Ísafold - 26.05.1880, Side 4
56
ur á málfundum út um land, enda og eigi
sparað það. |>að er almannarómur, að Glad-
stone sje meiri drengskapsmaður en hinn,
hvað sem öðrmn kostum þeirra líður hvors
um sig.
|>eir Granville og Hartington voru sjálf-
kjörnir fjelagar Gladstones í hið nýja ráða-
neyti. Granville tók að sjer forstöðu utan-
ríkismála, en Hartington gjörðist ráðherra
fyrir Indland. Granville hafði sama embætti
í ráðaneyti Gladstones fyrrum. Hartington
var hermálaráðherra 1863—1866. Hann er
ungur maður enn til þess að gjöra: rúml.
hálf-fimmtugur.
Ráðherrarnir eru 14 alls, og eru þessir
nafnkenndastir meðal hinna: Childers her-
málaráðherra; Northbrook lávarður, fyrrum
jarl á Indlandi, flotaráðherra; Harcourt,
innanríkisráðherra; John Bright; Argyll;
Chamberlain; Selborne.
f>að er eitt með öðru einkennilegt, er
ráðherraskipti verða á Englandi, að því fylgja
og mannaskipti í mörgum öðrum efstu em-
bættum ríkisins, eitthvað um 30, eða meir,
þar á meðal jafnvel yfirmenn í hirðliði drottn-
ingar, jafnt konur sem karlar; að öðrum kosti
þykir eigi fullrýmt fyrir þeim sem atkvæðum
stýra á þinginu, en þeir einir eiga lögum og
lofum að ráða, með því að sá er vilji almenn-
ings, að því er kosningar segja til. Sum
þessi embætti hefir nú Gladstone orðið að
láta af hendi við oddvita þeirrar sveitar í
hinum nýja meira hluta þingsins, er dýpst
tekur í árinni um rjettarbætur eptir kenning-
um mestu þjóðfrelsisgarpa, og sumir hverjir
hafa haldið því fram, að upp væri tekin á
Englandi regluleg þjóðvaldsstjórn, svo sem
frá Dilke, Mundella, Fawcett, o. fl. Og einn
þeirra, Chamberlain, hefir hann tekið í ráða-
neytið sjálft. Að öðrum kosti var viðþví bú-
ið, að sveit þessi mundi ganga undanmerkj-
um hans, en því mátti hann eigi við; enda
er og mælt, að skoðanir hans sjálfs muni
stefnaíeigi mjög ólíka átt. En hvorkiþeim,
og því síður honum, mun þó í huga að fara
að hreyfa við stjórnarskipun ríkisins að svo
komnu, og því þykir eigi mikið í húfi, þótt
þeim sje lofað að reyna sig 1 stjórnarsess-
inum.
Miklar spár ganga um það, hver áhrif
þessi umskipti á Englandi muni hafa á vand-
ræðamál álfunnar, austræna málið, og minn-
ast menn þess, er Gladstone varð að orði,
er sögur hárust af grimmdarverkum Tyrkja
við Bolgara og aðrar kristnar þjóðir á Balk-
ansskaga fyrir fám árum: að þá skyldi reka
yfir um Sæviðarsund aptur til fornra átthaga
sinna, og væri smán að slíku hundaþýði hjer
í álfu. En annað er um að tala, en í að kom-
ast; hann mun þá eigi hafa búizt við að til
sín mundi taka um að láta hug og hönd fylgja
máli. En þó mun hann naumast þykjast
mega kyrt láta, enda þarf eigi þess að geta,
að #allra augu til hans vona« þeirra er undir
áþján Tyrkja eiga að búa, eptir því sem hon-
um höfðu farizt orð, meðan eigi fylgdi þeim
ábyrgð sú, er völdunum er samfara.
f>að er tíðinda frá þýzkalandi, að Bis-
marck hefir nýlega gjört sig líklegan til að
skerða fornan og löghelgan tollfrelsisrjett
hins mikla kaupstaðar Hamborgar, og héfir
það mælzt mjög illa fyrir bæði þar og annar-
staðar um ríkið. Hamborgarmenn gerðu
honum það til skapraunar í móti að kjósa á
þing (ríkisþingið) einn af höfuðköppum jafn-
aðarmanna, Hartmann að nafni, með mikl-
um atkvæðafjölda. En það tiltæki ætlar að
verða þeim næsta lítil raunabót, því nú hefir
Bismarck á orði að setja borgina undir her-
stjórnarvald að nokkru leyti, eptir jafnaðar-
mannalögunum, með því að þingkosning
þessi sje órækur vottur um megna spilling
þar af kenningum jafnaðarmanna.
Stjórnarkröggur á Italíu. Ráðaneytið,
þeir Cairoli og hans fjelagar, varð undir í
einhverju áríðandi máli á þinginu, og baðst
því lausnar; en konungur gat engan fengið
færan til að standa fyrir nýrri stjóm, sakir
flokkadráttar á þinginu, og kaus því heldur
að rjiifa það og efna til nýrra kosninga.
Lengra er eigi komið því máli.
Sá heitir Arvid Passe, greifi, er formaður
gjörðist hins nýja ráðaneytis í Svíþjóð, og
var áður forseti í neðri deildþingsins. Hann
hefir verið oddviti bændaflokksins á þinginu
og þótt atkvæðamaður. Fyrirrennara hans,
de Geer, veitti þingið 18,ðD0 kr. í heiðurs-
eptirlaun; hafði líkað svo vel við hann í öðru
en landvarnarmáhnu.
Nú er »Vega« heim komin til Stockholms
með þá Nordenskiöld. f>ar urðu viðtökurnar
glæsilegri en nokkursstaðar annarsstaðar.
Tvö hundruð.skip sigldu í móti þeim og fylgdu
»Vega« til lægis,. og 50,000 inarma voru að-
komandi í Stockholm til að horfa á viðhöfn-
ina og fagna köppunum heim kómnum. Kon-
ungur flutti þeirn sjálfur fagnaðarkveðju í
veizlu, er hann hjelt þeim. — Hann gerði
Nordenskiöld að barún, og tók þá Palander,
Oscar Dickson og Siberiakoff í aðalsmanna-
tölu. f>eir Dickson og Siberiakoff höfðu gefið
til ferðarinnar stórfje, svo hundruðmn þús-
undum skipti, og konungur sjálfur slíkt hið
sama.
— Almenn fiskisýning í Berlín. Hófst 20.
f. m.; stendur til 20. júni. Danir þar með,
Norðmenn og Svíar, og fjöldi annara þjóða,
þar á meðal Kínverjar og Japansmenn.
— Afbragðs fiskiafli í Noregi á vetrarver-
tíðinni, sem nú er nýlegaúti. 1 fyrravarafl-
inn óvenju-mikill, en varð þó enn meiri nú
að tölunni til, sem sjá má á þessari skýrslu
um aflaupphæðina (tölu fiskjarins) í þremur
aðalveiðistöðunum.
1879: 1879:
Lofót.............. 30 milj. 31 milj.
Sunnmæri.......... 4& milj. 5| milj.
Norðmæri........... 2 milj. 4 milj.
En fiskurinn er nú í töluvert lægra verði
en í fyrra—gefið 3J kr. minna fyrir hundrað-
ið í Lofót í vetur að meðaltali og í annan stað
aðsókn að sjónum enn meiri, svo vertíðin
varð nú töluvert arðminni en í fyrra.
— Enskt herskip,»Atalanta« að nafni, með
300 námssveina, er kenna skyldi farmennsku,
er haldið að týnzt hafi í Atlanzhafi í vetur.
það lagði af stað frá Bermúda-eyjum seinast
í janúarmánuði, og siðan hefir ekkert til þess
spurzt.
— Lungnaveiki í nautum korn upp fyrir
skemmstuhjer á Fjóni á einumbæ, skammt
frá Odense. Var brugðið við þegar í stað og
skorin niður hver nautkind á bænurn, yfir 40,
svo og á næstu bæjum. Fannst þó eigi sýkin
nema í 4, er krufið var. Bannað var og harð-
lega aðflytja nokkra nautkind frá Fjónifyrst
um sinn.
— Nýlega varð hjer húsbruni í meira lagi,
á Christjánshöfn: kertasteypuhúsHolmblads
kaupmanns, með mörg hundruð þúsunda
pundum tólgar og kerta o. s. frv., og nam
skaðinn meira en milj. kr., en nær 100
! manna urðu atvinnulausir. f>að var um há-
| dag, að slysiðvarð. A 2 klukkustundum varð
allt að ösku, og mesta mildi, að veður stóð
frá bænum ; ella mundi eldurinn hafa orðið
óviðráðanlegur.
— Enska blaðið »Times« hefir eptir for-
manni Atlanzhafs-málþráðar-íje\a,gs. í Vest-
urheimi, hinum alkunna Cyrus Field, er kom
til Islands á þúsund ára hátíðinni 1874, að
ekki muni erfitt, að koma málþræði á yfir
Island,Færeyjar, Grænland, Canadao. s.frv.,
ef England, Frakkland, Holland, Belgía og
Norðurlönd vilji leggja fje til. þetta er trú-
legt, enda mun Vesturheims ekki við þurfa,
ef öll hin ríkin eru á eitt sátt í þessu efni.
Kaupst.aðarprísar í sumar. Kaup-
stjóri Gránufjelagsins og nokkrir kaupmenn
aðrir, þar á meðal einn eða fleiri sunnlenzk-
ir, kváðu hafa komið sjer saman á fundi í
Khöfn, um sumarmálin, um þetta verðlag á
útlendum vamingi í sumar :
Rúgur................. 200 pd á 21 kr.
Bankabygg.............— -------30 —
Baunir................—-------25 —
Kafli ................pundið - 95 aura
Kandis ....................... 50 —
Hvítt sykur..................... 50 —
Brennivín............. pott. 80-85 —
Rúginjöl.............. 200 pund 22£ kr.
Hrísgrjón............. pund. 15-18 aura
Rjól...............,...----- 1.50 kr.
Munntóbak................... 2.00 —
Jnugmannsefni. Oss er skrifað að
vestan, að ísfirðingar skori á landshöfðingj-
ann, að bjóða sig fram til kosningar til al-
þingis. Heyrzt hefir, að Húnvetningar óski
einnig að fá landshöfðingja' fyrir þingmann,
í stað Asgeirs Einarssonar, sem ekki mun
vilja bjóða sig fram eptirleiðis. Vjer göng-
um að því vísu, að landshöfðingi gefi kost á
sjer, á öðrum hvorum staðnmn.
LestiUijal dift fyrir árið 1879 hefir kom-
ið inn þannig: Kr. Aur.
Frá hinu ísl. ráðaneyti........... 7,878 »»
— utanríkisstjórninni........... 6,736 05
— Vestmannaeyjum................ 1,373 »»
— Reykjavík.....................14,576 »»
— Stykkishólmi.................. 1,348 »»
— ísafirði...................... 6,748 »»
— Akureyri...................... 5,388 »»
— Eskifirði..................... 2,904 »»
Samtals........ 46,891 05
f>ess utan var lestagjaldið af gufuskip-
unum Phönix og Díönu 7,156 kr., sem ekki
eru taldar hjer með, því lestagjaldið af póst-
skipunum er endurborgað eptir lögunum af 2.
jan. 1871 og rennur því ekki í landssjóðinn.
(i. E.)
Afli hefir allt til þessa verið hinn bezti
hjer syðra. Meðalhlutir við Faxaflóa
munu á vetrarvert. hafa verið 5—600, en
margir hafa meira, og einstaka maður
allt að lestarhlut. Selvogur hefir einn
orðið útundan, því í Vestmannaeyjum,
Grindavík og Höfnum aflaðist allvel
síðara hlut vertíðarinnar.
Auglýsingar.
Ýandaftar og fallegar gull- og silf-
ursmíðar með góðu verði, eru til sölu
hjá Kristmanni Jónssyni, er býr í húsi A-
munda Amundasonar á Hlíðarhúsastíg í
Reykjavik; sami maður smíðar einnig allt er
lýtur að íslenzkum skrautbúningi. Ef keypt
er fyrir 20 kr. íeinu og þar yfir, fæst 6/= afsl.
f>EIR SEM FENGIÐ HAFA 1. OG 2. ÁR-
^ang blaðsins »Framfara« gegnum útgefanda
Isafoldar, og enn ekki hafa borgað, eru beðn-
ir að greiða hið fyrsta andvirði þesstilamts-
skrifara Páls Jóhannessonar í Reykjavík.
Útgefandi: Björn Jónsson, cand. phil.
Prentuð í ísafoldar prentsmiðju.