Ísafold - 21.10.1882, Page 1
Árgangurinn, 32blöð, kostar
3 kr. innanlands, en í Danra.,
Svíþjóð og Norvegi um 3'/2
kr., i öðrum löndum 4 kr.
Borgist x júlím. innanlands,
erlendis fyrir fram.
ISAFOLD.
Auglýsingar kosta þetta
hver lína : aur>
illeni ímeð meginietri ... xo
[meo smaletn......... ö
ítWir.lmÍmeg:nletri"-15
Imeð smaletri...12
iiliHÍImiiiriúiMllihnilliiiiimliniilMimiliiiiunm^
f Pöntun er bindandi fyrir ár. — Uppsögn til áraskipta með tveggja mánaða fyrirvara.
IX 24.
Reykjavík, laugardaginn 21. októbermán.
18 8 2.
Útlendar frjettir.
Khöfn 9. okt. 1882.
Nú er til skarar skriðið með Bretum
og Egiptum. Höfuðorustan stóð 13.
sept., þar sem heitir Tel-el-Kebir, í
Gosen hinu forna, miðja vegu milli
Ismailia og Kairó. par hafði Arabi
búizt um allrammlega með meginher-
inn, 28000 manna. Wolseley setti
herbúðir kvöldinu fyrir fáeinar mílur
enskar austur þaðan, en vakti liðið
um miðja nótt og kom í dögun að
Egiptum óvörum. Hann hafði hálfu
færra lið en Arabi; en eptir rúman
fjórðung stundar. brast flótti í lið Egipta
og fjellu þeir unnvörpum innan virkja
sinna. Arabi komst undan til Kairó,
og fátt manna með honum. f>ar komu
Bretar þegar í hælana á honnm og
gekk borgin þeim á vald orustulaust
15. sept., en Arabi tekinn höndum.
Hann hafði eignað sjer sigur af hverj-
um fundi við Breta alla tíð áður og
látið það síðast spyrjast til Kairó, að
sín væri þangað von að ákveðnum
degi með höfuð þeirra Wolseley hers-
höfðingja og Seymours aðmíráls og
hinn mesta sæg hertekinna Englend-
inga. En er hann kom þar slyppur
og á flóttaferli, veitti lýðurinn honum
eptirför með grjótkasti og háðungar-
orðum. Nú bíður hann dóms og aðrir
oddvitar uppreistarmanna. Jarl vill hafa
líf hans, öðrum til viðvörunar; en
Bretar munu vilja láta þyrma honum.
Eptir þessar miklu og sviplegu ó-
farir Arabi fjellst öðrum uppreistar-
höfðingjum öllum hugur, og gáfust
upp orustulaust, hinn síðasti 23. sept.,
í Damietta. J>ar með var ófriðnum
lokið.
Arabi á að hafa haft alls um 60,000
vígra manna, en Bretar hálfu færra
eða þar um bil. Er mælt að fallið
muni hafa alls af Egiptum i ófriði
þessum 5000 manna, en af Bretum
300.
Tewfik jarl hjelt innreið sína íKairó
25. sept., við hönd Wolseley hershöfð-
ingja og í skjóli hins enska liðs. J>að
er ráðgert að 10 eða 12 þúsund manna
af Bretum muni verða þar eptir fyrst
um sinn að gæta friðar, ef á þarf að
halda. Hinn herinn er um það leyti
að halda af stað heim á leið.
Viktoría drottning hefir tekið þá
Seymour aðmírál og Wolseley hers-
höfðingja í lávarðatölu, í þakkar skyni
fyrir frammistöðu þeirra. J>jóðin himn-
um uppi af fögnuði yfir sigrinum, og
gengi Gladstones meira en nokkuru
sinni áður.
Aðrar þjóðir láta og vel yfir í orði
kveðnu. Vilja þó sumar leggja orð í
belg um tilhögun á endurskipun stjórn-
armála með Egiptum, einkum Frakkar.
En Bretar láta á sjer skilja, að þeir
hafi einir til þess unnið; hafa þó góð
orð um, að láta sem minnst haggað
því sem áður var og einskis rjett fyrir
borð borinn. Tyrkjasoldáns, lánar-
drottins Egiptajarls, er að litlu getið.
Hann hafði það fyrir dráttinn á sam-
komulaginu við Breta um atför að
Arabi, að þeir báðu hann heilan heima
sitja, er sigurinn var unnin. Sumir
eigna þó kænsku Dufferins lávarðar,
erindreka Breta í Miklagarði, að
samningurinn fórst fyrir.
Rússakeisari og drottning hans ferð-
uðust til Moskva í f. m., á gripasýn-
ing, sem þar hefir staðið í sumar, en
ekki til krýningar, svo sem sumir
hjeldu; er krýningunni nú algjörlega
frestað til næsta vors.
í Pressburg í Austurríki brá til of-
sókna við Gyðinga í f. m. seint, eins
og á Rússlandi í vor. Manntjón þó
lítið eða ekki.
Allra mesta stórtjón að vatnavöxtum
fyrir skömmu á Ítalíu norðanverðri og
í Týról og víðar um Austurríki. Jósef
keisari lagði einn í samskotasjóð til að
bæta úr þeirri neyð 150,000 kr.
Járnbrautarslys mikið varð i Baden
á J>ýzkalandi 3. sept., skammt frá Hug-
stetten; varð að bana 55 manns.
Enskur guðfræðingur einhver hinn
frægasti á þessari öld, Dr. Pusey að
nafni, andaðist 16. sept., á 83. ári.
Kosið til landsþingsins hjer í Dan-
mörku að helmingi 30. septbr., þar á
meðal í Khöfn. J>ær fóru svo, að
liðsafli flokkanna varð samur eptir i
sem áður, eða rjettara sagt að hægri-
menn hjeldu velli, þótt tæpt stæði
sumstaðar í kjörmanna-kosningunum,
sem fóru fram 6. sept., einkum í 5.
kjördæmi hjer í Höfn: sárlítill at-
kvæðamunur og hann ef til vill ólögum
að kenna. Kjörstjórnin hafði smeygt
sjer á bug við kosningarlögin í því
skyni, að því er sýnilegt var, að meina
verkmannafólki að neyta kosningar-
rjettar síns: meðal annars kjörfundi
slitið fyrirvaralaust í þeirri andránni,
er verkmanna var von frá vinnu sinni
um kvöldið. Lögbrigðin voru kærð
fyrir landsþinginu, en það gerði kosn-
inguna gilda jafnt sem áður. J>ing
var sett 2. oktbr. Fjárlög nýlögð
fram, með engum misklíðarefnum að
sagt er.
Til síra Sig. B. Sivertsen
á Utskálum.
Harðnar nú á hólmi, .
hetjan elliprúða,
syrtir fyrir sjónum,
sjer-at blindur vega;
horfinn er hjálmurinn skæri,
höggvin var áður brynjan
svo að hneit við hjarta
heljarvigurinn sári.
Grimmlega Föbus forðum
fletti kappan griska,
er hjálmhvikur Hektor
hersvein Akkils felldi.
Hvort mun nornin níðast
nú á elli þinni
grimmilegar en guðinn
gjörði á ungri hetju ?
Eflaust svo ef ættir
engin vopn nje hlífar,
yndislaus í elli,
utan af þessum heimi.
Gamli, hrausti hersveinn
herrans máttar orða,
guð hefir girt þig sverði,
gleymdu því ei í dauða.
Halt sem hetjan frá Bjargi
höndum um meðalkaflann
greyptum í gegnum dauðann
með guðshetju krapti.
Sjá þú í gegnum sortann
hve sólfagur lýsti
brandurinn Drottins breiði
brautir langrar æfi.
Sjá þig í gegnum sortann
sjálfan í æskumóði:
lofaðu Guð, sem ljeði
þjer leiptrandi vopnin;
sástú ei fjendur fölna,
fækka tár á hvörmum,
bölsærð brjóstin huggast,
brosandi guðsmenn deyja?