Ísafold - 30.06.1883, Page 3
51
Iimlendar frjettir.
Alþingismaður kosinn í Dalasýslu 29.
mai síra Takob Guðmundsson á Sauða-
felli.
Bergur Thorberg amtmaður heldur
þilígsetu sem konungkjörinn, þótt hann
sje settur landshöfðingi.
Seytjánda læknishjerað, Vestur-
skaptafellssýsla, var veitt 28. apríl
læknaskólakand. Ásgeiri Blöndal.
Öðru iæknishjeraði, Gullbringusýslu,
þjónar frá 1. júní læknaskólakandídat
J>órður Thoroddsen, með því að
þ>órði Guðmundsen var veitt lausn
frá því embætti 17. maí.
Sira Lárusi Halldórssyni á Valþjófs-
stað veitt lausn frá prófastsembætti í
Norðurmúlasýslu 25. maí, og frá prest-
skap 15. júni, af stjórnarherranum.
Síra Jón Jónsson á Hofi í Vopnafirði
settur prófastur í Norðurmúlasýslu 25.
maí.
Síra Páll Ólafsson á Prestsbakka
settur prófastur í Strandasýslu 1. júní.
Sira Stefáni J>orvaldssyni í Stafholti
veitt lausn eptir beiðni frá prófasts-
embætti í Mýrasýslu 30. maí.
Sira Magnús Andrjesson.á^Gilsbakka
settur prófastur í Mýresýslu 30. maí.
Síra Einari Vernharðssyni á Stað í
Grunnavík veitt lausn frá embætti 17.
maí frá fardögum með 370 kr. eptir-
launum.
Benedikt Gröndal, kennara við lat-
ínuskólann, veitt lausn frá embætti 13.
apríl með fullum eptirlaunum (800 kr,).
X Hæstirjettur dæmdi 8. maí H. Th. A.
Thomsen kaupmann í Reykjavík í 10
kr. sekt og málskostnað fyrir þver-
girðingar hans í Elliðaánum, en sýkn-
aði hann sama dag af kærum land-
stjórnarinnar fyrir að hafa of mjótt
milli þverrimla í laxakistum sínum,
með því að eigi verði álitið, að 9 þuml-
unga lax geti ekki smogið þar í gegn.
Thomsen kaupmaður kvað hafa farið
fram á við stjórnarherrann, að hann
fengi skaðabætur úr landssjóði fyrir
veiðimissi í Elliðaánum vegna þver-
girðingabannsins, 60 af hundraði af
meðaltali veiðinnar hin síðustu fimm
ár; en stjórnarherrann svarað, að hann
eigi ekkert tilkall til slíkra skaðabóta.
Veðrátta mjög hörð í maímánuði víð-
ast um land, með frosti og hríðum
nyrðra að öðru hvoru. Brá til batnað-
ar fyrstu dagana af júnímánuði, og lifn-
aði þá gróður all-fljótt, einkum nyrðra.
Um miðjan mánuðinn rak hafís að Horn-
ströndum og var kominn 24. nær inn í
botn á Húnaflóa, og náði austur undir
Grímsey hið ytra.
Fjenaðarhöld góð um alltland; sauð-
burður jafnvel í bezta lagi í sumum
sveitum nyrðra.
Fiskiafli lítill sem enginn hjer við
Faxaflóa um þessar mundir ; í lakara
• meðallagi við ísafjarðardjúp í vor og í
vetur; hlaðafli á Eyjafirði, er síðast
frjettist, um miðjan þennan mánuð, og
góður afli að byrja víðar nyrðra; á Vest-
mannaeyjum enginn. Á Eyjafirði fengn-
ar 2000 tunnur af síld, en eystra ekki
nema 2500 tunnur á Fáskrúðsfirði
snemma í vor.
Saltfisksverð hjer syðra 70 kr. skip-
pundið ; lýsi 50 kr. ; ull nyrða 70 a.
Bátur fórst frá Vestmannaeyjum 18.
júní með 5 mönnum í fiskiróðri í logni
skammt frá landi. Haldið að stórfiskur
hafi grandað. Fannst lík eins manns-
ins í bátnum, hinna ekki.
Tvö hákarlaþilskip frá Eyjafirði talin
frá, Elín og Hermóður, með 10—11
manna hvert.
Camoens hlekktist á við Hornstrand-
ir 23, júní. Var á leið norður fyrirland
frá Rvík með 84 vesturfara, eptir 8—900
í viðbót á 6 höfnum nyrðra og eystra. Hitti
fyrir hafís við Horn, komst gegnum
hroða inn fyrir Reykjarfjörð, varð að
snúa þar aptur, af því að þar var fyrir
samföst spöng, en laskaðist af jökum
fram undan Trjekyllisvík og hleypti
þar á land. Höfðu höggvist tvö göt á
síðuna sitt hvoru megin að framan.
Náði íandi í smárri möl fjórðung stund-
ar eptir, sigið þá um 2fet. Fólkallt
óskemmt á land. Ekki vonlaust um að
bæta megi svo, að skipinu verði fleytt
tómu til hafnar hingað til Rvíkur og
kannske lengra. Skrifað hjeðan til
Skotlands eptir öðru skipi í staðinn með
franska herskipinu öðru í fyrra dag, en
Coghill segir því ekki muni verða hætt
norður fyrir land fyr en í ágústmán-
uði.
Laura, strandferðaskipið, varð að snúa
aptur við Horn vegna hafíssins og aust-
ur fyrir land 18. júní, kom hingað til
Rvíkur 22., fór hjeðan til ísafjarðar og
vesturhafnanna og kom aptur hingað
V-
Embættispróf i lögum við háskólann
tók 31. maí Björn Bjarnarson með 2.
einkunn, 7. júní Páll Briem með 2.
eink., 12. júní Jóhannes Ólafsson með
1. eink., og 13. júní John Finsen með
1. eink., en 14. júní Geir Zoega í máj-
fræði með 2. einkunn.
Próf í forspjallsvísindum á presta-
skólanum 27. júní: Árni Jónsson, Krist-
inn Daníelsson og Jón Sveinsson, allir
ágætl.H-; Stefán Jónsson dáveln-; Hall-
dór Bjarnarson vel-f; Pjetur J>orsteins-
son vel; Bjarni þórarinsson vel
Síra Bjarni Sigvaldason á Stað í
Steingrímsfirði andaðist 17. maí.
Með póstskipinu Romny komu hingað frá
Khöfn 25. júní: Alexander Baumgarten, svissnesk-
ur prestur og rithöfundur; Björn Bjarnarson cand.
jur.; Björn Jónsson ritstjóri með konu og börnum;
Bærentsen kaupm. frá Skagaströnd; Elín Briem
frá Reynistað ; Fischer stórkaupmaður ; barón A.
v. Geyr, þýzkur prestur ; Halldóra Vigfúsdóttir frá
Ketilsstöðum; Jóhannes Ólafsson cand. jur.; Jón
Magnússon stúdent; Nielsen skipstjóri frá Túns-
bergi; Ólöf Sigurðardóttir frá Rvík; Páll Briem
cand. juris ; Sigríður Jónassen frá Rvík; Sigríður
Jónsdótttir frá Rvík; frú Voss trá Khöfn ; greifiMax
Waldburg zu Wolfegg; Zöylner stórkaupmaður og
bæjarfullltrúi í Khöfn; pórunn Thorsteinson frá
Rvík. Og frá Englandi Gunnlaugur Briem alþingis
maður og verzlunarstjóri.
Hitt og þetta.
Hvað kostar að brenna Lundúnaborg ?
f>ví hefir O’Donovan Rossa, hinn þjóðræmdi bylt-
ingapostuli íra í Ameríku, svarað í brjefi til blaðs-
ins Tribune í New-York. Reikningurinn er þann-
ig: Farbrjef handa IOOO trum frá Ameríku til
Lundúna 6 pd. sterl. á mann, samtals 6000 pd. st. ;
gisting þar eina nótt samtals 250 pd; Iooo öskjur
af brennisteinsspítum I pd.; farbrjef heim aptur —
eptir að búið er að kv'eikja í 1000 rúmum—önnur
Óooopd.; skotsilfur handa 1000 mönnum meðan þeir
dvelja í Lúndúnum 5 pd. hverjum, samtals hboo pd.
|>etta verður alls 17250 pd. st. eða hjer um bil
310,000 kr. „f>etta fje mundi“, segir Rossa, „vera
nægilegt til að gjöreyða Lundúnum, mestu borg i
heimi, koma Englandi á knje og hjálpa oss til að
frelsa bræður vora á Trlandi. Ætli f>jóðfrelsisfje-
lagið mundi ekki geta útvegað þetta fje ?“ Blaðið
bætir við þessari athugasemd: „O’Donovan Rossa
gleymir því, að bræðrum vorum væri innan hand-
ar að sæta sama færi og stinga á sig kostgripum og
gersimum Englendinga, er þeir flýðu úr brunanum,
og mundu þá ekki einungis fá kostnað og fyrir-
höfú endurgoldna, heldur jafnvel ábatast á fyrir-
tækinu að góðum mun“.
Auglýsingar.
ísafold mun verffa látin koma
opt út um pingtímann í sumar, líklega
á hverri viku, 'eý auðiff er.
Brúkuft íslcnzk frímcrki óskast
keypt fyrir peninga. Llvort mikið eða
lítið er sent, þá verður við því tekið og
borgunin send aptur með næsta pósti.
Utanáskript: Dawson & Co, 36 Haworth
Str. Cheetham, Manchester England.
Alls konar frímerki keypt og seld,
Agentum er óskað eptir. (C. 397).
Áskorun.
Á fundinum að Hraungerði 19. þ. m.
varð jeg þess vfs, að sýslunefnd Ár-
nessýslu hefði á síðasta fundi sínum
samið 2 bænarskrár til alþingis, nl. 1.
um hið alkunna brúarmál (brýrnar), 2.
um fjárframlag úr landssjóði til sýslu-
skóla á Eyrarbakka. Sumir heiðraðir
sýslunefndarmenn, sem á fundinum
voru, gátu þess, að það hefði verið
meining nefndarinnar, að bænarskrár
þessar gengju til þingmanna hjeraðs-
ins; nú kom ekkert slíkt skjal fram á
fundinum og mjer hafa ekki heldfir
verið þau send.
Skora jeg því hjer með á oddvita
sýslunefndarinnar f Árnessýslu að senda
okkur þingmönnum sýslunnar hinar
ofannefndu bænarskrár með öllum þeim
fylgiskjölum, er málunum gæti tilheyrt
og hjá honum væru. Sjerstaklega skal
jeg taka það fram, að álitsskjöl hrepps-
nefndanna í skólamálinn, ef þau eru
til, ekki gleymist.
Hvammkoti 25. júní 1883.
þorlákur Guðmundsson.