Ísafold - 13.05.1882, Blaðsíða 2

Ísafold - 13.05.1882, Blaðsíða 2
38 því til staðfestingar. Vjer íslendingar höf- um átt öðru að venjast að jafnaði en að oss væri valið af betri endanum, er svo er kallað, er oss skyldi miðla í embætti mönn- um af dönsku kyni, og eru raunar til þess ýmsar eðlilegar orsakir. þvf er vorkunn, þótt vjer sjeum ekki mjög auðtrúa á af- brigði frá þeirri tízku. En jeg þykist mega fullyrða, að til sje svo greinileg vissa, sem hægt er að hafa eptir atvikum fyrir því, að maður þessi sje í röð fremstu lækna hjer f landi á hans reki. Nú eru hjer í landi nær hundraðfalt fleiri læknar en á Islandi og allmargir þeirra afla sjer að afloknu embættisprófi ýmissrar kunnáttu í sinni mennt umfram það, sem háskólatilsögnin veitir, en þar við hafa íslenzkir læknar látið lenda til þessa, að svo má kalla, og það þeir, sem lengst hafa komizt. Samt sem áður er að vísu hugsanlegt, að einhver af þessum tuttugu íslenzku læknum komist jafnfætis þeim fáu af hundraðfalt fleiri læknum hjer, sem skara að mun fram úr öðrum. En það er ekki líklegt, og hlýtur að minnsta kosti að vera sjaldgæft, enda munum vjer ekki eiga því láni að fagna mi sem stendur, að læknum vorum alveg ó- löstuðum. Vjer eigum sem við er að búast ekki því að venjast, að oss bjóðist fyrirtaksmenn frá öðrum þjóðum, hvort heldur er í em- bætti eða aðra nytsama sýslu. En beri svo vel til, virðist mjer sjálfsagt að taka slíkum mönnum fegins hendi. Vjer höfum þar fyrir oss dæmi annara þjóða, er hefir vel gefist. Vjer þurfum þeirra við, mörg- um fremur, meðan vjer erum á því bersku- skeiði í mörgum hlutum, sem alkunnugt er að vjer erum enn. Að þjóðerni vort verði ofurliði borið af slíkum mönnum, ætla jeg að vjer munum ekki þurfa að bera kvíðboga fyrir. þeir munu ekki verða svo margir, og í annan stað ætti oss að vera vaxinn svo fiskur um hrygg, að vjer fáum staðist óþjóðemisleg áhrif þeirra, ef slíku væri að skipta. Að það mundi draga úr viðleitni íslenzkra læknaefna að afla sjer sem mestra framfara í sinni list, er þeir sæju, að útlendir menn væri látnir ganga fyrir í veglegasta og launa- mesta læknisembætti landsins, getur mjer ekki skilist. því að vafalaust má ganga að því visu, að íslenskir kandidatar muni eng- an veginn látnir sitja á hakanum fyrir dönsk- um að jöfnum kostum og hæfileikum. Hitt væri miklu fremur mesta skaðræði og sjálf- sagt niðurdrep allri verulegri framfaravið- leitni íslenzkra embættismannaefna, ef þeir væra jafnan látnir ganga fyrir þjóðernisins vegna eingöngu eða því nær, hvað sem liði öðrum hæfileikum þeirra. Festallir kannast við í orði kveðnu, að embættin sjeu ekki brauð, eða ekki eingöngu brauð, ekki eingöngu eða mestmegnis til þess gerð, að þeir sem búa sig undir þau, hafi eitthvað sjer til viðurlífis,—kannast við að embættin sjeu ekki til mannanna (em- bættismannaefnanna) vegna o. s. frv., held- ur þvert á móti. En mikið vantar á, að sú skoðun sje nægilega rótföst orðin í hugsun- arhætti almennings. þegar til kastanna kemur, verður að öllum jafnaði annað efst á baugi. þá eru höfð hausavíxl á hlutunum. þá er talað um, að sá eða sá sje maklegur brauðsins (embættisins), það sje gustuk að láta hann fá það, hann hafi gjört sjer vísa von um það, það sje hart að neita honum um það, hann eigi meira að segja jafnvel heimting á því og þar fram eptir götunum. þá er hinu gleymt, hvað embættinu er holl- ast eða þeim, sem embættisverkanna eiga að njóta, þjóðfjelaginu og einstökum mönn- um. þar fyrir hefir margur vanmetagripur- inn komizt í embætti er aldrei hefði átt þar að koma, og lafað þar von og úr viti, sjer og öðrum til minnkunar og skaðræðis. Nú fer því mjög fjarri, að hjer sje því að skipta, þar sem er hinn setti landlæknir, herra J. Jónassen. Varla mundi nokkur maðnr á íslandi hafa kallað landlæknisem- bættið vanskipað, þótt hann hefði hlotið það. En svo góðan málstað sem þar er að verja að því leyti til, stoðar ekki að bera fyrir sig, að hann hafi unnið til embættis- ins, það sje hart að láta hann ekki fá það o. s. frv., og ætlast til að hann sje svo lát- inn ganga fyrir færari manni, úr því að slík- ur bauðst. þetta vita allir raunar. En þó heyrist sjaldan svo minnst á þetta mál eða önnur því um llk, að ekki bregði fyrir slíkum ummælum og viðbárum. það er skaðræðishugsunarháttur, og ætti að fyrnast sem fyrst. Verði nokkur hartúti, sem kall- að er, þegar svo ber undir, sem hjer, þá eru til önnur ráð að bæta honum »ójöfnuðinn«. Khöfn, í apríl 1882. Björn Jónsson. — í 5. og 6. tbl. »ísafoldar« þ. á. er grein frá búfræðingi B. B., en hún er ekki um búfræði, heldur um vegagjörðir; jeg skal nú ekki til hlítar efa, að höfundurinn sje fær að skrifa um þetta efni; þó sýnist sumt í grein þessari skráð meira af góðum vilja en gildum mætti, enda sumar hug- myndirnar fljúga hátt, sem örin hjá Gunn- ari, en ekki hæfa eins vel; það er nú að vísu ekki gott að verja fje til að níða hina gömlu vegi, en hvað á landsstjórnin að gjöra, þegar þeir eru ófærir og verri en þeir voru fyrir hálfri öld, og það er óvinsælt og ekki fullt jafnrjetti, að eyða öllu fjenu ár- lega í litla kafla, í þeirri von, að allt verði gjört að akvegum, eða draga að leggja vegi, þangað til gufubáta-hugmynd höf. væri full- þroskuð í framkvæmdum. Enn með því þess yrði langt að bíða, að öll hjeruð landsins fengju bráðustu þörf sína bætta í þessu efni, þá neitar enginn, að hjer ber að fara svo skynsamlega sem unnt er; þess verður langt að bíða, að vegagjörð yfir Hellisheiði, Mosfellsheiði og fleiri heiðar verði óþarfar, eins og líka hins, að Skaptfellingar og Bangæingar og fleiri fái aðflutninga-þarfir sínar bættar með gufubátum, og alla tíð munu vetrar- póstferðir á landi verða nauðsynlegar. þegar um það er að ræða, að leggja upp- hleypta vegi, er margt af því, sem höf. segir rjett, enda alkunnugt, en aptur mun menn greina á um sumt, þar á meðal hvort rjettara sje, að krækja með vegi og leggja þá lágt einungis til þess, að þeir ekki sjeu of brattir fyrir æki; en eptir því sem vegir liggja lægra eða í meiri halla, er þeim hættara við meiri skemmdum af vatni, síga seinna á vorin og verða minna notaðir á vetrum. Eru þetta ekki ókostir ? Beynsl- an er þegar búin að sýna, að upphleyptir vegir hjer á suðurlandi þurfa allir meira eða minna viðhald, ofaníburð 2. og 3. hvort ár, einkum fyrstu árin. þá leggur hann það til, að hafa grasrót í hliðar veganna, þar sem vatnsrennslis er von; þetta getur nú átt við, þegar um góða stungu er að ræða, sjer í lagi þegar leggja skal veg yfir mýrar, en að öðru leyti tel jeg það hreina og beina ráðleysu1, að brúka ekki grjót al- staðar þar, sem það er til, ef jarðvegurinn er ekki blautur; steinninn er ávallt við hendina, þótt hann hrjóti út úr, en stígi hestur fæti á jarðbrúnir búfræðingsins, þá er meira eða minna úti um þær, eða mundi það hafa borgað sig að flytja nýtilega jörð upp í Hellisskarð og brúka það í hliðar vegarins í stað grjóts; þé segir höf. að eigi að bera kastmöl á undan algjörða ofan- íburðinum í miðjan veginn, f af breiddinni; hjer lendir hann sjálfur í því, sem hann varar við; það er ofmikilli sparsemi; hvernig fer, ef götur troðast utan við malarhrigginn og sprengja hliðarnar út, þegar vatn fer að standa í þeim, en ef að þessi möl er fáanleg eða á annað borð borin í, á hún að vera undir öllum veginum, því hjer er ekki hugsandi, að vegirnir verði ein- ungis brúkaðir fyrir æki, eða að allir ríði eða teymi miðjan veginn; líka er það bæði skynsamlegra og skemmtilegra, að reka en teyrna eða láta hvern hestinn draga annan. Neðanmáls í athugasemd segir höf., að vegurinn yfir Kamba á Hellisheiði sje mesta ómynd; þetta er harður dómur og sjergæðingslegur, þegar hann kemur frá þeim manni, er ekkert hefir fengist við vegastörf, enda vanta hjer allar ástæður; jeg verð nú að leyfa mjer að spyrja, hvern- ig átti að leggja veginn yfir Kamba, svo að hann væri ekki of brattur fyrir æki, en traustur og þó tilbærilega kostbær ? Atti að sneióa fyrir hæðina? það er gott að fá greinilega upplýsingu um þetta; þeir geta haft gagn af því, sem framvegis fást við vegagjörðir. Grjóta 8. apríl 1882. Eiríkur Asmundsson. Nokkur orð út af »Brjefi til Islendinga um lærða skól- ann frá Velvakanda og bræðrum hans«, rituð af Benedict Gröndal. Brjef þetta er eitt af hinum mörgu rit- um, er svo opt sjást á prenti nafnlaus, af því höfundurinn þorir ekki að nefna sig. Hann er ekki viss um, að hann hafi í raun og veru rjett fyrir sjer, en finnur samt hjá sjer heilaga skyldu til þess að taka það fram, sem honum finnst aðfinningavert. þetta er nú mikið gott, og rjett hugsað. En aðfinningin getur verið með ýmsu móti, og sjaldan hefir mikið á unnist með aðfinn- ingum, sem eru mjög ofsalegar. Höfundur brjefs þessa skyldi ekki láta sjer detta'í hug, að mjer fyrir mitt leyti hafi þótt eða þyki skólinn óaðfinnanlegur; en að rita slíka aðfinningu og þessi er, hefir mjer aldrei komið til hugar. Jeg ætla mjer ekki að reyna til að hrekja allt, sem höf. segir, því það get jeg ekki; en fyrir utan það, að brjefið er ritað í ofsalegum anda og í reiði, þá er það fullt af ósannindum og mótsögnum. það byrjar á því, að sjaldan hafi menn verið ánægðir með latínuskólann; en á næstu blaðsíðu stendur með fullum I) f>að er kunnugt, hvað lengi jarðgarðar standa hjer á suðurlandi, þó gripir ekki spori þá út, og hvað mundu slíkar jarðbrúnir þola úr ljelegri jörð, þar sem 200-300 af hrossum eru rekin af mörk- uðum.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.