Ísafold - 14.03.1883, Blaðsíða 4

Ísafold - 14.03.1883, Blaðsíða 4
24 Áskorun. |>að hefir lengi viðgengizt að ull hefir verið i lágu verði hjá oss, en þó hefir hún nú á seinustu árum heldur farið lækkandi og hefur þó ekki neinna upplýsinga verið leit- að um, hvernig koma mætti í veg fyrir það, og er það furða að ekkert skuli vera talað um jafn mikilvægt málefni; kaupmenn þeir er ár eptir ár verzla með ull gætu þó að lík- indum gefið einhverja leiðbeiningar viðvíkj- andi ullarverkuninni, en það virðist sem þeir gefi því ekki mikinn gaum. Isafold (no. 12 f. á.) hefir orðið fyrst til að vekja máls á þessu, og er þar sýnt fram á að reynandi væri að þvo ullina ekki, en kaup- menn þegja samt sem áður, og vitum vjer því ekki hvort til nokkurs er að bjóða þeim óþvegna ull; nú sökum þess að oss finnst tilfinnanlegt hvað htið verð vjer fáum fyrir ullina, þá skorum við því hjer með á alla þá kaupmenn, sem ull ætla að kaupa á næstkomandi kauptíð, að segja oss hvort þeir muni kaupa óþvegna vorull, en ef ekki það, þá að gefa oss upplýsingar um hvernig vjer eigum að verka ullina, til þess að geta vonast eptir að fá meira verð fyrir hana með tímanum. 20. febr. 1883. Nokkrir bændur í Mjrasýslu. Fyrirspurn. Hjerna um daginn leitaði jeg mjer lækninga hjá nýja landlækninum og talaði við hann að eins fá orð. Hann skrifaði handa mjer recept og sagði það kostaði i kr.; jeg galt hana. Jeg verð að segja það, að mjer sárnaði við hann að hann skyldi heimta af mjer i kr., maðurinn sem sagt er að hafi um 5 þúsund krónu laun úr landssjóði. Er ekki þessi maður skyldur til að hlýða lögunum sem sett voru hjerna um árið? þ>ar stendur : „Hver sem leitar ráða til læknis heima hjá honum skal gjalda 2 5aura“—en ekkil krónu. þegar land- læknirinn hefir svona mikið í laun um árið, sýnist það líttþolandi að lagður sje einnar krónu skattur á hvern þann mann, sem leitar ráða til hans heima hjá hon- um. Almenningur er þessu sizt vanur hjer á landi. þessum fáu línum bið jeg yður herra ritstjóri að ljá rúm í blaði yðar, og væri mjer þökk á að þjer frædduð almenning um, hvort þessi læknir sje ekki skyldugur til að fylga taxtanum. Fátækur sjúklingur. * * * Með því vjer vitum til, að umtal hefur verið um það efni, sem átt er við í fyrirspurn þessari, þá höfum vjer viljað verða við greindri áskorun að taka hana upp í blaðið. En að hvað miklu leyti landlæknirinn, sem eigihefur neina lagaskyldu til aðgegnahjer- aðslæknisstörfum, sje skyldur að taka að eins ákveðna borgun fyrir læknisstörf sin, látum vjer ósagt. Bitst. f Sigurður hjeraðslæknir Ólafsson, Skjótur varstu, vinur, og vaskur í för; loganum var líkast. þitt hfs og sálar fjör. Eðli þorvalds ættar þú áttir svo ljóst: allt var orð og hugur en elskulegt brjóst. Góðar voru gáfur, og glaðlyndið stakt; þú varst ör en aldrei varð illt um þig sagt. Skjótur varstu, vinur, að vitja manns í neyð, fáir hafa fjörugar fáki rennt á skeið. Einn var þjer skjótari á skapa þinna leið, það var hann—það var hann sem heljar fáknum reið. Fjellstu þá til foldar, hinn frækni vinur minn, Guð sje þeim nærri sem gráta missi þinn. Gleymið eigi, fjörmenn, sem fleygist yfir grund: að fara fram lir öllum þarf feigðin htla stund. Matthias Jochumson. Auglýsingar. Medicinal ægte Tokayer (M.3269). (den mest nærende og styrkende Vin) samt mine övrige allerede i 17 Aar til Norden direkte im- portede ungarske röde, hvide og Dessert- vine anbefales og garanteres med mit Navn i Lakken: J. Bauer, Tordenskjoldsgade 19. Kjöbenhavn K. M. L. Möller & Meyer Grotliersgatle JYá 8 i Kjöbenliavn anbefaler alle Husholdnings- og Deli- katesse-Varer; Farvevarer, Spirituosa, som Rom, Cognac og Banco; — Apo- thekervarer. Andre Varer besörges uden Avance. Priskurant tilsendes franco. (M. 7401). Umburðarbrjef og kort yfir Kauðárdalinn (á íslenzku og dönsku) verða send og borgað undir með póstum til Islands hverjum, sem sendir utanáskript til sín eða vina sinna til A. E. Johnson, Com. of Emgr., St. P., M. & M. K. R. St. Paul. Minn. America. Eyrri ársfundur búnaðarfjelags suður- amtsins verður haldinn miðvikudaginn 21. dag þessa mánaðar kl. 12 (á hádegi), í prestaskólahúsinu hjer í bænum; verður þá lagður fram reikningur fjelagsins fyrir síð- asta árið, skýrt frá aðgjörðum fjelagsins hið liðna ár, og rætt um, hvað gjöra skuli á þessu ári. Reykjavík 9. d. marzm. 1883. H. Kr. Friðriksson. Ár 1883, þriðjudaginn 17. apríl næstkom- andi, kl. 11. f. m., verður í Reykjavík hald- innn AÐALFUNDUR í hinu sunnlenzka síldveiðafjelagi. Auglýst mun verða á fullnægjandi hátt og tímanlega, í hvaða húsi fundurinn verður haldinn. Uppá- stungur til breytinga á lögunum munu, ef til vill, verða bornar upp af fjelagsstjórn- inni eða einhverjum hennar. Reykjavík 9. marz 1883. Fjelagsstjórnin. Thorvaldsensfjelagið hefur í hyggju að halda ókeypis sauma- og prjónaskóla fyrir fátæk stúlkubörn frá 1. apríl til 1. júli 2 tíma á dag frá kl. 5—7 eptir miðjan dag; börnin mega eigi vera yngri en 8 ára og eigi eldri en 14 ára. þeir, sem vilja sæta þessu boði, geta snúið sjer til einhverrar af oss undirskrifuðum innan 24. marz. þess skal getið, að skólinn verður því að eins haldinn, að 24 stúlkubörn gefi sig fram. E. Sveinsson. E. Stephensen. L. Bernhöft. C. jónassen. p. Jónassen. Lýsing á kúfforti. Með strandgufuskipinu »Romny«, sem fór frá Akureyri 13. septbr. næstliðinn 1882 ferðaðist til Stykkishólms Steinunn Jakobs- dóttir frá Sauðafelli í Dölum. þegar til Stykkishólms kom vantaði hana blámálað kúffort járnbent með klyfsöðulskengjum. Kúffortið var merkt: »Steinunn Jakobs- dóttir, Passager Gods, Stykkishólm«. Skip- ið kom í þessari suðurleið á þessa staði: Siglufjörð, Sauðárkrók, Skagaströnd,Blöndu- ós, Isafjörð, Onundarfjörð, Dýrafjörð, Pat- reksfjörð, Stykkishólm og þaðan til Reykja- víkur. Skipsafgreiðslumennirnir á öllum þessum stöðum umbiðjast vinsamlega að grennslast eptir, hvort kúffortið muni ekki hafa farið 1 ógáti upp á einhverjum þessara staða. Póstmeistarinn í Reykjavík umbiðst líka að komast eptir, hvort kúffort þetta muni ekki hafa farið með skipinu til Kaup- mannahafnar. Hvar sem kúffortið kynni að koma fyrir, óska jeg að mjer undirskrif- uðum sje gjört aðvart um það og kúffortinu síðan komið með fyrstu skipsferð í vor til Stykkishólms og afhent lyfsala E. Möller. 1 kúffortinu var talsvert af kvennfatnaði, nokkuð af karlmannsfötum og mikið af bókum, þar á meðal fyrirlestrar frá Möðru- vallaskóla. Sauðafelli 14. febrúar 1883. jakob Guðmundsson. Síðastliðið sumar, missti jeg þá einu kú sem jeg átti, þá uppvakti Guð kærleiks ríka og hjartagóða menn, til að styrkja mig að geta eignazt kú aptur sem fyrst. Sá sem var hvatamaður að því, signor Jón Kristjánsson á Skógarkoti, gaf mjer 10 kr. og lánaði mjer 30 kr., bóndinn Ásmundur Eiriksson sama staðar, 2 kr. Vinnumaður Jón þórðar- son 3 kr. Ingibjörg Andrjesdóttir 2 kr. María Jónsdóttir, 2 kr. Hannes Guð- mundsson óðalsbóndi á Miðfelli 5 kr. Ást- ríður Guðmundsdóttir sama bæ 2 kr. Ey- vindur Jónsson vinnumaður á Kárastöðum 2 kr. Hallmundur Eiríksson Gjábakka 2 kr. þetta votta jeg hjer með opinberlega af innsta hjartans þakklæti gefendunum til verðugs lofs og heiðurs og öðrum til fyrir- myndar og bið góðan guð að launa þeim er þeim liggur á. Ritað í janúarm. 1883. Einar Einarsson Mjóanesi. Útgefandi: Björn Jónsson, cand. phil. Ritstjóri: Eiríkur Briem. Prentuð í ísafoldar prentsmiðju.-Sigm. Guðmundsson.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.