Ísafold - 28.07.1881, Blaðsíða 4
76
presta, að sjá ekkjum sínum borgið með
fjárstyrk eptir sinn dag, og um stofnun
prestsekknasj., ásamt nefndarál. Nefnd-
in klofnaði. Meiri hl. (P. Pjeturss. og S.
Melsteð) rjeði til að samþykkja stj.frv.
með nokkrum breytingum, En minni
hl. (Ben. Kristj.) lagði til, að frv. væri
hafnað. M. Stephensen stakk upp á
nýrri gr. í stað fyrstu gr., og var hún
samþ. Að öðru leyti voru hinar einstöku
gr. frumv. samþykktar með breytingum
nefndarinnar. Vísað til 3. umr.—Við 3.
umr., 22. júlí, var frv. samþ. og sent n. d.
Á samafundi var fram haldið 1. umr.
um frv. til laga um sölu nokkurra þjóð-
jarða. Nefndin komst aðþeirri niðurst., að
ráða deild. frá, að samþ. frv. 1. umr. frest.
Á 13. fundi, 20. júli, var fram haldið
2. umr. um rannsókn og áteiknun skipa-
skjala. Nefndin rjeði frá, að samþ. frv.
Frumvarpið fjell frá 3. umræðu.
Sama dag : 1. umr. um bann gegn
niðurskurði á hákarli á Húnaflóa innan
línunnar milli Hornbjargs og Skagatáar.
Vís. til 2. umr,—Við 2. umr., 23. júlí, var
samþ. breytingartill., sem komið hafði
við málið, en við það var frv. sjálft fallið.
Vísað til 3. umr.
Sama dag : 1. umr. um löggild. verzl-
unarstaðar við Kolbeinsárós í Skagafirði
(frá neðri d.). Vísað til 2. umr.—Við 2.
umr.var frv.-greinin samþ. Vis.til3.umr.
Sama dag: 1. umr. um viðauka við
lög 27. febr. 1880 um eptirlaun presta:
Kapelánstíminn skyldi reiknaður með,
þegar eptirlaun presta eru ákveðin. (Frá
neðri d.). Vís. til 2. umr.—Fellt við 2. umr.
Á 14. fundi, 21. júlí kom til 1. umr.
frv. til laga um leiguburð af peninga-
láni (frá neðri deild). Vísað til 2. umr.
—Fellt við 2. umr., 23. júlí.
Sama dag: 1. umr. um leysing á sókn-
arbandi (frá neðri d.). Nefnd sett: Ben.
Kristj., St. Eir., P. Pjet. 1. umr. frestað.
Sama dag: 1. umr. um lög handa bæj-
arstjórninni á Akureyri. Nefnd: Einar
Ásm., M. St., Á. Thorst. 1. umr. frestað.
Sama dag: 1. umr. um löggild. verzl-
nnarstaðar á Hesteyri við Hesteyrarfjörð
innan ísafjarðarsýslu (frá neðri d.). Vís-
að til 2. umr. Við 2. umr., 23. júlí, var
frv.-greinin samþ., og vísað til 3. umr.
Sama dag : 1. umr. um upphafning
landlæknisembættisins og stofnun heil-
brigðisráðs í Reykjavík (frá neðri deild).
Vísað til 2. umr.—Við 2. umr., 23. júlí,
nefnd sett: M. St., S. Melst., Á. Thorst.
Á 15. fundi, 22. júlí, voru þessi mál rædd:
I. Frumv. til laga um borgun handa
hreppstj. og öðrum, sem hafðir eru til
að fremja rjettargjörðir. 3. umr. Frumv.
samþykkt og afgreitt til neðri deildar.
II. Frumv. um skyldu presta að sjá
ekkjum sínum borgið o. s. frv. 3. umr.
III. Frumv. um, að söfnuðirnir taki
að sjer umsjón og fjárhald kirkna, ef
þeir sjálfir óska. 2. umr. — Hinar ein-
stöku greinir frumv. samþ. með nokkr-
um breytingum. Visað til 3. umræðu.
Á 16. fundi, 23. júlí, var, auk þeirra
mála, sem þegar er getið, 1. umr. um
viðauka við lög 27. febr. 1880 um stjórn
safnaðarmála og skipun sóknarnefnda og
hjeraðsfunda.—Rjett er, að hjeraðsfund-
ur ákveði safnaðarfulltrúum 2 kr. í fæð-
ispeninga um hvern dag, er þeir verja
til að sækja hjeraðsfund. Fjenu skal
jafnað niður á allar sóknir prófastsdæm-
isins, en sóknarnefnd jafnar því aptur
niður innan sóknar á alla, sem atkvæð-
isrjett hafa á safnaðarfundi. (Frá Einari
Ásm., og Bened. Kristj.). Vís. til 2. umr.
— Varð höfuðlaust við 2. umr., 26. júlí.
þ>ví, sem eptir var, var vísað til 3. umr.
Á 17. fundi, 25. júlí, var fram haldið
1. umr. um þjóðjarðasölu. Vís. til 2. umr.
— Fyrir gestarjetti Reykjavíkur kaup-
staðar 26. þ. m. gerðist svo látandi sætt:
Við undirskrifaðir höfum gjört þá sætt
með okkur út af meiðyrðamálum þeim,
er okkar hafa verið á milli, að við lýs-
um sem ótöluð öll þau meiðandi orð,
er við höfum haft hvor um annan í
blöðunum, og kannast jeg Jón Olafs-
son við, að hafa gengið nær hr. dr.
Grími Thomsen, en hann mjer og játa
því, að hann hefir meira mjer að fyrir-
gefa en jeg honum. Erum við svo al-
sáttir af málum þessum oglátum allar
sakir niður falla.
Grímur Thomsen. Jón Olafsson.
Rjett eptirrit
vottar
E. Th. Jónassen.
PÓSTGUFUSKÍPIN
VALDEMAR OG ARCTURUS.
par eð nærri hafði viljað til slys á
síðustu ferð strandferðaskipsins af því,
að þeir, er höfðu fylgt, og flutt farþega
um borð, fóru of seint frá því, eru all-
ir þeir, er fiytja eða fylgja farþegum
um borð, alvarlega beðnir, að yfirgefa
skipið strax og búið er að blása með
gufuvjelinni í annað skipti.
Enn fremur tilkynnist hjer með hin-
um heiðruðu farþegum, er ferðast með
póstgufuskipunum, að þeir einungis
mega hafa í fari sínu fatnað, ferðaföt,
reiðtygi og annað því um líkt, er þeir
þurfa að hafa með sjer til ferðarinnar;
þar á móti mega þeir ekki hafa í fari
sínu fiskæti, ull, æðardún, smjör, tólg
eða annan varning. J>eir, er kunna að
koma með einhverjar þær vörur, sem
hjer erbannað að hafa með sjer, mega
búast við að því ekki verði veitt mót-
taka, jafnvel þótt viktin ekki nái 100 pd.
Vegna hins sameinaða gufuskipafjelags íKaupm.höfn.
Schoustrup.
J>akkarávar|). Seinast liðinn sumar-
dag hinn fyrsta gaf frú Guðrún Clausen
1 Stykkishólmi 100 kr. til útbýtingar
milli fátækra í Staðarsveit. J>essa höfð-
inglegu gjöf, sem og allar aðrar, er úr
sömu átt hafa komið, þakka jeg fyrir
hönd minna fátæku sveitunga.
Arnartungu, 14. dag júlímán. 1881.
Jón þorkelsson, oddviti.
Samskot til minnisvarða yfir Hallgr.
sál. Pjetursson, sem undirskrifaður hefir
veitt móttöku:
Ur Fells og Höfða sóknum, safn- Kr
að af síra Einari Jónssyni á Felli 22,00
Ur Viðvíkur sókn, safnað af síra
Páli Jónssyni í Viðvík . . . . 7,80
Úr Möðruvalla sókn, safn. af próf.
síra D. Guðmundssyni á Reistará 38,65
Úr Barðs og Holts sóknum, safn.
af síra Tómasi Bjarnasyni á Barði 25,54
Úr Knappsstaða sókn,. safn. af síra
Páli Tómassyni á Knappsstöðum 3,14
Úr Goðdala sókn, safnað af síra
Sófoníasi Halldórssyni á Goðdölum 19,18
Úr Hvanneyrar sókn. . . . . 55,15
Samtals 171,46
Siglufirði, 12. d. júlím. 1881.
Snorri Pdlsson.
AUG-LÝSINGAR.
AÐALFUNDUR fornleifafjelagsins
verður haldinn þriðjudag 2. ágústmán. í
þinghúsi Reykjavíkur kl. 5 e. m. Vara-
formaður fjelagsins Sigurður Vigfússon
skýrir í fyrirlestri frá rannsóknum sínum
í Dala- og Snæfellsness-sýslum; þar á
eptir verða lagðar fram skýrslur og
reikningar og ákveðið um störf fjelags-
ins O. S. frv. Reykjavík, 26. d. júlim. 1881.
A. Thorsteinson.
11. dag þ. m. hvarf hjeðan úr högum
rauður hestur, klárgengur, lítt affextur, nýl.
járnaður með sexboruðum dragstöppu-skeif-
um ; eyrnamark (eptir því sem jeg bezt fæ
munað) sýlt vinstra. Hesturinn er
uppalinn í Skagafirði, en hefir 4 vetur ver-
ið í Beykholtsdal en á sumrum í Digranesi
nál. Bvík; hann er 9 vetra gamall. Hvern,
sem finnur þennan hest, bið jeg vinsamlega
að koma honum til skila til mín móti borg-
un fyrir hirðing og fyrirhöfn.
f>ingv. við Oxará, 17. d. júlímán. 1881.
Jens Pálsson.
Beiðbeizli með koparstöngum, með ljóns-
mynd á kúlunum, fornu ólarhöfuðleðri og
kaðaltaumum týndist 25. júnf á mýrarbletti
norðanvert við götuna móts við Vilborgar-
keldu á Mosfellsheiði; beizli þessu umbiðst
skilað að Bfri-Beykjum í Biskupstungum
gegn fundarlaunum, af þeim er finna kynni.
Miklaholti, 19. júlí 1881.
Eiríkur Eiríksson.
Eptir næst liðna Jónsmessu hafa fund-
izt 2 reiðbeizli með koparstöngum í Fóellu-
vötnum, og geta rjettir eigendur vitjað þeirra
hjá Jóni Eiríkssyni á Mjósundi í Villinga-
holtshrepp gegn sanngjörnum fundarlaunum
og borgun þessarar auglýsingar.
WILLIAM JAMIESON
FISKIVEBZLUN í STÓBKAUPUM,
15, Pitts stræti í Liverpool, stofnsett 1821,
tekur að sjer að kaupa og selja í umboði
fyrir aðra (Commission) farma af salt-
fiski, löngu og ýsu frá Islandi og Færeyjum.
Banki: Liverpool Union banki.
Útgefandi: Björn Jönsson, cand. phil.
Prentuð í Isafoldar prenUmicju.