rentureikningur „Bónd- ans“ ekki í sjálfum sjer lokleysa, eins og verzlaninni nú er háttað? Hver á að tiltaka þann gjalddaga, sem „Bónd- inn“talarum? Náttúrlega kaupmaður- inn segir „Bóndi11. Og kaupmenn hafa optast haldið því fram, að gjalddagi hlutarins sje þegar hann er tekinn. Yerður það ekki dýrðlegur rentureikn- ingur hjá þeim, sem taka nálega sinn hlutinn hvern dag ársins? En það er næst að skilja, að „Bóndinn11 vilji hafa gjalddagann um nýjár. En hver borg- ar þá kaupmanni rentur af vörum til nýjárs, og hver borgar honum rentur af vörum, sem látnar er upp í skuldina, en liggja hjer eða ytra óseldar, ef hann ekki gjörir það sjálfur, þegar hann verð- leggur þær innlendu og útlendu vörur ? Með öðrum orðum: rentureikningurinn er lokleysa, nema á þeim vörum, sem eru óborgaðar árum saman, en hann er nýtt meðal til að þvinga bændur, og hefir engan annan árangur en að auðga kaupmenn, ef það er arður fyrir þá að skuldir landsbúa aukist. Bæði „f>jóðólfur“ og ísafold eru á því, að kaupstaðarskuldirnar þurfi að rnihnka. „Bóndinn11 hefir lagt það til, að kaupmenn heimti inn skuldir á 6 -árum, að þeir gjöri samtök um að lána eigi framar nema gegn brjeflegri skuld- bindingu, að þeir fastbindi að taka í leigu 5 af hundraði af skuldum, aðþeir þinglýsi öllum stærri skuldabrjefum, sjálfsagt á kostnað lántakanda. Með bezta vilja er ekki hægt að sjá, að í tillögum þessum liggi umhyggja fyrir öðrum en kaupmönnum, en vera má, að meiningin sje betri en orðin benda til. Isafold hefir aptur lagt það til, að jafnframt því að takmarka lánin verði kaupmenn að verzla sem bezt og hag- kvæmast fyrir landsbúa, að þeir hafi meiri peninga í verzlunum sínum, og að þeir hafi viðskiptabækur, svo bæði sjálfir þeir og viðskiptamenn þeirra geti vit- að nær sem er, hvað viðskiptunum líð- ur. þessar tillögur álítum við bænd- urnir skynsamlegar, og hlutdrægnis- lausar. Sje þessa eigi gætt, þá er hætt við að skuldirnar verði líkar, hvað sem öllum „samtökum11 og „skuldabrjefum11 og „rentum11 og „þinglýsingum11 líður. Ráðið til að minnka slculdirnar er ekki það, að kaupmenn kúgi bændur meira, heldur hitt, að þeir með góðum við- skiptum leiði þá til að vera áreiðan- legir viðskiptamenn, og gjöri þeim mögu- legt að vera það. Annar bóndi. "Vetrarvertíðin hjer innan flóa byrjaði, eins og lög gjöra ráð fyrir, með því, að þorskanet voru lögð í Leiru-og Garðsjó 14. marz; þó lögðu 8 skip út- lend og 1 innlent þorskanet 13. marz; þau voru öll úr Leirunni. Undir eins í fyrstu umvitjun voru nálega öll net full af fiski, þó enn frek- ara eptir því sem út á dró. þessi afli hjelzt allt til hins 22. s. m. þá gerði ofsaveður á vestan útsunnan, með stór- brimi. Hjeldust svo rok og umhleyp- ingar allt fram til mánaðamóta. Fóru menn þá að leita neta sinna, sumir árangurslaust að öllu leyti, en sumir fundu þau í stærri og smærri hnútum, fleiri og færri trossur saman, fullar af morknum fiski. Netatjónið var stórkost- legt, því sumir hafa aldrei fundið einn möskva af netum sínum. Eptir þessa um- hleypinga varð alveg fiskilaust í Garðs- og Leiru-sjó, og þótti það að líkindum, þar allur sjórinn úði og grúði af neta- hnútum, fullum af úldnum fiski, svo brákina lagði með föllunum, eins og lýsi hefði verið hellt í sjóinn. Eptir nærfellt hálfan mánuð fór þó að verða dálítið vart aptur í net í Garði og Leiru-sjó, en um sama leyti kom fiski- hlaup fram undan Vatnsleysuströnd, sem margir náðu í, einkanlega af Inn- Ströndinni. í Vogum og Njarðvíkum varð svo að segja enginn afli í net á grunni, og þykir það benda til þess, að netastappan og sá mikli skemmdi fiskur, sem i henni lá, hafi fælt allan fisk frá að ganga að sunnanverðu inn til Voga og Njarðvíkur, eins og líka það þykir fullsannað, að allur sá mikli fiskigrúi, sem var í Garðsjónum fram til 22. marz, hafi allur snúið aptur norð-

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.